Morgunblaðið - 06.12.1991, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 1991
Morgunblaðið/Sverrir
Minnst 200 ára ártíðar Mozarts
Sinfóníuhljómsveit íslands, Kór Langholtskirkju og einsöngvararnir Sólrún Bragadóttir, Elsa Waage, Guðbjörn Guðbjörnsson og Viðar Gunnars-
son fluttu undir stjórn Petri Sakari, Sálumessu eftir Mozart en 200 ár eru liðin frá láti hans 5. desember 1791. Áheyrendur fögnuðu flytjend-
um innilega í lok tónleikanna í Háskólabíó í gærkvöldi.
Einkavæðingaráform ríkisstj órnarinnar;
1 -
Bjóða ættí landsmönnum
Búnaðarbankann á hálfvirði
- sagði Friðrik Sophusson fjármálaráðherra á morgunverðarfundi Verslun-
arráðs en Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra vill fara hægar í sakirnar
„EF ég væri einráður hér myndi ég bjóða öllum ísiendingum
Búnaðarbankann til sölu á lágu verði, um það bil hálfvirði,”
sagði Friðrik Sophusson fjármálaráðherra á morgunverðarfundi
Verslunarráðs í gærmorgun. Á þennan hátt gæfist öllum almenn-
ingi tækifæri til að eignast hlut í fyrirtækinu, en ekki aðeins
hinum efnameiri. Á fundinum fluttu fjármálaráðherra og Jón
Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, inngangserindi, og
í máli viðskiptaráðherra kom fram að liann vildi fara varlegar
í sakirnar en fjármálaráðherra. Hann taldi að landsmenn þyrftu
að læra af reynslu annarra þjóða og nefndi sem dæmi hin Norð-
urlöndin og Bretland. „Það eru hlutir sem við þurfum að va-
rast og sérstaklega þegar um er að tefla fjármálastofnanir, sem
við þurfum að gæta að haldi sinni traustu stöðu í fjármálalífi
okkar sjálfra og í áliti erlendra viðskiptaaðila þeirra,” sagði Jón
Sigurðsson.
Ný reglu-
gerð um
bifreiða-
notkun
ráðherra
NÝ REGLUGERÐ sem tekur til
bílaafnota ráðherra er að koma
út um þessar mundir. I henni
er kveðið á um að ráðherrum
beri að greiða skatta af hlunn-
indum vegna einkanota af bif-
reiðum í eigu embættanna.
Indriði H. Þorláksson, skrif-
stofustjóri í fjármálaráðuneytinu,
segir að samkvæmt fyrri reglugerð
hafí verið talið óljóst hvernig meta
ætti bílaafnot ráðherra og í nýju
reglugerðinni væri skýrar kveðið á
um þá hluti. Samkvæmt nýju
reglugerðinni eru hlunnindi vegna
aksturs milli heimilis og vinnustað-
ar og annarra einkanota skattlögð.
Indriði sagði að samkvæmt
reglugerðinni yrði akstur milli
heimilis og vinnustaðar metinn í
samræmi við reglur skattyfirvalda.
Akstur milii heimilis og vinnustað-
ar yrði áætlaður í samræmi við það
hvar heimilið væri og að auki
þyrfti að gera grein fyrir annarri
einkanotkun með fullnægjandi
hætti.
Hann sagði að ríkisskattstjóri
hefði talið óljóst samkvæmt eldri
reglugerð hvernig ætti að meta
einkaafnot ráðherra af bifreiðum
í eigu embættanna. í reglugerðinni
væri reynt að greina á milli einka-
nota og opinberra nota. Auk þess
væri í reglugerðinni gert ráð fyrir
að í framtíðinni væri það ekki val
einstakra ráðherra hvernig bílar
væru keyptir til embættanna, held-
ur myndi ríkið sjá um að hafa bíla
til ráðstöfunar. Bifreiðamar yrðu
keyptar og endurnýjaðar í sam-
ræmi við almennar reglur.
------♦ ♦ ♦---
Kvöldfund-
ur um sparn-
aðaraðgerð-
ir í ríkis-
fjármálum
RÍKISSTJÓRNIN kom saman til
kvöldfundar í Ráðherrabústaðn-
um í gær þar sem farið var yfir
þær niðurskurðar- og sparn-
aðaraðgerðir sem stefnt er að í
ríkisfjármálum en undirbúning-
ur þeirra er á lokastigi.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
mælir fyrir frumvarpi um ráðstaf-
anir í ríkisfjármálum kl. 9.30 á
Alþingi í dag.
Aðspurður um ástæður þessarar
afstöðu sagði Guðmundur að ekki
yrði gengið í berhögg við vilja for-
sætis- og fjármálaráðherra sem
lýst hafa sig andvíga þessum að-
gerðum vegna þess að við þær
gæti ríkissjóður orðið af 400 millj-
óna króna skatttekjum. Guðmund-
ur sagðist hafa rætt þetta mál við
Bankastjóri Búnaðarbankans,
Sólon Sigurðsson, tók fram að
forðast þyrfti stökkbreytingar er
valdið gætu óróa og vantrausti á
markaðinum. Sólon varpaði fram
þeirri spurningu hvers vegna
þyrfti að selja fyrirtæki í góðum
rekstri.
Rökstuðningur fjármálaráð-
herra fyrir sölu á Búnaðarbankan-
stjórnarmenn Byggðastofnunar og
væri þetta niðurstaða þeirra sam-
tala. Hins vegar yrði endanleg
afstaða ekki tekin fyrr en á stjórn-
arfundi í Byggðastofnun næst-
komandi þriðjudag.
Um tíma hefur verið rætt um
sölu á hlutabréfum Hlutafjársjóðs
í Meitlinum, m.a. til annarra hlut-
um var sá að bankinn hefði verið
vel rekinn og því góð byijun fyrir
einkavæðinguna. Hann væri sann-
færður um að langflestir íslend-
ingar myndu vilja taka þátt í þessu
og það myndi styrkja bankann og
samkeppnisstöðu hans. Jafnframt
taldi fjármálaráðherra ekki væn-
legt að byrja á því að selja illa
stöndug fyrirtæki líkt og Síldar-
hafa. Guðmundur sagði að ekkert
tilboð hefði borist í hlutabréfin og
að hann ætti ekki von á tilboði.
Aðspurður um stöðu Meitilsins,
þegar ljóst þykir að ekki verði af
sölu uppsafnaðs taps fyrirtækis-
ins, sagði Guðmundur að hún
væri ekki slæm. Meitillinn væri
ekki skuldugri en mörg fyrirtæki
með svipaðar eignir. Hins vegar
þýddi ekki að reka hann áfram
eins og verið hefur og væri verið
að fá inn nýtt hlutafé og gera
aðrar ráðstafanir.
verksmiðju ríkisins, þar sem helstu
eignir verksmiðjunnar væni skuld-
ir og uppsafnað tap. Einnig lagði
hann mikla áherslu á að vandað
væri til verks og sala ríkisfyrir-
tækja væri vel undirbúin.
Jón Sigurðsson, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra tók undir það að
selja þyrfti fyrirtæki sem væru
eftirsóknarverð fyrir allan almenn-
ing til að ná fram dreifíngu á eign-
unum. Fjármálaráðherra fjallaði
einnig um að setja ætti á fót einka-
væðingardeild innan fjármála-
ráðuneytisins sem ætti að sjá um
rekstrarverkefni og útboðsmái, en
það ætti að vera í höndum ráð-
herranefndar að sjá um sölu ríkis-
reknu fyrirtækjanna og hvert fag-
ráðuneyti um sig myndi skoða þau
fyrirtæki sem undir þau heyra.
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ gagnrýndi
ríkisstjómina fyrir seinagang og
nefndi til samanburðar ríkisstjórn
borgaraflokkanna í Svíþjóð, sem
tók við völdum í október og hefði
nú þegar lagt fyrir áætlun um
sölu 25 ríkisfyrirtækja. Þórarinn
sagði að sænska ríkisstjórnin hefði
ekki þurft mikinn tíma til þessa
og að hún hefði metið það svo að
fyrstu mánuðir valdaferils síns
væru best til þess fallnir að koma
breytingum á. Þá sagði hann eng-
an sýnilegan undirbúning hafa
komið fram til að koma einkavæð-
ingaráformum ríkisstjórnarinnar í
framkvæmd. Auk Búnaðar-
banka og Síldarverksmiðjunnar
var á fundinum minnst á sölu á
Sementsverksmiðju ríkisins, Raf-
magnsveitum ríkisins, ÁTVR og
Lyfjaverslun ríkisins, en engar
endanlegár ákvarðanir hafa verið
teknar í þeim efnum.
Á fundinum virtust menn al-
mennt sammála um, að líta þyrfti
til annarra landa og læra af
reynslu þeirra. Það hefði sýnt sig
að einkavæðing ríkisfyrirtækja
væri það sem koma skyldi. I
tengslum við það sagði Friðrik
Sophusson að óþarfí væri fyrir
íslendinga að fínna upp hjólið; nú
væri kominn tími til að láta það
snúast.
Sala á verksmiðju
Stálfélagsins:
Sautján fyr-
irspumir
erlendis frá
ERLENDIR aðilar hafa sýnt
umtalsverðan áhuga á verk-
smiðju þrotabús íslcnska
stálfélagsins, að sögn Helga
Jóhannessonar búsíjóra en
alls hafa borist 17 fyrir-
spurnir erlendis frá um verk-
smiðjuna en ekkert tilboð
hefur þó verið gert.
Bústjóri auglýsti verksmiðj-
una til sölu í tvígang í alþjóð-
lega fagtímaritinu Metal Bul-
letin fyrir skömmu. Helgi sagði
að um helmingur fyrirspyij-
enda hefðu sýnt áhuga á að
kaupa verksmiðjuna með það í
huga að flytja hana úr landi.
Að sögn Helga hafa borist
fyrirspurnir víða að úr heimin-
um, m.a. frá Japan og Hong
Kong og þ.á m. væru fyrirtæki
sem séu vel kunn í heimi stál-
iðju. Sagði hann það á valdi
veðhafa hvort verksmiðjan
verður seld úr landi eða endur-
reist hér innanlands. Engar
beinar fyrirspurnir hafa komið
frá íslenskum aðilum, að sögn
Helga.
Byggðastofnun á raóti
sölu á tapi Meitilsins
HLUTAFJÁRSJÓÐUR Byggðastofnunar mun ekki taka þátt í
þeim tilfæringum sem gera þarf til að gera sölu á tapi Meitilsins
hf. í Þorlákshöfn mögulega, að sögn Guðmundar Malmquist, for-
stjóra Byggðastofnunar.