Morgunblaðið - 03.09.1991, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 03.09.1991, Blaðsíða 55
M0RGUN81.AÐIÐ ÞRIÖJÚDÁGUR' 3. ; SEFrEMBER ‘19’91 55 Minning: Fanney Jónas- dóttir frá Múla Fædd 14. febrúar 1912 Dáin 19. ágúst 1991 Fanney Jónasdóttir, amma mín, lést á Borgarspítalanum að kvöldi 19. ágúst sl. eftir skamma legu, en langa baráttu við þrálátan hjarta- sjúkdóm. Mig langar í fáum orðum að minnast þessarar merku konu, sem ekki lét mikið fyrir sér fara, en var búin öllum þeim bestu mannkostum sem prýtt geta eina og sömu mann- eskju. Hún var fædd á Sauðadalsá í Krikjuhvammshreppi, dóttir hjón- anna Jónasar Jónassonar smiðs og bónda þar og Guðrúnar Jónsdóttur konu hans. Þau hjón eignuðust fimm börn, þar af eitt er dó í æsku. — Hin voru: Guðmundur Jónasson, sem nú er látinn, f. 1909, Jón Hún- fjörð Jónasson f. 1914, Guðrún Jón- asdóttir f. 1921 og svo hana ömmu mína. Þegar Fanney amma mín var í æsku, flutti ijölskyldan að Múla í Línakradal, Kirkjuhvammshreppi, V-Húnavatnssýslu, þar sem hún ólst upp og átti heima allt þar,til hún kynntist eftirlifandi manni sín- um og afa mínum, Jónasi R. Jónas- syni fyrrv. deildarstj. hjá Pósti og síma, — og þar til þau byijuðu sjálf búskap. Rúmlega tvítug fluttist hún ásamt afa mínum og elstu dóttur þeirra til Reykjavíkur, þar sem þau hafa átt heima alla tíð síðan. Þau eignuðust þrjár dætur: Guð- rúnu f. 1930, Sigrúnu f. 1942 og Fanney f. 1948. Oft reikaði hugur ömmu minnar til æskustöðvanna og minningin um foreldrana og dýrin í sveitinni, sóttu á hug hennar á stundum. Hún var óspör á að fræða mig um ýmsa hluti er lutu að sveitinni og mannlegum samskiptum þar, sem og annars staðar. Bar þá oft skoplega hluti á góma og marga vísuna kunni hún bæði eftir föður sinn og aðra, — og marga söguna kunni hún af kynlegum kvistum samtíðarinnar. Á Múla var mikið menningar- heimili og Jónas faðir ömmu var í ýmsum nefndum og ráðum, svo sem hreppsnefnd og í stjórn Kaupfélags- ins á Hvammstanga, auk ýmissa annarra félagsstarfa. Hann stundaði smíðar út um sveitir, samfara búskapnum, svo afkoman var all góð, á þeirra tíma mælikvarða. Leiðir margra lágu í Múla og þar var öllum vel tekið og veitt vel, gestum og gangandi. Þess bar líka amma mín merki, að hún kom ekki frá neinu kotungs- heimili og ætíð tók hún á móti öllum me_ð mikilli reisn og myndarskap. í raun lagði hún grunninn að vísnaáhuga mínum og hafði gott eyra fyrir vel kveðnum vísum, en atómskáldskapur átti ekki upp á pallborðið hjá henni. Oft reyndum við að hnoða saman vísu í fljótheitum, þar sem hún byij- aði og ég reyndi að botna, eða öfugt. — Hafði hún þá oftast betur, en leirburður þessi endaði síðan í hlátr- asköllum vegna skoplegrar útkomu. Hún lagði ætíð áherslu á hrein- lyndi og heiðarleika, þar sem þeir er minna máttu sín skyldu í heiðri hafðir og komið vel fram við þá, hvort sem það vora menn eða mál- leysingjar. Stundvísi og samviskusemi var henni í blóð borin og það vandi hún sig og sína á, enda kom iðulega góður vitnisburður frá skólanum á einkunnarspjöldum okkar krakk- anna fyrir stundvísi. Eg minnist ætíð þeirra orða hennar, — að hvernig sem aðrir kæmu fram við mann sjálfan, þá skyldi maður ekki svara í sömu mynt, heldur varðveita manngildi sitt með góðri framkomu, því annað yrði manni aðeins til minnkunnar. Mörg heilræðin lagði ég af stað með út í lífið, frá henni ömmu minni, sem hafa reynst mér gott vega- nesti ávallt síðan. Hún sem aldrei þoldi að neinn þyrfti að þjást, fékk svo rækilega að kynnast þjáningunni samfara þeim sjúkdómi er varð hennar fylgi- fiskur. — En þrátt fyrir að sjúkleikinn reyndi meira á líkamlegt þrek henn- ar á síðustu mánuðum, bar hún höfuðið hátt og hélt sinni reisn, allt til enda þessarar jarðvistar. — Það var ekki verið að bera sjúkleikann á torg, né íþyngja öðr- um með slíku óþarfa fjasi, heldur ganga í það, að færa gestum ein- hveijar góðgerðir. Fá börn eiga þess kost í æsku og sérlega ekki á seinni tímum, að koma alltaf að einhveijum heima fyrir, að loknum skólatíma á dag- inn, — koma heim og fá að borða og geta borið sín vandamál undir einhvern, svo líðanin verði betri. Ég átti því láni að fagna, að eiga hana ömmu mína að öll mín skólaár og geta alltaf komið að henni vísri heima að loknum skóladegi með mínar áhyggjur eða vandamál. — Úr þeim greiddi hún auðveldlega og oft leysti góður matur og saddur magi helming vandans og orð henn- ar urðu til þess að vandamálin urðu að hjómi einu. — Ef ekki dugði annað, sló hún hlutunum upp í grín og allt í einu sá maður vandamálin í spéspegli, sem við hlógum síðan bæði að. Það hlýtur oft að hafa verið erf- itt, að ala upp baldinn strák eins og mig, en einhvern veginn hafði hún lag á því, með fortölum og eig- in sálargáfu, að draga niður í strák og fá hann til að vera þægan. Fanney amma mín lagði grunn- inn að framtíð minni með góðu inn- ræti og hollu viðurværi og ofan á þann grunn bætti hún ætíð síðan, — því alltaf var gott að koma í Álfheimana, heimili þeirra afa og ömmu, sem var hornsteinninn í til- veru barna og barnabarna. í heimilisstörfunum tók henni enginn fram og allt sem hún tók sér fyrir hendur var leyst af mynd- arskap og snyrtimennsku. Hún hafði græna fingur, eins og sagt er um þá er gengur vel að rækta plöntur, — þess báru fallegu rósirn- ar hennar vott og þær kallaði hún oft börnin sín. Handavinnan hennar hefði sómt sér á hvaða sýningu sem var, þar sem flókin pijónamynstur skörtuðu sínu fegursta og báru vott um henn- ar listræna smekk og lipurt hand- bragð. Þau voru ófá sokkaplöggin, sem voru afrakstur handavinnunnar og dregin voru á vota og kalda fætur og ófá mjókurglösin og kökubitarn- ir, sem fengu ung andlit til að ljóma skærar, í eldhúsinu í Álfheimunum. En þrátt fyrir það, að hún væri sjálf meistari í öllum greinum heim- ilisverkanna, þá var hún óspör á að hæla öðrum fyrir þeirra myndar- skap, þegar henni fannst vel gert eða vissi að viðkomandi hafði mikið á sig lagt. Hún var þungamiðja allra þeirra starfa, sem við á heimilinu þurftum að inna af hendi út á við sem innan og það var ekki síst henni að þakka, þegar vel gekk - þar kom til sá ómetanlegi styrkur sem fólst í henn- ar góða atlæti heima fyrir og góðum ráðum, sem við þau yngri fengum í vegarnesti. Oft dreymdi hana fyrir manna- komum sem og öðrum atburðum, svo að með ólíkindum var. Stundum hafði hana dreymt einhverja ákveðna persónu og staði, sem hún túlkaði á ákveðinn hátt, og það brást varla að það kæmi fram, er hún spáði. Þetta kom oft skýrast í ljós þegar fólk kom úr hennar æsku- héraði, þá dreymdi hana oft fyrir þeirri gestakomu. Með burtkalli hennar er horfinn einhver höfuðstafur í ferskeytlu lífsins og ansi er hætt við, að ekki rými allar ljóðlínur daglegs lífs, hjá þeim sem eftir henni horfa yfir móðuna miklu, svo stóran sess sem hún skipaði í lífi sinna nánustu. En eitt er víst, að fari þeir ril guðs sem vel og rétt breyta á þess- ari jörð, þá verður henni skipað þar í öndvegi. Ég veit að drottins náðarfaðmur tekur á móti henni og hún mun ganga á guðs vegum, án þeirra sjúkdómsþjáninga er hún varð að lifa við, síðustu misseri þessa jarðn- eska lífs. Ég vona að guð hjálpi öðrum hennar nánustu í sorg þeirra og afa mínum sem nú hefur misst sinn lífs- förunaut, eftir rúm sextíu samvist- arár. Ég þakka henni ömmu minni fyrir allar góðu stundirnar og öll góðu og hlýju árin, sem ég var syo lánsamur að eiga hana að. Jónas Baldursson t Sonur okkar, stjúpsonur, barnabarn og bróðir, JÖHANNES HJALTASON, er látinn. Sólveig Jóhannesdóttir, Gunnar Árnason, Hjalti Þórisson, Guðrún Björk Tómasdóttir, Áróra Helgadóttir, Jóhannes Árnason, Björg Hermannsdóttir Árni Kristinn, Hörður, Margrét, Teiturog Guðný. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir og afi, PÉTUR TEITSSON fyrrverandi bóndi á Bergsstöðum, verður jarðsunginn frá Hvammstangakirkju miðvikudaginn 4. sept- ember kl. 14. Vilborg Arnadóttir, Ólöf H. Pétursdóttir, Daniel B. Pétursson, Vilborg Pétursdóttir, Páll V. Daníelsson, Guðni Daníelsson, IngibjörgDaníelsdóttir, Pétur B. Ólason Sigríður Eðvaldsdóttir, Guðni Steingrímsson, Guðrún Jónsdóttir, Svava Guðjónsdóttir, Pálmi Jónsson, og fjölskyldur. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR ÁRSÆLSDÓTTIR, Hamraborg 18, lést 25. ágúst. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Kristín Jónsdótitr, Hörður Jónsson, Björn Ingvarsson, Rósmary Karlsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir til allra þeirra, er sýndu okkur samúð við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, PÁLS A. JÓNASSONAR múrara frá Súðavík, Kieppsvegi 132. Sérstakar þakkir til Ásgeirs Jónssonar læknis og starfsfólks á gjörgæsludeild Landakotsspítala. Kristrún Magnúsdóttir, Edda Pálsdóttir, Magnús Jónsson, Sigurður Pálsson, Nína Einarsdóttir, Gylfi Pálsson, Steinunn Sigurjónsdóttir og afabörnin. + Þakka af alhug auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, ÁGÚSTARGUÐLAUGSSONAR, Kambsvegi 19. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna, Steinunn Guðmunda Olafsdóttir. vi + Þakkir eru hér færðar öllum, er sýnu mér vinsemd við fráfall bróð- ur míns, SVEINS ERASMUSSONAR frá Háu-Kotey, Meðallandi. Fyrir hönd vandamanna, Gísli Erasmusson. + Þökkum auðsýnda samúð við fráfall föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, HELGA M. S. BERGMANN listmálara, Grundarstíg 21, Reykjavík. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför ÁSDÍSAR SVEINSDÓTTUR, \ Egilsstöðum. Sigríður Fanney Jónsdóttir, Sigríður Ingunn Ásdísardóttir, Ásdis Gríma Jónsdóttir, Jón Egill Sveinsson og fjölskyldur, Ingimar Sveinsson og fjölskyldur. + Innilegar þakkir færum við öllum, sem sýndu okkur hlýhug ogvl, hluttekningu við andlát og jarðarför LÁRU BJARNADÓTTUR frá Birkihlíð. Bragi Ingjaldsson, Baldur Bragason, Karl Bragason, Þórhalla Bragadóttir, Svavar Sigurðsson, Elín Bragadóttir, Kristinn Hólm, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.