Morgunblaðið - 21.01.1992, Page 1
56 SIÐUR B
r
16.tbl. 80. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1992
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Þverrandi
stuðningur
Stuðningur við Zviad Gamsak-
hurdia, sem bolað var nýverið frá
völdum í Georgíu, virðist al-
mennt vera á þrotum. Mestur
hefur stuðningur hans verið í
heimahéraði hans Megrelia í
vesturhluta landsins en sveitir
herráðsins eru hins vegar smám
saman að leggja það allt undir
sig og er mótspyrna við framrás
þeirra sögð vera lítil sem engin.
Ekkert sést nú til þeirra þung-
vopnuðu sveita sem vörðu for-
setahöllina í Tbilisi meðan á
umsátrinu um hana stóð og eru
flestir sjáanlegir fylgismenn
Gamsakhurdia nú aðallega vopn-
aðir haglabyssum. Myndin var
tekin í Tbilisi um helgina er
nokkur hundruð stuðningsmenn
Gamsakhurdia komu þar saman.
Vopnaðar sveitir stuðnings-
manna herráðsins komu á vett-
vang með alvæpni og brutu mót-
mælin á bak aftur.
Reuter
Talsmaður hersins gagnrýnir Úkraínuforseta harðlega:
Pólitískur stöðugleiki
undir hemum kominn
Moskvu.Reuter.
VALERÍJ Manílov hersliöfðingi og talsmaður hers Sovétríkjanna
fyrrverandi réðst í gær harkalega á Leóníd Kravtsjúk, forseta Úkra-
ínu, og minnti á að pólitískur stöðugleiki í Samveldi sjálfstæðra ríkja
væri undir hernum kominn.
Þýskaland:
Tveir landa-
mæraverðir
sakfelldir
Berlín. Reuter.
DÓMUR var í gær kveðinn upp í
máli fjögurra austur-þýskra
landamæravarða sem voru á vakt
6. febrúar 1989 er landi þeirra
reyndi að flýja yfir Berlínarmúr-
inn. Maðurinn var skotinn til
bana.
Verðirnir fjórir sem ákærðir voru
heita Ingo Heinrich, Andreas
Kiihnpast, Michael Schmidt og Peter
Schmett allir á þrítugsaldri. Þeir
voru saman á vakt er Chris Gueffroy,
austur-þýskur þjónn, reyndi að flýja
yfir til Vestur-Berlínar. Heinrich
hlaut þyngstu refsinguna því talið
var að kúlan sem banaði Gueffroy
hefði komið úr byssu hans. Heinrich
hefði augljóslega ætlað sér að bana
manninum og því hefði verið um
nokkurs konar aftöku að ræða. Var
Heinrich dæmdur í þriggja og hálfs
árs fangelsi. Andreas Kúhnpast var
dæmdur fýrir manndrápstilraun og
fékk tveggja ára skilorðsbundið
fangelsi. Schmidt og Schmett voru
sýknaðir. Schmidt, yfirmaður hinna
þriggja, fyrirskipaði að sögn dóms-
forseta að skotið skyidi á Gueffroy
en í því skyni að stöðva flóttann en
ekki í því augnamiði að fella mann-
inn. Schmett var sýknaður á þeirri
forsendu að hann hefði miðað á jörð-
ina umhverfis Gueffroy.
Dómsforsetinn sagði í rökstuðn-
ingi fyrir dómnum að austur-þýsk
lög um verndun landamæra kæmu
ekki í veg fyrir að mönnum væri
skylt að hlíta þeirri siðferðisreglu
að vernda skyldi mannslíf: „Slík lög
bökuðu mönnum ekki skyldu. Það
var ekki rétt að fara eftir lögun-
um.“ Gueffroy var 200. og jafnframt
síðasti Austur-Þjóðveijinn sem skot-
inn var við Berlínarmúrinn. Dómur-
inn var kveðinn upp í sakadómi í
Berlín og hafa veijendur hinna sak-
felldu tilkynnt að honum verði áfrýj-
að.
Réttarhöldin yfir landamæravörð-
unum íjórum hafa vakið deilur og
gagnrýnt hefur verið að þar séu
dregnir fyrir rétt óbreyttir opinberir
starfsmenn en ekki yfirboðar þeirra
sem gáfu fyrirskipan um að þeir sem
reyndu að flýja land skyldu skotnir.
Manílov sagði að stjórnmálaleið-
togar eins og Kravtsjúk gætu ekki
daufheyrst við kröfum eins og þeim
sem bornar voru fram á fundi fímm
þúsund yfírmanna í hernum í Moskvu
síðastliðinn föstudag unp atvinnuör-
yggi og trygga félagslega stöðu.
„Við verðum að ganga út frá þeirri
staðreynd að her Sovétríkjanna fyrr-
verandi er einn af öflugustu og nú-
tímalegustu heijum heims. í honum
eru 3,7 milljónir hermanna sem ráða
yfír nýjustu vopnatækni þ. á m. stór-
um kjarnorkuherafla," sagði Man-
ílov. „Stjórnmálamenn heima og er-
lendis mega ekki gleyma að taka
þetta með í reikninginn. Uppbygging
þessa herafla tryggir stöðugleika."
Ummæli Manílovs eru fyrstu við-
brögð foringja í hernum við þeirri
ákvörðun Kravtsjúks að þekkjast
ekki boð um að ávarpa fund liðsfor-
ingjanna sl. föstudag. Kravtsjúk rök-
studdi þá ákvörðun sína um helgina
í sjónvarpsviðtali og sagði eftirfar-
andi um kvartanir yfir því að hann
skyldi ekki hafa mætt: „Það varðar
mig álíka miklu og tunglmyrkvi."
Douglas Hurd utanríkisráðherra
Bretlands átti í gær fund með Borís
Jeltsín, forseta Rússlands, í Moskvu.
Rætt var um aðstoð vestrænna ríkja
við Rússland, örlög sovéskra kjarna-
vopna og framtíð samveldisins. Áður
hafði Hurd heimsótt Úkraínu og
Kazakhstan. Nursultan Nazarbajev,
forseti Kazakhstans, fullvissaði Hurd
um að stjórnvöld þar í landi gerðu
ekki kröfu um yfirráð yfir kjarna-
vopnunum sem þar eru staðsett.
Major fellst ekki
á afsögn Brooks
Króatískir Serbar and-
vígir friðaráætlun SÞ
Belgrad. Reuter.
LEIÐTOGI Serba í Krajina-héraði í Króatíu hótaði í gær að koma
í veg fyrir friðartilraunir Sameinuðu þjóðanna nema hugsanlegir
friðargæsluliðar tækju sér stöðu við núverandi víglínu milli Serba
og Króata. Varnarmálaráðuneytið í Belgrad hefur vísað á bug fullyrð-
ingum um, að sambandsherinn og serbneskir skæruliðar hafi unnið
grimmdarverk á Króötum.
Skipst var á skotum víða í Króa-
tíu í gær þrátt fyrir vopnahléið og
talið er að 10 manns af liði beggja,
Króata og Serba, hafi fallið um helg-
ina. Þá sprakk sprengja fyrir utan
kaffihús í bænum Mostar í Bosníu-
Herzegovínu en manntjón varð ekk-
ert. Fimmtíu manna lið frá Samein-
uðu þjóðunum, SÞ, er nú að undirbúa
komu 10.000 friðargæsluliða en
Milan Babic, leiðtogi Serba í Krajina-
héraði í Króatíu, hefur ítrekað and-
stöðu sína við friðaráætlunina, sem
stjórnvöld í Króatíu og Serbíu hafa
samþykkt. Hafa Serbar í Krajina,
um 300.000 talsins, lýst yfir stofnun
sjálfstæðs ríkis og sagði Babic, að
friðargæsluliðarnir yrðu að taka sér
stöðu á landamærum þess og Króa-
tíu. Samkvæmt áætlun SÞ verður
komið upp sérstökum verndarsvæð-
um í þeim héruðum í Króatíu þar sem
Serbar eru fjölmennir en jafnframf.
á sambandsherinn að fara þaðan.
Alls eru Serbar í Króatíu um 600.000
af 4,7 milljónum íbúa.
Júgóslavneska varnarmálaráðu-
neytið hefur vísað á bug skýrslu, sem
Evrópubandalagið lét vinna, en þar
er komist að þeirri niðurstöðu, að
sambandsherinn og serbneskir
skæruliðar hafi unnið mikil grimmd-
arverk í Króatíu. Sagði í yfirlýsingu
ráðuneytisins, að EB hefði látið taka
saman skýrsluna til að réttlæta
viðurkenningu á sjálfstæði Króatíu
og Slóveníu.
Belfast. Daily Telegraph.
PETER Brook, sem fer með I
málefni Norður-írlands í bresku |
ríkisstjórninni, bauðst í gær til
að segja af sér starfi en John
Major forsætisráðherra, hafn-
aði því.
Major sagðist bera fyllsta traust
til Brooks, en sambandssinnar á
Norður-írlandi hafa gagnrýnt
hann harðlega fyrir að koma fram
í samtalsþætti írska sjónvarpsins
í Dyflinni á föstudagskvöld og
syngja kráarsöngva, aðeins nokkr-
um klukkustundum eftir að sjö
byggingaverkamenn biðu bana í
bílsprengingu á Norður-írlandi.
í umræðutíma á breska þinginu
í gær baðst Brooks afsökunar á
þátttöku sinni í sjónvarpsþættin-
um. Afhenti hann Major afsagnar-
bréf í gærmorgun, en eftir heim-
sókn til Norður-írlands í gær sagð-
ist breski forsætisráðherrann telja
að Brooks hefði haldið það vel á
I málefnum héraðsins að brýnt væri
I að hann sæti áfram.
Trúaðir of-
sóttírí Kína
Washington. Reuter.
KÍNVERJAR ganga harðar
fram en nokkru sinni áður
gegn þeini sem iðka trúar-
brögð sín, að sögn mann-
réttindasamtakanna Asia
Watch.
Að sögn Asia Watch hafa
nokkrir kaþólskir biskupar hrein-
lega horfið og vitað er um einn
sem dó í fangelsi. „Ofsóknir gegn
trúuðum eru ákafar. Fjöldi
manna hefur verið fangelsaður
frá 1989 er aðförin hófst af full-
um þunga, einkum kaþólikkar og
mótmælendur," sagði fram-
kvæmdastjóri samtakanna. Hann
sagði þá flesta hljóta allt að 10
ára fangelsisdóm og væru sumir
dæmdir án réttarhalda.