Morgunblaðið - 03.09.1991, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1991
21
Maríusystur koma
Starf Maríusystranna
eftir Magnús
Björnsson
Hinar evangelísku Maríusystur
— hverjar eru þær?
Systrasamfélag hinna evangelísku
Maríusystra tilheyrir kirkjudeild
mótmælenda, (evangelísk — lúther-
skar). Systrasamfélagið á rætur að
rekja til vakningar í biblíuhópum
meðal unglinga á tímum loftárás-
anna á Darmstadt í Þýskalandi árið
1944, er fjöldi fólks lét lífið.
Upphafsmenn og leiðtogar eru
Móðir Básilea Schlink og Móðir Mar-
tyria Madauss. Eftir stofnunina árið
1947 byggðu systurnar með eigin
höndu'm kapellu til boðunar ág til-
beiðslu og síðar heimili fyrir systra-
samfélagið. Mikið af byggingarefn-
inu voru múrsteinar sem þær grófu
úr rústunum í Darmstadt. Stofnféð
var 30 þýsk mörk. En húsin voru
reist skuldlaus. Allt fram á þennan
dag hefur það verið og er systrunum
skylda að ganga veg trúarinnar og
vera Guði algjörlega háðar með allar
nauðsynjar sínar. í bókinni, Þegar
Guð svarar, er unnt að lesa meira
um þennan veg trúarinnar sem hefur
dýrð Guðs að stefnumarki, og um
það, hvernig Hann hjálpar í smáu
og stóru.
Kapellan og systraheimilið var
upphafið að dálitlum landskika milli
Frankfurt og Heidelberg, sem nú er
þekktur um heim allan undir nafninu
„Kanaan“. Margir norrænir hópar
og einstaklingar hafa heimsótt Kana-
an á þessum árum — einnig nokkrir
íslendingar, því þeir hafa heyrt að
þar er endumýjun að fá. Þar reyna
menn brot af því hver raunverulegt
frelsið í Jesú Kristi er og hve Guð
er mikill. Þar gefst innsýn í ríki
Hans, því menn búa þar saman í
sönnum kærleika, einingu og gleði.
Kanaan er lifandi vitnisburður um
„daglega iðrun og afturhvarf".
Þær starfrækja m.a. eigin prent-
smiðju og bókaútgáfu. Bækur Móður
Basileu hafa verið þýddar á yfir 60
tungumál og eru lesnar í öllum hlut-
um heims. A stöðum þar sem kristi-
legar bækur eru fáséðar hafa þær
með útvarpsdagskrám á mörgum
tungumálum náð til fólks með fagn-
aðarerindið. Þeta hafa m.a. flótta-
menn frá Víetnam vitnað um. Á ís-
lensku hafa verið þýddar bækurnar
„Þegar Guð svarar“ og „Dýrmætara
en gull“.
Verkstæði framleiðir lofgjörðar-
töflur, þ.e. töflur úr gervikvoðu sem
þolir veðrun með biblíutilvitnunum,
sálmaversum og öðrum kristilegum
textum, sem benda á Guð, skapar-
ann, og hafa þann tilgang að ná til
manna úti í náttúrunni. Norrænu
töflumar eru framleiddar í Noregi.
Pjöldi taflna eru til á öllum norður-
landamálum. íslensku töflurnar eru
staðsettar við Goðafoss. Þingvalla-
kirkju, á Bjargtangarvita á Horn-
bjargi og í Vestmannaeyjum.
Víðtæk ferðalög einkenna einnig
starfsemi systranna. Þær heimsækja
söfnuði og kirkjur sem óska eftir
samkomum, helgarsamverum eða
kyrrðardögum með biblíutímum og
öðrum samverum, þar sem sýndar
eru skuggamyndir og eigin kvik-
myndir sem boða fagnaðarerindið á
lifandi og markvissan hátt, og kalla
til. skilyrðalausrar eftirfylgdar við
Jesú Krist.
Koma systranna til
Norðurlanda
Er starfsemi Marísystranna
breiddist út um heim, komu óskir frá
ýmsum löndum um að stofna lítil
„Kanaan-samfélög". Nú eru 18 slík
aðsetur í 16 löndum.
Frá Noregi komu ítrekaðar óskir
um að koma þangað. Fyrst bjuggu
tvær þýskar systur í Danmörku í 11
ár, en þær gátu ekki til lengdar ann-
að einar verkefnunum á Norðurlönd-
um. Nú hafa ungar stúlkur frá Finn-
landi, Svíþjóð, Noregi og Danmörku
gerst Maríusystur.
Nokkrir vinir systranna fundu lít-
inn stað í Arneberg í Noregi sem
áður hafði verið gistiheimili og var
til leigu. Hann virtist góð miðstöð
Búnaður í Subaru Legacy er m.a.
• Sítengt fjórhjóladrif og hátt og lágt drif.
• 16 ventla vélar, 1.8 eða 2.2L
• 14 tommu felgur. Dekk: 14 x 185.
• Sjálfstæð gormafjöðrun á hverju hjóli.
• Fimm gíra handskipting eða 4ra gíra sjálfskipting.
• Aflstýri og veltistýri.
• Samlæsing í hurðum og afturhlera.
• Rafdrifnar rúður með öryggislæsingum.
• Rafdrifnir speglar.
• Höfuðpúðar á aftursætum.
• Upphituð afturrúða með rúðuþurrku og sprautu.
• Þvottasprautur á ökuljósum.
• Aflhemlar, diskabremsur.
• „Hill holder“ samtenging bremsu og kúplingar í brekku.
• Útvarpsloftnet og hátalarar í hurðum.
• Hæðarstilling ökuljósa í mælaborði.
Aktu ekki út í óvissuna. - Aktu á Subaru.
Subaru er náttúrukær.
Ingvar
Rflelgason hf
Sævarhöfða 2
simi 91-674000
fyrir starfið á Norðurlöndum. Þangað
flutti hópur systra 1980 og býr þar
nú.
Með þessari starfsmiðstöð og öðr-
um slíkum hafa Maríusysturnar ekki
í hyggju að mynda neinn nýjan söfn-
uð. I Þýskalandi starfa þær innan
evangelísk-iúthersku kirkjunnar, þó
þær séu fjárhagslegar óháðar henni.
Þær telja það sitt hlutverk að styrkja
þá kristilegu starfsemi sem fyrir er
og hjálpa til þess að undirbúa kristn-
ina nú fyrir komandi þrenging-
artíma, en einnig að vinna til trúar
á Krist, menn sem þekkja hann fyrir.
Þar sem mynd Guðs er nú á tímum
svo skrumskæld í fjölmiðlum þá er
það þeirra hjartans mál að fólk á
okkar dögum fái að sjá hina sönnu
„Þær telja það sitt hlut-
verk að styrkja þá
kristileg-u starfsemi
sem fyrir er og hjálpa
til þess að undirbúa
kristnina nú fyrir kom-
andi þrengingartíma.“
mynd Guðs og Jesú Krists í gegnum
starf þeirra.
Allt frá árinu 1969 hafa þær haft
mikið ferðastarf með höndum á
Norðurlöndum. Þær komu fyrst til
Frá Kanaan, starfsmiðstöð Maríusystra í Darmstadt í Þýskalandi.
íslands árið 1983. Komu þeirra hing-
að undirbýr hópur sem kallar sig
Kanaan-vini. Þann 5.-12. september
næstkomandi munu Maríusystur
heimsækja ísland.
Opið mót verður helgina 6.-8. sept-
ember í Ölveri undir Hafnarfjalli.
Yfirskrift mótsins verður: Guð einum
ber dýrðin. Á Austurlandi munu þær
halda tvær kvöldsamkomur á Biblíu-
skólanum Eyjólfsstöðum. Lokasam-
veran verður svo í Safnaðarheimili
Bústaðarkirkju miðvikudaginn 11.
september kl. 20.30. Nánari upplýs-
ingar um komu Maríusystranna er
hægt að fá í síma 14327 og 17109.
SUBARU LEGACY 4WD
FRÁBÆR FERÐABÍLL
til afgreiðslu strax