Morgunblaðið - 06.12.1991, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ FÖST.UDAGUR 6.. DESEMBER 1.99T
Islensk samtíð komin út
íslensk samtíð 1992, alfræðiár-
bók Vöku-Helgafells, er komin
út.
I kynningu útgefanda segir m.a.:
„íslensk samtíð 1992 er 356 síður
að stærð. Alls eru í bókinni hátt á
fjórða hundrað ljósmyndir, þar af
stór hluti litmyndir. Þar til viðbótar
eru myndrit, skýringarmyndir og
upplýsingatöflur hátt á annað
hundrað talsins. Atriðisorð og tilvís-
anir eru tæplega fimm þúsund og
efnisþættir um fjögur hundruð. Alls
koma nöfn um tólf hundruð íslend-
inga við sögu í texta bókarinnar.
Ritstjóri íslenskrar samtíðar er
sem fyrr Vilhelm G. Kristinsson en
hann hefur víða komið við á sviði
fjölmiðlunar undanfarna tvo ára-
tugi meðal annars sem blaðamaður,
sjónvarps- og útvarpsfréttamaður
og dagskrárgerðarmaður hjá Ríkis-
útvarpinu, Sjónvarpinu og Stöð II.
Ritstjórnarfulltrúi er Pétur Már
Ólafsson bókmenntafræðingur.
Aðrir í ritstjórn verksins eru Brynd-
ís Kristjánsdóttir, Kristinn Arnar-
son, Valgerður Benediktsdóttir og
Ólafur Ragnarsson.
Gunnar V. Andrésson, blaðaljós-
myndari á DV, hafði umsjón með
ljósmyndum í bókinni og hefur tek-
ið fjölda mynda sem hana prýða.
Ólafur Jón Jónsson hjá Nýjum
lausnum sf. hafði umsjón með gerð
skýringarmynda sem skipta tugum
í bókinni. Gísli J. Ástþórsson teikn-
aði fjölda mynda sem bókina prýða,
í léttum dúr eins og hann er löngu
landskunnur fyrir. Helstu heimild-
armenn og samstarfsaðilar um út-
vegun efnis og upplýsinga í bókina
Trausti lýst á störf Þorvald-
ar Arnasonar og BLUP-ið
SAMÞYKKT var á aðalfundi Fé-
lags hrossabænda, sem haldinn
var fyrir skömmu, traustsyfirlýs-
ing á störf dr. Þorvalds Árnason-
ar. Taldi fundurinn einnig að
BLUP-kynbótamat sé vænleg
kynbótamatsaðferð sem þó beri
að nota með aðgæslu. Séra Hall-
dór Gunnarsson, sitjandi formað-
ur félagsins í forföllum Einars
E. Gíslasonar, hefur sem kunn-
ugt er verið andvígur aðferðinni
og lögðu nokkrir fundarmanna
áherslu á að fram kæmi að Hall-
dór talaði ekki í umboði félagsins
þegar hann lýsti skoðunum sín-
um á BLUP-inu í ræðu og riti.
Nokkuð heitar umræður urðu um
þessa tillögu og tóku margir til
máls. Til orðaskaks kom milli Krist-
ins Hugasonar hrossaræktarráðu-
nautar og Halldórs og fór svo að
Halldór gekk af fundi meðan á
málflutningi Kristins stóð. Að öðru
leyti fór fundurinn friðsamlega
fram.
Af öðrum samþykktum má nefna
tillögu þar sem segir að Félag
hrossabænda beiti sér fyrir því af
alefli að rannsóknir verði gerðar á
sumarexemi og fjár aflað til þess
verkefnis. Fram kom á fundinum
að sumarexemið geti orðið veruleg
hindrun á útflutningi í framtíðinni.
Þá var samþykkt áskorun til Búnað-
arfélags íslands að gefínn verði
kostur á að íslensk hross á erlendri
grund eigi möguleika á dómi þar
sem dæmt er eftir íslensku dðm-
kerfi svo dómar á þeim nýtist til
útreikniriga á kynbótamati (BLUP).
Samþykkt var ályktunartillaga þar
sem lagt er til að öll lágmarksverð
á hrossum sem seld eru úr landi
verði endurskoðuð. Einnig að út-
flutningstollar á kynbótahrossum
verði lækkaðir og lög og reglugerð-
ir um stofnverndarsjóð verði endur-
skoðaðar. í greinargerð segir m.a.
að öll verðlagsákvæði og tollar
munu þegar til lengri tíma er litið
veikja samkeppnisaðstöðu íslenskra
hrossaræktenda umfram það sem
þegar er orðið með ófyrirsjáanleg-
um afleiðingum. Við endurskoðun
á lögum og reglum um Stofnvernd-
arsjóð verði sérstaklega hugað að
því að rýmka_ heimildir til útlána
úr sjóðnum. I stjórnarkjöri voru
Birna Hauksdóttir og Kjartan Ól-
afsson endurkjörin.
Að loknum fundi sem dróst nokk-
uð á langinn bauð landbúnaðar-
ráðuneytið fundarmönnum til hófs
og meðal þess sem á boðstólum var
má nefna hrátt hrossakjöt sem
framreitt var að hætti Japana en
þeir hafa sem kunnugt er keypt
nokkuð af hrossakjöti héðan.
Eitt korta kvenfélagsins, Skarfamessa.
Jólakortasala Hringsins
í Stykkishólmi
Aðalfundur félags hrossabænda:
Ritnefnd íslenskrar samtíðar. Frá vinstri: Pétur Már Ólafsson, Gunn-
ar V. Andrésson, sem sá um ljósmyndir, Valgerður Benediktsdóttir,
Vilhelm G. Kristinsson, ritstjóri, Ólafur Ragnarsson og Kristinn
Arnarsson.
eru liðlega 230. íslensk samtíð 1992
er að öllu leyti unnin á íslandi.
Prentsmiðjan Oddi hf. sá um alla
prentvinnslu. Kápuútlit var unnið
hjá Vöku-Helgafelli.
Islensk samtíð kemur út árlega
með nýju efni og er hver bók algjör-
lega sjálfstætt verk. Saman munu
bækurnar hins vegar smám saman
mynda íslenskt alfræðiritsafn með
aðgengilegum fróðleik um ísland
og íslenskt þjóðlíf.”
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Frá aðalfundi Félags hrossabænda sem haldinn var í Bændahöllinni.
Dagatal MM ekki á veg-
um Ríkisútvarpsins
Ríkisútvarpið stendur að útgáfu á jóladagatali fyrir börn í tengsl-
um við sjónvarpsþættina um Stjörnustrákinn, eftir Sigrúnu Eldjárn,
sem nú er verið að sýna í Sjónvarpinu. I athugasemd frá RUV, kem-
ur fram að útgáfa barnaklúbbs Máls- og menningar á jóladagatali
með skýrskotunar til efnis í þáttunum, sé ekki á vegum RÚV og að
með útgáfunni sé verið að brjóta á rétti Sjónvarpsins.
Fram kemur að ailur ágóði af
sölu jóladagatals RÚV renni til
framleiðslu á innlendu dagskrárefni
fyrir börn. Sigríður Ragna Sigurð-
ardóttir hjá sjónvarpinu sagði, að
bókin Stjörnustrákur eftir Sigrúnu
Eldjárn væri gefin út af Forlaginu
en það fyrirtæki er í eigu Máls- og
menningar. Sigrún hefur teiknað
myndirnar en þær væru í eigu Sjón-
varpsins.
„Við viljum vara fólk við þegar
aimanak er keypt að ekki er verið
að styrkja innlenda dagskrárgerð
Sjónvarpsins með því að kaupa da-
gatal barnabókaklúbbsins,” sagði
Sigríður. „Þetta er þriðja árið sem
Sjónvarpið gefur út jóladagatal fyr-
ir börn og hefur þeim verið mjög
vel tekið.” Sagði hún að verið væri
að kanna til hvaða frekari aðgerða
yrði gripið og að ákvörðunar væri
að vænta næstu daga.
SIEMENS
Litlu raftœkin frá SIEMENS gieðja
augað og eru afbragðs jólagjafir!
kaffivélar
Jj hrærivélar
I brauðristar
vöfflujárn
strokjárn
handþeytarar
eggjaseyðar
dj úp steikingarpottar
hraðsuðukönnur
dósahnífar
áleggshnífar
kornkvamir
5>raclette“-tæki
veggklukkur
vekjararklukkur
rakatæki
bílryksugur
handryksugur
blástursofnar
hitapúðar
hitateppi o.m.fl.
Lítiö inn til okkar og skoöiö vönduö tœki.
Muniö umboösmenn okkar víös vegar um iandið!
Stykkishólmi
KVENFÉLAGIÐ Hringurinn í
Stykkishólmi hefur nú starfað
hér í Hóiminum um 85 ára skeið,
Um 10 þúsund
eintök af Land-
ið fýkur burt
hafa selst
LANDGRÆÐSLAN gaf fyrir
skömmu út hljómplötu Ríó Tríós-
ins Landið fýkur burt, og hafa
nú selst um 10 þúsund eintök af
plötunni.
í fréttatilkynningu frá Land-
græðslunni segir að platan hafi selst
með dyggri aðstoð Lionshreyfingar-
innar á íslandi og nú sé platan
komin í almenna sölu í hljómplötu-
verslunum, bensínstöðvum og víðar.
Auk þess fáist hún á skrifstofu
Landgræðslunnar að Laugavegi
120.
Landgræðslan vill. jafnframt
þakka góðar móttökur landsmanna
og vonar að allur almenningur hugsi
jafn vel til Landgræðslunnar og
hingað til.
Allur ágóði af sölu plötunnar
rennur til landgræðslu og styrkir
það starf sem framundan er.
en það var stofnað árið 1907.
Hefur það sem önnur slík félög
unnið að menningar- og líknar-
málum.
Það hefur aflað tekna bæði með
basar o.fl. og nú með sölu jólakorta
sem Guðmundur P. Ólafsson rithöf-
undur og náttúrufræðingur hefur
hannað. Kortin eru prentuð í Prent-
smiðju Stykkishólms sem þær
Fransiskusystur á sjúkrahúsinu
starfrækja og hafa starfrækt um
tugi ára.
- Árni
Leikföng
án ofbeldis
SAMTÖK „Friðaramma” hafa
sent frá sér áskorun til amma
og afa, þar sem skorað er á
þau að gefa ekki börnum leik-
föng, sem gera ofbeldi að leik
og skemmtan.
I áskorunni segir m.a.:
„Ömmur og afar! Tökum nú
höndum saman og sýnum í verki
þá væntumþykju og ábyrgðartil-
finningu, sem við berum til
barnanna okkar. Gefum þeim
ekki stríðs- eða önnur ofbeldis-
leikföng í jólagjöf.”