Morgunblaðið - 06.12.1991, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUÐAQUR 6. DESEMBER 1991
57
Marta K. Eggerts-
dóttir — Minning
gler og svo pijónaði hún mikið. Hún
átti prjónavél og nutum við, afkom-
endur hennar, góðs af, því lang-
amma pijónaði á okkur hlýjar flíkur
fyrir veturinn.
Okkur þykir mjög vænt um að
hafa kynnst langömmu því hún var
mjög góð kona, jákvæð og innileg.
Langamma hefur nú fengið hvíld
og vitum við að nú líður henni vel.
Blessuð sé minning hennar.
Kaliið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja,
vininn sinn látna
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé-lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að saknai
Guð þerri tregatárin strið.
(V. Briem)
Sirrý, Gugga og Pétur.
26. nóvember sl. lést á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á ísafirði amma
mín Sigurveig Jónsdóttir. Amma
I fæddist 23. október árið 1900 í
Hléskógum í Suður-Þingeyjarsýslu
en fluttist ung með foreldrum sínum
I vestur á firði og ólst upp í Hvammi
í Dýrafirði. Hún giftist afa, Sigurði
Pálssyni. (f. 4. apríl 1897, d. 1973),
( árið 1926 og bjuggu þau á Naut-
eyri við ísafjarðardjúp til ársins
1953 að þau fluttust til Isafjarðar.
Afi átti eina dóttur er þau giftust,
Arndísi, sem búsett er á Patreks-
firði, henni gekk amma í móður-
stað. Saman áttu afi og amma 4
börn, þau eru í aldursröð: Sigríður,
f. 1927, Páll, f. 1928, Helga Guð-
rún, f. 1934, d. 5. júlí 1991, og
Elínborg, f. 1941.
Amma og afi fluttust til ísafjarð-
ar fæðingarárið mitt og keyptu þar
hús ásamt foreldrum mínum. Það
eru margar góðar minningar og
ómetaplegar að fá að alast upp í
sama húsi og afi og amma, þau
i niðri og við vorum fimm á efri
hæðinni. Mér eru minnisstæð kvöld-
in þegar ég laumaðist niður í ömmu
a holu, lagðist þar og hlustaði á takt-
fast hljóðið í pijónavélinni hennar,
mér fannst það notalegt hljóð, jafn-
á vel að sofna við. Hún amma pijón-
' aði næstum öll kvöld að loknum
vinnudegi í Niðursuðuverksmiðj-
unni, hún tók að sér að pijóna fyr-
ir fólk í bænum. Allt fram á síðasta
ár ptjónaði hún á barnabarnabörnin
sem voru að fæðast ákveðinn
skammt af pijónlesi, ullarboli,
sokkabuxur o.fl.
Amma og afi bjuggu með okkur
í 14 ár, þá átti afi orðið erfltt með
að ganga brekkuna svo þau keyptu
sér lítið hús við Sólgötu, rétt við
hliðina á Helgu dóttur sinni. Þar
bjó amma til ársins 1983 að hún
fluttist að Hlíf.
Hún amma var einstök kona, ég
. heyrði hana aldrei kvarta og hún
I réð yfir mikilli skapstillingu, hún
hafði sínar ákveðnu skoðanir, flík-
A aði þeim ekki en Iét þær í ijós á
'i réttum stundum. Það var gott að
koma til ömmu og fá ráð eða ró
t því hún kunni að hlusta og gefa
I góð ráð og heid ég að þeir séu
margir sem þegið hafa góð ráð frá
henni. Það sýndi sig vel á Hlíf síð-
ustu árin þar sem oft var mikið um
góða gesti. Þar var alltaf tekið á
móti okkur af reisn og myndar-
skap, hellt upp á könnuna, tínt fram
bakkelsið og alltaf passað að eiga
það meðlæti sem okkur þótti best,
fyrst mér en nú síðast var alltaf til
kakan sem litlu dóttur minni þótti
best.
Amma var mjög heilsuhraust
kona, hún lagðist fyrst inn á sjúkra-
hús komin hátt á níræðisaldri, þá
vegna þess sjúkdóms sem smátt og
smátt tók á krafta hennar. Undan-
farin ár þurfti amma svo að leggj-
ast oft inn á sjúkrahúsið til blóðgjaf-
ar í stuttan tíma í einu, hún kom
inn létt á fæti og í fasi og fór allt-
af sæl heim aftur. Ég vil þakka
starfsfólki Fjórðungssjúkrahússins
fyrir allt sem það gerði fyrir ömjnu.
Elsku amma sem hefur verið
fastur hluti af lífi okkar, það er
erfitt að átta sig á því að hún er
hér ekki lengur en við megum ekki
vera eigingjörn. Hún var orðin
þreytt síðasta mánuðinn og vildi
hvílast. Hún náði því að verða 91
árs eins og hún hafði eitt sinn gefið
í skyn við mig, við munum öll sakna
hennar mikið en geyma dýrmætar
minningar í hjörtum okkar.
Blessuð sé minning ömmu
minnar.
Veiga
Fædd 30. maí 1934
Dáin 28. nóvember 1991
Þegar ég minnist elskuiegrar
móðursystur minnar, Möitu Krist-
ínar Eggeitsdóttur, á ég hlýjar
minningar. Didda skildi gleði eftir
í hjarta mínu þegar ég heimsótti
hana á erfíðri stundu á Landspítal-
ann. Stundin var erfiðaðri en mig
grunaði. Þannig vildi hún hafa það.
Hana langaði helst til að bjóða mér
veitingar enda gestrisin kona.
Didda vildi reisa sig upp á meðan
ég var bjá henni. Þú varst allra
best, sagði hún og ég barðist við
tárin eftir þessi hlýju orð. Hún
brosti til mín og sagði mér að nú
væri tími til kominn að reisa ættar-
óðal og við urðum sammála að þar
væri pláss fyrir alla ættmenn. Við
vissum bara ekki hvar það ætti að
standa og hlógum. Þegar ég vand-
ræðaðist yfír að koma tómhent til
hennar og spurði hvort ég mætti
koma aftur, brosti hún til mín og
jánkaði. Nú stendur jólarósin á
borðinu hjá mér og minnir mig á
Diddu. Það niunu rauðar jólarósir
gera í framtíðinni. Didda tók á
móti mér með reisn á spítalanum.
Þannig vildi hún láta mig minnast
sín eins og ég man hana alltaf. í
huga mínum nú ríkir söknuður og
gleði. Því veit ég hvar óðalið okkar
er og hún fór til að byggja það.
Langri baráttu er lokið í þessu
lífi og nú lifir hún með guði. Ég
votta systkinum, ástkærum sambýl-
ismanni hennar, bömum og barna-
börnum mínum dýpstu samúðar-
kveðjur og bið guð að gefa þeim
styrk á þessari stundu.
Far þú I friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gakkt þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
Margs er að minnast,
margs er hér að þakka,
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna,
Guð þerri tregatárin strið.
(Sb. 1886 - V. Briem)
Steinunn Arnórsdóttir
Jólasveinar ganga um gólf
með gylltan staf íhendi
móðir þeirra sópar gólf ..
Já jólin nálgast og þau skilja eftir sig slóða, barr frá jólatréinu,
ösku og kusk. Grýla sópar gólfin en nútímaheimili nota BLACK &
DECKER handryksugu og óhreinindin eru ekkert vandamál.
BLACK & DECKER handryksugurnar hafa mikinn sogkraft,
langan notkunartíma og eru alltaf tilbúnar til notkunar
BLACK & DECKER handryksugan
Tilvalin jólagjöf
UTSÖLUSTAÐIR:
Reykjavík og nágrenni
Borgarljós, Skeifunni, Eiðistorgi
B.B. byggingavörur, Suðurlandsbraut 4
B.V. búsáhöld, Lóuhólum 2-6
Brynja, Laugavegi 29
BYKO, Kringlunni, Kópavogi, Hafnarfirði
Fristund, Kringlunni
Glóey, Ármúla 19
H.G. Guðjónsson,Stigahlið 45-47
Hagkaup, Kringlunni, Skeifunni
Húsasmiðjan
Ljós og raftæki, Strandgötu Hf.
Ljósabær, Faxafeni 14
Rafbúð sambandsins, Holtsvegi
Rafbúðin, Álfaskeiði 31, Hf.
Rafglit, Blönduhlíð 2
Rafvörur, Langholtsvegi 130
S. Guðjónsson, Auðbrekku 9-11
Sindrastál, Borgartúni
Smiðsbúð, Garðatorg
Vesturland
Einar Stefánsson, Búðardal
Guðni E. Hallgrímsson, Grundarfirði
Húsið, Stykkishólmi
Jónas Þór, Patreksfirði
Lúx, Borgarnesi
Óttar Sveinbjörnsson, Hellissandi
Raftækjaþjónusta Sigurdórs, Akranesi
Norðurland
Aðalbúðin hf., Siglufirði
Kaupfélag Skagfirðinga
K.V.H., Hvammstanga
Radiovinnustofan, Akureyri
Rafsjá, Sauðárkróki
Raftækjavinnustofan, Ólafsfirði
Torgið, Siglufirði
Valberg, Olafsfirði
Verslunin Ósbær, Blönduósi
Öryggi, Húsavík
Austurland
Kaupfélag Vopnfirðinga.Vopnafirði
Sveinn Guðmundsson, Egilstaðir
Sveinn Ó. Elíasson, Neskaupsstað.
Suðurland
Árvirkinn, Selfossi
K.R. Hvolsvelli
Neisti, Vestmannaeyjum
Rafborg, Grindavík
!
I
!
Jólagjöfin I ár
Cooper
ÍSHOKKÝVÖRUR
Bauer
skautar þeirra BESTU
Jvr/i
ÍSHOKKÝVÖRUR
Heildsala Macom hf., sími 91-67 52 70. Útsölustaðir í Reykjavík:
H
UTIUF
Glæsibæ
Borgarkringlunni