Morgunblaðið - 08.10.1991, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 1991
29
Tölvur
Tölvuframleiðendur óska eftir
stuðningi Evrópubandalagsins
FORYSTUMENN evrópskra
tölvuframleiðenda hafa óskað
eftir aðgerðum frá fram-
kvæmdastjórn Evrópubanda-
lagsins til að tryggja afkomu
Húsgögn
upplýsingaiðnaðarins i Evrópu.
Aðalframkvæmdastjórar
þriggja stórfyrirtækja í greininni,
Groupe Bull, Olivetti og Siemens-
Nixdorf, kvörtuðu á sameiginleg-
um fundi yfir óhagstæðri sam-
keppnisaðstöðu gagnvart banda-
rískum og japönskum keppinaut-
um sínum: Þeir bentu á að banda-
rískir og japanskir framleiðendur
njóta öflugs heimamarkaðar og
umtalsverðrar samvinnu við opin-
bera aðila. í Bandaríkjunum og
Japan fari um 90% verkefna hins
opinbera til innlendra aðila, í Evr-
ópu sé sambærilegt hlutfall aðeins
um 30%.
Ikea með aukið úrval
TÖLVUIÐNAÐURINN — Tölvuframleiðendur í Evrópu
hafa að undanförnu átt í nokkrum erfiðleikum og hafa því óskað eft-
ir stuðningi Evrópubandalagsins.
fyrir eldri aldurshópa
Nokkur breyting er að verða á starfsemi sænsku Ikea-verslananna
en þær hafa löngum reynt að höfða til ungs fólks, einkum þess,
sem er að byija eða er skammt komið á búskaparbrautinni. Fyrstu
viðskiptavinimir hafa nefnilega elst með árunum eins og lög gera
ráð fyrir og eru kannski betur megandi nú og því hefur verið
ákveðið að bjóða einnig upp á vömr, sem em dálítið í dýrari
kantinum. Á það til dæmis við um Bolighuset í Taastrup í Dan-
mörku, sem nýlega var opnað aftur eftir gagngerar breytingar.
„Það, sem vakir fyrir okkur
meðal annars, er að kveða í kútinn
þá sögusögn, að Ikea-vörurnar séu
ódýrar vegna þess, að þær séu
ekki nógu vandaðar. Við ætlum
sem sagt að sýna, að við getum
selt gæðavöru á lægra verði en
aðrir,” segir framkvæmdastjóri
Ikea í Danmörku, H.C. Madsen.
„Því dýrari vöru, sem fólk kaupir
hjá okkur, því meira sparar það.
A það verður áherslan í auglýsing-
unum og ástæðan er sú, að kaup-
endur sjá sjálflr um hluta af vinn-
unni, til dæmis að flytja vöruna
heim.”
Ekkert verður dregið úr úrval-
inu fyrir ungt fólk en það verður
hins vegar aukið mikið fyrir ald-
urshópinn 35-59 ára, sem fer líka
ört stækkandi hlutfallslega í sam-
félaginu.
Það hefur alltaf verið stefna
Ingvars Kamprads, stofnanda
Ikea, að bjóða ódýra vöru og þess
vegna var kaupandanum gert að
flytja vöruna heim og setja hana
saman. Af sömu • ástæðu hefur
Ikea yfírleitt verið með verslanim-
ar á ódýrum stöðum utan við mið-
borgimar. í markaðskönnun í
Danmörku fyrir nokkmm árum
kom hins vegar 5 ljós, að neytend-
um fannst verið hjá Ikea ekki vera
neitt sérstaklega lágt og þá var
gripið til þess að lækka það um
6% 1988 og 3% 1989. Má segja,
að það hafí þá verið farið að skrapa
botninn en á móti kom, að salan
jókst.
Ikea hefur verið með verslun í
Danmörku í 22 ár og þar af í 17
með 40.000 ferm verslunarhús í
Höje-Taastrup, stærstu húsgagna-
verslun í landinu. Auk þessu em
útibú í Óðinsvéum, Árósum og
Álaborg og ákveðið hefur verið
að koma upp nýju í Norður-Kaup-
mannahöfn. Búast forráðamenn
Ikea við mikilli söluaukningu á
næstu ámm enda hefur húsgagna-
verslunum í Danmörku fækkað um
1.100 á síðustu sex ámm og em
nú tæplega 900. Ségir Madsen,
★ GBC-Pappírstætarar
Þýsk framleiðsla
Vrnsar stærðir og gerðir fáanlegar
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 33 -105 Reykjavik
Símar 624631 / 624699
að þetta sé þróunin í smásöluversl-
uninni, að hún færist saman í
færri en stærri einingar.
Framkvæmdastjórarnir vara við
að ef ekki batni samskiptin við
opinbera aðila í sameiginlega evr-
ópska efnahagssvæðinu eftir 1992
verði útlitið mjög dökkt.
Francis Lorentz, stjórnarform-
aður Groupe Bull, sagði að þeir
væm ekki að óska eftir vernd gegn
ytri samkeppni, heldur heilsteyptri
stefnu Evrópubandalagsins þannig
að enginn vafi léki á um stöðu iðn-
aðarins.'
Meðal annarra aðgerða óskuðu
framkvæmdastjórarnir eftir þátt-
töku bandalagsins strax á fyrstu
stigum áætlanagerðar um sam-
evrópsk verkefni á sviði upplýsin-
gatækni, en þannig myndu evr-
ópsku fyrirtækin eiga góða mögu-
leika á að tryggja sér lokasamn-
inga.
Tölvuiðnaður um allan heim á í
allnokkrum erfiðleikum, bæði
vegna tæknibreytinga og almennr-
ar kreppu. Framleiðendur í Evrópu
hafa þó orðið óvenju illa úti vegna
þess hve markaðir þeirra eru smá-
ir og ólíkir innbyrðis. Vittorio Cass-
oni, aðalframkvæmdastjóri Oli-
vetti, telur þó að Evrópa geti enn
byggt upp öflugan upplýsinga-
tækniiðnað þar sem lögð yrði
áhersla á hugbúnað og þjónustu.
I svörum framkvæmdastjórnar
Evrópubandalagsins kom fram að
bandalagið á í samningaviðræðum
við Bandaríkin og Japan um að
skapa betri samkeppnisaðstöðu
fyrir evrópsk fyrirtæki. Hinsvegar
verði samkeppnisfrumkvæðið að
koma frá fyrirtækjunum sjálfum.
Heimild: Financial Times
4019 Geislaprentari
Lausn nútímamannsins í tölvuprentun
Tækninni fleygir fram, einnig í framleiðslu
geislaprentara. Eins og annars staðar í
tölvuheiminum er IBM í fararbroddi.
IBM 4019 geislaprentarinn er talandi dæmi
um forystu IBM á þessu sviði.
Prentarinn er minni um sig en flestir aðrir
en um leið töluvert hraðvirkari.
IBM - valkostur fyrir vandláta
ÓdýK og góð lausn
Þrívirk pappírsmötun. Pappírsgeymslurn-
ar eru þrjár og taka meira en geymslur
annarra prentara.
Auk þess að vera venjulegur geislaprentari
getur hann einnig prentað „postscript“
skrár.
Upplausnin er jafngóð og í dýrustu
prenturum.
Og þá er komið að því sem einnig skiptir
verulegu máli, verðinu.
Verð frá
kr. 99.600, - m/vsk.
Brautarholti 8, Pósthólf 5193,125 Reykjavík
SAMEIND
Sími 615833, fax 621531.