Morgunblaðið - 19.10.1991, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. OKTOBER 1991
Nemendur Kirkjubæjarskóla í haustferð. Morgunblaðið/Hanna Hjartardottn-
■ NÝLEGA kom út blaðið ” Yfir-
lit Sævars Karls” sem sýnir haust-
og vetrartískuna 91/92. Þetta er í
fimmta sinn sem Sævar Karl gefur
út tískublað. Blaðið er gefið út í
14.000 eintökum og er 68 síður.
Auk umfjöllunar um tísku og fatnað
eru margar greinar _ í blaðinum,
m.a. er fjallað um Ólaf Jóhann
Ólafsson í bókmenntagrein, Sig-
mar B. Hauksson skrifar um
Nautnir og viðtal er við Erlu Þórar-
insdóttur myndlistarkonu. Blaðið
er sent til 12.000 viðskiptavina.
Einnig er hægt að fá blaðið í versl-
unum Sævars Karls í Kringlunni
og í Bankastræti.
■ LÍFSVON, samtök til verndar
ófæddum börnurn, heldur almennan
kynningarfund nk. sunnudag 20.
október að Hávallagötu 16 (við
Landakotstún) kl. 4 síðdegis. Sýnd
verður myndin „Silent Scream” sem
fjallar um fóstureyðingar og fram-
kvæmd þeirra, en gerð myndarinnar
annaðist bandarískur fæðinga- og
kvensjúkdómalæknir, dr. Bernard
Nathanson. Myndin er með íslensk-
um texta og er um hálfrar klukku-
stundar löng. Einnig verða sýndar
tvær enskar myndir um fóstureyð-
ingar og baráttu lífsverndarsinna
fyrir breyttum viðhorfum og meiri
upplýsingu almennings um ófædd
börn í móðurkviði, eðli þeirra.v
þroskaferil og tilkall þeirra til lífs-
ins. Allir eru velkomnir á kynning-
arfundinn og kaffiveitingar verða
bornar fram ókeypis.
(Fréttatilkynning)
■ SAMBAND ungra jafnaðar-
manna mun halda ráðstefnu um
framtíð vestnorrænu Iandanna í
dag, laugardaginn 17. október, kl.
10.00 í Alþýðuhúsinu við Strand-
götu í Hafnarfirði og stendur hún
fram á mánudag. Yfirskrift ráð-
stefnunnar er Atlantshaf um alda-
mót og verður einkum rætt unv.
nýtingu fiskstofnanna í höfunum
umhverfis vestnorrænu löndin og
hvers er að vænta um stöðu þeirra
mála um næstu aldamót. Auk ungra
íslenskra jafnaðarmanna munu
sækja ráðstefnuna ungir jafnaðar-
menn frá Færeyjum og Grænlandi.
KIRKJUBÆJARSKÓLI
Nemend-
ur í könn-
unarferð
Kirkjubæjarklaustri.
Sá siður er kominn á í Kirkjubæj-
arskóla að allir nemendur og
starfsmenn fara í dagsferð á hveiju
hausti innan héraðsins. Tilgangur
ferðarinnar er að gera nemendur
meðvitaðri um sögu síns sveitarfé-
lags og byggð.
Þau fræðast um byggð allt frá
landnámi, kynna sér lítillega jarð-
fræði héraðsins, fræðast um örnefni
og kennileiti, kanna gróður og ann-
að sem má verða til þess að gera
þeim ljósara hvað einkennir þeirra
hérað og hvernig byggðaþróun hef-
ur verið.
Að lokinni ferð er síðan unnið
úr heimildum í skólanum í formi
alls kyns verkefna, mismunandi eft-
ir aldri nemendanna.
I ár var haldið í Núpsstaðaskóg
sem er austan Lómagnúps og mörg-
um ferðalöngumSsunnur því fjöldi
fólks kemur þar á hveiju sumri, þó
ekki sé fært nema á stórum bílum.
Farið var á 3 rútum og var fjöldi
þátttakenda um 120 nemendur,
starfsfólk skólans og nokkir foreldr-
ar.
Fyrir ári var farið í Hjörleifs-
höfða og næsta ár er áætlað að
fara í Eldgjá, þá er eftir að fara
um Meðalland, allt til sjávar og
þannig mætti áfram telja því í
margar áttir er að fara frá skólan-
um og því ekki um endurtekningar
að ræða fyrr en að nokkrum árum
liðnum.
- HSH.
GRINDAVÍK
Skólaböm
í haust-
ferðalagi
Krakkarnir úr 1. bekk í Grinda-
vík fara árlega í Selskóg sem
er í norðurhlið Þorbjarnar við
Svartsengi til að sjá og kynnast því
hvaða áhrif haustið hefur á litadýrð
gi'óðursins. Strákarnir á myndinni
sökktu sér í viðfangsefnið og
gleymdu stund og stað innan um
fallandi haustlaufin og sölnandi
gras sem eru merki þess að haustið
er gengið í garð og vetur framund-
an.
Þessa auglýsingu skaltu lesa vandlega
Allan solarhringinn, 365 daga arsinsrfeta horn og
unglingar hringt í símahíónustu Rauðakrosshússins
til að leita aðstoðar eða ráðlegginga... og a l
Áttu í erfiöleikum ?
Hefurðu áhyggjur vegna einhvers ?
Vantar þíg einhvem tíl að tala við ?
& þér strítt ?
Skilja félagar þínir þig útundan ?
Líður þér ia vegna feimni ?
Váu ræða viðkvæm mál ?
Vantar þig upplýsingar um getnaðar-
vamir, kynsjúkdóma, blæðingar,
þungun eða fóstureyðingu ?
Nærðu engu sambandi við forddra þína ?
Hefurðu orðið að þola oíbeldi ?
Hefúrðu orðið íýrir kynferðislegri áreitni
eða kynferðislegu ofbeldi ?
Ertu að gefast upp á drykkjuskap eða
annarri óreglu heima hjá þér ?
Hefurðu ekki lengur stjóm á áfengisneyslu
eða notkun annarra vímuefna ?
Finnst þér þú ekki eiga neitt heimi lengur ?.
Átt þú ekki í önnur hús að venda ?
Áttu í erfiðleíkum f skóla ?
Svarirðu eínhverri spumingu játandí, gæti það
breytt mikiu fyrir þíg að hringja í okkur.
Við erum reiðubúin að hiusta, ræða við þig og
reyna að leysa úr vanda þínum.
SÍMAÞJÓNUSTA RAUÐAKROSSHÚSSINS hefur veríð starfrækt
frá 14. desember 1985 og á þeím tíma hafa yfír 8.000 símtöl átt sér stað
á millí barna eða unglínga og starfsmanna hússíns.
Símhringingarnar koma allsstaðar að á landínu og er SÍMAÞJÓNUSTA /
RAUÐAKROSSHÚSSINS fyrst og fremst ætluð ungmennum að 20 ára aldri. J|
íú hefur svokallað grænt númer verið tekíð í notkun. Það er fvrír bá sem hringja 1
frá öðru svæðísnúmeri en 91 og kostar nú jafn mikíð að hringja í það og uajJ?
innanbæjarsímtal væri að ræða og það skráist ekki á sundurliðaða símreikningflj
og athugið að ekki þarf að gefa upp nafn eða aðrar upplýsingar þegar hringt er. "
Grænt númer
Hverjir hringja í
SÍMAÞJÓNUSTU
RAUÐAKROSSHÚSSINS ?
• II
ö
I 100
(/>
ö 50
1
co o
|
I I I I i|fl I I I
I I I I I I I I I I
I I I I I I I I I I
aT ^ ^
Fjöldi símtala til símaþjónustunnar á mánuði árið 1990
:1ÍJ
Hvenær sólarhringsins var hringt í símaþjónustuna árið 1990
Kíwanísklúbburínn KATLA
styrkír þessa augiýsíngu
Alþjóðamarkmíð
KíwaníshreYfmgarinnar
árin 1990 - 1993:
„Börnín fyrst
og fremst“
RAUÐAKROSSHUSIÐ
TJARNARGÖTU 35,101 REYKJAVÍK
Þeir sem búa á höfuðborgarsvæöinu
hringi í síma: 62 22 66
Þeir sem hringja utan af landi hringi í
síma: 99-66 22 (Ekki svæöisnúmer 91)