Morgunblaðið - 03.09.1991, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1991
41
Gullgerðin sem brást
Kvikmyndir
SæbjÖrn Valdimarsson
Stjörnubíó:
„Iludson Hawk“
Leikstjóri. Aðalleikendur
Bruce Willis, Andie MacDow-
ell, Danny Aiello, Sandra
Bernhard. Bandarísk. Tri-Star
1991.
Örlögin eru stundum gráglett-
in. Inntak Hudson Hawk er einn
heljarinnar eltingarleikur við að
hafa uppá gullgerðarmaskínu
uppfundinni af snillingnum
Leonardo da Vinci og endar með
ósköpum og eyðileggingu appar-
atsins. Slík urðu og örlög mynd-
arinnar, hún átti að verða einn
aðalsmellur sumarsins, ausið var
fé í verkefnið, langt, langt fram
úr áætlun, þegar upp var staðið
var hún orðin ein af dýrustu
myndum allra tíma. En allt kom
fyrir ekki, almenningur forðaðist
myndina eins og heitan eldinn,
í’stað þess að mala gull eins og
maskínan hans da Vincis varð
hún ein af þyngstu klyíjum sem
kvikmyndaverið sem framleiddi
hana hefur axlað.Hudson Hawk
urðu mistök af stærstu gráðu.
Ástæðan er augljós. I fyrsta
lagi fer því fjarri að peningaaust-
urinn styrki myndina sem er
langt frá því að vera íburðarmik-
ii og státandi af vönduðum, dýr-
um sviðum (lentu aurarnir í vas-
anum hjá Willis?) Þá er handritið
ekki gætt þeim nauðsynlega
gálgahúmor sem til hefur staðið
heldur einkennist af lapþunnum
bröndurum og glórulausri vit-
leysu. Höfundar (Willis er i hópn-
um) hafa ætlað sér að gera ofur-
fyndna mynd um ofurkaldan
kall, hvort tveggja bregst. Það
er- vissulega talsvert hlegið, en
því miður ekki í salnum heldur
á tjaldinu þar sem stjörnunum
er virkilega dillað af eigin snilli.
Útkoman sú að áhorfendum
verður tíðlitið á klukkuna - líkt
og undir öðrum myndum í svip-
uðum dúr einsog The Hallelujah
Trail, /shtarHonky Tonk Fre-
eway, þau eru orðin mörg gam-
anmyndaslysin. Þetta er vand-
meðfarinn efniviður, látið vaða á
súðum á vandrötuðum mörkum
farsa og gamanmyndar og hefur
lukkast í mvndum á borð við It’s
a Mad, Mad, Mad, Mad World.
Bruce Willis bætir lítið úr
skák. Hann er heldur takmark-
aður leikari sem skaust fyrir
heppni uppá stjörnuhimininn í
Die Hard myndunum, framtíð
hans ræðst af velgengni næstu
myndar. En Willis gerði það gott
á skjánum - sem virðist henta
honum betur - í Moonlightning
gamanþáttunum og hann á örfáa
spretti í hrærigrautnum sem
hefst á því að honum er að sleppt
úr fangelsi eftir langa innisetu,
Willis leikur nefnilega titilhetj-
una, einn frægasta innbrotsþjóf
allra tjma. En hann fær ekki að
sitja lengi aðgerðarlaus þrátt
fyrir heitstrengingar um að
þræða mjóa veginn í framtíð-
inni. Er Hudson þvingaður til að
fremja nokkur innbrot hvert öðru
erfiðara - hafa uppá hlutunum
þrem sem mynda gullmaskínuna
hans da Vincis.
Aðrir leikarar hafa ekki erindi
sem erfiði frekar en Willis þó
þeir rembist einsog ijúpan við
staurinn að bera höfuðið hátt,
það tekst einfaldlega ekki undir
þessum kringumstæðum. Meira
að segja Aiello er eins og álfur
út úr hól. Sem dæmi um furðu-
lega gamansemi Hudson Hawk
eru eilíflr pústrar og kinnhestar
sem eiga víst að vera ofboðslega
fyndnir. Einhver þarf greinilega
að taka sig saman í andlitinu!
RAII
KENNSLA
Auglýsing frá
grunnskólum Kópavogs
Nemendur komi í skólana fimmtudaginn
5. september:
1. bekkur, börn fædd 1985, kl. 13.30 (6 ára).
2. bekkur, börn fædd 1984, kl. 14.00 ( 7 ára).
3. bekkur, börn fædd 1983, kl. 13.00 ( 8 ára).
4. bekkur, börn fædd 1982, kl. 11.00 (9 ára).
5. bekkur, börn fædd 1981, kl. 10.00 (10 ára).
6. bekkur, börn fædd 1980, kl. 09.00 (11 ára).
7. bekkur, börn fædd 1979, kl. 09.00 (12 ára).
8. bekkur, börn fædd 1978, kl. 09.00 (13 ára).
9. bekkur, börn fædd 1977, kl. 10.00 (14 ára).
10. bekkur, börn fædd 1976, kl. 11.00 (15 ára).
Skólafulltrúi.
Norska/sænska
á grunnskólastigi
Nemendur, sem sækja kennslu í sænsku eða
norsku í Miðbæjarskóla, mæti til innritunar
föstudaginn 6. september sem hér segir:
6. bekkur kl. 15.00.
7. -8. bekkur kl. 15.30.
9.-10. bekkur kl. 16.00.
Norskunemar mæti í stofu 25, sænskunemar
mæti í stofu 24.
Nemendur eru beðnir að mæta með stunda-
skrár úr sínum skóla.
Umsjónarkennarar.
TÓNUSMRSKÓU
KÓPFNOGS
Frá Tónlistarskóla
Kópavogs
Söngnám innifelur undirleik, heyrnarþjálfun
og samsöng með atriðum úr óperum.
Kennari: Anna Júlíanna Sveinsdóttir.
TÓNUSMRSKÓU
KÓPFNOGS
Frá Tónlistarskóla
Kópavogs
Innritun fer fram í skólanum, Hamraborg 11,
2. hæð, sem hér segir:
5. og 6. september kl. 10.00-13.00 og 15.00-
18.30, 7. september kl. 10.00-14.00 og 9.
september kl. 10.00-13.00 og 15.00-18.30.
Nemendur eru beðnir að láta stundaskrár
fylgja umsóknum. Minnt er á að sækja þarf
um skólavist árlega. 1. hluti skólagjalds
greiðist við innritun. Ekki verður tekið á
móti umsóknum í síma.
Skólastjóri.
ÝMISLEGT
Drengjakór
Inntökupróf í Drengjakór Laugarneskirkju fer
fram í safnaðarheimilinu fimmtud. 5. sept.
kl. 16.00 til 18.00 og laugard. 7. sept. kl.
13.00-15.00. Kórinn er opinn drengjum á
aldrinum 10 til 14 ára. Undirbúningsnefnd
(Schola Cantorum) er opin drengjum á aldrin-
um 9 til 12 ára.
Kórinn stefnir að þátttöku í alþjóðlegri
drengjakórahátíð, sem verður í Flórída í
Bandaríkjunum 1992.
TILKYNNINGAR
Menntamálaráðuneytið
Auglýsing um styrki
til leiklistarstarfsemi
Auglýst er eftir umsóknum um styrki á árinu
1992 til leiklistarstarfsemi atvinnuleikhópa,
er ekki hafa sérgreinda fjárveitingu á fjárlög-
um. Styrkveitingar eru háðar því að fé verði
veitt á fjárlögum ársins 1992 í þessu skyni.
Umsóknir skulu hafa borist menntamála-
ráðuneytinu Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík,
fyrir 14. október næstkomandi á eyðublöðum
sem þar fást.
Menntamálaráðuneytið,
1. september 1991.
FÉLAGSSTARF
IIFIMDAI.IUK
Aðalfundur
Heimdallar
Aðalfundur Heimdallar, félags ungra sjálf-
stæðismanna í Reykjavík, verður haldinn í
Valhöll, Háaleitisbraut 1, í dag, þriðjudaginn
3. september, kl. 20.00.
Dagskrá:
1. Skýrla stjórnar.
2. Reikningar.
3. Umræður um skýrslu reikninga.
4. Lagabreytingar.
5. Umræður óg afgreiðsla stjómmálaálykt-
unar.
6. Kosning formanns, 11 stjórnarmanna og tveggja endurskoðenda.
7. Ræða heiðursgests fundarins, Bjöms Bjarnasonar, alþingis-
manns.
8. Önnur mál.
Stiórnin.
KENNSLA
Vélritunarkennsla
Morgunnámskeiö hefst 10. sept.
Vélritunarskólinn, s. 28040.
FÉLAGSLÍF
Básará Goðalandi
njóta sívaxandi vinsælda göngu-
og útivistarfólks. Út frá Básum
iiggja ótal gönguleiðir um litríkt
og fjölbreytt landslag. Tilvalinn
staður til þess að slappa af eftir
amstur vinnuvikunnar og skark-
ala borgarinnar.
Ath.: Myndakvöld, sem sam-
kvæmt ferðaáætlun Útivistar
1991 átti að vera 5. sept., verð-
ur frestað.
Sjáumst.
Útivist.
Skyggnilýsingafundur
Þórhallur Guðmundsson, miðill,
og Betty Allen, miðill, halda
skyggnilýsingafund miðvikudag-
inn 4. september kl. 20.30 í
Skútunni, Dalshrauni 15, Hafn-
arfirði. Miðar seldir þriðjudag-
inn 3. sept. milli kl. 18.00-19.00
á sama stað.
'iyftrndífrrð
ÚTIVIST
GRÓRNNI l • REYKJAVÍK • SÍMIAÍMSVUII4606
Um næstu helgi
Jónsnes
Gengið í Jónsnes við Breiðafjörð.
Hugað að berjum. Farið í Álfta-
fjörð. Áhugaverð ferð um fagurt
svæði. Góð svefnpokagisting.
Fararstjóri: Gréta Sigurðardóttir.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLOUGÖTU3S 11798 19533
Helgarferðir
Ferðafélagsins
6.-8. sept. Jökulheimar-
Heljargjá-Hraunsvötn.
Jökulheimar eru við Tungnárjök-
ul. Spennandi göngusvæði s.s.
á Kerlingar og víðar. Heljargjá
er norðaustur af Þórisvatni og
gengur í gegnum tvo eldgíga,
sprengigíg og hraungíg, og klýf-
ur þá. Spennandi ferð um stór-
brotna náttúru. Gist í húsum.
Brottför kl. 20.00, föstudag.
Upplýsingar og farmiðasala á
skrifstofu Ferðafélagsins.
Helgarferð til Þórsmerkur -
uppseld!
Ferðafélag íslands.
vh
Meirn en þú geturímyndað þér!