Morgunblaðið - 03.09.1991, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1991
Baráttan um brauðið
eftir Gunnar
Gunnarsson
í Pressunni sl. fimmtudag birtist
sú furðufrétt, að trúnaðarmaður
Prestafélags íslands hefði greint, frá
því á kjaramálaráðstefnu BSRB,
að prestar legðu fram kröfugerð
um 300% hækkun á launum stéttar-
innar fyrir kjaradóm og þótti ekki
mikið. Fréttin er alröng. Á ráð-
stefnu BSRB var aldrei á launakjör
presta minnst, eðaþau rædd á neinn
veg. Fréttin er algjörlega úr lausu
lofti gripin.
Starfskjör presta
Umræða um launakjör og af-
komu sóknarpresta hefur sett nokk-
urn svip á ijölmiðla á undanjgengn-
um vikum og mánuðum. I þeirri
umræðu hefur borið á alhæfingum
og fullyrðingum um afkomu, kjara-
baráttu og kröfur prestastéttarinn-
ar sem eiga sér litla stoð í raunveru-
leikanum.
Á sl. vetri vakti það athygli og
undrun ýmissa er láta sig kjaramál
og rétt launþega til að beijast fyrir
bættum kjörum, þegar Alþingi ís-
lendinga, í fullri sátt við Prestafélag
íslands afnam samningsrétt stétt-
arinnar. Um leið og það ákvað að
eftirleiðis yrði það hlutverk Kjara-
dóms, að ákveða prestum laun og
önnur starfskjör.
Ákvörðunin var tekin með sam-
þykkt allra þingmanna, sem telst
til undantekninga í afgreiðslu mála
á þeim vettvangi. Það vakti ekki
fyrir þingmönnum að svifta presta
heilögum rétti launþegans til að
fylgja kröfum sínum eftir á grund-
velli samningsréttarins. Heldur
þeirri staðreynd, að það er ekki á
færi stéttarinnar að nýta sér kosti
hans. Það var öllum Ijóst að kjör
þeirra höfðu rýrnað verulega, án
þess að prestar fengju rönd við
reist, þrátt fyrir að þeir hefðu fullan
og óskertan samningsrétt.
Hlutverk Kjaradóms
Kjaradómur er sérstæð stofnun
eða dómur skipaður 5 dómendum
sem ákvarðar samkvæmt lögum,
laun og önnur starfskjör æðstu
embættismanna ríkisins; forseta
biskups, ráðherra, þingmanna, ráð-
uneytisstjóra, forstjóra stærstu
stofnana ríkisins, og presta sam-
kvæmt nýsamþykktum lögum. Það
þykir ekki við hæfi og ekki samrým-
anlegt ábyrgð viðkomandi einstakl-
inga, hlutverki og starfsvettvangi
að þeir semji um kjör sín með lög-
bundnum aðferðum launþega.
Vegna starfshátta og lögbund-
inna ákvæða um verklag Kjara-
dóms, leggja einstaklingar eða hóp-
ar sem lúta Kjaradómi ekki fram
kröfugerð með hefðbundnum hætti.
Fyrir Kjaradómi eru mál hvorki
sótt eða varin. Dómurinn aflar sér
af sjálfdáðum nauðsynlegra gagna
og upplýsinga eftir því sem honum
þykir þurfa. Kallar hann þá til ein-
staklinga og embættismenn til ráð-
uneytis við úrlausn mála.
Kjarabarátta presta
Prestastéttin hefur um langt ára-
bil búið við óviðunandi starfskjör.
Laun hennar eru í litlu eða engu
samræmi við vinnutíma, bindingu
og starfskyldur sem á hana eru
lagðar.
Hefðbundnar baráttuaðferðir
launþega henta stéttinni illa. Henni
er nánast ómögulegt að fylgja kröf-
um sínum eftir með öðrum vopnum
en orðinu einu. Það hefur sýnt sig
að það hefur mátt sín lítils í þeim
stéttarátökum sem átt hafa sér stað
á undangengnum árum.
Baráttuaðferðir launþegahreyf-
ingarinnar sem fylgir kröfum sínum
umbætta afkomu eftir; með vinnu-
stöðvunum, útifundum, spjalda-
burði og ýmsum öðrum árangurs-
ríkum þrýstiaðgerðum henta ekki
prestastéttinni, störfum hennar,
virðingu, eða verkefnum.
Laun og vinnutími
Þær staðreyndir blasa við stétt-
inni og þeim sem kynna sér afkomu
hennar, að laun sóknarpresta eru
með eindæmum með tilliti til ann-
arra sambærilegra sýslunarmanna.
Viðveruskylda þeirra, sundurslitinn
vinnutími og álag á erfiðum stund-
um á sér fátt til samjöfunar og er
á engan hátt bætt, hvorki í leyfum
eða launum. Byijunarlaun sóknar-
prests að loknu 5 ára háskólanámi
er samkvæmt gildandi kjarasamn-
ingi félagsins 78.132 krónur. Eftir
20 ár í starfi eru launin 95.974
krónur á mánuði.
Laun fyrir: Sex daga vinnu-
skyldu. Vinnu um helgar, á sérstök-
um frídögum og á stórhátíðum.
Fyrir viðveruskyldu allan sólar-
hringinn, alla daga ársins, sam-
kvæmt vígslubréfi presta, sem er
langt umfram viðveru allra annarra
stétta. Viðveru,- og bakvaktar-
skyldu sem lögð er á einstakling
og á sér engan samjöfnuð í röðum
launþega.
Allar stéttir sem búa við „sam-
bærilegar“ kvaðir fá tíma sinn
mældan samkvæmt ákvæðum í kja-
rasamningum og að fullu bættar.
Með launum fyrir bakvaktir, sund-
urslitinn vinnutíma og útköll á bak-
vöktum. Auk sérstakra leyfa á laun-
um vegna bindingarinnar, störf á
sérstökum frídögum og stórhátíð-
um.
Aukageta
í yfirvinnusamfélaginu sem þjóð-
in hefur skapað, þar sem einstakl-
ingar og hópar allt að tvöfalda tekj-
ur sínar með aukavinnu, bónusálagi
og uppmælingu, eru möguleikar
prestastéttarinnar til aukatekna
verulega takmarkaðir. Aðstaða
þeirra misjöfn, m.a. vegna mismun-
andi stærðar sóknanna og eftir
landshlutum.
Sóknir landsins eru á milli 120
og 130. Af þeim eru u.þ.b. helming-
ur með innan við þúsund sóknar-
menn. Þjónustugjöid vegna auka-
starfa eru þar lítil, og oftar en ekki
erfið fyrir sálusorgarann í inn-
heimtu í nánu sambýli dreifbýlisins.
Á prestsheimilið eru lagðar kröf-
ur um reisn og myndugleika. Kröf-
ur sem ungum presti með litlar tekj-
ur og takmarkaðar aukatekjur
vegna sérhæfni sinnar og starfs,
eins og hér hefur verið rakið er
gjörsamlega ofviða. Sannleikurinn
er því sá, að margur presturinn
verður í raun, að greiða með sér í
starfi hafi hann metnað til að
standa undir raunverulegum eða
ímynduðum kröfum samfélagsins
til hans.
Um gjöld fyrir aukaþjónustuverk
er ekki gerðar neinar kröfur fyrir
Kjaradómi. Það er ekki ákvörðunar-
efni presta, né dómsins hvað þeir
fá fyrir aukaverk sín. Gjaldskráin
er reglugerðarbundin og settar
reglur um þau af dómsmálaráðu-
neytinu. Um það er ekki tekist,
hvorki fyrir dómi eða í kjarasamn-
ingum.
Þjónustuhlutverk presta
Þjónar kirkjunnar leggja sig í
framkróka við að þjónusta sóknar-
böm sín á þann hátt að sem minnst
truflun verði á daglegu lífi þeirra
og störfum. Með því að sinna verk-
' “ÍH
Sparneytinn bíll á góðum greiðslukjörum.
Nú fæst Suzuki Swift á sérlega hagstæðu
veröi og greiðslukjörum.
Dæmi um verð og Suzuki Swift l.Oi GA, 3 d.
greiðslukjör: Verð kr.:.......746.000,-
. Útborgunkr.:....190.000,-
Afborganir kr.:..18.680,-
$ SUZUKI í 36 mánuði.
---1>//4
SUZUKIBÍLAR HF.
SKEIFUNNI 17 • SlMI 68 51 00
Gunnar Gunnarsson
„Hefðbundnar baráttu-
aðferðir launþega
henta stéttinni illa.
Henni er nánast ómögu-
legt að fylgja kröfum
sínum eftir með öðrum
vopnum en orðinu einu.
Það hefur sýnt sig að
það hefur mátt sín lítils
í þeim stéttarátökum
sem átt hafa sér stað á
undangengnum árum.“
um sínum utan venjulegs vinnu-
tíma; verkum eins og útköllum
vegna alvarlegra veikinda, slysa,
sálusorgunar, þjónustu við sjúka og
syrgjendur, „tala á milli hjóna“,
æfingar og lokaundirbúning vegna
kirkjulegra athafna, svo dæmi séu
nefnd. Giftingar eru nánast undan-
tekningarlítið framkvæmdar á
laugardögum sé því við komið, og
utan Reykjavíkur er það nánast
regla að útfarir fari fram á laugar-
dögum. Hér eru aðeins dregin fram
til glöggvunar einstök dæmi um
athafnir sem kirkjunni ber að fram-
kvæma. Athafnir sem leggja mikla
kvöð á þjóna hennar. Kvaðir sem
jafnframt koma niður á fjölskyldum
presta vegna truflunar á einkalífi
þeirra, sem hér er ekki verið að
telja eftir, en vakin athygli á, að
þurfi að bæta án þess að það komi
niður á þjónustu kirkjunnar.
Sanngjarnar kröfur
Sú staðreynd blasir við, að prest-
astéttin hefur aldrei notið umsam-
inna starfskjara og því síður að hún
hafi haft til þess burði, aðstöðu eða
vilja í hógværð sinni til að fylgja
eftir kröfu um, að hún njóti umsam-
inna kjara til jafns við aðra laun-
þega. Prestar binda miklar vonir
við réttmætan úrskurð Kjaradóms.
Krafa þeirra er einföld og þarfnast
ekki rökstuðnings. Þeir vænta þess
að störf þeirra njóti sannmælis og
þeim verði skipað á bekk með öðrum
sýslunarmönnum sem lúta Kjara-
dómi. Þeir fái sanngjama þóknun
fyrir störf sín til jafns við aðra í
hátt við gildandi kjarasamninga.
Höfundur erráðgjafi Prestafélags
íslands, fyrrv. framkvæmdastjóri
Starfsmannafélags ríkisstofnana.
V^terkurog
Ll hagkvæmur
auglýsingamiöill!