Morgunblaðið - 08.10.1991, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 1991
Bifreiðapróf ríkisins
auglýsa
Meiraprófsnámskeið verða haldin í Reykjavík
og á Akureyri ef næg þátttaka fæst.
Við umsókn skal leggja fram læknisvottorð
og ökuskírteini.
Skráning fer fram í Reykjavík hjá Bifreiðaprófum
ríkisins, Dugguvogi 2, og hjá Bifreiðaprófum
ríkisins á Akureyri.
Umsóknarfrestur er til 15. október.
Bifreiðapróf ríkisins
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
KULDASKÓR
Stærðir: 28-41 Litur: Brúim, svartur
Verðkr. 2.995."
Ath.: Mikið úrval af kuldaskóm í öllum stærðum.
PÓSTSBNDUM SAMDÆGURS
5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR
Toppskórinn, Kringlunni,
Veltusundi, sími 21212. s. 689212.
* 4? ■
| Meira en þú geturímyndað þér!
Samstaða kvenna
__________Leiklist______________
Guðrún Þóra Gunnarsdóttir
Leikfélag Akureyrar sýnir Stál-
blóm eftir Robert Harling.
Leikstjórn: Þórunn Magnea
Magnúsdóttir.
Þýðing: Signý Pálsdóttir.
Leikmynd og búningar: Karl
Aspelund.
Lýsing: Ingvar Björnsson.
Konumar á hárgreiðslustofunni
hennar Truvyjar eru hijúfar og blíð-
ar blaðurskjóður, mæður, dætur
eiginkonur en framar öllu eru þær
þó vinkonur sem standa þétt saman
þegar erfiðleikarnir dynja yfír.
Mjúkar en þó gallharðar þegar á
reynir. Stálblóm.
Hárgreiðslustofa er fyrirbæri
sem í hugum margra tengist slúðri
og ýmsum kvennamálum. Staður-
inn þar sem konur hittast, segja
nýjustu sögurnar um náungann,
skiptast á uppskriftum ofl. í þeim
dúr. Hárgreiðslukonan þekkir alla
og oftar en ekki gegnir stofan
hennnar hlutverki pöbbsins, spila-
klúbbsins eða fótbolt.afélagsins í lífi
karlmannanna. Þessi persónulega
nánd skapast yfirleitt einungis á
hárgreiðslustofum lítilla bæja eða á
hverfisstofunni. Stálblóm gerist á
einni slíkri stofu, sagt er frá sex
konum og liðlega tveimur áram í
lífí þeirra. í gegnum frásagnir
kvennanna fær áhorfandinn innsýn
í líf þeirra í gegnum miklu lengri
tíma og þorpslífið verður nokkuð
skýrt og smáborgaralegt, um sumt
nokkuð amerískt sbr. kosningar á
ungfrú jólagleði og ungfrú jarðar-
beri og ég veit ekki hvað. En hár-
greiðslustofan er alþjóðleg og það
eru konur og málefni þeirra líka.
Leikritið gerist alltaf á laugar-
degi, því það er dagur fastakúnn-
anna, þær konur þekkja nánast öll
leyndarmál hverrar annarrar og það
þykir ekki viðeigandi ef ein veitir
ekki hinum hlutdeild í lífi sínu. Þetta
er fyrsta verk höfundar og byggir
skýrt á persónulegum atburðum í
lífi hans. Nokkurs konar óður til
látinnar systur. Þetta er ekki djúpt
bókmenntaverk og heimurinn sem
það segir frá er þröngur en það
reynir aldrei að vera neitt meira en
það er og í því liggur styrkur þess.
Þetta er lítil sæt saga um samstöðu
kvenna. Hún greinir frá sársauka-
fullum atburðum og dauðinn dýpkar
léttúðarfullt hjal hárgreiðslustof-
unnar. Verkið er hnyttilega skrifað
'l'ilfihningastormur á hárgreiðslustofu.
Þórdís Arnljótsdóttir og Sunna Borg í hlutverkum sínum.
KR. 2.950,-
KR. 2.365,- 2.950,.
...fyrir brjóstgóðar konur
Skálastœrð: C, D, 1)1). DDD.
Óðinsgötu 2, sími 91-13577