Morgunblaðið - 19.10.1991, Page 13

Morgunblaðið - 19.10.1991, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. OKTOBER 1991 13 Sjaldan hagkvæmara að hefja vega- og jarðvinnuframkvæmdir eftir Kristínu Sigurðardóttur Við íslendingar erum meira og minna stöðugt að vinna að einhveij- um framkvæmdum og uppbygg- ingu. Tæknileg geta og kunnátta til verka hefur farið hraðvaxandi. Það er aðeins einn galli á þessu ástandi og hann er sá, að á sviði framkvæmda eins og á ýmsum öðr- um sviðum hættir okkur til að verða dálítið öfgakennd. Við reynum held- ur ekki að láta markaðsástandið vinna með okkur heldur streitumst á móti. Það sem við uppskerum verður þá mikill tilkostnaður og erfiði. Ofgarnar í framkvæmdum lýsa sér í því að gjarnan er farið í margar stórframkvæmdir í senn, virkjanir, bygging stórmannvirkja og vegaframkvæmdir, þess á milli er lítið að gera. Það síðastnefnda lýsir best ástandinu upp á síðkastið. Miklar og fjölbreyttar fram- kvæmdir leiða oft af sér góða tíma fyrir vinnuvélaeigendur og aðra verktaka, en það leiðir einnig af því ákveðna óhagkvæmni. Vinnu- álagið eykst sem kallar oft á miklar fjárfestingar í tækjum og verðið hækkar. Þegar dregur úr verkefn- um og bylgjan fer í botn, þá sitja menn eftir með fjárfestingar, en of fá verkefni fyrir þessi ágætu tæki. Það er því æskilegast, að framboð verkefna sé nokkuð jafnt. Vinnu- vélaeigendur, sem verktakar, hafa reynt að stuðla að því að svo verði. Til þess hafa þeir notað venjulegar aðferðir markaðarins, þ.e. að lækka Villandi túlkanir eftir Björn Bjarnason í umræðum á Alþingi um evrópskt efnahagssvæði hinn 16. októbersíð- astliðinn kom fram í máli nokkurra ræðumanna, að málflutningur þeirfa, sem eru í samtökunum með furðulega nafninu, Samstaða um óháð ísland, væri ákaflega villandi, hvort heldur vísvitandi eða vegna mistaka. Þetta mat þarf ekki að koma neinum á óvart, sem hefur fylgst með því, hvernig talsmenn samtakanna rugla alltaf saman Évrópubandalaginu annars vegar og evrópska efnahagssvæðinu hins vegar, svo að dæmi sé tekið. Er það ekki til marks um trú á eigin mál- stað að þurfa að haga málflutningi sínum með þessum hætti? Hannes Jónsson, félagsfræðing- ur og fyrrum sendiherra, er í hópi þeirra sem halda á loft málstað Samstöðu um óháð ísland. Beitir hann villandi túlkunum í málflutn- ingi sínum. Á undanförnum árum hefur komið í minn hlut að rita um þijár bækur Hannesar hér í blaðið. Þannig hef ég átt þess kost að kynnast allvel þeirri aðferð, sem Hannes notar til að rökstyðja mál sitt; hann gefur sér gjarnan niður- stöðuna fyrirfram og lagar síðan röksemdirnar að henni. Þannið fjall- aði hann til dæmis í löngu máli um öryggismál á N-Atlantshafi án þess að gera marktæka úttekt á sovéska víghreiðrinu á Kóla-skaga eða út- þenslu sovéska flotans. Svipaðri aðferð beitir Hannes Jónsson í grein sinni sem birtist hér í blaðinu 15. október og hefur þann yfírlýsta tilgang að leiðrétta grein eftir mig frá 28. september. Það er alrangt að ég hafi verið að leggja íslenska þjóðveldið að jöfnu við skipulagið á Evrópubandalaginu. Fyrir mér vakti að benda á, að með stofnun Alþingis 930 ákváðu full- valda goðar á íslandi að sameinast um eina löggjöf og úrræði til að framfylgja henni. Svipuð hugmynd býr að baki samvinnu Evrópuþjóða, þótt framkvæmd hennar sé með allt öðrum hætti en hjá goðunum á þjóðveldisöld. Með evrópsku efna- hagssvæði er til dæmis verið að taka upp fijáls viðskipti með vörur, þjónustu, fjármagn og vinnuafl. Markaðskerfíð. kemst ekki á nema stofnað sé eftirlits- og réttarkerfi tii að tryggja hin fijálsu viðskipti. (Hannes Jónsson telur mig fara með rangt mál með því að kalla goðana fullvalda. Honum til glöggv- unar vil ég benda á handhæga bók,, íslandssögu a-k eftir Einar Lax- ness, en þar stendur m.a. ábls.ll3:„Goðar voru fullvalda, enginn yfír þá settur og allir jafnir að lögum.” Einmitt þannig lýsum við sjálfstæðum og fullvalda ríkjum nú á tímum.) Eftir lestur greinar Hannesar finnst mér enn fráleitara en áður, að hann sé í aðstöðu til að tala fyrir munn látinna forystumanna Sjálfstæðisflokksins. Að sjálfsögðu ákveða þeir, sem móta stefnu Sjálf- stæðisflokksins á landsfundi eða annars staðar samkvæmt skipu- lagsreglum flokksins, hvað er and- Nýtt! Hurðirúr birkirót. Gerett sprautuð ílit. Hupöíp af öllum genöum og verðflokkum. Innlend framleiðsla - Spónn hverrar pöntunar úr sama trénu - Smíðum allt, jafnt í gamla massífa stílnum, sem og nýja. Opið iaugardag - 27 ára reynsia - INNRETTINGAR OG HÚSGÖGN HF. Skeifan 7,108 Reykajvík, símar 31113 og 814851. stætt sjálfstæðisstefnunni eða í samræmi við hana. Hannes Jónsson hefur aldrei tekið þátt í slíkum fund- um enda löngum verið virkur í Framsóknarflokknum. Á landsfundi Sjálfstæðisflokksins, sem haldinn var i vor, var til dæmis samþykkt: „Sjálfstæðismenn telja að Islend- ingar eigi samleið með öðrum EFTA-ríkjum um þátttöku í evr- ópsku efnahagssvæði, að því til- skyldu að samningar takist um hindrunarlaus viðskipti með sjávar- afurðir.” Ef söguskoðun Hannesar væri í heiðri höfð mætti ætla að Sjálfstæðisflokkurinn væri enn að beijast fyrir sjálfstæði íslands und- an Danmörku! Höfundur erþingmaður Sjálfstæðisflokksins fyrir Reykjavík. verðið í tilboðsverkum, en sú lækk- un hefur reyndar stundum orðið verulega meiri, en hægt er að mæla með. En það hefur nokkuð staðið á að þau eðlilegu viðbrögð markaðarins sýndu sig sem svar, að framboð verkefna aukist. Ástæð- an kann að vera sú, að fólki sé .ekki kunnugt um það, hversu hag- kvæmt verðið er. Stjórn Félags vinnuvélaeigenda vildi því reyna, að vekja athygli fólks á þeim mögu- leika, sem þetta ástand býður til hagkvæmra framkvæmda. Af því tilefni var samþykkt eftirfarandi ályktun: „Stjórn Félags vinnuvéia- eigenda skorar á ríkisstofnanir, sveitarfélög og einstaklinga að bíða ekki lengur með arðsamar jarð- vinnu- og vegaframkvæmdir. Verð í jarðvinnu- og vegaframkvæmdum hefur sjaldan verið lægra en hefur um þessar mundir. Komi til bygg- ingar álvers og virkjanafram- kvæmda, eins og stjórnvöld boða, munu þessar aðstæður breytast og verð fara breytist nýju í eðlilegt horf og hækkar þar með verulega. Það er því augljóst, að það felst hreinn hagnaður í því að flýta þeim arðsömu vega- og jarðvinnuverk- efnum, sem þegar hafa verið áætl- uð. Stjórn félagsins vill því benda fólki á, að nýta sér þessar einstöku aðstæður, öllum til góðs, og auka þannig hagkvæmni framkvæmda í landinu.” Þannig lýkur ályktun félagsins. Það eru auðvitað fyrst og fremst ríkisstofnanir og sveitarfélög, sem eiga mikla möguleika á að nýta sér þetta ástand og flýta því, að bjóða út verk eða verkþætti. Það má einn- ig segja að þeim beri nokkur skylda til þess, bæði gagnvart skattgreið- Kristín Sigurðardóttir yÞað er óskandi að við Islendingar lærum að vinna rétt með mark- aðnum. Jöfnum álagið, förum í framkvæmdir þegar verðið er lágt og stuðlum þannig að hag- kvæmari framkvæmd- um í landinu.” endum með því að halda þannig niðri kostnaði af framkvæmdum og eins til þess að jafna atvinnu- ástand. Það mælir þó ekkert gegn því, að einstaklingar nýti sér einnig möguleikana til hagkvæmari fram- kvæmda en ella hefði orðið. Það er óskandi að við íslendingar lærum að vinna rétt samkvæmt markaðn- um. Jöfnum álagið, förum í fram- kvæmdir þegar verð er lágt og stuðlum þannig að hagkvæmari framkvæmdum í landinu. Höfundur er framkvæmdastjóri Félags vinnuvélaeigenda. ELGARTILBOÐ HÚSASMIÐJUNNAR föstudag 18. október laugardag 19. október Tilboðsverð Áður *Vínrekki 850 1.213 *Pottasett f. örbylgjuofna...2.205 2.756 Hjólatjakkur 3.969 4.669 Hamar 1.609 2.298 Sólstóll 1.046 1.394 Smekkbuxur 5.166 7.380 *Fæst einnig í Heimasmiðjunni, Kringlunni. Opið á laugardögum: Verslun Skútuvogi kl. 10:00-14:00 Verslun og timbursala Hafnarfirði ki. 9:00-13:00 HÚSASMHMAN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.