Morgunblaðið - 03.09.1991, Blaðsíða 30
Alvörubjór átj
30
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1991
Reuter
Forsetar júgóslavnesku lýðveldanna sex undirrita friðaráætlun Evrópubandabaudalagsins í Belgrad í
gærmorgun. Þeir eru, talið frá vinstri: Alija Izetbegovic frá Bosníu-Herzegovínu, Momir Bulatovic frá
Svartfjallalandi, Franjo Tudman frá Króatíu, Kiro Grigorov frá Makedoníu, Milan Kucan frá Slóveníu
og Slobodan Milosevic frá Serbíu.
Júgóslavía:
011 lýðveldin fallast á fríðar-
áætlun Evrópubandalagsins
Belgrad. Reuter.
BARDAGAR héldu áfram í Króatíu í gær eftir að leiðtogar allra
sex lýðvelda Júgóslavíu höfðu undirritað friðaráætlun fyrir tilstilli
Evrópubandalagsins (EB). Þar er gert er ráð fyrir friðarviðræðum
og vopnahléi í Króatíu undir eftirliti Júgóslavíuhers og friðargæslu-
sveitar EB.
Til bardaga kom á ýmsum stöðum
í Króatíu í gær þótt mannfall hefði
ekki orðið jafn mikið og undanfarna
daga. Útvarpið í Zagreb, höfuðborg
Króatíu, sagði að lögreglumaður
hefði beðið bana í þorpinu Laslovo
í austurhluta Króatíu og kveikt hefði
verið í húsum í Gospic í námunda
við strönd Adríahafs.
Forsetar lýðveldanna sex undir-
rituðu friðaráætlunina í gærmorgun
og var því tekið með miklum létti
í Króatíu enda hafa hartnær 400
manns beðið þar bana í bardögum
undanfama tvo mánuði. „Þetta er
mikill dagur í sögu Króatíu, fólk
treystir því að þetta sé upphafið að
endalokum hörmunganna," sagði
króatíska fréttastofan Hina. Við-
brögð Franjos Tudmans, forseti lýð-
veldisins, voru þó varfærnislegri.
„Við eigum enn langt í land með
að tryggja frið,“ sagði hann. „Sú
staðreynd að fulltrúar Serbíu féllust
á yfirlýsingu EB og vopnhlé er í
sjálfu sér mikilvæg og sigur fyrir
réttláta stefnu okkar. Samt vitum
við ekki hvað gerist í raun.“
Hans van den Broek, utanríkis-
ráðherra Hollands og formaður ráð-
herraráðs Evrópubandalagsins, var
í Júgóslavíu til að kynna friðaráætl-
unina. í henni er kveðið á um að
allar vopnaðar sveitir leggi niður
vopn, skæruliðasveitir verði leystar
UPP °g júgóslavneski herinn hverfi
til búða sinna. Herinn hefur tekið
þátt í bardögunum og barist við
hlið serbneskra skæruliða í Króatíu,
sem leggjast gegn sjálfstæði lýð-
veldisins.
Bardagamir brutust út eftir að
þing Króatíu lýsti yfir sjálfstæði 25.
júní. íbúar lýðveldisins em 4,5 millj-
ónir og þar af em 600.000 Serbar.
Slobodan Milosevic, forseti Serbíu,
sem hafnaði fyrri friðartillögum
Evrópubandalagsins, sagði við van
den Broek eftir undirritun friðará-
ætlunarinnar að ekki kæmi annað
til greina en að Serbar og Króatar
tækju jafn mikinn þátt í eftirlitinu
með því að vopnahléið verði haldið.
„Það verður að vernda fómarlömb
ofbeldisseggjanna og þau em Serb-
ar,“ hafði Ta/yug-fréttastofan júgó-
slavneska eftir forsetanum. Van den
Broek sagði að umhyggja Milosevics
fyrir Serbum í Króatíu væri skiljan-
leg en bætti við að vernda þyrfti
„fórnarlömbin öll“, að sögn Tanjug.
Friðargæslan verður í höndum
júgóslavneska hersins, fulltrúa Kró-
ata og Serba, auk hermanna frá
Evrópubandalaginu, sem hafa einn-
ig tekið að sér vopnahléseftirlit í
nágrannaríkinu Slóveníu með góð-
um árangri.
Skrifstofutækni
Fyrir aðeins kr. 5.000" á mánuði.
Námið kemur að góðum notum í atvinnuleit. Einungis
eru kenndar námsgreinar sem nýtast þegar út á
vinnumarkaðinn er komið. Til dœmis:
L0WENBRAU
IBlteiiMíBIBr
FRANSKAR DÚNÚLPUR
BRAMBILLA
Bókfærsla
Tölvubókhald
Ritvinnsla
Tollskýrslugerð
Verslunarreikningur
Frönsku BRAMBILLA úlpumar eru ekta dúnúlpur, hlýjar, og fallegar. BRAMBILLA dúnúlpumar eru vendiúlpur. Því færð þú í
raun tvær dúnúlpur á verði einnar. BRAMBILLA dúnúlpumar eru til í öllum stærðum, jafnt á börn og fullorðna.BRAMBILLA
vendi-dúnúlpurnar eru á verði frá kr. 8.980,- BRAMBILLA dúnúlpurnar etu á verði frá kr. 6.480,-
BRAMBHIA dúnúlpur - töffbáöum niegitt
4T jT
UTILIF
Glæsibæ
Sími91-812922
Verðið miðast við skuldabréf til tveggja ára. ^
Tölvuskóli Islands
Sími: 67 14 66, opið til kl. 22