Morgunblaðið - 19.10.1991, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.10.1991, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B/LESBOK 238. tbl. 79. árg.________________________________LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 1991_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins George Bush Bandaríkjaforseti setur fríðarráðstefnu fyrir Miðausturlönd í Madríd 30. okt.: Ráðstefnan grunnur nýrrar framtíðar Israela og araba James Baker, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, (t.h.) skýrir blaðamönnum frá niður- stöðum fundar með Yitzhak Shamir, forsætisráðherra ísra- els, í Jerúsalem í gær. Er átta mánaða tilraunum Bakers og jafnmörgum friðarferðum til Miðausturlanda lokið með þeim árangri að boðað hefur verið til friðarráðstefnu ísraela og araba í Madríd 30. október. * Atta Sovétlýðveldi undir- rita samstarfssáttmála Fulltrúar átta af 15 lýðveldum sem til skamms tíma voru í sovéska ríkjasambandinu undirrituðu í gær sáttmála um víðtækt samstarf lýðveldanna í efnahagsmálum. Gert er m.a. ráð fyrir sameiginlegri mynt og seðlabanka. Míkhaíl S. Gorbatsjov Sovétforseti varð fyrir miklum vonbrigðum í fyrradag er Úkraína, annað fjölmennasta Sovétlýðveldið, ákvað að undirrita ekki sáttmálann en auk þess hættu Azerbajdzhan, Georgía og Moldova við þátttöku. Eystrasalts- löndin þijú höfðu þegar ákveðið að vera utan við samstarfið. Sovét- forsetinn bar sig vel í gær og sagði að ísinn væri brotinn en Borís Jeltsín Rússlandsforseti benti á að enn væri eftir að leysa mörg ágreiningsmál. Gorbatsjov brosir hér kampakátur að lokinni staðfest- ingu sáttmálans. - segir James Baker utanríkisráð- herra - Arabaríkin hafa þegið boð um að koma til ráðstefnunnar og Yitz- hak Shamir forsætisráðherra ísraels leggur til að Israelar taki þátt Jerúsalem, Washington, Moskvu. Reuter. GEORGE Bush Bandaríkjaforseti mun setja friðarráðstefnu fyrir Mið- austurlönd í Madríd miðvikudaginn 30. október nk. og verður Míkhail Gorbatsjov Sovétforseti viðstaddur en risaveldin buðu Israelum og arabískum grönnum þeirra til ráðstefnunnar eftir viðræður James Bakers, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, með ísraelskum ráðamönn- um í Jerúsalem í gær. Arabaríkin hafa þegið boð um að koma til ráð- stefnunnar og Yitzhak Shamir forsætisráðherra ísraels sagðist myndu leggja til við ríkisstjórn sína, sem boðuð hefur verið til fundar á morg- un, sunnudag, að Israelar taki þátt. Reuter Júgóslavneskir leiðtogar ræða nýja áætlun um framtíð ríkjasambandsins: Tillaga EB táknar endalok Júgóslavíu Haag, Zagreb. Reuter. CARRINGTON lávarður, stjórnandi friðarráðstefnu Evrópubanda- lagsins (EB) fyrir Júgóslavíu, sagði í gær að EB myndi halda til streitu tiliögu að nýrri framtíðarskipan landsins sem laustengds lýðveldasam- bands þrátt fyrir fyrirvara Serba. Stefnt væri að því að vinnuhópar byijuðu að skrifa sáttmála upp úr tillögunni næstkomandi miðviku- dag og forsetar lýðveldanna kæmu síðan saman nk. föstudag til þess að ganga frá sáttmálanum. Leiðtogar júgóslavnesku lýðveld- anna sex og fulltrúar forsætisráðs Júgóslavíu ræddu tillöguna á friðar- ráðstefnu EB í Haag í Hollandi í gær. Lýstu þeir allir stuðningi við hana nema Slobodan Milosevic, for- seti Serbíu, sem sagði hana í raun tákna endalok Júgóslavíu. Hann sagði Serba ekki myndu stöðva framgang málsins með öllu þar sem margt jákvætt væri f áætluninni. í tillögu EB er hvatt til stofnunar frjáls sambands fullvalda og sjálf- stæðra lýðvelda, óbreyttra innri landamæra nema um annað semd- ist, og hún gerir ráð fyrir að hægt verði að stofna sjálfstjórnarsvæði einstakra þjóðarbrota, en með því móti er komið til móts við 600.000 Serba sem eru í meirihluta í einstök- um héruðum Króatíu. Carrington sagði að þrátt fyrir andstöðu Serba væri málið ekki í sjálfheldu og hugsanlegt að leysa hnútinn fyrir tilstilli gerðardóms ráðstefnunnar sem aðilar hefðu samþykkt að geti úrskurðað um ágreiningsefni. í gærmorgun var birt sameiginleg áskorun Evrópubandalagsins, Bandaríkjanna og Sovétríkjanna til deiluaðila í Júgóslavíu þar sem þeir voru hvattir til þess að efna eigin fyrirheit og stuðla að friði í landinu. í upphafí friðarráðstefnunnar í Haag í gær undirrituðu fulltrúar forsætisráðs Júgóslavíu, Slobodan Milosevic, forseti Serbíu, og Franjo Tudjman, forseti Króatíu, nýtt sam- komulag þar sem sveitum júgóslav- neska sambandshersins og vopnuð- um þjóðvarðliðssveitum Króatíu var fyrirskipað að leggja niður vopn kl. 12 á hádegi að íslenskum tíma í gær. I gærkvöldi sakaði króatíska sjón- varpið hins vegar sambandsherinn um brot á vopnahléssamkomulag- inu, hinu tíunda sem undirritað er frá því bardagar brutust út í landinu í júní. Baker og Borís Pankín, sovéskur starfsbróðir hans, skýrðu frá því á sameiginlegum blaðamannafundi í Jerúsalem í gær að boðað hefði verið til ráðstefnunnar í Madríd, höfuðborg Spánar. Baker sagði að þar gæfíst sögulegt tækifæri til að binda enda á 43 ára deilur Israela og araba. Með ráðstefnuboðinu lýkur átta mán- aða þrotlausum tilraunum hans til að koma deiluaðilum að samninga- borði og jafn mörgum friðarferðum til Miðausturlanda. Tókst Baker að notfæra sér þær pólitísku breytingar sem urðu í þessum heimshluta með ósigri Iraka í Persaflóastríðinu og þverrandi áhrifum Sovétmanna í ara- baríkjunum. „Ráðstefnan opnar þjóð- um þessa heimshluta leið út úr tíma- bili deilna og átaka, hún getur orðið grundvöllur nýrrar framtíðar,” sagði Baker. Rétt áður en skýrt var frá því að samkomulag hefði tekist um dag- setningu ráðstefnunnar endurnýjuðu Sovétmenn og ísraelar stjómmála- samband, en það var eitt af skilyrð- um Israela fyrir aðild Sovétmanna að ráðstefnunni. Arabaríki sem sam- þykkt hafa þátttöku eru Sýrland, Líbanon, Jórdanía og Egyptaland en auk þess taka 14 fulltrúar Palestínu- manna þátt og verða þeir hluti af sendinefnd Jórdaníu. Formlega eiga þessi ríki öll nema Egyptaland í stríði við Israel. Þátttaka Palestínumanna _var ein helsta hindrunin og höfðu ísraelar krafist þess að fá að samþykkja eða hafna fulltrúum þeirra til þess að geta útilokað fulltrú Frelsissamtaka Palestínu (PLO) sem em í þeirra augum hryðuverkasamtök. Palest- ínumenn vildu hins vegar velja sína fulltrúa sjálfir og fékk Baker lista með nöfnum þeirra rétt fyrir fund þeirra Shamirs í gærmorgun en hann sýndi ekki ísraelska forsætisráðherr- anum listann. Eftir fundinn sagði Shamir að Baker hefði tjáð sér að fulltrúamir uppfylltu almennt skil- yrði ísraela. Yasser Arafat, leiðtogi PLO, knúði miðstjórn samtakanna í gær til að samþykkja þátttöku í ráðstefnunni i andstöðu við ýmsa harðlínumenn. Er afstaða Arafats meðal annars skýrð með því, að Bandaríkjamenn og Sovétmenn hafi lagt mjög hart að honum í þessu máli og einnig, að hann telji sig og PLO þurfa að bæta nokkuð fyrir stuðninginn við Saddam Hussein íraksforseta í Persaflóa- stríðinu. „Örlög Palestínumanna og fóstuijarðarinnar em mikilvægari en þessi félagsskapur,” sagði Arafat margsinnis og svo fór, að miðstjórn- in samþykkti að taka þátt í ráðstefn- unni með 60 atkvæðum gegn 15 en þrír sátu hjá. Fjórum dögum eftir að ráðstefnan hefst er gert ráð fyrir að fulltrúar ísraela og araba setjist niður og ræðist við augliti til auglits um lausn deilumála þeirra. Sjá nánar fréttir á bls. 20.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.