Morgunblaðið - 03.09.1991, Page 23

Morgunblaðið - 03.09.1991, Page 23
MORGIJNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMRER 1991 23 Meira um fiskveiðar og vinnslu eftirKarl Ormsson Þær vangaveltur mínar uni fisk- veiðar, meðferð afla o.fl. sem ég hefi skrifað í Morgunblaðið að und- anförnu hafa eingöngu verið ætlað- ar til þess að vekja okkur til um- hugsunar um að fá verðmætari og meiri afla upp úr sjónum, skapa umræðu um meðferð afla, sem fer ört þverrandi ef til vill vegna þess af því að við kunnum okkur ekki hóf, förum illa með mikil verðmæti sem hægt er að bjarga með því að hætta að henda svoná gífurlegum verðmætum í sjóinn aftur. Nú hafa ijölmargir aðilar skrifað að undan- förnu um svipað efni svo margir hafa af þessu miklar áhyggjur. Þannig að ég er sem betur fer ekki einn um þær. Nær daglega er skýrt frá því í íjölmiðlum að skip koma að landi með svo og svo mikinn afla, sem gerir kannski helmingi meiri afla upp úr sjó, stundum meira, er nokkur glóra í þessu? Það er svo langt frá því að ég hafi ætl- að að finna einhvern blóraböggul í þessu máli, þetta er löng sorgarsaga og síst hefur mér dottið í hug að kenna sjómönnum eða útgerð um þetta fyrirbæri. Við verðum einfald- lega öll að horfa í eigin barm, hvað get ég gert til að laga þetta? Jú, óneitanlega horfir maður helst til þingmanna okkar og stjórnvalda. Það þarf nefnilega ekki nema ein- falda stjórnvaldsaðgerð til að banna þessa meðferð á afla. Þekktir afla- menn hafa vakið athygli á því að það er ekki hagur sjómanna að koma með lélegt hráefni sem dregst beint frá kvóta þeirra. Það verður að breyta kvótalögunum þannig að sjómenn vinni með okkur í þessu máli sem öðrum. Það er hvorki hagur sjómanna né útgerðar að leggja í aukinn kostnað til að koma með úrgang og smáfisk sem lítið er borgað fyrir. Þess vegna verður að setja lög um það að allur afli sé hirtur, það verður að endingu hagur allra þjóðarinnar. Að sjálf- sögðu verður að treysta betur skip- stjórnarmönnum, þeir eru lögregla um borð í sínu skipi. Eftirlit þarf að vera í lágmarki, það má ekki verka sem lögregluaðgerðir að framfylgja svona lögum. Traust er alltaf besta eftirlitið. Við höfum það í hendi okkar hvað lengi við getum sótt þessa auðlind okkar, og þar með hvað lengi við ætlum að byggja þetta land því án fiskjar er hér óbyggilegt land eins og allir sjá. Það þýðir ekkí neitt að kenna ein- hveijum sérstökum um að taka ekki fyrr á þessu máli, ekki einu sinni stjórnvöldum fyrri áratuga, Snúður og Snælda hefur vetrarstarfið LEIKFÉLAGIÐ Snúður og Snælda er nú að hefja vetrarstarf sitt af fullum krafti. I vetur mun verða þjálfun i framsögn fyrir þá sem þess óska, einnig verður unn- ið að uppsetningu leiksýningar og er það leikritið „Fugl í búri“ eftir Iðunni og Kristínu Steinsdætur, mun það taka u.þ.b. einn klukk- utíma i flutningi. Innritun í starfsemina fer fram þriðjudaginn 3. september kl. 17.00 og miðvikudaginn 4. kl. 18.00, að Hverfisgötu 105, 4. hæð. Einnig er hægt að láta innrita sig hjá skrif- stofu FEB. Stjórn Snúðs og Snældu vonast til að sjá marga FEB-félaga við inn- ritunina, bæði þá sem voru með sl. vetur og einnig ný andlit. Heldur færri snúðar hafa tekið þátt í þess- ari starfsemi að undanförnu og bind- ur stjómin vonir við að þeir láti sjá sig að þessu sinni. Snúður og Snælda var stofnað 20. janúar 1990 og er leikfélag á vegum Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni. í sumar fékk leikfélagið inngöngu í BÍL, Bandalag íslenskra leikfélaga, og var það mikil vítamínsprauta fyrir leikhópinn. ........ (Fréttatilkynningr) skylda þarf öll skip til að hafa auka- tanka um borð fyrir allan veiddan afla. Viðurkennum einfaldlega stað- reyndir og látum verða af því að setja um þetta löggjöf strax er þing kemur saman í haust, því fyrr því betra. Það þarf enginn að efast um það að hver þegn þjóðarinnar á eftir að stórþéna á þessu, ef skyn- samlega er farið að og áður nefnd- ar aðgerðir framkvæmdar. Þá fyrsta geta þessi verðmæti sem við sköpum okkur verið á við stóra árvissa loðnuvertíð eða síldarvertíð. Ég veit að margir eiga eftir að mótmæla þessu sem ósönnuðu en ég bendi þeim sömu á að kynna sér þetta. Það eru víða til upplýsingar um þetta, en kostar af afla sér „Það er brjálæði að láta hvali og seli éta hér milljónir tonna af fiski á ári án þess að nýta þá stofna sjávarfangs, nema við ætlum að lifa eingöngu á hvalkjöti þegar allur fiskur er búinn...“ þeirra en ég hefi talið mig hafa gert árum saman með ærinni fyrir- höfn, með hlustum og lestri íjölm- iðla og fagrita, viðtölum, samantekt talna úr skýrslum, sem birtar hafa verið o.fl. Efni í aðrar greinar er síðan að viðurkenna staðreyndir um hval- veiðar. Það er bijálæði að láta hvali og seli éta hér milljónir tonna af fiski á ári án þess að nýta þá stofna sjávarfangs, nema við ætlum að lifa eingöngu á hvalkjöti þegar allur fiskur er búinn, en maður er nú ekki svo svartsýnn að við tökum þetta ekki fastari tökum fyrr en allt er komið í óefni. Það er okkar að skila börnunum okkar betri kjör- um, verðmeira hráefni úr sjó og landi og bjartari framtíð en við tók- um við. Höfundur er raftækjavörður og áhugamaður um sjávarútvegsmál. Karl Ormsson Betri þjónusta og þægilegra flug en þú átt að venjast Þegar þú ferðast með SAS á Euro Class færðu þjónustu sniðna að þörfum fólks í viðskiptaferðum. Alla leiðina er stjanað við þig. Við færum þér girnilega málsverði borna fram með frönskum og þýskum eðalvínum. Eftir matinn getur þú hallað mjúku og breiðu sætinu langt aftur og teygt vel úr fótunum, því fótarýmið er meira en nóg. Hafðu samband við ferðaskrifstofuna þína M/SAS Flugfélag athafnafólks Laugavegur 3, sími 62 22 11 r r

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.