Morgunblaðið - 22.06.1991, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 22.06.1991, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1991 i' M 0 RG Ú N BLAll)! E)' JIAÍJG Á RÐ A GBTR/22 i ’ JÚNÍIQ Ö'91 a 2i Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakurh.f., Reykjavík Flaraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið. Nýmæli á vinnumarkaði Nokkrar deilur hafa sprottið af samkomulagi sex verka- lýðsfélaga á Suðurnesjum og Atlantal-hópsins um meginregl- ur í væntanlegri samningagerð um kaup og kjör í álverinu á Keilisnesi. í samkomulaginu eru nokkur nýmæli frá því sem tíðkazt hefur á íslenzkum vinnu- markaði. Ramminn, sem mótað- ur er um samskipti samningsað- ila, gildir í 25-35 ár eða jafn- lengi og aðalsamningurinn milli Atlantál hf. og ríkisins um starf- rækslu álversins. Þá mun fyrsti kjarasamningurinn, sem samið verður um síðar, gilda í fimm ár og skuldbinda verkalýðsfélög- in sig til þess að grípa hvorki til verkfalla né annarra aðgerða, sem raskað gætu starfsemi ál- versins, þann tíma og fyrirtækið til að grípa ekki til verkbanns. Atkvæðagreiðsla um kjarasamn- ing fer fram sameiginlega hjá öllum verkalýðsfélögunum og loks má nefna, að fyrirtækið mun sjálft hafa forustu um alla kjara- samninga. Breyting á því ákvæði getur aðeins farið fram með sam- komulagi við verkalýðsfélögin. Augljóst er, að samkomulagið mun skapa festu og stöðugleika í rekstri álversins og ef að líkum lætur mun það verða báðum aðil- um til hagsbóta. Það er óþekkt á íslenzkum vinnumarkaði, að samið sé til svo langs tíma. Það hefur lengi verið vandamál, hversu skamman tíma kjara- samningar gilda yfirleitt og vald- ið margs konar erfiðleikum við rekstur fyrirtækja, gert þeim erfitt fyrir með áætlanir og skipulagningu fram í tímann, jafnframt því sem öll hagstjórn í landinu hefur orðið valtari. Sameiginleg atkvæðagreiðsla margra verkalýðsfélaga um kja- rasamning hefur einnig úrslita- þýðingu fyrir stöðugleika í rekstri. Allir þekkja það ástand sem ríkti, þegar verkfall eftir verkfall beindist gegn sama fyr- irtækinu og hvert stéttarfélagið tók við af öðru. Slíkt ástand hlýt- ur að leiða til dauða fyrirtækja og atvinnumissis launþega. Suð- urnesjafélögin hafa sameiginlega ákveðið, að það sé umbjóðendum þeirra fyrir beztu að þau semji öll sem eitt. Þeirra bíður að vísu það erfiða verkefni að semja um launahlutföll innbyrðis. í raun er hér verið að gera einn vinnu- staðasamning, en ýmsir hafa tal- ið, að í þess konar samningum felist framtíðin á vinnumarkaði. Vinnuveitendur muni vilja greiða hærri laun en ella, því aukin festa og stöðugleiki skili arði, sem starfsfólk arðbærra atvinnu- greina og fyrirtækja muni njóta. Vinnustaðasamningar komi í stað lágmarkssamninga, sem taki mið af verst settu atvinnu- greinunum. Bent hefur verið á, að einn kostur við vinnustaða- samninga sé sá, að þeir muni leiða í ljós, hvar skórinn kreppir í íslenzku atvinnulífi. Samkeppn- in um vinnuaflið muni neyða illa rekin og óarðbær fyrirtæki til að endurskipuleggja reksturinn svo að þeim haldist á starfsfólki. Verkföll eru úrelt fyrirbrigði, sem eiga að heyra sögunni til. Það leiðir af sjálfu sér, að fyrir- tæki, sem verður að þola verk- fall, er verr í stakk búið til að bæta kjör starfsfólksins en ella. Það hlýtur að vera hægt fyrir vinnuveitendur og launþega að finna betri leið í nútímaþjóðfélagi til að ná samningum en beitingu verkfalls og verkbanns. Ef til vill er vinnustaðasamningur, sem verkalýðsfélögin á Suðurnesjum og Atlantál hf. stefna að, væn- legur áfangi á þeirri leið. Forustumenn Vinnuveitenda- sambandsins hafa gagnrýnt, að verkalýðsfélögin á Suðurnesjum hafi þrýst á það, að Atlantál hf. verði utan þess. Suðurnesjamenn hafa vísað því á bug, að þeir hafi krafízt þess að Atlantál hf. verði ekki í VSÍ, en viðurkenna að þeir hafi viljað að fyrirtækið semdi sjálft. Þá hafa forustu- menn VSÍ mótmælt því, að út- lendu fyrirtæki standi til boða aðrir og betri samningar en á vinnumarkaði hér. Að sjálfsögðu eiga einstakl- ingar og fyrirtæki að hafa fullt frelsi til að velja og hafna félaga- aðild. Það gildir líka um aðild að verkalýðsfélögum og samtök- um vinnuveitenda. Hins vegar er skiljanlegt, að VSÍ vilji ekki að útlendingum standi til boða betri samningar en íslendingum. En er nokkuð í Suðurnesjasamn- ingunum sem bannar íslenzkum vinnuveitendum og verkalýðsfé- lögum að semja á sömu nótum? Felst ekki einmitt í Suðurnesja- samningunum vísbending til framtíðar á vinnumarkaði? Stöð- ugleiki og festa í rekstri atvinnu- fyrirtækja er til hagsbóta jafnt vinnuveitendum sem launþegum. Og raunar þjóðfélaginu öllu. Illvígar og kostnaðarsamar vinnudeilur eru öllum til tjóns og hafa grafið undan íslenzku hagkerfí. Vaxandi efnahagssam- starf þjóða og væntanleg. þátt- taka Islands í Evrópsku efna- hagssvæði kalla á breytt vinnu- brögð og aukinn aga á íslenzkum vinnumarkaði. VIÐBRÖGÐ VIÐ SKOÐANAKÖNNUN FÉLAGSVÍSINDASTOFNUNAR UM SJÁVARÚTVEGSMÁL JÓN BALDVIN HANNIBALSSON UTANRÍKISRÁÐ- HERRA: Niðurstöðurn- ar mikið um- hugsunarefni fyrir ríkis- sljórnina JON Baldvin Hannibalsson, ut- anríkisráðherra, segir að í heild séu niðurstöður skoðanakönn- unar Félagsvísindastofnunar um viðhorf til sjávarútvegsmála umhugsunarefni fyrir ríkis- stjórnina, nú þegar fyrir dyrum standi að skipa nefnd til að taka sjávarútvegsstefnuna í heild til endurskoðunar. „Þetta er mjög þýðingarmikil vísbending fyrir þessa nefnd um afstöðu fólks, þótt hún eigi að sjálfsögðu ekki að fara eftir niðurstöðum úr einhverri skoðanakönnun, “ sagði hann. „Umræðan um þetta mál er búin að standa mjög lengi, ekki hvað síst á síðum Morg- unblaðsins, og þetta var þrátt fyrir allt eitt af stóru málunum í kosningabarátt- unni. Þá var reynt að vitna í ein- hverja könnun sem gerð hafði ver- ið fyrr, og sýndi mun minna fylgi til dæmis við kjarnahugmyndina um gjaldtöku fyrir veiðileyfi. Sú könnun var hins vegar gerð áður en umræðan var - komin í fókus, þannig að ég tel þessa könnun nú vera miklu marktækari,“ sagði Jón Baldvin. „Þessi niðurstaða um 95% fylgi við lagaákvæði um fiskimiðin sem sameign þjóðarinnar, sem við Ai- þýðuflokksmenn leiddum í lög, er auðvitað alveg afdráttarlaus um afstöðu þjóðarinnar. Hitt kemur meira á óvart að 67% skuli lýsa þeirri skoðun sinni að þeir telji eðli- legt að taka upp gjaldtöku fyrir veiðileyfi. Það hlýtur að vera mikið umhugsunarefni fyrir núverandi ríkisstjóm, sem hefur það á stefnu- skrá sinni að taka til heildarendur- skoðunar stefnuna í sjávarútvegs- málum, að þjóðin skuli birta vilja sinn með svo afdráttarlausum hætti. Fyrir okkur Alþýðuflokks- menn er þetta óumdeilanlega mikið ánægjuefni þar sem við erum eini stjómmálaflokkurinn í landinu, sem tók afdráttarlausa afstöðu á þann veg að við gerðum þessi sjón- armið að okkar sjónarmiðum. Kjós- endur hefðu kannski mátt hafa það í huga fyrir kosningarnar í meira mæli en raun varð á. Sjónarmiðinu um einkavæðingu miðanna, það er að segja annaðhvort með úthlutun til einstaklinga eða sölu, er greini- lega hafnað, og ég tek sérstaklega eftir því að 87% þeirra sem spurðir vom þykir það óréttlæti að ein- staklingar, sem fá ókeypis úthlutun á veiðileyfum, geti síðan braskað með þau og hagnast á því að selja þau öðrum,“ sagði hann. Jón Baldvin sagði að sér hefði komið nokkuð á óvart að 49% stuðningur skuli í grundvallaratrið- um vera við gagnkvæm skipti ís- lendinga og Evrópuþjóða á veiði- heimildum. Hann teldi að þegar menn hefðu fyrir augunum þær tölur sem nú liggja fyrir í drögum að samningum, þá gæti sá stuðn- ingur jafnvel orðið meiri, og ótti manna við mikla andstöðu við þennan þátt málsins af þjóðernisá- stæðum væri ástæðulaus í raun og vem. „Það kemur mér síðan mjög á óvart að 53% þjóðarinnar skuli tre- ysta stjórnmálamönnum til alvar- íegra samninga. Ég hélt að traust á stjórnmálamönnum væri mun minna ef marka má almenna orð- ræðu manna og orðaleppa um stjómmál og stjórnmálamenn," sagði hann. Jón Baldvin sagði að sú greinar- gerð sem fylgdi könnun Félags- vísindastofnunar tæki af öll tví- mæli um að könnunin væri góð og gild. Þegar hann var inntur álits á þeirri gagnrýni Kristjáns Ragnars- sonar, formanns LÍÚ, að spurning- arnar í könnuninni væm leiðandi og því lítið gefandi fyrir svörin, sagðist hann vísa þeirri gagnrýni á bug. „Spurningarnar eru einfald- ar og þær eru um skilgreind mál. Spurningin um gjaldtöku fyrir veiðileyfí í staðinn fyrir ókeypis úthlutun er til dæmis einföld spurn- ing um afmarkað mál, og í því er ekkert leiðandi. Ég vísa þessum skoðunum því á bug, og held að þær endurspegli aðeins gremju þess manns, sem sér það að sú forrétt- indaaðstaða sem hann er fulltrúi fyrir nýtur ekki stuðnings þjóðar- innar og þykir ekki réttlát." KRISTJÁN RAGNARSSON, FORMAÐUR LÍU: Spurningarn- ar leiðandi og lítið gefandi fyrir svörin KRISTJÁN Ragnarsson, formað- ur Landssambands íslenskra út- vegsmanna, sagðist verða að lýsa miklum vonbrigðum með niður- stöður könnunarinnar. Hann teldi spurningarnar ótrúlega leiðandi og þess vegna gæfi hann lítið fyr- ir svörin. „Ég get þó ekki annað en harmað niðurstöðuna og það er greinilegt að við þurfum við að skýra málin betur fyrir þjóð- inni heldur en við höfum getað gert hingað til. Það er þó kannski við ofurefli að etja þegar við höf- um á móti okkur ritstjóra Morgun- blaðsins," sagði hann. „Ég ætla ekki að deila við Morg- unblaðið hvar þessar spumingar í könnun Fé- lagsvísindastofn- unar hafa orðið til, en það er með ólík- indum hvemig þær em að okkar mati leiðandi fyrir svörin. Þær em að minnsta kosti ekki hlutlausar eins og spurningarnar í könnun sömu stofnunar fyrir tveimur mán- uðum þegar spurt var hvaða kerfi eigi að nota til að stjóma veiðunum. Þá vom niðurstöðumar þær að 45% vildu núverandi kerfi, 35% vildu byggðakvóta, 4% skrapdagakerfi og 7% vildu sölu veiðileyfa. Nú er byijað á því að spyija hvort skilgreina eigi það að fískim- iðin séu eign allra landsmanna. Ég myndi fyrstur manna segja já við þessu. Við höfum afnotarétt af fiskimiðunum, en þjóðin hefur falið okkur að nýta þau vegna þess að við eigum skipin og höfum fjárfest til þess að stunda þetta. Næst er spurt hvort eðlilegt sé að útgerðar- menn greiði „eitthvert“ gjald. Við greiðum þegar veiðieftirlitsgjöld í beinu samhengi við kvótann, og þess vegna má segja að við gerum þetta nú þegar að því leyti til. Varðandi spuminguna um byggðakvótann væri fróðlegt að vita hver svörin hefðu orðið ef spurt hefði verið hvort byggðaþróun í landinu hafi náð endamörkum og á henni yrði ekki frekari breyting. Væntanlega hefði því verið svarað neitandi, en þegar spurt er um byggðakvóta þá er svarið hins veg- ar já. Síðan kemur fram algjör SKOÐANA Tafla Finnst þér að til greina komi, 20 að semja við Evrópuþjóðir um KONNUN takmarkaðar veiðiheimildir þeirra FÉLAGSVÍSINDA- á íslandsmiðum gegn því að við ijli * q fáum bætt viðskiptafríðindi hjá bl UFNUNAH Evrópubandalaginu ístaðinn? HÁSKÓLAÍSLANDS ýmsu fjöwí Já {%) Nei (%) háð (%) svarenda Tafla Finnst þér að til greina komi, 21 að semja við Evrópuþjóðir um veiðiheimildir í vannýttum stofnum, gegn því að íslendingar fái veiðiheimildir hjá Evrópuþjóðun- um auk bættra viðskiptafríðinda? Já (%) Nei (%) Ymsu háð (%) Fjöldi svarenda LAllir X - 70,6 8,7 V 959 m 954 Kyn . - . ... fKarl J 15,0 8,5 ( 515 Jkt,2 45,2 10,1 520 Kona 27,5 63,7 8,8 443 "A 55,0 35,6 9,5 433 Aldur \ K / 1 m\\ 1 18-24ára 35,0 53,3 11,7 IJ 137 65,0 27,1 7,9 140 35-44 ára 45-59 ára 60-75 ára Búseta 9,4 8,1 238 223 210 151 8,5 13,9 223 206 144 Meiri sjávarbyggðir 10,1 83,2 6,7 149 Minni sjávarbyggðir 17,9 73,8 8,3 84 Annað þétt- og dreifbýli 17,0 75,6 7,4 176 Höfuðborgarsvæðið 25,4 65,1 9,5 548 Stétt 43,6 10,7 38,3 12,3 J,0 45,5 8,5 50.9 39,0 ,0.1 149 81 176 546 Verka- og afgreiðslufólk 25,3 7,9 253 35,2 t 12,0 250 Iðnaðarmenn/verkstjórar 15,8 78,9 5,3 152 43,2 46,6 10,1 148 Skrifstofu- og þjónustufólk,. fm < 12,8 203 54,1^3 34,5 tl 11,0 200 Sérfræðingar/Atvinnurek. 16,7 73,2 10,1 138 48,2 41,7 10,1 139 Sjómenn h* T 4,o 6,0 50 27,51 ^64,7.1/ 7,8 51 Bændur ‘Æatwaa 10,0 86,0 4,0 50 42,9 49,0 8,2 49 Ekki útivinnandi tö9 6?,6 9,5 ***? 52,7 SAOfiZI 6,4 110 Atvinnugrein ' ' Landbúnaður #86Í4 3,4 ; 59.—- 41,4 51,7 6,9 58 Sjávarútvegur 9,9 83,2 6,9 % 1012« 32,0 59,8 8,2 97 Iðnaður \ 75,4 6,3 49,3 P7jf 13,8 138 Opinber þjónusta á : |j 22,8 65,4 11,8 246 49,0 39,3 11,7 239 Verslunfsárhg. og þjónusta? 25,6 65,9 8,5 317 55,4 VM 8,7 323 Stuðningur við flokk WÆ AlþýÖuflokkur 22,5 66,3 11,3 80 59,0 '15.Í 6,0 83 Framsóknarflokkur 18,8 77,9 3,2 154 47,1 45,8 7,2 153 <4>jálfstæðisflokkur 21,5 67,6 10,9 275 53,5 m 11,3 282 Alþýðubandalag PJJ[[[j|llljj|<[ 15,1 77,8 7,1 12« 48,0 44,0 8,0 125 Kvénnalisti 19,4 67j2 13,4 67 41,8 m 13,4 67 Nefna ekki flokk 23,5 68,4 8,1 247 44,7 43,4 11,9 235 mótsögn í svömm fólks þegar spurt er um hvort stjórnvöld eigi að stuðla að hagkvæmni í sjávarútvegi jafn- vel þó það kosti byggðaröskun. Þó við ætlumst til þess að fólk sé upp- lýst þá er auðvitað ekki eðlilegt að það geri sér alveg grein fyrir því hvílík stöðnun byggðakvótar yrðu fyrir alla framþróun í landinu, en með því væri verið að ákveða að byggðin skuli alltaf vera eins og hún er núna,“ sagði Kristján. Kristján sagði að núverandi fisk- veiðikerfi byggði á því að reynt væri að færa saman veiðiheimildir til þess að geta fækkað skipum og minnkað útgerðarkostnað. „Við erum að.mæla með kerfi sem Alþingi hefur fallist á og bygg- ir á því að með ftjálsum hætti fram- selji menn þetta hver öðmm, þann- ig að ekki komi til neitt opinbert fé tii að stuðla að þessari hagræð- ingu. Þetta er andstætt því sem allsstaðar er í kringum okkur þar sem vemlegu opinbem fé er varið í að úrelda skip. Við keppum á mörkuðunum við aðila sem njóta vemlegra ríkisstyrkja, sem ekki em til staðar hér á landi sem betur fer, og við búum við það að EB kaupir veiðirétt í stórum stíl og afhendir útgerðarmönnum án end- urgjalds. Allar þessar aðstæður finnast okkur vera mjög jákvæðar fyrir okkur ef við getum staðist þettá, og við getum rekið þessa grein og þróað hana á þann hátt að heimila framsöl þar sem menn eru ýmist að skiptast á veiðiheimild- um, framselja þær milli skipa í sömu útgerð eða milli óskyldra, allt eftir því hvað menn koma sér saman um. Hér verðum við varir við að erlend- ir aðilar, sem engum árangri hafa náð í fiskveiðsistjórnun, telja að við séum komnir langt á undan öðrum í fiskveiðsistjórnun, og þá fyrst og fremst með hliðsjón af þessu fijálsa framsali," sagði hann. Kristján sagðist ekkert vilja gefa fyrir þá niðurstöðu könnunarinnar, að helmingur landsmanna væri fylgjandi samningum við Evrópu- þjóðir um gagnkvæmar veiðiheim- ildir, þar sem erfitt væri að svara þegar ekki væri spurt um eitthvað tiltekið magn. „Þarna getur verið um að ræða 100 þúsund tonn eða 900 tonn, þannig að mér finnst þess ekki vera hægt að ætlast til þess að fólk svari þegar það er spurt án þess að því séu gefnar forsendur fyrir því í hvaða mæli og hvernig þessi skipti eigi að vera.“ EINAR ODDUR KRISTJÁNSSON: Svörin endur- spegla ruglaða um- ræðu um sjáv- arútvegsmál „HVAÐA grínistar bjuggu til spurningarnar?" sagði Einar Odd- ur Kristjánsson formaður Vinnu- veitendasambands íslands þegar hann var spurður álits á niðurstöð- um skoðanakönnunar Félagsvis- indastofnunar um sjávarútvegs- mál fyrir Morgunblaðið, sem sagt var frá í blaðinu i gær. „Mér finnst þessi svör sýna það í hnotskurn i hvers konar rugli þessi sjávarút- vegsumræða er búin að vera í mörg herrans ár,“ sagði hann. Einar Oddur sagði niðurstöð- umar endurspegla umræðu um sjáv- arútvegsmál und- anfarin misseri. „Það sem um er að ræða gagnvart fiskimiðunum er tvennt, það er að viðhalda auðlindinni og í öðru lagi að hámarka virðisaukann af henni,“ sagði hann. „Því miður hafa ábyrg- ir aðilar ruglað um þennan auð- lindaskatt svo ferlega að það fer ekki á milli mála að það hefur þeg- ar valdið stórkostlegu tjóni. Auð- lindaskattur býr ekki til nýja pen- inga, en það eru nýir peningar sem okkur sárlega vantar. Kenningin um að borga auðlindaskatt er bara aðferð til þess að hámarka arðinn af veiðunum, það eru ekki nýir pen- ingar. Þannig að þessi umræða um að leggja einhvern flatan skatt ofan á fiskveiðarnar er bara bull. Það er þá aðeins orðið til þess að leggja skatt á sjávarútveginn til þess að minnka framleiðni hans í saman- burði við einhvern annan iðnað. Það er út af fyrir sig kenning, ef menn vilja hafa það, en ég fullyrði að þá legðist öll byggð í landinu af.“ Einar Oddur sagði um tvær leið- ir að velja við stjórnun fískveiða, kvótakerfí eða flota- og sóknarstýr- ingu. „Við Vestfirðingarnir bentum nú alltaf á að kvótaaðferðin væri vafasöm, svo ekki sé tekið fastar til orða,“ sagði hann. „Frjáls sala á kvóta er eina vit- glóran í þessu kerfi,“ sagði hann. „Ef við værum ekki með fijálst framsal, þá værum við bara að búa hérna til miðaldaskipulag, festa þetta endanlega í einhverri vit- leysu.“ Einar Oddur sagði að eini mögu- leikinn til þess að hægt væri að hafa gagn af kvótakerfinu, sem ekki hefði orðið ennþá, væri að passa upp á að flotinn verði ekki stækkaður og að hafa framsal á kvóta algjörlega fijálst. „Flotinn er ekki að minnka í dag, því miður. Núna má taka aflaheimild af bát- um, án þess að úrelda bátana. Nú er að verða hér til heilmikill floti af kvótalausum skipum. Hvað verð- ur gert við þau? Það þarf nú ekki mikið ímyndunarafl til þess að segja það. Hvað ætlar kvótalausi flotinn að gera? Hann reynir að fiska. Þetta er algjört rugl.“ Hann var spurður álits á því að binda kvóta við byggðarlög, en rúm 82% svarenda í könnuninni kváðust fylgjandi því. „Það er nú algjörlega fáránlegt, það er nú bara upphafið að endalokunum," sagði hann. „Við verðum að reyna að ná hámarks- arði af sjávarútveginum ef við ætl- um að reyna að bæta kjör okkar. Þá er það sem gildir, að auðvitað verða hinar ýmsu útgerðir og hinir ýmsii' útgerðarstaðir að keppa og það má ekki trufla þá keppni. Það liggur fyrir að það munu margir tapa en aðrir lifa.“ —Er það nýtt í sögunni? „Nýtt? Það fer að verða dálítið nýtt, vegna þess að því miður höfum við verið með slík pólitísk afskipti af okkar atvinnurekstri að það hef- ur komið í veg fyrir að ítrasta hag- kvæmni hefur náðst. Það er hins vegar ekkert nýtt í sögunni, þetta er eina aðferðin sem við höfum til þess að ná fullri arðsemi, að menn keppi. Þannig að byggðakvótar eru fáránlegir." Þegar Einar Oddur var spurður áiits um afstöðu íslendinga til samninga um gagnkvæmar veiði- heimildir við Evrópubandalagsins, sagðist hann undrandi á að ekki væru fleiri því fylgjandi. Guðjón A. Kristinsson, formaður FFSÍ: Utgérðar- menn sjálfir hafa mest ýtt undir umræð- ur um veiði- gjald GUÐJÓN A. Kristjánsson, formað- ur Farmanna- og fiskimannasam- bands Islands, segir að niðurstöð- ur skoðanakönnunarinnar komi sér ekki sérstaklega á óvart. „Þarna virðast vera afgerandi nið- urstöður í allar áttir, en ég hef orðið var við það í umræðunni að skoðanir hafa verið að mótast á þennan veg, bæði meðal land- verkafólks og sjómanna. Ef út- gerðarmenn átta sig ekki á því að þeir geta ekki selt kvótann ein- göngu til frádráttar og hagsbóla fyrir sig sjálfa, þá byggir enginn eins mikið upp umræðu um auð- lindaskatt og einmitt þeir sjálfir," sagði hann. Guðjón sagði að það sem hann teldi hafa haft mest áhrif á mótun skoðana fólks væri réttleysisstaða byggðanna í land- inu, en menn hefðu séð dæmi þess að ef skip færi úr byggðariaginu þá væri ekk- ert lífsviðurværi eftir og allt ævi- starf fólksins orðið verðlaust. „Þetta getur fólk ekki sætt sig við, og þetta mótar skoðanir manna til ríkjandi stefnu. Svo er hitt að það hafa engir ýtt eins mikið undir umræðurnar um veiðigjald eins og útgerðarmennirnir sjálfír. Þeir hafa gert það með þvi að vera með þessi viðskipti sín á milli, sem til dæmis hafa verið algjörlega andstæð skoð- unum sjómanna, sem hafa hafnað því að menn geti selt kvóta fram og til baka þó þeir hafi ekki hafnað því að menn gætu skipt á jöfnu hvað varðar tegundir. Með því væri ekki verið að færa til atvinnu held- ur aðeins hagræða á milli manna. Öll þessi umræða hefur vakið upp spurningar um það hvers vegna í ósköpunum útgerðaraðilar eigi að geta verslað með fisk og notað hann til frádráttar í öllum skattalið- um, en hann komi hins vegar hvergi til tekna nema einingis fyrir þá sjáifa tii hagræðingar. Þess vegna segi ég að engir hafí staðið jafn mikið í því og útgerðarmenn að skapa til umræðuna um auðiinda- skatt og styrkja hana á allan hátt. Veiðirétturinn getur aldrei orðið annað en sameign þjóðarinnar, og menn vilja greinilega ekki að ákveðnir aðilar eigi veiðiheimildir að eilífu. Fólk vill að veiðirétturinn sé nýttur, og þeir hæfustu á hveij- um tíma, hvort sem þeir eru hæ- fastir til að veiða eða gera út, geti komist inn í greinina með einhveij- um hætti.“ Guðjón sagði að fyrir nokkrum árum síðan hefði hugmyndin um byggðakvóta ekki notið mikils fylg- is, en breyting hefði orðið á því þegar í ljós hefði komið að kvóta- sala hefði leitt til þess að atvinnan hefði farið úr byggðarlögunum með þeim kvóta sem seldur hefði verið. „Menn sætta sig ekki við að þannig sé um hnútana búið, að ein- hveijum ákveðnum aðila sem átt hefur skip sé það í sjálfsvald sett hvort hann tekur atvinnuna úr við- komandi plássi eða ekki. Þess vegna kemur upp þessi umræða um að tryggja byggðirnar og henni vex fylgi. í niðurstöðum könnunarinnar virðist þó gæta nokkuð reikandi sjónarmiða í þessu sambandi þar sem menn vilja annars vegar tryggja það að atvinna haldist í byggðunum með byggðakvóta, en hins vegar að stjórnvöld eigi jafnvel að gera eitthvað til að breyta byggðinni. Þarna fer þetta svolítið í tvær áttir og fólk virðist hreinlega ekki átta sig á samhenginu." Aðspurður um þá niðurstöðu könnunar Félagsvísindastofnunar, að tæplega helmingur þeirra sem afstöðu taka telji að til greina komi að semja við Evrópuþjóðir um gagn- kvæmar veiðiheimildir, sagðist Guðjón lítið vilja tjá sig um það að svo stöddu. „Við höfum hafnað veiðiheimild- um, en auðvitað höfum við á uridan- förnum árum talað um að reyna ætti að ná samningum við Græn- lendinga um veiðiheimiidir á milli Íslands og Grænlands. Það getur vel verið að hægt sé að semja um hlutina og haga því þannig til að gera megi það 'a skynsamlegan hátt. Ég ætla ekki að hafna því fyrirfram, en fyrst vil ég sjá þá samninga alveg til enda hvernig þeir verða útfærðir," sagði hann. Þegar hann var spurður álits á niðurstöðu spurningar um samn- inga um gagnkvæmar veiðiheimild- ir við Evrópubandalagið, sagðist hann lítið vilja tjá sig um þær hug- myndir. Og umræða um slíka samn- inga væri komin of skammt á veg komin til að hægt væri að taka afstöðu til þeirra. ARNAR SIGURMUNDSSON: Trúi ekki að þessi ríkis- stjórn taki upp veiðigjald „SUMT í þessari könnun kom mér á óvart, ég neita því ekki,“ sagði Arnar Sigurmundsson for- maður Samtaka fiskvinnslu- stöðva um niðurstöður könnun- ar Félagsvísindastofnunar um sjávarútvegsmál, sem sagt var frá í Morgunblaðinu í gær. „Ur- Likið er nokkuð stórt, það er ekkert hægt að finna að því og ég hef miklar áhyggjur af því ef með einliverjum hætti á að fara að taka upp auðlindaskatt hér á landi, menn hugsi þetta þá sem leið til þess að minnka ríkissjóðshallann. Ég trúi því ekki að þessi ríkisstjórn geri það. Ég tel að það muni koma fiskvinnslunni og sjávarútvegin- um í heild n\jög illa,“ sagði Arn- ar. Arnar -kvaðst ekki vilja útiloka að spurningarnar hefðu að einhveiju leyti haft áhrif á svörin. „Það sem kemur mér mest á óvart er hvað þeim virðist hafa fjölg- að sem vilja taka úpp auðlindaskatt og ég tel að ástæðan sé þessi stanslausa um- ræða í fjölmiðlum um kvóta og kannski meira um galla kvótakerf- isins. Þessi niðurstaða kemur mér verulega á óvart og hún er auðvit- að ekki í samræmi við þá nýlegu skoðanakönnun sem gerð var af blaðinu Sjávarfréttum. Ég tel að skýringin sé fyrst og fremst fólgin í því, að þegar upp hafa komið ein- hveijir vankantar í kvótakerfinu, eitthvað sem fólk er ekki sátt við, þá hefur auðvitað mikil umræða átt sér stað og þessi viðhorf virð- ast smám saman hafa síast inn.“ Arnar sagði fiskvinnslumenn vera alfarið á móti því að taka upp auðlindaskatt á þeim forsendum að það hefði í för með sér hækkun á hráefnisverði á sama tíma og fisk- vinnslan í heild væri rekin með halla og fyrirtækin skulduðu ein- faldlega allt of mikið. „í annan stað má reikna með að yfir 80% af fiskvinnslunni sé utan höfuð- borgarsvæðisins, þannig að þetta mundi koma fram sem landsbyggð- arskattur," sagði Arnar. Hann var spurður hvort hann læsi út úr þessari könnun að við- horf séu að breytast um þessar mundir til sjávarútvegsmála. „Það getur vel verið að umræðan að undanförnu, allar þessar breyting- ar sem hafa orðið, hafi að ein- hveiju leyti ýtt undir þetta. Ekki síst þegar menn sjá í hvernig stöðu ríkissjóður er í dag, það getur vel verið að það hafi ýtt undir að ein- hveijir hafi talið að þarna væri kannski hægt að gera eitthvað, ég held til dæmis að allar umræðurnar í fyrra um trillubátakvótana og allt það hafi haft ótrúlega mikil áhrif. Ég trúi ekki öðru en að þetta muni jafnast aftur og þeim muni fjölga sem segja það að hér þurfi að taka upp skýra fískvinnsiu- stefnu. Sem betur fer hafa stjórn- völd lofað að svo verði gert, þannig að það verði reynt að hámarka afraksturinn í sjávarútveginum með fullvinnslu innanlands eftir því sem hagkvæmast er hveiju sinni.“ Arnar kvaðst ekki telja að þessi hækkun hefði áhrif á mótun sjávar- útvegsstefnu. „Ég held að margir í sjávarútvegi verði dálítið hissa á niðurstöðum þessarar könnunar, en það hefur greinilega einhver viðhorfsbreyting hefur átt sér stað út af þessum einhliða skrifum í blöðunum. Ég vil hins vegar ekki meina að þetta hafi áhrif á mótun sjávarútvegsstefnu þegar til lengri tíma er litið. Fiskvinnslan er í dag rekin með töluverðum halla og allar hugmyndir um auknar álögur á hana eru alveg út í hött. Ég geri mér hins vegar fyllilega grein fyrir því að á næstu árum munu eiga sér stað miklar breytingar í sjávar- útveginum án þess að tekinn verði upp auðlindaskattur og aukin hag- ræðing í rekstri mun fækka fyrir- tækjum töluvert."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.