Morgunblaðið - 03.09.1991, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 03.09.1991, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1991 53 Kveðjuorð: Elías Halldórsson Nú þegar leiðir okkar Elíasar Halldórssonar, þess mæta manns og góða drengs skilja í bili, vil ég ekki láta hjá líða að minnast hans nokkurs og sérstaklega hve hann var mér mikils virði í viðskiptum og vináttu. Hann var hinn trausti klettur sem ekki bifaðist þegar hann vissi að hann var að gera rétt. Fyrir utan það að hvert orð stóð sem hann lofaði, þá var hann mér sá leiðbein- andi sem mér var öruggt að taka mark á, þegar ég var í erfiðu hlut- verki, sem rekstrarstjóri útgerðar í Hólminum og þurfti að leita til Fisk- veiðasjóðs. Og fyrir hans tilstilli gekk þetta allt upp. En það skal líka tíundað að upp úr þessum við- skiptum myndaðist sönn vinátta. Og þá spillti það ekki hversu gam- ansamur hann gat verið og spaug- samur. Hann vissi að ég var í gam- anvísnabransanum og ekki spillti það fyrir. Oft kom ég til hans og alltaf fór ég frá honum ánægðari í hvert skipti og allt sem hann ráð- lagði mér varð mér til blessunar. Þessa vil ég minnast þegar ég verð að lúta því hve fá orð sem sögð eru standa í dag. Ég heim- sótti hann á Droplaugarstaði og var sú heimsókn okkur báðum kærkom- in og gaman höfðum við af að riija upp liðna tíð og svo ótal margt sem við áttum sameiginlegt. Hann var alltaf samur og jafn. Mynd hans í mínum huga var alltaf að stækka. X-íöfðar til XX fólks í öllum starfsgreinum! Þegar hann var níræður sendi ég honum kveðju. Fékk kveðju til baka með hinni snilldarlegu rithönd hans. 011 hans vinnubrögð voru svo fáguð og hann vissi að það skal vanda sem vel á að standa. Ætti ég ósk til blessunar minni ástkæru þjóð, myndi ég ekki hika við að biðja um menn eins og Elías Halldórsson í hvert rúm. Þá væri gaman að lifa. Ég sendi hans ættmennum inni- legar samúðarkveðjur og segi um leið: Guð blessi minn góða vin. Já, blessuð sé minning hans. Arni Helgason, Stykkishólmi Minning: Ivar Helgi Oskarsson Fæddur 17. september 1971 Dáinn 17. ágúst 1991 Nú er hann farinn inn í aðra vfdd, vídd sem við hugsum um en skiljum ekki, vegna þess að vegir Guðs eru órannsakanlegir. Ekki bara að hann var góður vinur heldur ólumst við upp saman. Það er erfítt að horfa á eftir jafn góðum og ljúfum strák eins og ívari og þegar ég heyrði um andlát hans var það eins og stór biti væri tekinn úr hjarta mínu og partur af mér dó með honum. Það var oft sem við tókum fram gömul myndaalbúm til að skoða. Myndir af okkur, ég fjögurra mán- aða, hann nýfæddur og svo hlógum við alveg eins og vitleysingar. Hann ívar gekk stundum undir nafninu „Prófessorinn" og þið sem ívar þekktuð vitið að hann átti sinn hugarheim. Þegar farið var í ferða- lög var ekki málið að taka ívar með þegar stoppað var, heldur muna eftir honum og stundum var hann svo utan við sig að hann gekk á lokaðar hurðir. ívar átti fjölmarga vini og kunn- ingja og alls staðar var hann vel látinn og velkominn. Oft leitaði maður til hans og alltaf var hann tilbúinn að hlusta eða rétta manni hjálparhönd. Hann var verklaginn og duglegur í vinnu og allt sem hann tók sér fyrir hendur var vel gert. Námsmaður var hann og gekk honum vel í skóla, honum fannst gaman að lesa enda mjög fróður á mörgum sviðum. Jafnljúfum og góðum félaga og öllum þeim stundum sem við áttum saman verður ekki gleymt og minn- ingin lifir áfram um góðan vin eins og ívar var. Elsku Lovísa, Oskar, Áslaug og Dóra. Ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Sveinn Snorri Sighvatsson STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN Leikfimiskór Verð 1.995,- Stærðir: 34-46. Litur: Ljós. Ath.: Full búd af nýjum vörum Póstsendum samdægurs. 5% staðgreiðsluafsláttur. Kringlunni, Toppskónum, sími 689212. Veltusundi, sími 21212. Blaóió sem þú vaknar vid! Michele Geldens kennari Steve Allison kennari Margrét Hðifdánardðttir skrifstofustjóri Grímur Grímsson framkvæmdarstjóri Jacqueline Foskett _« «1 kennari Carolyn Godfrey kennari MAL ALLIR KENNARAR SKÓLANS Velkominn í Enskuskólann Verið velkomin að líta inn í Enskuskólann í spjall og kaffi áður en námskeiðin hefjast, 3. til 10. september. Við bjóðum upp á 10 námsstig í ensku. Við metum kunnáttu þína og í framhaldi af þvi ráðleggjum við þér hvaða námskeið hentar þér og þínum óskum best. | Komdu í heimsókn eða hringdu - því fylgja engar skuldbindingar. INNRITUN STENDUR YFIR HRINGDU Í SÍMA 25330 EÐA 25900 OG FADU FREKARIUPPLYSINGAR KENNSLA HEFST 11. SEPTEMBER Fyrir fullorðna: Almenn enska (7 vikur) (1 - 10 stig) Enskar bókmenntir (5 vikur) Rituð enska (5 vikur) Viðskiptaenska (5 vikur) Bretland: Saga, menning og ferðalög (5 vikur) TOEFL-G MAT-GRE Námskeið Undirbúningsnámskeið fyrir próf sem krafist er við flesta skóla í enskumœlandi löndum (5 vikur) Fjrrir böm: Leikskóli fyrir 3-5 ára (12 vikur) Forskóli fyrir 6-8ára (12 vikur) Byrjendanámskeið fyrir 8-12 ára (12 vikur) UngLnganámskeið fyrir 13-15 ára (12 vikur) Önnur námskeið: Laugardagsnámskeið (12 vikur) Hraðnámskeið (1 vika) Kráarhópar (7 vikur) Umrœðuhópar (7 vikur) Einkatímar Hœgt er að fá einkatíma eftir vali ÞÚ FINNUR ORUGGLEGA EITTHVAÐ VIÐ ÞITT HÆFI HJA OKKUR - VELKOMIN I HOPINN. skólinn TUNGOTU 5 101 REYKJAVIK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.