Morgunblaðið - 06.12.1991, Side 31
'MORQUNBLlAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6.'DB8BMBBR'1991
Utanríkisráðuneytið um uppsagnir á Keflavíkurflugvelli:
Uppsagnir aðeins á starfs-
mönnum sj álfseignastofnana
„UPPSAGNIR sem átt hafa sér stað hjá varnarliðinu hafa eingöngu
verið bundnar við þá starfsmenn, sem vinna hjá sjálfseignarstofnun-
um varnarliðsins. Frá árinu 1990 voru opinber fjárframlög tekin
af þessum stofnunum með lögum frá Bandaríkjaþingi. Fyrir atbeina
íslenskra stjórnvalda fékkst undanþága fyrir Keflavíkurstöðina í
eitt ár, en nú verða þær að byggja rekstur sinn á eigin afkomu,” segir
í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu, sem gefin er út í til-
efni yfirlýsingar frá samstarfsnefnd um atvinnuöryggi á Keflavíkur-
flugvelli frá 29. nóvember.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Norðlensku vélsleðameistararnir nýkrýndu verða meðal þeirra sem
verða á sýningu Landssambands vélsleðamanna á Akureyri um helg-
ina. Þúsundir gesta heimsóttu sýninguna í fyrra og fjöldi nýjunga
verður sýndur núna.
Meistararnir á
vélsleðasýningu
„Flestar þessara stofnana eru
reknar með halla að undanskilinni
verslun varnarliðsins, Navy Exc-
hange. Því hefur orðið að grípa til
þeirra að gera skipulagsbreytingar
á rekstri þessara stofnana m.a. með
fækkun íslenskra starfsmanna.
Aðrar fækkanir í flotastöðinni,
þ.e. stöður sem greiddar eru af
opinberu framlagi Bandaríkja-
stjórnar hafa orðið eingöngu með
þeim hætti að viðkomandi starfs-
menn hafa hætt að eigin frum-
kvæði. I þeim tilvikum er ekki ráð-
ið í þær stöður sem losna.
Varðandi málningarvinnu varn-
arliðsmanna þá var það loforð yfir-
manna varnarliðsins, að þegar ís-
lensk stjórnvöld samþykktu að
leggja mætti niður málningaverk-
stæði varnarliðsins, yrði öll máln-
ingarvinna unnin af verktökum. Sé
það ekki gert er það brot varnarliðs-
ins á því samkomulagi, og verður
það kannað sérstaklega.
Hvorki íslensk né bandarísk
stjórnvöld hafa lýst því yfir, að um
samdrátt á rekstri flotastöðvarinnar
sé að ræða. Það er hinsvegar stað-
reynd, sem bæði íslensk og banda-
rísk stjórnvöld hafa undirstrikað,
að um minnkandi ijárveitingar til
allra stöðva Bandaríkjahers sé að
ræða samkvæmt ákvörðun Banda-
ríkjaþings.
í varnarsamningum frá árinu
1951 eru engin ákvæði um skyldu
Bandaríkjanna til að ráða Islend-
inga til starfa.
I 6. gr. 4. mg. varnarsamningsins
segir svo: „Bandaríkin æskja þess
að ráða hæfa íslenska borgara, eft-
ir því sem föng eru á, til starfa í
sambandi við samning þennan, að
svo miklu leyti sem ísland kann að
samþykkja ráðningu íslenskra
borgara til starfa hjá liði Bandaríkj-
anna. Skal slík starfsráðning fram-
kvæmd með aðstoð og fara um
hendur þess eða þeirra fyrirsvars-
manna sem af ísland hálfu eru til
þess kvaddir. Ráðningakjör og vinn-
uskilyrði, einkum vinnulaun, launa-
uppbætur og öryggisráðstafanir við
vinnu skulu fara að íslenskum lög-
um og venjum.”
Ennfremur segir í samkomulagi
ríkisstjórna íslands og Bandaríkj-
anna frá 22. október 1974: „Að
Bandaríkin munu ekki leitast við
að ráða til starfa eða halda í vinnu
fleiri bandarískum eða íslenskum
starfsmönnum en aðstæður rétt-
læta, og kunna því að breyta fjölda
starfsmanna og skipulagi starfs-
greina á vegum varnarliðsins innan
ákvæða 3. og 4. gr. varnarsamn-
ingsins frá 1951.”
Engin grein varnarsamningsins
kveður á um forgang íslendinga til
vinnu í varnarstöðinni né heldur,
að varnarliðið geti ekki sagt upp
starfsfólki svo sem réttur annarra
fyrirtækja og stofnana er sam-
kvæmt kjarasamningum.
í dag er staðan sú, að það er
ekki á valdi íslenskra stjórnvalda
að koma í veg fyrir fækkun ís-
lenskra starfsmanna varnarliðsins,
einfaldlega vegna þess, að Banda-
ríkjaþing hefur samþykkt lög, sem
draga mjög úr fjárframlögum til
Bandaríkjahers og hætt að fjár-
magna sjálfseignarstofnanir hers-
ins.
Utanríkisráðherra harmar þann
misskilning sem fram kemur í yfir-
lýsingu samstarfsnefndar um at-
vinnuöryggi. Fundi með samstarfs-
nefnd hefur verið lofað og við það
verður staðið, um leið og viðræðum
um starfsmannamál og samskipti
starfsmanna og yfirmanna varnarl-
iðsins er lokið.”
HERRA Ólafur Skúlason biskup
Islands vígir nýja kirkju á Stöðv-
arfirði næstkomandi sunnudag,
8. desember, kl. 14.
Fyrsta skóflustunga að kirkju-
byggingunni var tekin 16. júní
1989, þannig að byggingarfram-
kvæmdir hafa staðið yfir í tvö og
hálft ár. Arkitekt kirkjubyggingar-
LANDSSAMBAND vélsleða-
manna verður með veglega vél-
sleðasýningu í íþróttaskemmunni
á Akureyri um helgina, en á laug-
ardagksvöld verður árshátíð vél-
sleðamanna í Sjallanum. Sýning-
in er árlegur viðburður og sýnir
áhugamönnum það nýjasta í
heimi vélsleðamannsins. Meðal
innar er Björn Kristleifsson á Egils-
stöðum. Gert er ráð fyrir að kirkjan
rúmi 150 manns, auk 50 manns í
safnaðarheimili sem er sambyggt
kirkjunni. Byggingarkostnaður er
áætlaður að nemi tæpum 30 millj-
ónum kr. Formaður sóknarnefndar
á Stöðvarfirði er Guðný Baldurs-
dóttir en sóknarprestur er sr. Gunn-
laugur Stefánsson í Heydölum.
sýningargripa núna er nýr
Yamaha V Max-vélsleði sem hef-
ur unnið hvert spyrnumótið á
fætur öðru í Bandaríkjunum und-
anfarnar vikur, en hann er fjög-
urra strokka.
Tækjabúnaður til ferðamennsku
er stór hluti sýningarinnar, en
hundruð íslendinga ferðast um há-
lendið á vélsleðum á hverju ári, en
vélsleðar í eigu landsmanna skipta
þúsundum. Öll vélsleðaumboðin
verða með nýjungar, en jafnframt
verður sýndur í fyrsta skipti finnsk-
ur Lynx vélsleði, sem byrjað er að
flytja inn. Hann er talinn vera með
fullkomnasta gírkassa, sem völ er
á í vélsleða og má skipta um gír á
ferð. Bás verður þar sem vélsleða-
meistarar ársins sýna verðlauna-
gripi sína, en þeir eru allir norð-
lenskir. hafa Norðamenn verið hvað
fremstir í keppnismótum á vélsleð-
um síðustu ár. Auk vélsleða verða
nýir jeppar og torfærutæki til sýnis
m.a. jeppi Arna Grant sem er ís-
landsmeistari í sandspyrnu.
Stöð varfj örður:
Vígsla nýrrar kirkju
Miðaverð: 250 kr.
Att þú númer í sjóðnum?