Morgunblaðið - 03.09.1991, Page 63

Morgunblaðið - 03.09.1991, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1991 63 Skákþing íslands í Garðaskóla: Helgi Olafsson er efstur fyrir síðustu umferðina _________Skák Bragi Kristjánsson ELLEFTA og síðasta umferð á Skákþingi íslands verður tefld í kvöld í Garðaskóla í Garðabæ. Helgi Ólafsson hefur naumt forskot með l'h v., en í öðru og þriðja sæti koma Margeir Pétursson og Karl Þorsteins með 7 vinninga hvor. Úrslit 8. umferðar: Helgi Áss—Þröstur, 'h-'h Róbert— Snorri, 1-0 Héðinn—Sigurður Daði, 1-0 Jón L.—Karl, 'h-'h Margeir—Jóhann, 1-0 Helgi Ól.—Halldór Grétar, 1-0 9. umferð: Jóhann—Helgi Áss, 1-0 Þröstur—Róbert, 0-1 Snorri—Héðinn, 0-1 Sigurður Daði—Jón L., 1-0 Karl—Helgi Ól., 'h-'h Halldór Grétar—Margeir, 0-1 10. umferð: Helgi Áss—Halldór Grétar, 1-0 Róbert—Jóhann, 0-1 Héðinn—Þröstur, biðskák Jón L.—Snorri, biðskák Karl—Sigurður Daði, 1-0 Helgi Ól.—Margeir, 'h-'h Staðan fyrir síðustu umferð: 1. Helgi Ólafsson, l'h vinn- ing, 2.-3. Margeir Pétursson, 7 v., 2.-3. Karl Þorsteins., 7 v., 4. Jóhann Hjartarson, 6'h v., 5. Jón L. Arnason, 5'h v. og biðskák, 6. Helgi Ass Grétars- son, 5 v., 7. Þröstur Þórhalls- son, 4'/2 v. og biðskák, 8. Ró- bert Harðarson, 4'h v., 9. Héð- inn Steingrímsson, 4 v. og bið- skák, 10.-11. Halldór Grétar Einarsson, 2V2 v. 10.-11. Sigurð- ur Daði Sigfússon, 2‘/2 v., 12. Snorri G. Bergsson, IV2 v. og biðskák. í síðustu umferð tefla: Sigurður Daði — Helgi Ól., Margeir — Helgi Áss, Snorri — Karl, Jóhann — Héðinn, Þröst- ur — Jón L., Halldór Grétar — Róbert. Helgi Ólafsson hefur frá byijun mótsins haldið efsta sætinu og teflt vel. Karl hefur einnig teflt vandað, en Margeir hefur ekki verið eins öruggur og oft áður. Jóhann eyðilagði færi á efsta sæti með töpum í 7. og 8. um- ferð, og Jón L. fékk aðeins 1 vinn- ing í 7.-9. umferð. Af öðrum keppendum hafa Helgi Áss og Róbert komið á óvart. Glæsilegur árangur Helga Áss, sem er aðeins 14 ára, sýnir að hann á fullt erindi í svo sterkt mót og verður fróðlegt að fylgjast með honum í framtíðinni. Róbert hefur m.a. unnið Þröst og gert jafntefli við Margeir. Við skulum loks sjá eina af úrslitaskákum mótsins, spennandi viðureign Karls og Helga Ólafs- sonar í 9. umferð. Hvítt: Karl Þorsteins. Svart: Helgi Ólafsson. Nimzoindversk-vörn. I. d4 - Rf6, 2. c4 - e6, 3. Rc3 - Bb4, 4. e3 - 0-0, 5. Bd3 - c5, 6. Rf3 - d5, 7. 0-0 - dxc4, 8. Bxc4 - Rc6, 9. a3 - Ba5, 10. Dd3 - a6 Byrjunarafbrigði þetta er kennt við Bent Larsen, sem beitti því fyrst árið 1967. II. Re4 - Eftir 11. dxc5 - Dxd3, 12. Bxd3 - Bxc3, 13. bxc3 - Hd8, 14. Bc2 - Hd5 nær svartur að jafna taflið. Eða 11. Hdl - b5, 12. Ba2 - Bb6, 13. Dc2 - c4I, 14. Re2 - Dc7, 15. Rg3 - Bb7, 16. Bd2 - Had8 og svartur má vel við una (Portisch-Friðrik Ól- afsson, Wijk aan Zee 1969). 11. - b5, 12. Ba2 - Eftir 12. Rxf6+ - Dxf6, 13. De4 - Bb7, 14. Bd3 - g6, 15. dxc5 - Rb4, 16. De5 - Dxe5, 17. Rxe5 - Rxd3, 18. Rxd3 - Hd8, 19. Re5 - Bc7, 20. Rf3 - a5I, 21. Rd4 - Hd5, 22. c6 - Bc8, 23. Bd2 - e5, 24. Rf3 - Bg4, 25. e4 - Hd6, 26. Be3 - Hxc6, jafnar svartur taflið. 12. - c4, 13. Rxf6+ - Dxf6, 14. De4 - Bd7, 15. Bbl - g6, 16. Re5 - Hfc8, Skákfræðin telur þessa stöðu jafna. 17. Rd7 - De7, 18. Rc5 - Ha7, 19. Rxb7 - Hxb7, 20. Ba2?! - Líklega hefði verið betra fyrir Karl að fylgja áætlun Kortsnojs í skák við Najdorf á Mallorca 1969: 20. g4I? - Hd7, 21. Dg2 - Dd6, 22. Be4 - Re7, 23. Dg3 - Rd5, 24. f4 - c3, 25. b4 - BdS, 26. Ha2 - Bf6, 27. Hc2 - Bg7 með flókinni stöðu. 20. - Hd7, 21. b3 - c3, 22. Dd3 - Dd8, 23. b4 - Bb6, 24. Bb3 - Re7, 25. a4 - Rd5, 26. Ba3 - e5, 27. axb5 - exd4, 28. exd4 - axb5, 29. Dxb5 - Bxd4, 30. Hadl - Rf6, 31. Bcl - Re4, 32. De2 - De7, 33. Be3 - Eftir 33. Hdel - Dxb4, 34. Bxf7+ - Hxf7, 35. Dxe4 stendur svartur betur. 33. - Rd2!?, 34. Ba4?! - Erfitt er að benda á vinnings- leið fyrir svartan eftir 34. Da6! - Hcd8, (34. - Rxfl 35. Dxc8+ — Hd8, 36. Dxd8+! - Dxd8, 37. Hxd4) 35. Bxd2 - cxd2, 36. Hxd2 - Dxb4, 37. Da2 o.s.frv. 34. - Hdc7 Engu betra er 34. - Ha7, 35. Dg4! o.s.frv. 35. Hfel — Bxe3, 36. Dxe3 - Dxb4 Tímahrak beggja teflenda er allsráðandi og næstu leikir koma hratt. 37. Bc2 - Dd6, 38. h4 - h5, 39. Dh6 - Df6, 40. He3 - He7, 41. Bxg6!? - , Helgi á nú unnið tafl, en hann er ekki viss um, að 40 leikja márkinu sé náð, ogteflirþví hratt. 41. - fxg6, 42. Hxe7 - c2? Eftir 42. - Dxe7, 43. Dxg6+ - Kh8, 44. Dxh5+ - Dh7, 45. De5+ - Dg7, 46. Dh5+ - Kg8, 47. Dd5+ - Df7, 48. Dg5+ - Kh7 á svartur vinningsstöðu. 32. Dh7+ - Kf8, 44. Hdel - clD og keppendur sömdu um jafntefii, þvi hvítur þráskákar: 45. Dh6+ - Kg8, 46. Dh7+ - Kf8, 47. Dh6+. „Hafði augastað á titlinum“ - sagði Steingrímur, annar meistaranna í torfæru * Islandsmót í torfæru: BÍLDDÆLINGURINN Árni Kópsson vann íslandsmeistaratitilinn til eignar í flokki sérútbúinna jeppa, þegar hann vann í síðustu torfæru- keppni íslandsmótsins í Grindavík á laugardaginn. Hann innsiglaði titilinn og eignarréttinn á honum með því að vinna í kepgninni í Grindavík og tryggja sér þannig titilinn þriðja árið í röð. I flokki götujeppa tryggði Steingrímur Bjarnason sér meistaratitilinn með því að ná öðru sæti á eftir Gunnari Pálma Péturssyni, sem var örygg- ið uppmálað og komst allar þrautir villulaust og var að auki fljótast- ur í tímaþrautinni. Mikil spenna var fyrir keppnina um það hvemig keppendum sem voru að slást um titlana reiddi af í síðustu keppninni. Léttar þrautir gerðu hana átakálitla og lítið var um æsandi tilþrif af þeim sökum, sem slökktu vonir áhorfenda um magnaða lokakeppni. í flokki götu- jeppa tók Homfirðingurinn Gunnar Pálmi forystu i fyrstu þraut og lét hana ekki af hendi og bætti svo um betur með því að aka hraðast í lokaþraut keppninnar, tímabraut, og vann því örugglega. En allra augu vom á mönnunum í titilbarátt- unni, þeim Steingnmi og Davíð Sig- urðssyni. Davíð varð fyrir því óhappi að bijóta öxul strax í byij- un, sem kostaði hann mörg sæti og léttar þrautir í keppninni gerðu það að verkum að hann átti mögu- leika á að vinna upp muninn. Fyrir keppnina hafði hann leitt meistara- keppnina. „Óxull brotnaði og ólíkt því sem verið hafði í öðmm mótum voru tvær þrautir götujeppa eknar hver á eftir annarri, þannig að mér gafst ekki nægur tími til að skipta um öxul á réttum tíma og missti af fullri stigagjöf í einni þraut vegna þess. Síðan voru þrautirnar of léttar til að seinna hlutinn gerði mér kleift að saxa á forskot forystu- bflana og ég varð of aftarlega á merinni og Steingrímur hirti því titilinn. Vissulega var sárt að missa af titlinum á þennan hátt, en ég get ekki verið annað en ánægður með árangurinn á árinu,“ sagði Davíð, sem hefur sex sinnum náð verðlaunasæti i mótum sumarsins, þar af tvisvar unnið. íslandsmeist- arinn Steingrímur hefur hins vegar unnið í ein keppni og náði verð- launasæti í öllum mótum íslands- mótsins. Hann keypti sinn fyrsta jeppa á síðasta ári og tók strax þátt í torfærukeppni, en lenti í síðasta sæti. „Ég hef smám saman lært á jeppann og þó illa gengi í fyrstu keppni þessa árs hafði ég augastað á titlinum. Ég velti, braut öxla og lenti í allskonar vandræðum í fyrstu keppninni, en fall reyndist fararheill og þetta gekk ágætlega í sumar. Ég prófaði nitró-búnað í síðustu keppninni og finnst ótrúlegt hvað þetta gefur mikinn kraft ef það er notað á réttan hátt. Ég fylgd- ist grannt með framgangi Davíðs, en hann var óheppinn og því fór sem fór. Titillinn varð minn,“ sagði Steingrímur. Mikil keppni var um fyrsta sætið í sérútbúna flokknum. Stefán Sig- urðsson sem var að beijat við Árna Kópsson um meistaratitilinn náði forystu og hélt henni fyrstu fjórar þrautimar. „Þetta gekk vel, þar til mér mistókst í þraut, sem ég reyndi líklega við í of lágum gír. Eg vissi að það þurfti að bila hjá Árna svo ég ætti möguleika á titlinum en það rættist ekki. Þrautimar buðu ekki upp á neina verulega keppni, vom annaðhvort léttvægar eða ófærar. þó ég hafi missti af titlinum núna, þá reyni ég við hann næsta ár,“ sagði Stefán. Eftir mistök Stefáns börðust Árni og Gísli G. Jónsson um sigurinn. Fyrir lokaþrautina hafði Árni aðeins fimmtán stiga forskot á Gísla, sem hafði ekið vel. Fimm aðrir ökumenn náðu betri tíma en þessir kappar í tímabraut- inni, en Árni stóð sig betur en Gísli og hafði sigur, en Magnús Bergs- son, íslandsmethafinn í sand- spyrnu, ók tímabrautina hraðast. „Ég reyndi að aka keppnina af skynsemi, tók aldrei verulega áhættu. Þeta var spennandi í lokin og það var gott að innsigla titilinn með sigri í lokakeppninni. Ég hef ekki hug á því að keppa til meist- ara á næsta ári, heldur mæta í ein- stök mót. Ég er búinn að vinna titil- inn til eignar og lengra kemst ég ekki hérlendis," sagði Árni, sem ók með nýja sérsmíðaða keppnisvél, sem nota á í ævintýralega tilraun til aksturs á sjó áður en langt um líður. Mig langar að athuga hvort ég geti keyrt á fullri ferð á sjó yfir til Viðeyjar frá landi, svona til að reyna eitthvað nýtt. Ef það tekst ekki er ég vel syndur og get sótt bílinn á hafsbotn, þar sem ég er vanur kafari;“ sagði Árni og kímdi. Úrslit í lorfæru Stakks. Götgjeppar: Stig GunnarP. Pétursson, Jeep Willys 1818 Steingr. Bjamason, Jeep Willys 1754 Guðm. Sigvaldason, Jeep Willys 1750 Ragnar Skúlason, Jeppster 1727 Magnús Ó. Jóhannss., Jeep Willys 1684 Sérútbúnir: Árni Kópsson, Heimasætan 1537 Gísli G. Jónsson, Grind 1510 Stefán Sigurðsson, Skutlan 1481 Helgi H. Schiött, Greifínn 1469 GunnarGuðjónss., Jeep Willys 1462 Lokastaðan í Islandsmótinu. Götujeppar: Steingrímur Bjamason, Jeep Willys 74 Davíð Sigurðsson, Jeep Willys 67 Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson Flug Gunnars Guðjónssonar eftir keppni endaði með ósköpum þegar jeppi hans stakkst á trýnið og hann valt. „Ég fór of hratt á stökkpallinn en óttaðist ekkert óhapp, þar sem ég treysti jeppanum full- komlega til að standast átökin. Veltibúrið bognaði á réttum stað og jeppinn er ekkert verulega skemmd- ur þó hann líti illa út,“ sagði Gunnar eftir lendinguna. Árni Kópsson vann í þriðju keppni sinni á árinu og vann á íslandsmótinu með talverðum yfirburðum, þó hann fengi harða keppni í sumar. Guðm. Sigvaldason, Jeep Willys 54 Gunnar P. Pétursson, Jeep Willys 47 KristjánFinnbjömss.,JeepWillys 33 Sérútbúnir: Ámi Kópsson, Heimasætan 82 Stefán Sigurðsson, Skutian 58 Helgi Schiött, Greifínn 52 Ámi Grant, Jeepster 48 Sigþór Halldórsson, Hlébarðinn 40 Sigurður en ekki Arnar í FRÉTT í Morgunblaðinu sl. laugardag um heimsókn Finnlandsforseta til Vest- mannaeyja var rangldj*!p sagt að Arnar Sigurmunds- son f ramkvæmdastj óri Hraðfrystihússins hefði ver- ið á mynd með forsetunum. Hið rétta er að á myndinni var Sigurður Einarsson, ræð- ismaður Finna í Vestmanna- eyjum. Morgunblaðið biðst velvirðingar á þessum mistök- um.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.