Morgunblaðið - 06.12.1991, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGIJR 6, DESEMBER 1991
200. ártíð
Mozarts
í gær voru liðin 200 ár frá
því Wolfgang Amadeus
Mozart lést og af því tilefni
var tónskáldsins' minnst með
margvíslegum hætti víða
um heim. Hér leggur ung
stúlka kerti á gröf Mozartz
í Vínarborg en hann var í
blóma lífsins, aðeins 35 ára
gamall, þegar hann féll frá.
Samt er talið, að ekkert tón-
skáld, hvorki fyrr né síðar,
hafi sýnt jafn mikla fjöl-
hæfni og jafn mikil afköst
og Mozart á sinni stuttu ævi.
Styrkir við banda-
ríska flugvélasmíði
Brussel. Fra Kristofer M. Kristinssyni, fréttaritara Moruunblaðsins.
í SKÝRSLU sem framkvænida-
stjórn Evrópubandalagsins (EB)
kynnti í Brussel á miðvikudag
kemur fram að styrkir bandarí-
skra stjórnvalda við flugvélaiðnað
þar í landi námu tæplega tvö þús-
und milljörðum íslenskra króna á
síðastliðnum fimmtán árum.
Skýrslan er unnin fyrir frani-
kvæmdastjórnina í framhaldi af
ásökunum Bandaríkjamanna í
GATT-viðræðunum um óhóflega
ríkisstyrki til flugvélaiðnaðar í
Evrópu.
Skýrslan tekur til beinna og
óbeinna styrkja frá árinu 1976 til
fyrirtækja sem framleiða farþega-
vélar. Gengið er út frá því að niður-
stöður skýrslunnar séu frekar í
lægri kantinum vegna þess hve
erfitt sé að leggja mat á þessa
þætti bandarísks efnahagslífs. Fyr-
irtæki sem framleiði hergögn og
herflugvélar framleiði oft og tíðum
einnig farþegavélar, og njóti mjög
góðs af samstarfi við opinberar
stofnanir.
Með skýrslunni þykir fram-
kvæmdastjórn EB sem sýnt hafi
verið fram á að þörf sé víðtækra
alþjóðlegra samninga um þessi efni
jafnframt því sem athyglinni er
beint frá styrkjum Evrópuþjóða við
Airbus-fyrirtækið.
Arabar ræða
um Lockerbie
Kairó, London. Reuter.
FULLTRÚAR aðildarríkja
Arababandalagsins komu saman
í Kairó í gær að beiðni Líbýu-
manna til að ræða Lockerbie-
hermdarverkið og ásakanir
Breta og Bandaríkjamanna á
hendur þeim. Ætla Bretar að
kynna fyrir fulltrúunum öll gögn
í málinu. Líbýustjórn hefur látið
handtaka mennina tvo, sem sak-
aðir eru um að hafa skipulagt
hermdarverkið, en lögfræðingur
aðstandenda þeirra, sem fórust
með Pan Am-þotunni, segir það
aðeins vera sýndarmennsku.
Fastafulltrúar Arababandalags-
ins komu saman til að ræða það,
sem Líbýumenn kalla „hótanir”
Breta og Bandaríkjamanna og
ásakanir um, að þeir hafi komið
fyrir sprengjunni, sem grandaði
bandarískri þotu yfir Lockerbie í
Skotlandi árið 1988. Fórust þá 270
manns. Douglas Hogg, fulltrúi
breska utanríkisráðuneytisins, ætl-
aði síðar að hitta að máli Esmat
Abdel-Maguid, framkvæmdastjóra
bandalagsins, en Hogg hefur skorað
á ríki vinveitt Líbýu að sjá til, að
líbýsku leyniþjónustumennirnir
tveir, sem sakaðir eru um hermdar-
verkið, verði framseldir.
Bresk og bandarísk stjórnvöld
hafa hótað Líbýustjórn ótilgreind-
um hefndaraðgerðum verði menn-
irnir ekki framseldir og útiloka ekki
hérnaðaraðgerðir. Líbýustjórn neit-
ar hins vegar allri aðild að málinu.
Síðustu daga hefur Líbýustjórn
komið á framfæri orðsendingum til
Breta um að hún ætli að hætta að
styðja þryðjuverkasamtök, þar á
meðal írska lýðveldisherinn, IRA,
loka æfingabúðum fyrir hryðju-
verkamenn og fordæma athæfi
þeirra.
Dounreay-kj arn-
orkuverinu lokað:
Níu kg af
úrani týnd
London. Reuter.
Tilraunakjarnorkuverinu í
Dounreay í Skotlandi hefur
verið lokað í bili vegna þess
að á mánudag kom í ljós að
níu kíló af auðguðu úrani
virðast hafa gufað upp. Um-
hverfisverndarsinnar segja
að hvarfið sé „hrikalegt”.
Talið er mögulegt að um villu
í bókhaldi versins sé að ræða.
Talsmaður Dounreay segja að
ekki sé nein hætta á ferðum.
„Það er ekkert sem bendir til
þess að geislavirkni hafi aukist,
við mælum hana stöðugt,”
sagði talsmaðurinn.
G<x\m dagitm!
Við opnum glæsilega
fatadeild í dag
Regngalli ífelulitum
kr. 4.480,-
Gallabuxurfrá
kr. 2.900,-
Waxjakkarfrá
kr. 6.900,-
Snjósleðagalli
kr. 12.490,-
Köflóttar skyrtur
frákr* 1 b230|
Herrapeysur
Gæsaveidimenns
Fuglaveiðitæki með 8 mismunandi
fuglategundum. Verð kr. 18.900,-
Gjöf fyrir veiðimanninn.
frákr. 2.390,-
og margt, margt fleira.
Opið til kl. 18.00 laugardag.