Morgunblaðið - 06.12.1991, Page 70
70
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 1991
ÍÞRfmR
FOLK
■ HOLLENSKA knattspyrnu-
sambandið tilkynnti í gærkvöldi að
reynt yrði að fá Johann Cruyff sem
landsliðsþjálfara Hollands fyrir
HM í Bandaríkjunum 1994. Hann
á að taka við hollenska landsliðinu
næsta sumar, eða eftir EM í Sví-
þjóð, en þá hættir Rinus Michels.
■ CRUYFF er samningsbundinn
Barcelona til 1993, þannig að
Hollendingar verða að fá samning
hans lausan.
■ SÖREN Lerby, þjálfari Bay-
ern Miinchen, hefur verið dæmdur
í 8,5 millj. ÍSK sekt vegna skatt-
svika í Hollandi.
■ TOTTENHAM hefur hug á að
kaupa sovéska landsliðsbakvörðinn
Akhrik Tsveiba frá Dinamo Kiev.
■ BRYAN Robson, fyrirliði Man-
chester United, er meiddur á kálfa
og leikur ekki með gegn Coventry
á laugardaginn.
■ SUNDERLAND keypti mið-
heijann Dan Godman frá WBA í
gær á 900 þús. pund. Godman, sem
er 25 ára, skrifaði undir þriggja ára
samning.
■ RONNIE Whelan, fyrrum fyr-
irliði Liverpool, sem hefur verið
meiddur á hné - mun fara aftur
undir hnífinn í dag.
IÞROTTIR FATLAÐRA
Sigrún Huld
íþróttamaður
ársins í
annað sinn
SIGRÚN Huld Hrafnsdóttir,
sundkona úr íþróttafélaginu
Ösp, var í gær útnefnd íþrótta-
maður ársins 1991 úrröðum
fatlaðra, og var það tilkynnt í
hófi sem íþróttasamband Fatl-
aðra stóð fyrir að Hótel Sögu.
Hún fékk einnig þennan eftir-
sótta titil fyrir tveimur árum.
Sigrún Huld er 21 árs og keppir
í flokkí þroskaheftra í sundi.
Hún byrjaði að æfa sund hjá
íþróttafélaginu Ösp 1983 og hefur
æft af miklu kappi allar götur síð-
an. Hún hefur einnig náð góðum
árangri í fijálsum íþróttum.
Hún hefur sýnt stöðugar fram-
farir frá því að hún hóf að æfa
sund. Á Norðurlandamótinu í sundi,
sem fram fór í Sola í Noregi í maí
í sumar, sigraði Sigrún Huld í 5
af þeim 6 einstaklingsgreinum sem
hún tók þátt í. Hún á nú fimm
heimsmet í sundi í sínum flokki.
Þjálfari Sigrúnar er Drífa Ármanns-
dóttir.
Morgunblaðið/Sverrir
Sigrún Huld Hrafnsdóttir var í gær útnefnd íþróttamaður ársins úr röðum fatlaðra í annað sinn. Með henni á
myndinni er þjálfari hennar, Drífa Ármannsdóttir.
SUND
|| GETRAUNIR
URSLIT
IBK-Þór 141:118
íþróttahúsið í Keflavík, íslandsmótið í
körfuknattleik, Japísdeildin, fimmtudaginn
5. desember 1991.
Gangur leiksins: 0:2, 2:2, 7:6, 17:10,
25:10, 35:20, 46:29, 55:39, 62:49. 73:60,
85:67, 92:71, 101:75, 115:91, 125:102,
134:108, 141:118.
Stig ÍBK: Jón Kr. Gíslason 32, Jonathan
Bow 29, Kristinn Friðriksson 26, Sigurður
Ingimundarson 16, Nökkvi M. Jónsson 12,
Hjörtur Harðarson 9, Albert Óskarsson 8,
Júlíus Friðriksson 5, Birgir Guðfinnsson 2,
Brynjar Harðarson 2.
Stig Þórs: Konráð Óskarsson 37, Joe
Hange 23, Davíð Heiðarsson 15, Birgir Örn
Birgisson 13, Högni Friðriksson 8, Örvar
Erlendsson 6, Árni Þór Jónsson 6, Stefán
Friðleifsson 6, Helgi Jóhannesson 2, Þor-
valdur Örn Arnarsson 2.
Dómarar: Jón Otti Ólafsson og Leifur S.
Garðasson, sem dæmdu vel.
Áhorfendur: Um 350.
IMBA-DEILDIN
Leikir í NBA-deildinni á miðvikudag:
Boston Celtics - Miami Heat..124: 99
Chárlotte - LA Lakers.........124:106
Phoenix Suns-Indiana..........114:108
Portland - Orlando Magic 124:115
Chicago Bulls - Cleveland.....108:102
Utah Jazz - Washington.......101: 74
LA Clippers - San Antonio.... 92: 81
Knattspyrna
Einn leikur fór fram í þýsku úrvalsdeildinni
í gærkvöldi:
Sehalke - Frankfurt...............1:1
Anderbrúgge (89. - vítasp.) - Jörn Anders-
en (27.). 40.000.
KNATTSPYRNA
Helga reynir
við ÓL-lágmörk
í Alabama
Helga Sigurðardóttir nálgast nú
sína bestu tíma í skriðsundi
og hefur hún ákveðið að reyna við
lágmörkin fyrir Olympíuleikana í
Barcelona 1992 í Alabama í febrú-
ar. Helga stundar þar nám og er
hún í sama skóla og Ragnheiður
Runólfsdóttir.
Helga náði ágætum árangri í
skriðsundi á móti í Alabama á dög-
unum, en keppnistímabilið hjá henni
er rétt að byija. Hún hafnaði í
fjórða sæti bæði í 100 og 200 m
skriðsundi og í sjötta sæti í 50 m
skriðsundi. Hún synti 50 m á 27,99
sek. í undanrásum og 27,90 sek. í
úrslitasundinu. Þá synti Heiga 100
m skriðsund á 1:00,69 mín. í und-
anrásum og 59,98 sek. úrslitum og
í 200 m skriðsundi synti hún á
2:10,15 sek. í undanrásum og
2:10,34 sek. í úrslitum.
Helga er ein af sex sundmönnum
Kvennaknattspyma
á ÓL í Atlanda 1996
liklar líkur eru á að kvenna-
knattspyrna verði sýningar-
íþrótt á Olympíuleikunum í Atlanta
í Bandaríkjunum 1996. Átta
kvennalið kæmu til með að leika -
heimsmeistarliðið frá Bandaríkjun-
um og sjö önnur.
Þá má geta þess að Joao Have-
lange, f'orseti alþjóða knattspyrnu-
sambandsins, FIFA, leggur til að
heimsmeistarakeppni karla 2002
fari fram í Asíu. Fimm lönd hafa
verið nefnd í sambandi við að sjá
um keppnina. Kína, Suður-Kórea,
Japan, Malasía og Saudi-Arabía.
sem eru í A-flokki íslenskra sund-
manna, sem eiga mestar líkur á að
komast til Barcelona. Hinir sund-
mennirnir eru Ragnheiður Runólfs-
dóttir, sem hefur þegar synt undir
ÓL-lágmörkum, Eðvarð Þór Eð-
varðsson, Arnþór Ragnarsson,
Magnús Már Ólafsson og Ingibjörg
Arnardóttir.
Næstir þessum sundmönnum
koma Arnar Freyr Ólafsson og
Bryndís Ólafsdóttir.
Helga Sigurðardóttir
49- (7^- —fV/l— Heimaleikir " frá 1 979 1 X 2 Mörk Úrslit Mín spá 1 x 2
leikv. y y —rA'M—
Aston Villa : Manchester City 1 5 3 7-12
Everton : West Ham 6 1 1 18-4
Luton : Leeds 1 0 0 1-0
Manchester Utd. : Coventry 7 2 3 18-6
Nora/ich : Crystal Palace 4 1 1 10-8
Queens Park R. : Sheffieid Utd. 0 0 1 1-2
Sheffield Wed. : Chelsea 4 5 0 13-6
Southampton : Liverpool 6 3 3 24-19
Tottenham : Notts County 3 0 0 8-3
Wimbledon : Oldham 1 1 0 1-0
Middlesbro : Swindon 1 0 2 4-5
Watford : Derby 1 2 0 8-3
Wolves : Sunderland 1 1 2 2-3
KORFUKNATTLEIKUR
259 stig skor-
uð í Keflavík
Öruggt hjá Keflvíkingum gegn Þór, 141:118
Keflvíkingar unnu öruggan sigur
á Þór frá Akureyri í Keflavík
í gærkvöldi í miklum stigaleik þar
sem skoruð voru
Björn 259 stig. Keflvík-
Blöndal ingar 141 en norð-
anmenn 118. Þessi
úrslit voru eftir bók-
inni einn leikmanna ÍBK, Albert
Óskarsson, fékk dæmd á sig tvö
tæknivítT í upphafi síðari hálfleiks
fyrir mótmæli við dómaranna og
varð fyrir vikið að fara af leikvelli.
Albert fer sjálfkrafa í leikbann og
skrifarfrá
Keflavík
Pressuleikur í Keflavík
Knattspyrnulijálfari óskast
Sandavogs ítróttafelag í Færeyjum leitar nú að þjálfara
fyrir meistaraflokk sinn í knattspyrnu fyrir næsta keppn-
istímabil. Liðið leikur í fyrstu deild og er með eigin gervi-
grasvöll. Þjálfun þarf að hefjast í byrjun febrúar.
Þeir, sem hafa áhuga, eru vinsamlegast beðnir að skrifa
til Sandavogs ítróttafelags, Sandavogi, FR 360, Færeyjum.
Islenska kvennalandsliðið í körfu-
knattleik tekur þátt í smáþjóða-
leikunum á Gíbraltar í næstu viku.
Liðið hefur æft fyrir keppnina að
undanförnu undir stjórn Torfa
Magnússonar landsliðsþjálfara, en
undirbúningnum lýkur með pressu-
leik kl. 21.30 í Keflavík í kvöld og
rennur allur ágóðinn upp í ferða-
kostnað landsliðsins.
Þetta er fyrsti pressuleikurinn í
körfuknattleik kvenna hér á landi
og í fyrsta sinn verða Anna María
Sveinsdóttir og Björg Hafsteins-
dóttir frá Keflavík mótheijar í opin-
berum leik.
Eftirtaldar stúlkur skipa liðin.
Landsliðið: Vigdís Þórisdóttir, ÍS, Anna
María Sveinsdóttir, ÍBK, Anna Gunnars-
dóttir, KR, Guðbjörg Norðfjörð, Haukum,
Hafdís Hafberg, ÍS, Guðrún Gestsdóttir,
KR, Hildigunnur Hilmarsdóttir, ÍR, Linda
Stefánsdóttir, ÍR, Hrönn Harðardóttir, ÍR,
Kristín Blöndal, ÍBK, Olga Færseth, ÍBK
og Hanna Kjartansdóttir, Haukum.
Pressuliðið: Björg Hafsteinsdóttir, ÍBK,
Guðlaug Svelnsdóttir, ÍBK, Sólveig Páls-
dóttir, Haukum, Eva Havlikova, Haukþm,
Svanhildur Káradóttir, UMFG, Anna Dís
Sveinbjörnsdóttir, UMFG, Stefanía Jóns-
dóttir, UMFG, Díanna Gunnarsdóttir, ÍS,
Kristín Sigurðardóttir, ÍS, Vala Úlfljótsdótt-
ir, ÍR, Sigrún Hauksdóttir, ÍR og Helga
Árnadóttir, KR.
verður að öllum líkindum ekki með
ÍBK gegn Grindvíkingum í
Grindavík annan sunnudag.
Það var öðru fremur pressuvörn
Keflvíkinga sem setti Þórsara út
af laginu í upphafi leiksins og þeir
voru fljótir að ná afgerandi forystu.
Keflvíkingar lögðu þó ekki mikið
uppúr vörninni eftir því sem leið á
leikinn og náðu því aJdrei að stinga
Þórsara alveg af. í síðari hálfleik
virtust öll bönd bresta en þá skor-
uðu heimamenn hvorki meira né
minna en 79 stig og Þórsarar 69
stig. Þrátt fyrir þetta mikla stig-
skor var leikurinn aldrei skemmti-
legur á að horfa þó einstaka sinnum
brygði fyrir skemmtilegum tilþrif-
um. Hjá Keflvíkingum var Jón Kr.
Gíslason afgerandi bestur ásamt
Jonathan Bow sem nú, annan leik-
inn í röð, varð að fara af leikvelli
með 5 villur. Hjá Þór var Konráð
Óskarsson í miklum ham og skor-
aði 37 stig, sum úr ótrúlegustu stell-
ingum. Annars var það athyglisvert
að allir leikmen beggja liðu náðu
að skora í leiknum.
Ikvöld
KÖRFUKNATTLEIKUR
Japisdeildin:
Njarðvík, UMFN-UMFT.....20