Morgunblaðið - 06.12.1991, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 1991
Yfirlýsing
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Sig-
urði G. Tómassyni ritstjóra og
Onnu Kristine Magnúsdóttir dag-
skrárgerðarmanni:
„í Morgunblaðinu á sunnudag,
1. desember, birtist yfirlýsing frá
nefnd þeirri sem vinnur að tillögu-
og áætlanagerð vegna sameiningar
Borgarspítala og Landakotsspítala
þar sem margítrekað kemur fram
að Skúli G. Johnsen, héraðslæknir
í Reykjavík, hafi í fréttatíma Ríkis-
útvarpsins þann 21. nóv. greint frá
kostnaði við sameiningu sjúkrahús-
anna. Hið rétta er að Skúli G. John-
sen héraðslæknir nefndi aldrei nein-
ar tölur í umræddri frétt. Héraðs-
læknirinn í Reykjavík hafði þennan
sama dag verið í viðtali á Rás 2,
þar sem undirritaður dagskrárgerð-
armaður greindi frá því að á fundi
hjá Læknafélagi Reykjavíkur kvöld-
inu áður hefði komið fram að áætl-
aður kostnaður vegna sameiningar-
innar gæti orðið um 2,3 milljaðar
króna.
Fréttastofa Ríkisútvarpsins birti
hluta þessa níu mínútna viðtals og
tekið var fram í inngangi að frétt-
inni að tölurnar hefðu komið fram
á fundi Læknafélags Reykjavíkur.
Af yfirlýsingu vinnunefndarinnar
verður því aðeins það eitt ráðið, að
ekkert þeirra níu, sem sejta nafn
sitt undir yfirlýsinguna hafi hlustað
á fréttina sem athugasemdin er
gerð við, né kveikjuna að þessu
innskoti í fréttatímanum, þ.e. við-
talið við Skúla G. Johnsen.”
Morgunblaðið/Theodór
Verið að flytja orlofshús frá Svignaskarði, ný hús verða byggð í í
einingum í Borgarnesi og reist á stækkuðum grunni gömlu húsanna.
Borgarfjörður;
Tólf elstu orlofshúsin í
Svignaskarði endumýjuð
Borgarnesi.
INNLENT
Nýverið voru 12 orlofshús seld
til brottflutnings í orlofshúsa-
hverfinu í Svignaskarði. Húsin
voru flutt í heilu lagi og seld á
725 þúsund krónur hvert hús og
fengu færri en vildu. Það eru 7
Ljóðabók fjórtán ára
Reykvíkings komin út
FJORTAN ára gamall Reykvík-
ingur, Þorvaldur Kristjánsson,
er höfundur ljóðabókarinnar Við
enda sléttunnar, sem Listhús hf.
gefur út. Fyrstu ljóð Þorvaldar
voru birt í dagblaði þegar hann
var tólf ára gamall.
Þorvaldur sagði í samtali við
Morgunblaðið að hann hefði byijað
ungur að lesa bækur eftir útlenda
höfunda og það hefði leitt til þess
að hann hafi byrjað að semja ljóð.
„Eg hef náð góðum tökum á ís-
lensku og fengið mikinn orðaforða
við að lesa vel þýddar bækur. Ég
hef meiri áhuga á útlenskum höf-
undum heldur en íslenskum,” sagði
Þorvaldur. Hann segist þó lesa
meira af skáldsögum en ljóðum og
telur sig hafa orðið fyrir mestum
áhrifum af rússneskum og frönsk-
um höfundum og nefndi Isodore
Ducasse og Majakovski sem dæmi.
Þoi’valdur sagðist fá hugmyndir
Þorvaldur Kristjánsson.
að ijóðunum víðs vegar að og að
ijóðin í bókinni væru flest ort á
þessu ári. „Þau íjalla um mannlegar
aðstæður og mannleg hlutskipti,”
sagði Þorvaldur að lokum.
verkalýðsfélög sem eru þarna að
endurnýja elstu bústaði sína.
Nýju bústaðirnir verða smíðaðir
hjá Byggingafélaginu Borg hf. í
Borgarnesi.
Að sögn Guðmundar Þ. Jónssonar
formanns Iðju og Rekstrarfélags
orlofshúsa í Svignaskarði svöruðu
gömlu húsin, sem voru byggð á
árunum 1973 til 1978 ekki lengur
nútíma kröfum og því hafi annað
hvort orðið að stækka þau og lag-
færa°eða láta reisa ný frá grunni.
Akveðið hafi verið að bjóða út smíði
nýrra 57 fermetra bústaða en þeir
gömlu hafi verið 36 fermetrar.
Gengið hafi verið að tilboði frá
Byggingafélaginu Borg hf. í Borg-
amesi sem bauð bústaðina á 3,8
milljónir fulifrágengna og komna á
staðinn. Alls eru það 19 verkalýðs-
félög sem eiga 30 orlofshús, auk
þjónustumiðstöðvar í Svignaskarði.
Að sögn Eiríks Ingólfssonar
framkvæmdastjóra Byggingafé-
lagsins Borg hf. í Borgarnesi eiga
orlofshúsin að vera tilbúin til notk-
unar 15 maí 1992. „Við erum full-
bókaðir fram á vor eftir að við feng-
um þetta verkefni” sagði Eiríkur.
„Við bættum við okkur 4 mönnum
til að byija með og vinnum alls 26
hjá fyrirtækinu í dag og það getur
verið að við þurfum að bæta við
okkur mannskap þegar líða tekur
á veturinn.” Að sögn Eiríks koma
fleiri verktakar og fyrirtæki í Borg-
arnesi við sögu í smíði þessara or-
lofshúsa. TKÞ.
Háskólabíó:
Samkoma til styrkt-
ar þyrlukaupum
TÓNLEIKAR og upplestur verð-
ur í Háskólabíó laugardaginn 7.
desember kl. 15.00 til styrktar
þjóðarátaki til þyrlukaupa.
Þeir sem koma fram eru: Blásar-
akvintett Reykjavíkur, Bubbi
Morthens, Megas, Pétur Tyrfings-
son og félagar, Einar Kárason, Ein-
ar Már Guðmundsson, Ólafur Gunn-
arsson, Thor Vilhjálmsson, Vigdís
Grímsdóttir, Þórarinn Eldjárn og
Þorlákur Kristinsson - Tolli.
Kristján Guðmundsson formaður
Nemendafélags Stýrimannaskólans
í Reykjavík flytur ávarp. Allir lista-
mennirnir gefa vinnu sína.
Forsala aðgöngumiða hefst í
Háskólabíói miðvikudaginn 4. des-
ember, en miðaverð verður aðeins
kr. 1200. Miðasalan verður opin frá
kl. 16.30 alla daga. Gíróreikningur
Þjóðarátaks til Þyrlakaupa er nr.
10000 í Sparisjóði Vélstjóra.
(Fréttatilkynning)
Skipulagsstjórn ríkisins um Sognsmálið:
Olfushreppur getur
stöðvað breytingar
Skipulagsstjórn ríkisins telur
að byggingainefnd Ölfushrepps
hafi vald til þess að synja heil-
brigðisráðuneytinu um breytingar
á Sogni í því skyni að koma þar
á réttargeðdeild. Vitnað er til
byggingarlaga í ályktun fundar
skipulagsstjórnar á miðvikudag.
„Heilbrigðisráðuneytið sótti um
leyfi til byggingarnefndar Ölfus
hrepps um að fá að breyta húsinu
þannig að það gæti hýst réttargeð-
deild en nefndin synjaði þessari um-
sókn. Ráðuneytið kærði síðan þessa
niðurstöðu byggingarnefndar til um-
hverfisráðuneytsins sem óskaði eftir
umsögn Skipulagsstjórnar ríkisins
um það hvort synjun hreppsins yrði
felld úr gildi. Stjórnin ályktaði sem
svo að samkvæmt byggingarlögun-
um sé á valdi byggingarnefndar að
synja heilbrigðisráðuneytinu um leyfi
til þessara breytinga og að ályktun
byggingarnefndar skuli óhögguð
standa,” sagði Stefán Thors, skipu-
lagsstjóri, í samtali við Morgunblað-
ið.
Skipulagsstjórn ákvað á fundun-
um að fresta umfjöllun um sambýli
fatlaðra við Þverársel til 18. desemb-
Sýnir 20 mynd-
ir í Café Mílanó
HANS Christiansen myndlistar-
maður opnar sýningu á vatnslita-
myndum í Café Mílanó við Faxa-
fen í Reykjavík, laugardaginn 7.
þ.m.
Þetta er 21. einkasýning lista-
mannsins og eru sýndar rúmlega
20 myndir, flestar nýlegar og allar
eru þær til sölu.
Sýningin er opin virka daga kl.
9-19 og á sunnudögum kl. 13-18.
(Fréttatilkynning)
Ofurefli, ný skáld-
saga eftir Leó E. Löve
Ofurefli eftir Leó E. Löve.
í kynningu útgefanda segir
m.a.: „í bókinni segir frá Davíð
Eiríkssyni sem verður fyrir þeirri
óskemmtilegu reynslu að flækjast
í glæpastarfsemi alþjóðlegra sam-
taka. Hans eigið líf og hans nán-
ustu er í húfi. Hann snýst til varn-
ar af heift þótt honum sé aflsmun-
urinn ljós. Leikurinn berst til Norð-
ur-írlands þar sem Davíð kynnist
hörmungum frændþjóðarinnar og
starfsemi IRA af eigin raun.”
Ofurefli er þriðja bók höfundar.
ó E. Löve
Matargerð
er list og undirstaðan
er úrvals hráef ni
KJÖ TIÐNAÐARSTOÐ
5