Morgunblaðið - 17.09.1991, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 1991
57
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUÐAGS
Snæfellsjökull trú-
ar- eða nýaldartákn?
Ýmsir kristnir menn virðast hafa
litast mjög af þeirri skoðun að nýald-
armenn „trúi“ á Snæfellsjökul og
hann sé þannig trúartákn. Þetta er
ekki rétt. í spádómum nýaldarfræða
er talað um að hann sé ein af helstu
orkustöðvum jarðar; og að hér eigi
mikil andleg bylgja að rísa, vegna
ákjósanlegra ræktunarskilyrða, sem
eigi að verða mannkyninu til mikillar
blessunar. í bréfi sem Michael Eyre,
M.A. skrifaði aðalræðismanni Breta
á íslandi, þann 4. maí 1921, vitnaði
þessi fræðimaður í þekkingu sem
hann hafði kynnt sér um ísland. Þar
segir m.a. að hér sé sterkasta orku-
stöð jarðarinnar, og miðpunkturinn
sé Snæfellsjökull.
Snæfellsjökull er tákn um leit okk-
ar að hinu sanna um tilgang lífsins.
Það er gott að horfa til hans á heið-
skírum kvöldum og við roða sólar
og leiða þannig hugann að andlegum
sviðum. Það er gott að halda hátíð
við rætur hans og minna sig enn
frekar á þessa leit. Það er spennandi
tilhugsun að hér búi sérstök þjóð í
sérstöku landi með sérstakan til-
gang. Verið getur að þessar fjöl-
mörgu sagnir um tilgang íslands í
veraldarsögunni eigi við einhver rök
að styðjast.
Kristnir menn hafa varað við því
að ekki megi rugla saman dýrkun á
sköpuninni og skaparanum sjálfum.
Þar er ég sammála. Skaparinn er
allt sem er alls staðar. Sköpunin er
aðeins ysta birting hans, en það sem
við fáum að sjá og njóta.
Jafnt og Gullfoss er tákn um mikil-
fengleika íslenskrar náttúru er Snæ-
fellsjökull tákn um andlegan áhuga
þjóðarinnar. Allir muna hve hátt
nýaldaráhuginn reis á árinu sem leið.
Þetta býr í þjóðinni. Virðingin fýrir
andlegum auði þjóðarinnar er mikils-
verð. Þegar andlegur áhugi er mikill
er líf. Þegar andlegur dauði ríkir, er
fólk lifandi dautt.
Andleg rækt getur komið með
hugsjóninni um betra líf fyrir allt
mannkyn. I þessu getum við Islend-
ingar verið í forvígi á þessu fagra
landi elds og ísa, þar sem við getum
ræktað sjónarmið okkar í friði og ró
í óspilltri náttúru, hreinu landi og
íjarri skarkala heimsins. Erlendum
þjóðum þætti mikill akkur í að koma
til heillar þjóðar sem ræktar sig and-
lega. Hér geta þær fundið frið, farið
upp á heiðamar og notið sín. Þetta
gæti verið eitt göfugasta markmið
Islendinga, að veita erlendum gest-
um griðarstað og þjóna þeim á allan
Botnlaus hít fárán-
legra fjárfestinga
I Islandsklukku Halldórs Laxness
segir frá því þegar Jón Marteinsson
fer með nafna sína tvo, Jón Hregg-
viðsson og Grindvíkinginn, í bæjar-
ferð í Kaupmannahöfn. Hann bendir
þeim á nokkrar hallir sem hann seg-
ir að séu reistar fýrir fé sem dansk-
ir kaupmenn hafi kreist út úr fá-
tækri alþýðu á íslandi. Þetta er auð-
vitað satt, því Halldór Laxness fer
aldrei með staðlausa stafi. Enn er
alþýða íslands að reisa hallir en nú
eru það hallir fyrir íslenska „athafna-
menn“ og pólitíkusa, svo sem Leifs-
stöð, Seðlabankahús, Perlan, ráðhús
og fleiri monthús. Auðvitað er það
íslensk alþýða sem fær að borga
brúsann með sínum sköttum og
skyldum. Hver ætti annars að gera
það? Ekki má snerta fé fjármagns-
eigenda og íslenskir „athafnamenn"
eru alltaf að tapa fé sínu (sbr. öll
gjaldþrotin) svo ekki eru þeir aflögu-
færir. Fyrir mörgum árum ætluðum
við, maðurinn minn og ég, að eign-
ast „höll“ fyrir okkur og bömin okk-
ar tvö. Það var gömul 90 m2 íbúð í
gamla bænum. Verkstæði mannsins
míns var innifalið í þessum 902
Á vinnustað mínum lá skattskráin
frammi og það var fróðleg lesning
að fletta henni. T.d. rakst ég á þar
að einni athafnamesti lögfræðingur
bæjarins greiddi ekki nema 2-3
hundruð krónur meira en við í opin-
ber gjöld. Mig dauðlangaði til að
hringja í hánn og spyrja hvernig
hann hafi það, því það komi mér
eiginlega nokkuð við þar sem ég sé
konan sem borgi skattinn hans. Ekki
varð úr að ég gerði þetta og okkur
tókst á endanum að eignast „höllina“
okkar þrátt fyrir það að við, ásamt
öðrum álíka fjáðum, borguðum
skatta fyrir lögfræðinga og aðra fjár-
magnseigendur. Hve lengi skyldi ís-
lensk alþýða geta staðið undir óráð-
síu misviturra stjómmálamanna? Nú
em þeir búnir að sóa velferðinni, hún
er fyrir bí. Hún er horfin í þá botn-
lausu hít sem fáránlegar fjárfesting-
ar hafa skapað. Nýjasta nýtt er það
að stjómmálamenn birtast með iðr-
unarsvip á sjónvarpsskjánum og
segja „Eg ber fulla ábyrgð á þessari
vitleysu." Hvernig? Eg er gömul
kratakerling, en þegar mér fínnst
að kratar séu orðnir of hallir undir
íhaldið og famir að taka þátt í sukk-
inu, þá sný ég mér lengra til vinstri.
Ætli það verði ekki fleiri en ég sem
gera það við næsta tækifæri.
Gömul húsmóðir í miðbænum.
hátt.
Ef Snæfellsjökull getur minnt okk-
ur á þetta á síðkvöldum, er ég hlynnt-
ur því að hann sé tákn um betri tíð,
ekki aðeins fyrir okkur íslendinga,
heldur allt mannkyn. Með því er
hann tákn nýrra tíma; nýrrar aldar;
Nýaldar.
Rafn Geirdal
Vinningstölur
iaugandaginn
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐÁHVERN VINNINGSHAFA
1. 5aí5 o 2.811.166
A Z. 4 af 5^i 81.418
3. 4a15 122 6.907
4. 3aí5 4.190 469
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
6.107.438 kr.
upplýsingar:símsvari91 -681511 lukkuUna991002
Aldraöir, öryrkjar og aðrir þeir, sem ekki eiga
heimangengt: Kem heim og tek aö mér fótaaögeröir,
handsnyrtingu, litun og vaxmeöferö.
Upplýsingar í síma 44462.
Helga Þóra Jónsdóttir, fótaaðgeröa- og snyrtisérfrœöin*
ítalska, spænska, enska, danska
fyrir BYRJENDUR
Upplýsingarog innritun í síma 20236.
RIGMOR
Li
Teg. Sabrina
160x200 m/dýnum kt 99.840,-
180x200 m/dýnum kn 109.880,-
Mikið úrval af alls konar hjónarúmum
í mismunandi stærðum oggerðum.
GÓÐ GREIÐSL UKJÖR
*r'
BÍLDSHÖFÐA20 - 112 REYKJAVÍK - SÍMI 91-681199 - FAX 91-673511
SIEMENS
Kæli - og frvstitœki í mikiu úrvali!
Lítið inn til okkar og skoðið vönduð
vestur-þýsk heimilistœki!
Hjá SIEMENS eru gœði, ending og
fallegt útlit ávallt sett á oddinn!
SMITH&NORLAND ,
NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300