Morgunblaðið - 26.09.1991, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 26.09.1991, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1991 Felix-keppnin: Börn náttúrunn- ar í undanúrslit BÖRN náttúrunnar, kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, er komin í undanúrslit evrópsku Felix-kvikmyndakeppninnar. Oddsskarð: Vegurinn seig hálfan metra VEGURINN að Oddskarði er nú mikið skemmdur en hann hefur að undanförnu sigið um hálfan metra á 20 metra kafla skammt frá göngunum Eskifjarðarmeg- in. Einar Þorvarðarson, um- dæmisverkfræðingur Vega- gerðarinnar á Austurlandi, seg- ir að viðgerð á veginum hefjist mjög fljótlega og hann verði kominn í lag fyrir veturinn. Að sögn Einars var klæðning sett á veginn í síðasta mánuði og skömmu síðar kom brot í hann þannig að hann seig um 30 sm. Fyllt var upp í það sig en þá seig vegurinn aftur svipað á þessum kafla. Áætlað er að viðgerðin kosti um hálfa milljón króna. Myndin verður ein af fimm evr- ópskum biómyndum sem keppa um titilinn „Ung evrópsk mynd ársins“. Hún er að auki í hópi fimmtán mynda sem keppa um aðrar útnefningar. Tilkynnt var í gær hvaða kvik- myndir komast áfram í undanúr- slit keppninnar um hin þekktu Felix-verðlaun. Þau verða afhent í Berlín 1. desember og verður athöfninni sjónvarpað beint á veg- um Eurovision-stöðvarinnar. Kvikmynd Friðriks Þórs Frið- rikssonar, Böm náttúrunnar, sem frumsýnd var síðsumars keppir við fjórar aðrar evrópskar myndir um titilinn The Young European Film of the Year. Myndin er einnig ein fimmtán kvikmynda sem keppa um aðrar viðurkenningar, til dæm- is besti leikari og leikkona, besta kvikmyndataka og hljóð, besta tónlist og fleira. Um 20 þúsund manns hafa þeg- ar séð Böm náttúrunnar. Myndin hefur verið sýnd í Stjörnubíói frá byijun ágúst og er einnig á tjöldum kvikmyndahúsá úti um land. Með aðalhlutverk í myndinni fara Sig- ríður Hagalín og Gisli Halldórsson. Verkefnaleysi hjá eigendum vinnuvéla STJÓRN Félags vinnuvélaeigenda hefur skorað á ríkisstofnanir, sveitarfélög og einstaklinga að draga ekki á langinn jarðvinnu og vegaframkvæmdir þar sem taxtar séu í algjöru lágmarki um þess- ar mundir vegna verkefnaskorts. Steingrímur Jónasson formaður Félags vinnuvélaeigenda segir að atvinnuleysi blasi við vinnuvéla- eigendum við óbreytt ástand. í ályktun stjómarinnar segir að komi til byggingar álvers og virkj- anaframkvæmda muni þessar að- stæður breytast og taxtar hækka verulega. „Það er samdráttur núna á markaðnum og fýrirsjáanlegt að það stefni í meiri samdrátt en oft- ast áður. Sum sveitarfélög hafa skynjað þetta og em einmitt núna að bjóða út verk og þau fá mjög hagstæð tilboð um þessar mundir," sagði Steingrímur. Hann sagði að það stefndi í verk- efnaleysi hjá eigendum vinnuvéla og hefðu sumir verkefni fram í október en aðrir fram í nóvember. Ástandið virtist áberandi verra nú en áður. „Það sem við emm að benda á er að við viljum að jöfnuð- ur komist á í framkvæmdum. Sveitarfélögin haldi að sér höndum ef virkjanaframkvæmdir og bygg- ing álvers hefjast. Við viljum að borg og sveitarfélög stýri fram- kvæmdunum, aðrir ráða ekki við það,“ sagði Steingrímur. Nýlega vom opnuð tilboð vegna lagningar 2 km vegar við Gullfoss hjá Vegagerð ríkisins. Kostnaðar- áætlun hljóðaði upp á 7.881 þús- und kr. Lægsta tilboðið barst frá Vélgröfunni hf. sem hljóðaði upp á 5.276.500 kr., eða 67% af kostn- aðaráætlun. SVR: 5 tilboð í akstur um gamla bæinn FIMM tilboð bárust Strætisvögnum Reykjavíkur í akstur um aust- urhluta gamla miðbæjarins. Lægsta boð átti Kári Grant, rúmar 1.907.200 krónur og næstir voru Allrahanda hf. sem bauð 1.975.680 krónur. Boðið miðast við að einn vagn sé í ferðum og að hann taki 21 farþega. Að sögn Sveins Björnssonar forsljóra er hér um tilraunaakstur að ræða og er gert ráð fyrir að hann hefjist í byrjun október næstkomandi og standi til 1. apríl á næsta ári. Þrír þeirra sem buðu binda boð sitt gjaldskrá sérleyfis- og hóp- ferðaleyfishafa. Lægst þeirra til- boða var frá vom Bjarna og Braga Bjömssonum sem buðu 2.240.000 krónur, næstur var Jón T. Ágústs- son sem bauð 2.320.640 krónur og loks Snæland Grímsson hf. sem bauð 2.880.000 krónur. Sveinn sagði að gripið hafí ver- ið til þessa úrræðis, þar sem vagn- ar SVR ættu orðið í erfiðleikum með akstur í gamla bæjarhlutan- um. Af þeim sökum hefði dregið úr þjónustu við íbúa hverfisins og kæmi slíkt verst við eldra fólk sem þar býr að miklum meirihluta. Ekið verður upp Hverfísgötu um Klapparstíg, Njálsgötu að Barónsstíg, niður Egilsgötu, Þor- fínnsgötu, Eiríksgötu að Njarðar- götu og þaðan niður á Bergstaða- stræti og um Skólavörðustíg, nið- ur Bankastræti, Lækjargötu og að endastöð neðst við Hverfis- götu. Akstur hefst klukkan 10 að morgni og stendur fram til klukk- an 17, frá mánudegi til föstu- - Morgunblaðið/Bjami Islenska landsliðið í brids, sem keppir á heimsmeistaramótinu í Japan næstu tvær vikur. Frá vinstri standa Örn Arnþórsson, Guðmundur Páll Amarson, Þorlákur Jónsson, Jón Baldursson og Aðal- steinn Jörgensen. Björn Eysteinsson fyrirliði Iiðsins og Guðlaugur R. Jóhannsson sitja fyrir framan. Islenskt bridspar fær boð um þátttöku í „ofurmóti“ Heimsmeistaramótið að hefjast í Japan Aðalsteini Jörgensen og Jóni Baldurssyni hefur verið boðin þátttaka á einu sterkasta bridsmóti sem haldið er í heiminum. Sextán völdum pörum er árlega boðið til mótsins, en þetta er í fyrsta sinn sem íslenskt par fær slikt boð. Mótið er haldið í Haag í Hol- landi í janúar, með sama sniði og mót sem haldið er í Bretlandi og kennt við Sunday Times. Mótinu í Haag, sem kennt er við fýrirtæk- ið Pandata, var hleypt af stokkun- um fyrir fjórum árum en Sunday Times-mótið hefur verið haldið í 30 ár með nokkrum hléum og tóku íslensk pör þátt í því fyrr á árum. Boðið til Jóns og Aðalsteins kemur í kjölfar þess að íslenska landsliðið í brids vann sér rétt til að taka þátt í heimsmeistaramót- inu, sem hefst í Japan á mánu- dag. Landsliðið fór til Japans á miðvikudagsmorgun til að hafa tíma til að jafna sig á 9 klukku- tíma mismun hér og í Japan. Landsliðsmennimir undirbjuggu sig undir tímamismuninn hér heima, með því að snúa sólar- hringnum smátt og smátt við síð- ustu dagana áður en þeir héldu af stað. Kaupin á Meitlinum í Þorlákshöfn: Útgerðarfélagið er enn inni í myndinni - segir Valdimar Bragason útgerðarstjóri á Dalvík Útgerðarfélag Dalvíkinga mun enn vera inni í myndinni hvað varðar kaupin á Meitlinum í Þor- lákshöfn. Það er a.m.k. skilningur útgerðarstjórans, Valdimars Bragasonar, eftir viðræður hans við hluthafa og forsljóra Byggða- dags, og miðast gjald fyrir ferðir við gjaldskrá SVR. „Við eigum eftir að sjá hvernig íbúarnir taka þessari 6 mánaða tilraun," sagði Sveinn. „Við verð- stofnunar. í þeim viðræðum varð samkomulag um að halda öllum Ieiðum í málinu opnum enn um sinn. „Staðan í þessu máli er nokkuð óljós en við höfum kynnt okkar áform fyrir eigendum Meitilsins, þar á með- um opnir fyrir hugsanlegum breytingum á akstrinum og erum til viðræðu um breytingar á fyrir- komulaginu." al Byggðastqfnun," segir Valdimar Bragason. „1 stórum dráttum er þar um að ræða uppstokkun á þeim rekstri sem nú er í Meitlinum og kæmu þar hugsanlega inn bátar í staðinn fyrir togarann Jón Vídalín. Hinum togaranum, Þorláki, mun víst ákveðið að leggja hvemig sem málin þróast. Við höfum áhuga á sam- starfí við heimamenn og ætlum okk- ur að skilja hluta af veiðiheimildum eftir í plássinu." Valdimar segir einnig að í núver- andi mynd geti rekstur Meitilsins ekki gengið mikið lengur. Þeirra áform hinsvegar gera ráð fyrir rekstri í framtíðinni þótt hann yrði vissulega nokkuð minni en^nú er. „Þessar hugmyndir okkar eru ítakt við þá umræðu sem verið hefur í þjóðfélaginu um hagræðingu í sjáv- arútvegi. Rekstur Meitilsins myndi ekki stöðvast og við losa fyrirtækið við skuldir. Á móti gætum við sam- einað veiðiheimildir og ráðstafað bet- ur afla okkar, bæði hér innanlands og erlendis auk þess að við höfum áhuga á sjófrystingu," segir Valdi- mar. í máli hans kemur fram að for- ráðamenn Útgerðarfélagsins hafí skilning á áhyggjum heimamanna í Þorlákshöfn og telji eðlilegt að þeir vilji halda fast í sinn hlut. Hinsvegar verði að skoða málin í víðara sam- hengi og þá einkum því hvemig megi sem best tryggja áframhald- andi rekstur Meitilsins. Hann hafí ekki trú á að hugmyndir Ölfushrepps um kaup á hlutafé Hlutafjársjóðs geti gengið eftir þar sem nafnverð hlutafjár þessa sé 120 millj. kr. en árstekjur hreppsins séu 130 millj. kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.