Morgunblaðið - 18.12.1991, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1991
37
BfflpWK
Ekið aftan á kyrrstæðan bíl
Ekið var aftan á kyrrstæða bifreið á Svalbarðsstrandar-
vegi við afleggjarann að bænum Meyjarhóli síðdegis í
gær. Maður sem var í bílnum var fluttur á Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri en var ekki teljandi slasaður og
fékk að fara heim að skoðun lokinni. Bifreið hans fór ekki
í gang og var hann nýkominn inn í bílinn eftir að hafa
athugað hvað orsakaði gangtruflunina þegar fóðurbíl var
ekið aftan á hana. Fóðurbíllinn kastaðist út af veginum,
en ökumaður hans meiddist ekki.
SJÁVARÚTVEGS- og landbúnaðarráðherra Oman, Sheik Mo-
hammed Bin Abdullah Bin Zaher AI-Hinai, mun væntanlega koma
hingað til lands í opinbera heimsókn í boði Þorsteins Pálssonar sjáv-
arútvegsráðherra á næsta ári, en reiknað er með að hann verði hér
á landi seinni hluta febrúarmánaðar. Heimsókn hans verður fyrsta
skrefið í að koma á opinberum samskiptum milli landanna, en í
október síðastliðnum fóru þeir Þórhallur Bjarnason, tæknifræðing-
' ur hjá Slippstööinni á Akureyri, og Jón Hjaltalín Magnússon verk-
fræðingur til Oman á vegum Atvinnumálanefndar Akureyrar til
að kanna möguleika á samvinnu milli landanna á sviði sjávarút-
vegs. Unnið er að undirbúningi stofnunar fyrirtækis á Akureyri á
meðal hagsmunaaðila í sjávarútvegi sem halda á utan um væntan-
leg viðskipti milli landanna í framtíðinni.
íslendingar hafa hvorki við-
skipta- né stjórnmálaleg samskipti
við Oman, en vonast er til að í
kjölfar heimsóknar sjávarútvegs-
ráðherrans hingað til lands megi
koma á viðskiptasambandi við
landið.
Þórhallur Bjarnason sagði að
viðtökurnar í Oman hefðu verið
mjög góðar og jákvæðar, en þeir
ræddu m.a. við sjávarútvegsráð-
herrann í ferðinni sem sýndi mik-
inn áhuga á að heimsækja ísland.
Hann hefur nú fengið formlegt
heimboð frá Þorsteini Pálssyni
sjávarútvegsráðherra og er stefnt
að því að hann komi hingað til
lands í opinbera heimsókn í fební-
ar á næsta ári og er ætlunin að
hann muni koma til Akureyrar og
kynna sér fyrirtæki á sviði sjávar-
útvegs.
Akureyrarbær var kynntur þar
syðra sem miðstöð sjávarútvegs á
landinu, þar væru fjölmörg sterk
fyrirtæki á þessu sviði, útgerð,
fiskvinnsla og skipasmíðastöð,
þjónustufyrirtæki við sjávarútveg-
Leiðrétting
I frétt í blaðinu á laugardag,
þar sem greint var frá því að Arn-
ar Páll Hauksson hefði verðið ráð-
inn forstöðumaður Ríkisútvarpsins
á Akureyri var rangt farið með
nafn eiginkonu hans. Hún heitir
Aldís M. Norðfjörð, en ekki Alda
eins og sagt var. Um leið og það
er leiðrétt er beðist velvirðingar
vegna þessa.
inn auk þess sem við Háskólann á
Akureyri væri kennd sjávarútvegs-
fræði þar sem til staðar væri mik-
il þekking.
Unnið er að stofnun fyrirtækis
meðal hagsmunaaðila tengdum
sjávarútvegi í bænum, sem mun
liafa með höndum öll tengsl og
viðskipti við Oman í framtíðinni
og er stefnt að því að það verði
komið á legg í byijun næsta árs.
Oman er syðst á Arabíuskagan-
um og liggur að Indlandshafi.
Landið hefur 200 mílna lögsögu
og er strandlenga þess um 1.700
kílómetrar, en landið er um
350.000 ferkílómetrar að stærð og
íbúafjöldinn tæpar 2 milljónir.
Allt fram til 1970 ríkti mikil
stöðnun í landinu, en á síðustu 20
árum hefur mikil uppbygging átt
sér stað eftir að nýr soldán tók við
völdum og hóf að nýta olíu sem
fannst í landinu. Þórhallur sagði
að menn gerðu sér grein fyrir að
olíuna þryti eftir um 25 til 30 ár
og horfðu til þess að sjávarútvegur
tæki þá við sem aðal gjaldeyristekj-
ulind þjóðarinnar. Heildarafli
Omanbúa hefur verið um 120 þús-
und tonn fram til þessa, en fyrir-
hugað er að auka hann upp í allt
að 420 þúsund tonn á ári.
Sótt er á litlum smábátum með
utanborðsmótor, auk þess sem tog-
urum annarra þjóða er leyft að
veiða í lögsögunni gegn hlutdeild
í afla. Sagði Þórhallur að stefnt
væri að því að stækka fiskiskiþa-
flota landsins og þróa búnað og
tæki og það væri m.a. ástæða þess
leitað hefði verið til Islendinga. Þá
Utgerðarfélag Akureyringa:
Árbakur EA-308 til
heimahafnar í dag
ÁRBAKUR EA-308, hinn nýi togari Útgerðarfélags Akureyringa,
kemur til heimahafnar um hádegi í dag, iniðvikudag. Ferð skipsins
frá Hirtshals á Norður-Jótlandi hefur sóst vel, en hann var um fjóra
sólarhringa á leiðinni.
Gunnar Ragnars, framkvæmda-
stjóri Útgerðarfélags Akureyringa,
sagði að Árbakur færi beint í slipp
hjá Slippstöðinni á Akureyri þar
sem setja á m.a. upp aðgerðar- og
þvottaaðstöðu á vinnsludekk.
Reiknað er með að skipið verði allt
að _tvo mánuði í slipp.
Útgerðarfélagið mun halda
gamla Sólbak EA-305 úti á veiðum
þann tíma, en fyrirhugað var að
leggja honum um áramót. Haffærn-
iskírteini hans rennur þá út, en
félagið hefur sótt um framlenginu
á því þann tíma sem Árbakur verð-
ur í slipp. „Það er okkur mjög mikil-
vægt að hafa fimm ísfisktogara á
veiðum til að sjá vinnslunni í landi
fyrir nægu hráefni, þannig að við
sóttum um framlengingu fyrir Sól-
bak,“ sagði Gunnar.
Árbakur EA-308 er væntanlegur
til Akureyrar um hádegi í dag og
sagði Gunnar að vissulega yrði tek-
ið hlýlega á móti honum.
Skautasvellið um jólin:
Skautaskóli og diskó
Sjávarútvegsráðherra Oman væntanlegur í heimsókn:
Fyrirtæki undirbúið um
viðskipti milli landanna
sagði hann að landinu svipaði
nokkuð til íslands að því leyti að
það væri byggt upp á fjölmörgum
litlum sjávarþorpum meðfram
strandlengjunni, en ætlun
Omanbúa væri að efla þessi þorp
og styrkja m.a. með því að þróa
sjávarútveg sinn.
ÞAÐ VERÐUR mikið um að vera
á skautasvellinu á Akureyri yfir
jólahátíðina, skautaskóli verður
starfræktur, jólatrésfagnaður
verður haldinn og skautadiskó-
tek.
Skautaskólinn verður í gangi frá
28. desember til 3. janúar og stend-
ur frá kl. 13 til 14. Skólanum stjórn-
ar finnski þjálfarinn Pekka Santan-
en.
Föstudaginn 27. desember verð-
ur jólatrésfagnaður Skautafélags
Akureyrar haldinn. Listhlauparar
sýna ýmsar kúnstir, fréttamenn
taka sér kylfu í hönd og spila ís-
hokkí við guttalið S.A., jólasveinar
sýna sitt rétta andlit og gefa börn-
unum sælgæti. Foreldrar þurfa ekki
að greiða aðgangseyri, svo fremi
sem þeir noti tækifærið og stígi á
skauta.
Skautadiskótek verður haldið á
svellinu laugardagskvöldið 28. des-
ember frá kl. 20 til 23 og má þá
búast við mikilli ljósadýrð yfír svell-
Kvöldstund
við kertaljós
Kvöldstund við kertaljós verður
haldin í Laufáskirkju annað kvöld,
fimmtudagskvöldið 19. desember,
kl. 21.
Dagskráin verður sniðin fyrir alla
fjölskylduna, m.a. syngur kirkjukór-
inn jólalög, böm annast tónlistar-
flutning, fluttur verður stuttur leik-
þáttur og jólasaga lesin.
Magnús Aðalbjömsson, yfirkenn-
ari í Gagnfræðaskóla Akureyrar,
flytur jólahugvekju. Að síðustu fá
bömin kerti og sungið verður Heims
um ból.
Akureyri
iRITANIR 1BÓKVAL
a snxfsJt ~~
Avita cftiftttldn bX ' tMitt er þitt)-
Ki. i6.oo-n.oo
Kl. 20.00-22.00 «^5^«
Skytd' Dengsl