Morgunblaðið - 06.12.1991, Page 61

Morgunblaðið - 06.12.1991, Page 61
,MQRGUNBLAÐJÐ FÖSTUDAGUR 6., ÐESEMBER Í9£>1 ■61 Þórdís Eyjólfs- dóttir - Minning Fædd 8. ágúst 1898 Dáin 28. nóvember 1991 Látin er í Reykjavík ömmusystir mín, Þórdís Eyjólfsdóttir, 93ja ára að aldri. Við kölluðum hana aldrei annað en Dísu frænku. Dísa frænka bjó á Vesturgötu 59, þangað til fyrir ijórum árum. Hún ól pabba og systkini hans þar upp þegar móðir þeirra lá langdvölum á sjúkrahúsi. Þannig varð hún fóstur- móðir í þeirra augum. Eiga þau henni svo óendalega mikið að þakka og sýndu það í verki, sérstaklega síðustu æviár Dísu. Er ég svo hepp- in að fá að bera nafn hennar. Hún bjó á umönnunarheimilinu Skjóli síðustu þijú ár ævi sinnar. Þar leið henni vel enda var starfs- fólkinu þar greinilega annt um hana og fékk hún þar hina bestu aðhlynn- ingu. Hún hafði aldrei búið við mik- il fjárráð um sína ævi og á Skjóli naut hún þess að leyfa sér ýmsa hluti sem hún hafði ekki áður gert svo sem að fara í fót- og handsnyrt- ingu eða hárgreiðslu og ljómaði þegar hún sýndi manni afrakstur- inn. Hvernig hún reyndist mér og systkinum mínum var ómetanlegt og gekk hún okkur í ömmustað. Alltaf var okkur tekið opnum örm- um á Vesturgötunni, þar sem við fundum fyrir svo mikilli hlýju og einlægni frá þessari gömlu góðu konu. Áhuginn og væntumþykjan sem hún sýndi okkur systkinunum var mikil, aldrei gleymdi hún mikil- vægum stundum og gjafirnar frá henni voru rausnarlegar þrátt fyrir lítil efni. Ósjaldan var stungið bíó- peningum í lófa manns. Þegar ég var yngri var fastur liður að við systkinin fengum það sem við köll- uðum „kaffisuli” hjá Dísu þegar við komum í heimsókn, en það var uppáhaldið okkar. Hún passaði allt- af uppá að eiga kringlur handa okkur út í kaffið og seinna kökur og þegar hún var komin inn á Skjól var manni alltaf boðið upp á konf- ekt. Alveg sérstakt var þó samband- ið milli hennar og yngri bróður míns, en hún var orðin 76 ára göm- ul þegar hann fæddist. Hún passaði hann og hafði yndi af enda var hún mikil barnagæla. Löngu eftir að hann gat séð um sig sjálfur sátu þau oft saman og spjölluðu um daginn og veginn á Vesturgötunni og síðar á Skjóli. . Dísa frænka var mjög heilsu- hraust alla sína löngu ævi. Fram á síðustu daga var hún með á nótun- um og spurði alltaf um líðan fjöl- skyldumeðlima, sérstaklega þeirra yngri. Sjóninni fór þó hrakandi síð- ustu árin og fór bróðir minn oft til að lesa fyrir hana. Skrýtin tilviljun var, að ég, nafna hennar, skyldi eignast mitt fyrsta barn, stúlku, einmitt á afmælisdeg- inum hennar, 8. ágúst. Ég gleðst yfir að hafa fengið að kynnast og vera með Dísu frænku. Hún átti svo margt að gefa og svo margt var hægt að læra af henni. Ég á aðeins góðar minningar um þessa góðu frænku mína. Blessuð sé minning hennar. 0 Drottinn, nær sem dauðans hönd frá dufti mínu skilur önd, mig lykja láttu hvörmum sem barn við móðurbijóst og fá þann blund, er værstan hljóta má, í þínum ástarörmum. (Grundtvig - Helgi Hálfdánarson) Þórdís Signrðardóttir Það er erfitt í þeirri sorg sem maður upplifir nú að taka sér penna í hönd og reyna að hripa niður á blað einhver fátækleg minningarorð um Dísu frænku. Hún var fædd á Stokkseyri 8. ágúst 1898. Amma mín og systir hennar, Gjaflaug Eyjólfsdóttir, lést rúmu ári áður en ég fæddist. Því má segja að fyrir mig hafí Dísa komið í ömmu stað. Ekki var hægt að hugsa sér manneskju betur til þess fallna en hana. Þær voru ófáar samverustundirn- ar sem ég og Dída áttum saman. Hún passaði mig mikið sem lítinn snáða. Áður en varði var ég sjálfur farinn að koma í heimsókn til henn- ar á Vesturgötuna. Þar eyddum við heilu klukkustundunum saman, og ekki skorti eitthvað til að dunda sér við. Þar spiluðum við, röbbuðum saman auk margs annars. Og iðu- lega sendi hún mig út í sjoppu með • • Svavar Orn Höskulds- son — Minning Fæddur 3. febrúar 1933 Dáinn 8. nóvember 1991 & Þá er elskulegur hálfbróðir minn farinn yfir móðuna miklu, en andlát hans kom ættingjum og og vinum hans ekki á óvart, því síðustu 8 árin hafði hann átt við vanheilsu að stríða sem kom í kjölfar hjarta- áfalls árið 1983. Hann hafði farið utan til Englands að leita læknis- hjálpar og bundnar voru vonir um bata, en heilsa hans varð aldrei söm eftir. Þrautseigja Svavars bróður míns var mikil sem og ætíð áður, og aldrei kom til mála að gefast upp, því það var ekki hans „mottó”, og ef allir hefðu slíkan lífsneista, sem hann hafði fengið sem guðs- gjöf þá væri lífsbaráttan léttari hjá þeim hinum sömu. Bjartsýni hans var ávallt mikil og með þrautseigju og dugnaði kom hann miklu í verk, og aldrei var gefið eftir. En það er eins og hjá miklum ákafamönnum, að eitthvað verður undan að láta. Um nokkurra ára bil átti ég þess kost að vinna hjá honum í sam- bandi við múrverk og kynntist ég þá best dugnaði hans, áræðni og seiglu, og þótt við værum ekki allt- af sammála, hvort heldur var á vinnustað eða í systkinahópi þá skildum við alltaf sáttir. Svavar fæddist á Akureyri 3. febrúar 1938. Móðir hans var Bryndís Helgadóttir, en faðir hans var Höskuldur Hallsson frá Grís- hóli í Helgafellssveit, en hann fór utan til náms í mjólkurfræðum en lést þar eftir skamma dvöl. Svavar dvaldist hjá móður sinni og móðurömmu, Halldóru Tómas- dóttur fyrstu 3 árin en föðursystir Svavars, Jófríður, sótti fast að fá að ala drenginn upp, sem og varð. Það var ekki alveg sársaukalaust fyrir móður Svavars og Halldóru ömmu hans, að þetta skyldi lausn á málum, en tíminn læknaði þánn sársauka. Svavar var um tíma á Gríshóli en fluttist síðar með Jófríði til Reykjavíkur þar sem hún stöfn- aði til búskapar með Dagbjarti Gísl- asyni múrarameistara þar. Svavar gekk í Iðnskólann í Reykjavík og tók þaðan próf í múr- verki og eftir það sá hann um og stóð fyrir stórframkvæmdum í Reykjavík og annars staðar á land- inu. Hann var þekktur fyrir vand- virkni í hvívetna og áreiðanlegheit. Kristrúnu Ásu Krsitjánsdóttur kvæntist Svavar 21. júlí 1959. Þau eignuðust 2 syni, Guðmund Rúnar Svavarsson múrarameistara og Svavar Örn sem er nemi í hár- greiðslu í Reykjavík. Þau skildu, en fyrir það hjónaband eignaðist Svav- ar dreng með Ástu Kristjánsdóttur, Höskuld, sem nú er bifreiðastjóri í Reykjavík. Ég vil að lokum nefna hálfsystkin Svavars en þau eru, peninga frá' sér. Gjafmildi hennar var mikil og viilist engin takmörk eiga. Henni fannst sannarlega sælla að gefa en þiggja. Fyrir u.þ.b. þremur árum fluttist hún á hjúkrunarheimilið Skjól, þar sem hún var orðin nokkuð heilsu- veil. Á Skjóli leið henni vel enda var þar hlúð einstaklega vel að henni og ber að þakka fyrir það. Allra síðustu vikur hrakaði heilsu hennar svo mjög að hún varð rúm- liggjandi. Þó virtist hún harka það af sér um tíma og kom þá í ljós sá baráttuvilji sem einkenndi hana alla ævi. Er ég sá hana hin allra síðustu skipti virtist henni líða vel, talaði þá um að hún gæti brátt komist á ról. En örlögin vildu annað. Nú hefur góður Guð veitt henni frið. Þó maður syrgi hana býr þó innst inni gleði því ég veit að nú er hún í góðum höndum. Hún er nú á þeim stað sem hún þráði að komast á, því hún var mjög trúuð allt sitt líf, þó ekki bæri mikið á því. Það var einstök góðmennska sem fylgdi Dísu. Henni þótti vænt um hvetja einustu manneskju sem hún þekkti og vildi ávallt hag allra sem bestan. Aldrei korn af hennar vörum ijlt tal um eitt né neitt. Því lærði ég margt af henni, en sárast er þó að hafa aldrei fengið tækifæri til að fullþakka henni þá ást og vænt- umþykju sem hún sýndi okkur. Ég vil að lokum þakka fyrir að hafa fengið að kynnast þessari hjartgóðu manneskju. Minningarn- ar sitja eftir og að þeim býr maður. Drottinn blessi hana Dísu okkar. Jón Sigurðsson Auður Gunnur Halldórsdóttir búsett í Grundafirði, Helga Halldórsdóttir búsett í Reykjavík, Hugrún Hall- dórsdóttir búsett á Bíldudal, Halla Halldórsdóttir búsett í Reykjavík, Sigrún Halldórsdóttir búsett í Hafn- arfirði, Sævar Halldórsson búsettur í Vestmannaeyjum og undirritaður sem búsettur er í Reykjavík. Stjúp- faðir Svavars er Halldór Ágúst Gunnarsson sem er húgvörður í Reykjavík. Meira væri hægt að skrifa um Svavar Örn Höskuldsson, en hér skal láta staðar numið. Við hálf- systkini hans og faðir okkar vottum sonum hans og öðrum afkomendum hans og ástvinum innilega samúð okkar. Friður sé með honum. Gunnar Halldórsson t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SUMARLIÐI GUNNAR JÓNSSON, Fjólugötu 29, Vestmannaeyjum, andaðist í Landspítalanum þann 5. desember. Jarðarförin auglýst siðar. Hilma Marinósdóttir, Einar Ársæll Sumarliðason, Oddbjörg Inga Jónsdóttir, Guðrún Erla Sumarliðadóttir, Halldór Egill Guðnason og barnabörn. t Móðir mín, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, JÓNBORG ÞORSTEINSDÓTTIR, Austurbyggð 21, Akureyri, andaðlst 23. nóvember sl. Útförin hefur farið fram. Edda Magnúsdóttir, Jóhann Gauti, Vilborg Gautadóttir, Hlynur Jónasson, Magnús Gauti Gautason, Hrefna G. Torfadóttir, Elín Gautadóttir, Steinþór V. Ólafsson, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langarama, BERNÓDIA S. SIGURÐARDÓTTIR, Kirkjuvegi 59, Vestmannaeyjum, verður jarðsungin frá Landakirkju, Vestmannaeyjum, laugardaginn 7. desember kl. 14.00. Hlöðver Haraldsson, Þorbjörg Ólafsdóttir, Dóra Haraldsdóttir, Friðrik Oskarsson, Ársæll Sveinsson, Sigrún Óskarsdóttir, Sveinn Sveinsson, Jenný Jóhannsdóttir, Arna Huld Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabarn. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURVEIG JÓNSDÓTTIR, dvalarheimilinu Hlif, (safirði, sem andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á (safirði 26. nóvember, verður jarðsungin frá ísafjarðarkapellu laugardaginn 7. desember kl. 15.00. Arndís Sigurðardóttir, Sigríður Sigurðardóttir, Páll Sigurðsson, Elínborg Sigurðardóttir, Ólafur Bjarnason, Gunnar Pétursson, Hólmfríður Pálsdóttir, Geir Guðbrandsson, Guðbjörn Ingason, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskulegur sonur okkar, bróðir og mágur, JÓN HALLDÓR BRAGASON, Njarðvíkurbraut 13, Ynnri-Njarðvík, verður jarðsunginn frá Innri Njarðvíkurkirkju laugardaginn 7. desember kl. 13.00. Bragi Guðjónsson, Kristján Bragason, Margét Bragadóttir Williams, Einar B. Bragason, Asta Andersen, Ágústa K. Bragadóttir, Robert Williams, Elísa D. Bragadóttir. t Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför ástkærrar eigin- konu, móður, tengdamóður og ömmu, JONNA FANNÝ H. VINTHER, Hringbraut 80, Keflavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks krabbameinsdeildar Landspítalans og starfsfólks Sjúkrahúss Keflavíkur. Þorsteinn Þorsteinsson, Sigurður Þ. Þorsteinsson, Lilja Þorsteinsdóttir, Sigurður Ólafsson, Marjun Hamer, Paul Hamer, Tommy Kjærbo, Laila Kjærbo og barnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út- för eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, ÓLAFS GESTS GUÐJÓNSSONAR, Sigtúni 57, „ , , Patreksfirði. Guð blessi ykkur öll. Ólafia Margrét Sveinsdóttir, Anna Gestsdóttir, Rafn Hafliðason, Ingveldur Gestsdóttir, Haraldur Arason og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.