Morgunblaðið - 03.09.1991, Blaðsíða 13
rnniyiQRG,UflBLAÐIÐ. fiPIt)JUDA,qPfi 3.,SERTEMJBERg991
tregaljóð. Fjögur lög voru við kvæði
eftir H.C. Andersen og skal þar
helsta nefna Muttertraum, þar sem
píanóröddin var ofin sem kontra-
punktiskt mótrödd við sönglagið og
Der Soidat, sem er sérlega áhrifa-
mikið og harmþrungið.
Síðustu viðfangsefnin voru sótt
í Tólf ljóð eftir Justinus Kerner op.
35 en af þeim fluttu þeir félagar
aðeins 11 og slepptu nr. 2 (Stirb,
Lieb’ und Freud’!). Kemer var ekki
talinn eins gott skáld og Lenau, en
augljóslega hefur hann haft meiri
áhrif á Schumann, því þar er að
finna sum af frægustu lögum tón-
skáldsins, eins og t.d. Wanderlust,
Erstes Griin og Stille Thranen. Tvö
síðustu kvæðin, Wer machte disch
so krank og Alte laute, eru sungin
við sama lagið og var flutningur
þeirra félaga á þessum undarlega
kyrrðarsöng, blátt áfram stórkost-
legur.
Það er í raun óþarft og óhugs-
andi að fjalla á faglegan máta um
flutning listamannanna. Þeir eru
komnir þangað sem gagnrýni er
óþörf, jafnvel þó reynt sé að festa
hendur á einhverri nöf, í þeirri
ófæru, sem er viðhorf til túlkunar.
Að hlýða á slíka listamenn er
upplifun, þar sem svarið er undir-
gefin, þakklát og þögul hlustun.
Söngvar
viðljóð
eftir Heine
________Tónlist___________
Jón Ásgeirsson
Seinni tónleikamir hjá félögun-
um, Andreas Schmidt og Rudolf
Jansen, voru byggðir upp á söng-
verkum þeim er Robert Schumann
samdi við kvæði eftir Heinrich
Heine, þó ekki öllum, því þar vant-
aði t.d. ballöðuna, Die beiden
Grenadiere og Die Lotosblume en
Du bist wie eine Blume fluttu þeir
sem aukalag.
Á efnisskránni voru lagaflokk-
arnir Liederkreis op. 24, Der arme
Peter, flokkur þriggja laga, nr. 3
úr Romanzen und Balladen op. 53,
tvö sjálfstæð lög, Belsazar, op. 57
og Mein Wagen rollet langsam, sem
var gefið út í flokki fjögurra söngva
op. 142 en mun upphaflega átt að
vera í lagaflokknum Dichterliebe,
op. 48 sem var síðasta viðfangsefni
félaganna.
Það er sérkennilégur munur á
þessum ljóðasöngvum. I Liederkreis
fylgir píanóröddin sönglínunni að
miklu leyti, nema helst í nr. 5 (Sc-
höne Wiege). í Der arme Peter eru
einkenni alþýðulagsins mjög ljós. í
Belsazar er píanóröddin mjög viða-
mikil en er eitt af fáum lögum eft-
ir Schumann, sem er án eftirspils.
í Dichterliebe eru mörg eftirspil-
anna sérlega falleg og frægast
þeirra er niðurlagið en píanóröddin
er oft mjög sjálfstæð, eins og t.d.
í nr. 9 (Das ist ein Flöten und Geig-
en), sem er nánast píanólag með
undirsöng. Það er þó samspil söng-
raddar og hljóðfæris, sem er aðal
þessa meistaraverks, þar sem texti,
söngur og píanóleikur verður i
höndum góðra listamanna, undra-
heimur fegurðar, svipaður þeim sem
skáldið lýsir í næst síðasta ljóðinu
í Dichterliebe, Aus alten Márchen.
Öllu þessu héldu flytjendurnir til
haga og var flutningur þeirra mik-
ill listviðburður enda báðir miklir
listamenn, er gáfu hástemmdri list
Schumans lífsanda. Andreas
Schmidt er frábær söngvari og flutti
þessi vandasömu verk af innsæi og
sterkri tilfinningu. Samspilari hans,
Rudolf Jansen, er snilldar píanóleik-
ari en hann hefur og náð að skyggn-
ast um að baki fortjaldsins, er hylur
innri viðu hlutanna og gæðir leik
sinn þeirri reynslu. Þarna mátti
heyra hversu sú listhefð, sem á
upphaf sitt í Mið-Evrópu, blómstrar
í gjörningi þeirra listmanna, sem
þar hafa vaxið úr grasi og skilja
listina sem móðurmál sitt.
i rl3
FAXAFENI 14, NÚTÍÐ, 108 REYKJAVÍK, SÍMAR 687480, 687580 0 OG 37878
Kennslustaðir: Grafarvogur - Seltjarnarnes - Faxafen 14 (2 salir)
Innrítun daglega
kl. 10-19
Okkar dansar eru
Það sem við kennum ívetur:
Barnadansar
gamlirog nýireru undirstaða
fyrirallan samkvæmisdans.
Söngdansarog leikir fyrir jóla-
ballið og öll hin böllin.
Splunkunýir dansar.
Gömlu dansarnir
Við verðum áfram með gömlu
dansana, ræl, polka, vínarkrus,
skottís o.fl. Þar dönsum við líka
„partý“dansa og gamla, enska
og danska dansa, sem við kenn-
um.
Þar er grunnurinn lagður að 10
dönsunum íheimskerfinu. Fyrir
börn, unglinga og fullorðna. Þar
geta pörin, hjónin og vinirnir
komið saman og átt skemmti-
lega kvöldstund í góðra vina
hópi. Við öðlumst öryggi á dans-
gólfinu og dönsum eftir nýjum
og gömlum lögum. Allt það nýj-
asta fyrir keppnisdansara. Frá-
bærir gestakennarar koma í
heimsókn ívetur. Merkiapróf
verða ívetur.
EPP
fyrir alla stráka og stelpur, unga
og gamla. Nýir dansar, ný lög.
Mikiðfjör.
Við útvegum steppplötur.
Suður-
amerískir
dansar
og Boogie Woogie, mambó og
margirfleiri uppáhaldsdansar
margra. Skemmtileg lög og svo
eru sérhópar fyrir 10-12 ára og
13-16 ára.
Rock’n
Roll
er alltaf einn af tískudönsunum.
Mörg ný spor og samsetningar
lærðum við í sumar í Danmörku af
Kitty og Þer Henckell og þýsku
meisturunum Jens Kressler og
konu hans. Lykilorðið þar er FRAM
og á uppleið. Það verður spenn-
andi fyrir alla aldurshópa, börn
8-9 ára, 10-12 ára, 13-16 ára og
17 ára og eldri.
Jazzleikskólinn
Þau voru fyrst
íjazzleikskólanum.
Jazzleikskólinn er sérgrein okk-
ar. Þarfæreinstaklingurinn,
börn 3ja-6 ára, að njóta sín
óþvingaður á dansgólfinu. Það
hefur sýnt sig og sannað að
börn fá góða undirstöðu ítónlist
og fyrir allan dans til áframhald-
andi náms.
Spennandi leikdansar.
Munið jazzleikskólann okkar.
Varist eftirlíkingar.
Hlp-Hii, Streetúans,
Discojan, Freestyle
fyriralla, sem vilja
hreyfa sig eftirnýj-
ustu lögunum.
Sérhópurjazzdans
fyrir7-9ára.
Sérhóparfyrir
10-12 ára og13-16
ára.
3 pör úr Danskóla Hermanns
Ragnars á verðlaunapalli.
Dansdagur í skólanum sunnu-
daginn 8. september kl. 16. Inn-
ritun og upplýsingar allan dag-
inn og afhending skírteina. Líttu
inn og heyrðu öll nýju danslögin
og sjáðu krakkana dansa.
Félagasamtök og starfsmannahópar verða að
hafa samband við okkur sem fyrst.
Einkatímar eftir samkomulagi.
Foreldrar: Gefið barninu ykkar bestu fáanlegu
undirstöðu fyrir áframhaldandi nám í öllum
dansi og tónlistarnám.
Raðgreiðslur K dansinum er lífsgleði og þar er holl og góð hreyfing.
og annað. I danstímunum ert þú I góðum félagsskap.
Kennsla hefst laugardaginn
14. september 1991.
Góður skóli þar sem er góður agi og reglusemi.
Dansinn eródýrt tómstundagaman fyriralla fjölskylduna.
Faglærðir danskennarar.
Nýtt húsnæði, sem liggur vel við íbúðarhverfum borgarinnar. Tveir kennslusalir. Næg bílastæði. Grensásstöð SVR er stutt frá.