Morgunblaðið - 03.09.1991, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 03.09.1991, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1991 19 kerfið, heilbrigðisþjónustuna, skoðanafrelsið? Ef ráðherrar Alþýðuflokksins eru þeirrar skoðunar að svo sé ekki — þá spyr ég, hvernig lítið þið á þann sameignarsjóð allra landsmanna sem við köllum ríkis- sjóð? Með hvaða hugarfari ráðstaf- ið þið skatt-tekjum landsmanna? Getur það virkilega verið að þið teljið að þessum tekjum skuli var- ið í eitthvað annað en undirstöður velferðarkerfisins — og að hin eig- inlega velferð skuli greidd með öðru móti? Þ.e.a.s. fyrst borgum við skatta — þeim peningum verð- ur varið í fyrirgreiðslu og „ýmsar“ framkvæmdir — síðan skulum við huga að þessu svokallaða velferð- arkerfi ... en menn skulu athuga að velferðarkerfið þarf að greiða með bakreikningum! Eru þetta skilaboðin? Kíkið í stefnuskrána „Jafnaðarstefnan er stefna hins opna þjóðfélags. Hún er stefna félagslegs réttlætis sem er í því fólgið að hver og einn fái að njóta hæfileika sinna, enda skerði það ekki tækifæri annarra í lífinu.“ Þannig hljóða upphafsorð stefnu- skrár Alþýðuflokksins. Og þar segir ennfremur: „Jafnaðarstefnan er stefna rétt- arríkis þar sem allir eru jafnir fyr- ir lögunum og réttur einstaklings- ins gagnvart valdi hins opinbera og fyrirtækja er varinn með traustum grundvallarreglum .. . Opinbert skólakerfi og heilbrigðis- þjónusta hafa átt einna stærstan hlut í því að draga úr aðstöðumun og jafna tækifæri landsmanna á liðnum árum við hlið almanna- trygginganna. Velferðarkerfi hins opinbera — lífskjaratrygging al- mennings — dafnar því aðeins að undir því standi öflugt atvinnulíf. A sama hátt dafnar atvinnulífið aðeins ef að því stendur heilbrigð og menntuð þjóð.“ Undir þetta skrifar Jón Baldvin Hannibalsson. Heilbrigð og menntuð þjóð er vissulega grundvöllur farsæls at- vinnulífs og blómlegs efnahags. Heilbrigði og menntun eru íjöregg hverrar þjóðar — og helgasta skylda allra jafnaðarmanna er ein- mitt sú að vernda það fjöregg. Verið minnugir þessa ágætu ráðherrar og samflokksmenn, áður en þið takið upp þá stefnu að menntakerfið skuli fjármagnað með skólagjöldum eða að hinir veiku greiði sjálfir fyrir sjúkdóm sinn. Við erum jafnaðarmenn — og hvað sem líður erfiðu sam- starfi í ríkisstjórn, og erfiðri efna- hagsafkomu þá megum við aldrei víkja frá grundvallarsjónarmiðum jafnaðarstefnunnar, þeirri stefnu sem við höfum mótað í sameiningu eftir lýðræðislegum leiðum innan flokksins. Þessi stefnuskrá er sam- in í anda þeirra sem fylla þennan flokk — hún er sálin í flokksstarf- inu, á sama hátt og það er skylda Alþýðuflokksins að vera samvisk- an í stjórnarstarfinu. Höfundur er borgarfulltrúi Nýs vettvangs. VANDAÐIR VINNUBÍLAR J/IÁ VOLKSWIGEN Kjörnir til hverskonar vöruflutninga og fólksflutninga Lokaður VW Transporter ImHmEmE&mBBÍ 6 manna VW Transporter með palli An vsk Bensín- eöa Dieselhreyfill Aflstýri Framhjóladrif 5 gíra handskipting/sjálfskipting Þriggja ára ábyrgð 3 manna VW Transporter með palli BILL FRA HEKLU BQRGAR SIG HEKLA LAUGAVEGI 174 SÍMI 695500 mmmm^mmmmmmmm UTSOL UMARKAÐUR á Suöuriandsbraut 6 Opió frá kl. 13-18 mánudacy-föstudatys otj 10-13 laugardaga. Allur fatnaður á hálfvirði OlliÆl SUÐURLANDSBRAUT 6, SIMI 677462. alHVal mmmm
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.