Morgunblaðið - 03.09.1991, Qupperneq 2
2
íl33MH'f<I38 .3 H’JOAQUtCiIH'í QIQAJ3MUDÍÍ0M
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1991
Fokker lenti í fyrsta
sinn á Selfossflugvelli
Selfossi.
FYRSTA flug frá Reykjavík til Selfoss með Fokker-flugvél frá Flug- |
leiðum var farið á sunnudag. Flugbrautir Selfossflugvallar hafa
verið breikkaðar uppí 30 metra sem gerir það mögulegt að Fokker
geti lent á vellinum. Þar með er hann orðinn varaflugvöllur fyrir |
Reykjavík þegar veðurskilyrði eru óhagstæð vestan Hellisheiðar.
Skólastarfið að hefjast
Morgunblaðið/Þorkell
Skólastarf er að hefjast um land allt og nemendur
þurfa að sækja aðföng í ritfangaverslanirnar. Þar
er oft þröng á þingi fyrstu daga septembermánaðar.
í gær var örtröðin þegar hafin.
Aðalfundur Stéttarsambands bænda:
Hvanneyri. Frá Halli Þorsteinssyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
AÐALFUNDUR Stéttarsambands bænda hafnar algjörlega samning-
um um evrópskt efnahagssvæði í þeim farvegi sem þeir voru þegar
upp úr samningaviðræðunum slitnaði í sumar. Ályktun þessa efnis
var samþykkt á aðalfundi SB sem lauk á Hvanneyri í gærkvöldi.
Fari svo að samningar um EES haldi áfram þá telur fundurinn al-
gjört skilyrði að landbúnaðarráðuneytið hafi forystu varðandi mál-
efni landbúnaðarins og að fullnægjandi fyrirvarar um eignarhald á
landi, heilbrigðiskröfur og innflutningsvernd verði teknir upp.
í ályktun aðalfundar SB er lýst Heimildir séu fyrir því að þau samn-
miklum áhyggjum með afstöðu
stjómvalda i viðræðum um EES.
Fundurinn bendir á að þeir fyrirvar-
ar, sem settir voru af Islands hálfu
í upphafí, hafí fallið hver af öðrum
og því stefni í að samningurinn
þjóni fyrst og fremst hagsmunum
þeirra þjóða sem nú þegar eru inn-
an EB eða hafa sótt um fulla aðild.
ingsdrög sem fyrir lágu þegar upp
úr samningaviðræðunum slitnaði
hafí verið algjörlega óaðgengileg
fyrir íslenskan landbúnað. Eigi það
sérstaklega við varðandi rýmkun á
reglum um eignarhald á landi og
einnig á reglum um innflutning á
garð- og gróðurhúsaafurðum og
unnum mjólkurvömm, en viðkom-
andi bókun í samningsdrögunum
þar að lútandi gangi þvert á bæði
búvörulög og nýgerðan búvöru-
samning. „Því hafnar fundurinn
algjörlega samningum í þeim far-
vegi sem þeir voru þegar upp úr
slitnaði því þar stefndi í samning
þar sem við sitjum uppi með ýmsa
vankanta landbúnaðarstefnu EB en
njótum einskis af kostunum. Því til
viðbótar verðum við að borga stórfé
í þróunarsjóð EB á sama tíma og
boðaður er niðurskurður á framlög-
um til framleiðnisjóðs landbúnaðar-
ins,“ segir orðrétt í ályktun aðal-
fundarins.
Aðalfundur stéttarsambandsins
mótmælir harðlega boðuðum niður-
Búist við stórauknu at-
vinnuleysi á Suðumesjum
GERA má ráð fyrir að atvinnulausum fjölgi um nær helming á at-
vinnusvæði Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur í kjölfar þess
að tvö fiskvinnslufyrirtæki geta ekki hafið vinnslu eftir sumarfrí
vegna hráefnisskorts. 108 manns voru á atvinnuleysisskrá fyrir upp-
sagnirnar en búast má við að þeim fjölgi í tæplega 200 vegna þessa.
EES — saimiingnm í núver-
andi farvegi hafnað með öllu
skurði á framlagi til framleiðni-
sjóðs, og telur í ljósi þess sem bænd-
ur hafa undirgengist að þessi niður-
skurður sýni vart skilning á aðstöðu
þeirra.. Fundurinn hafnar slíkum
vinnubrögðum við framkvæmd nýja
búvörusamningsins varðandi stuðn-
ingsaðgerðir við atvinnuþróun í
sveitum sem í þeim samningi fel-
ast. Telur fundurinn að áframhald-
andi stuðningur framleiðnisjóðs við
þróunarverkefni í markaðssetningu
vegna nýrrar atvinnusköpunar í
sveitum sé forsenda þess að raun-
hæfur grundvöllur geti skapast fyr-
ir uppbyggingu nýrra greina og
atvinnuþátttöku í öðrum svo sem
í ferðaþjónustu.
Á aðalfundinum voru málefni
Fyrirtækin eru íslenskur gæða-
fiskur í Keflavík, þar sem störfuðu
í sumar að staðaldri 40-50 manns,
og Brynjólfur í Njarðvíkum, en þar
störfuðu 35-40 manns. Af þessum
sökum bárust 39 nýjar umsóknir
um atvinnuleysisbætur til Verka-
lýðs- og sjómannafélags Keflavík-
ur í gær, að sögn Guðmundar
Finnssonar, framkvæmdastjóra fé-
lagsins. „Þetta er hlutur sem við
höfum ekki staðið frammi fyrir
áður á þessum árstíma að minnsta
kosti mjög lengi. Við þekkjum
svona tímabundið atvinnuleysi í
kringum jól og áramót, en atvinnu-
leysi á þessum tíma í fiskvinnslu
er nánast óþekkt. Þetta er því veru-
legt áhyggjuefni,“ sagði Guðmund-
ur ennfremur.
I Garði er útlit fyrir að tvö físk-
verkunarfyrirtæki hætti vinnslu og
loki á næstunni. Mjög erfiður
rekstur hefur verið hjá fískverkun-
inni X-port og að undanfömu að-
eins verið unnið 2-3 daga í viku.
10-15 manns hafa starfað þar, en
aðallega fólk búsett utan sveitarfé-
lagsins. Þá hefði verið erfíður
rekstur hjá Fiskverkun Magnúsar
Björgvinssonar, og að sögn Jó-
hannesar Guðmundssonar, for-
manns Verkalýðsfélagsins í Garði,
telja margir að orsakanna sé að
leita í of háu fiskverði. Hann sagði
að 5 manns hefðu verið á atvinnu-
leysisskrá í síðustu viku og 15-20
manns bættust við ef rekstur Fisk-
verkunar Magnúsar Björgvinsson-
ar stöðvaðist. Slíkt hefði keðju-
verkandi áhrif því önnur störf sem
tengdust fyrirtækinu á einn eða
annan hátt væru í hættu, a.m.k.
3-4 störf. Jóhannes sagði að at-
vinnuástand hefði þó almennt verið
gott í Garði og eru nú um 18 út-
lendingar við störf þar hjá Nesfísk
hf., stærsta fyrirtækinu í Garði.
Fjöldi manns fagnaði þessum
áfanga í flugmálum á Selfossi og
nokkrir höfðu tekið sér far með
Árfara frá Reykjavík til Selfoss.
Ottó Tynes var flugstjóri Árfara en
auk hans voru í áhöfninni Theodór
Blöndal og Hafdís Engilbertsdóttir.
Eftir lendingu vélarinnar bauð
Flugklúbbur Selfoss gestum til
kaffídrykkju á flugvellinum að
henni lokinni í útsýnisflug með
Árfara. Það er mat Flugmálastjórn-
ar að Flugklúbburinn á Selfossi sé
sá virkasti á landinu en hann hefur
haft frumkvæðið í byggingu flug-
vallarins frá upphafí.
Nú í haust er áformað að setja
upp radíóvita við flugvöllinn og þá
verður hann fullbúinn til. áætlunar-
flugs innanlands. Þessi áfangi í
flugsamgöngum á Selfossi þótti
ullariðnaðarins til umræðu en fund-
urinn telur brýnt að bændur taki
þátt í stofnun hlutafélags sem ann-
ist mat, þvott og bandvinnslu úr
ull. Verði bændum gefínn kostur á
að hlutafjárframlög þeirra verði
greidd með hluta af andvirði ullar-
innleggs á fyrsta viðskiptaári. Var
stjórn SB falið að kynna og und-
irbúa þetta mál meðal bænda.
í stjóm Stéttarsambands bænda
voru kosnir þeir Guðmundur Jóns-
son, Reykjum, sem hlaut 60 at-
kvæði af 64 mögulegum, Þórólfur
Sveinsson, Feijubakka, með 55
atkv., Birkir Friðbertsson, Birkihlíð,
með 46 atkv., Rögnvaldur Ólafsson,
Flugumýrarhvammi, með 39 atkv.,
Ari Teitsson, Hrísum, með 55 atkv.,
Emil Siguijónsson, Ytri-Hlíð, með
47 atkv., Guðmundur Stefánsson,
Hraungerði, með 20 atkv., Haukur
Halldórsson, Sveinbjarnargerði,
með 49 atkv. og Bjarni Helgason,
Laugalandi, með 54 atkvæði. Hauk-
ur Halldórsson gaf einn stjórnar-
manna kost á sér í formannssætið
og í kosningu hlaut hann 51 at-
kvæði. Þeir Rögnvaldur Ólafsson
og Guðmundur Stefánsson eru nýir
í stjórninni en þeir koma í stað
þeirra Böðvars Pálssonar, Búrfelli,
og Þórarins Þorvaldssonar, Þór-
oddsstöðum, en hvorugur þeirra
náði kosningu sem fulltrúi á aöal-
fundinn. í framleiðsluráð landbún-
aðarins hlutu kosningu þeir. Guð-
mundur Lárusson, formaður Lands-
sambands kúabænda, Halldór
Gunnarsson frá Félagi hrossa-
bænda og Arnór Karlsson, formað-
ur Landssamtaka sauðfjárbænda.
táknrænn því á sunnudag hófst
vikudagskrá í tilefni 100 ára vígslu-
afmælis Ölfusárbrúar.
— Sig. Jóns.
--------------------
lausa árás
34 ÁRA gamall maður var fluttur
mikið slasaður á sjúkrahús aðfar-
anótt sunnudagsins eftir að tví-
tugur maður hafði án nokkurs
tilefnis ráðist að honum fyrir
utan Hótel Borg og sparkað milli
fóta honum.
Maðurinn var á gangi við hótelið
ásamt eiginkonu sinni um klukkan
tvö aðfaranótt sunnudagsins þegar
ungi maðurinn, sem var mikið ölv-
aður og hafði nýlega verið vikið út
af hótelinu, veittist að honum með
fyrrgreindum hætti án þess að þeim
færi nokkuð annað á milli.
Maðurinn var fluttur með sjúkra-
bíl á slysadeild Borgarspítalans og
síðan til aðgerðar á Landspítalann.
Árásarmaðurinn var handtekinn og
vistaður í fangageymslum lögregl-
unnar. Hann var látinn laus eftir
yfírheyrslur hjá RLR á sunnudag-
inn.
--------------
Verðlagsráð:
92 oktana
bensín hækk-
ar um krónu
Verðlagsráð heimilaði einnar
krónu hækkun á 92 oktana bens-
ini vegna samsvarandi hækkunar
á bensingjaldi í gær. Verðhækkun
á 95 oktana og 98 oktana bensíni
gekk í gildi 1. september.
Á fundi verðlagsráðs á mánudag
var ákveðið að heimila einnar krónu
hækkun á 92 oktana bensíni vegna
samsvarandi hækkunar á bensín-
gjaldi. Hækkaði gjaldið úr 20,35
krónum í 21,35. Heimiluð var hækk-
un á 92 oktana blýlausu bensíni úr
58,40 krónum í 59,40 krónur.
Verðhækkun á 95 oktana blýlausu
bensíni og 98 oktana blýbensíni gekk
í gildi 1. september. Þá hækkaði 95 .
oktana bensín hjá Skeljungi úr 62,10
kr. í 63,40 kr. og 98 oktana bensín
úr 65,10 kr. í 66,50 kr. Olíufélagiö
hf. hækkaði 95 oktana bensín úr
61,80 í 63,10 og 98 oktana bensín
úr 64,90 í 66,30. Olís hækkaði 95
oktana bensín úr 61,90 í 63,30 og
98 oktana bensín úr 64,90 í 66,40.
---:-♦-♦-♦----
Lést í um-
ferðarslysi
KONAN sem lést eftir að hafa
orðið fyrir bíl á mótum Bólslaða-
hlíðar og Lönguhlíðar síðastliðinn
föstudag hét Unnur Erlendsdóttir.
Hún var fædd þann 14. nóvember
1917 og var til heimilis að Bólstað-
arhlíð 10 í Reykjavík. Unnur Er-
lendsdóttir lætur eftir sig tvö börn. |
Þrír piltar teknir með
fölsuð ökuskírteini
ÞRÍR piltar á átjánda ári voru teknir með fölsuð ökuskírteini í fór-
um sínum á laugardagskvöld. Þeir voru þá að reyna að komast inn
á veitingahús í borginni en dyraverðir sáu að skilríkin voru fölsuð
og kölluðu á lögreglu.
Við yfírheyrslur hjá lögreglunni
báru piltarnir að þeir hefðu keypt
skilríkin af manni á fertugsaldri,
sem þeir kváðust ekki vita deili á,
og greitt 5 þúsund krónur fyrir
stykkið. Að sögn lögreglu var um
vel gerðar falsanir að ræða en dyra-
vörðum hefur verið kynnt hvernig
ganga eigi úr skugga um að skír-
teinin séu ófölsuð og hefur kærum
vegna falsana_ sem þessara mjög
fjölgað undanfarið.
Mikið slas-
aður eftir
tilefnis-