Morgunblaðið - 18.12.1991, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1991
A • • • *
Snæfellingur í Olafsvík kaupir eignir þrotabús HO;
Bæjarstjórn í viðræð-
nni við Grundfírðinga
SNÆFELLINGUR á Ólafsvík hefur keypt eignir þrotabús Hrað-
frystihúss Ólafsvíkur fyrir 110 milljónir króna. Meðal annars er
þar um að ræða þijú skip og togara. Kaupin eru gerð með vitund
og vilja Landsbankans en með yfirtöku á skuldum er verðið uin
410 milljónir sem Snæfellingur greiðir fyrir eignirnar. Snæfellingur
er alfarið í eigu bæjarsjóðs Ólafsvíkur og eru nú hafnar sameining-
arviðræður milli bæjarsljórnar og Hraðfrystihús Grundarfjarðar.
Stefán Garðarson bæjarstjóri í
Ólafsvík segir að með þessum
kaupum hafí bæjarstjóm náð
markmiðum sínum en það var að
halda kvótanum innan bæjarfélags-
ins. Kvótinn sem fylgir með fyrr-
greindum skipum er 3.500 tonn af
þorskígildum, um helmingur af
heildarkvóta Ólafsvíkinga.
„Nú höfum við gert okkar og
það er annarra að taka við dæm-
inu,“ segir Stefán. „Það var aldrei
ætlunin að reka hér einhvetja bæj-
arútgerð og ef okkur tekst ekki að
sameinast öðrum um rekstur skip-
anna liggur ekki annað fyrir en að
selja þau. Að vísu gætum við vel
hugsað okkur að reka togarann
áfram sjálfír."
Gengið var frá kaupsamningnum
um helgina. Að sögn Stefáns nær
samkomulagið til alls ágreinings
við hlutafélögin Tungufell og Vara-
koll. Felur samkomulagið í sér sölu
á bátunum Tungufelli og Tindfelli,
sölu á 90% hlutafjár í Varakolli,
sölu á Garðari II. og afhendingu á
þremur skuldabréfum útgefnum af
SH. Fyrir þetta greiðast 110 miilj-
ónir í reiðufé, 35 milljónir við undir-
skrift og eftirstöðvar í janúar og
febrúar. Stefán segir að auk þess
sé að finna í samningi þessum
ákvæði þar sem Landsbanki íslands
fellur frá gjaldfellingu á lánum til
Tungufells.
„í framhaldi af þessum kaupum
hófum við síðan viðræður við Hrað-
frystihús Grundarfjarðar um sam-
einingu þess og Snæfellings," segir
Stefán. „Þessar viðræður eru
komnar skammt á veg ennþá en
við ætlum okkur að setjast niður í
vikunni og fara yfír allt dæmið
með forráðamönnum hraðfrysti-
hússins."
í ináli Stefáns kemur einnig fram
að óformlegar þreifingar eru hafn-
ar við Hraðfrystihús Hellissands
um þátttöku í þessum sameining-
arviðræðum.
VEÐUR
IDAGkl. 12.00
Heimild: Veöurstota íslands
(Byggt á veöurspá W.V16.151 gær)
VEÐURHORFUR í DAG, 18. DESEMBER
YFIRLIT: Við suðausturströndina er 950 mb lægð á leiö norðaust-
ur og frá henni liggur lægðardrag í norður í aðra lægðarmiðju sem
er skammt suður af Jan Mayen.
SPÁ Minnkandi norðvestanátt og á Norðausturlandí dregur smám-
saman úr snjókomu eða éljum. Um sunnan- og vestanvert landið
verður léttskýjað í fyrramálið en heldur þykknar í lofti er líða tekur
á daginn með hægum suðaustanvindi. Vægt frost verður víðast
um landið.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG: Austlæg átt víðast fremur hæg. Dálítil
rigning og hiti 2 til 4 stig á Suðausturlandi, en úrkomulítið og
vægt frost í öðrum landshlutum.
HORFUR Á FÖSTUDAG: Norðaustanátt. Snjókoma eða él á Norð-
ur- og Norðausturlandi en léttskýjað um landið sunnan- og vestan-
vert. Talsvert frost um land allt.
Svarsími Veðurstofu fslands — Veðurfregnir: 990600'.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- 10 Hitastig: 10 gráður á Celsíus
stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður • V Skúrir
er 2 vindstig. * Él
V
/ / / / / / / Rigning = Þoka
/ / / = Þokumóða
* / * 5 5 Súld
/ * / * Slydda • / * / 'oo Mistur
* * * 4 Skafrenningur
* * * * Snjókoma * # # K Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavfk hiti 0 0 veður skýjað slydda
Bergen 6 rigning
Helsinki 0 skýjað
Kaupmannahöfn 4 þokumóða
Narssarssuaq +6 skýjað
Nuuk +8 léttskýjað
Osló 4 skýjað
Stokkhólmur 4 þokumóða
Þórshöfn 6 haglél
Algarve 17 þokumóða
Amsterdam 5 þoka
Barcelona 11 mistur
Berlín 4 mistur
Chicago vantar
Feneyjar 8 þokumóða
Frankfurt 0 þoka
Glasgow 10 rigning
Hamborg 3 þokumóða
London 11 súld á síð.klst.
Los Angeles 15 alskýjað
Lúxemborg 5 þoka
Madn'd 4 þoka
Malaga 16 hálfskýjað
Mallorca léttskýjað
Montreal vantar
New York *4 aiskýjað
Orlando vantar
París 6 skýjað
Madeira 17 skýjað
Róm 10 þokumóða
Vín +4 hrlmþoka
Washington 0 alskýjað
Winnipeg +14 heíðskírt
Sól hf. selur
*
vatn til Astralíu
SÓL hf. er nú að afgreiða fjóra gáma með 70 tonnum af vatni
í dósum til útflutnings til Ástralíu. Þetta mun í fyrsta sinn
sem íslenskt vatu er flutt til Ástralíu en gámar þessir eru
hluti af tíu gáma pöntun sem borist hefur frá stórum innflytj-
enda þarlendis. AIls mun verðmæti pöntunarinnar nema rúm-
lega 12 milljónum króna.
Davíð Scheving Thorsteins-
son framkvæmdastjóri Sólar hf.
segir að fyrirtækið hafi lagt
áherslu á að ná þessum samn-
ingi þar_ sem útflutningur á
vatni til Ástralíu á þessum tíma
geti jafnað út árstíðabundnar
sveiflur í vatnsútflutningi þeirra
til Bretlands og Bandaríkjanna.
„Nú er sumar í Ástralíu en vet-
ur á Bretlandseyjum og i Banda-
ríkjunum. Sala okkar á vatni
hefur alltaf dottið mjög niður
yfir háveturinn,“ segir Davíð.
í máli Davíðs kemur fram að
það háfi tekið þá um hálft ár
að ná þessum samningi við ástr-
alska innflytjendann og hafi
margar prufur verið sendar á
þeim tíma. „En hann sló loksins
til og við vonum að framhald
geti orðið á þessum viðskiptum
okkar,“ segir Davíð. „Sala á
vatni til Ástralíu gæti orðið góð
búbót fyrir fyrirtæki okkar.“
Samningnr Dagsbrúnar og MS:
Ábatakerfi skilar
5% hækkun á ári
SÉRSAMNINGUR sá, sem Mjólk-
ursamsalan og Dagsbrúnarmenn,
sem þar starfa, hafa gert með
sér, kveður á um að ábatakerfið,
sem komið verður á, eigi að skila
verkamönnum 5% tekjuhækkun
miðað við 40 stunda vinnuviku
innan árs frá upptöku þess. Ella
Byggingavísitala:
Mælir 0,8%
verðbólgu
HAGSTOFAN hefur reiknað út
vísitölu byggingakostnaðar eftir
verðlagi um miðjan desember
1991. Reyndist hún vera 187,4
stig eða óbreytt frá því í nóvemb-
er. Þessi vísitala gildir fyrir jan-
úar 1992.
Síðastliðna 12 mánuði hefur bygg-
ingakostnaðarvísitalan hækkað um
6,2%, en síðustu þrjá mánuði nemur
hækkun hennar 0,2%, sem samsvar-
ar 0,8% árshækkun.
verði grundvöllur kerfisins end-
urskoðaður. Þetta á þó ekki að
hafa í för með sér aukinn kostnað
fyrir samsöluna, enda á kerfið að
hafa í för með sér hagræðingu.
Grundvöllur samkomulagsins er
að tekið verði upp ábatakerfi, eða
bónuskerfi, sem byggist á aukinni
hagræðingu í rekstri Mjólkursamsöl-
unnar. Ábatakerfinu verður komið á
laggimar á fyrri hluta næsta árs.
Stefnt er að því að það verið farið
að skila árangri ekki síðar en 1. júní
næstkomandi, en aðilar hyggjast í
sameiningu kappkosta að það verði
fyrr. Ef dráttur verður á þessu, verð-
ur Dagsbrúnarmönnum greitt bið-
gjald, sem svara til 800 kr. á viku,
þar til kerfið verður komið i gang.
Samkomulaginu fylgir yfirlýsing
um veikindamál, þar sem lýst er
sameiginlegum vilja MS og trúnað-
armanna Dagsbrúnar til að breyta
reglum um launagreiðslur í veikinda-
og slysatilfellum. Markmiðið er að
tcyggja þeim meira öryggi, sem eru
frá vinnu langtímum saman vegna
veikinda, en á móti lækki greiðslur
vegna skemmri veikinda.
Slösuðust alvarlega í
bílveltu í Borgarfirði
TVÖ ungmenni, 19 og 21 árs, voru flutt alvarlega slösuð með þyrlu
til aðgerðar á Borgarspítalanum í Reykjavík í gær eftir að Pajero-
jeppi sem þau voru á valt norðan við Skarðslæk skammt frá Svigna-
skarði. Stúlkan skaddaðist á hrygg, pilturinn í andliti. Þau gengust
bæði undir aðgerð í gær en voru að sögn lækna ekki talin í bráðri
lífshættu.
Fólkið var á leið norður frá Borg-
arnesi þegar bíll þeirra valt á ísing-
arkafla á auðum malbikuðum veg-
inum. Þau voru ekki í bílbeltum.
Þyrla var strax kölluð til og síð-
degis í gær fengust þær upplýs-
ingar á slysadeild Borgarspítalans
að líðan fólksins væri eftir atvikum;
það væri alvarlega slasað en ekki
í bráðri lífshættu.
k
.
.
í
j
i