Morgunblaðið - 21.01.1992, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANUAR 1992
9
Lagasafnið komið
verslunina
*
, ÚróÁöÁúif „
LARUSAR BLONDAL
Skólavörðustíe 2, sími 15650.
Utsölunni
lýkur á fimmtudag
Glugginn, Laugavegi 40.
Hjálmar,
Andlitshlífar og
Hlífðargleraugu
Skeifan 3h-Sími 812670
Gerbreyta þarf
sljórn efnahags-
mála
Þórður Friðjónsson
seg-ir m.a. í grein í Fjár-
málatíðindum:
„Stjórn efnahagsmála
þarf að gerbreyta. Stefn-
an i ríkisfjármálum og
peningamálum verður að
styðja fastgengisstefn-
una með því að tryggja
að heildareftírspurn í
efnahagslífinu samrým-
ist hverju sinni stöðug-
leika i verðlagsmálum.
Þetta yrði mikil b'reyting
frá þeirri stefnu sem
fylgt hefur verið undanf-
arna áratugi. Iðulega
hefur stefnan í ríkisfjár-
málum og peningamálunt
valdið þenslu í efnahags-
lífinu sem leitt hefur til
verðlags- og kostnaðar-
hækkana og þannig
stefnt afkomu atvinuu-
veganna í óefni. Til þess
að treysta stöðu atvinnu-
lífsins á ný hefur gengi
krónunnar verið fellt.
Stefnan verður að vera
nægjanleg aðhaldssöm til
að koma í veg fyrir
þetta.“
Raunvextir og
hallabúskapur
lýsandi dæmi um
aðhaldsleysið
Síðan segir:
„Þróun raunvaxta
undanfama tvo áratugi
og hallabúskapur ríkisins
eru lýsandi dæmi um
þann skort á aðhaldi sem
einkennt hefur stjórn
efnahagsmála hér á
landi. Þannig voru raun-
vextir að jafnaði nei-
kvæðir fram á síðasta
áratug og halli hefur ver-
ið á ríkisbúskapnuin frá
því að raunvextír urðu
jákvæöir (sjá efri töflu).
Ekki nægir að herða tök-
in á peningamálum, ef
slakaö er á í ríkisfjármál-
um. Aðhaldið að heildar-
eftírspum fer auðvitað
eftír taumhaldiuu. Sé
tekið í taumana öðnun
megin og gefin eftír liin-
unt rnegin beygja memt
af leið.
Með frjálsum fjár-
magnshreyfingum, sem
Aðlögun þjóðarbúskapar-
ins að efnahagsumhverfinu
„Það fer ekki á milli mála að eitt brýnasta
verkefni efnahagsmálanna er aðlögun ís-
lenzks þjóðarbúskapar að efnahagsþróun-
inni í öðrum Evrópuríkjum. í því sambandi
er án efa mikilvægast að tryggja stöðug-
leika í þróun verðlags og framleiðslukostn-
aðar. Stöðugt gengi er forsenda þess að
þetta takist. Það er því ekki að ástæðu-
lausu, að mikil athygli hefur beinzt að geng-
isstefnunni og hugsanlegri tengingu krón-
unnar við ECU,“ segir Þórður Friðjónsson,
forstjóri Þjóðhagsstofnunar, í grein í Fjár-
málatíðindum.
unnið er að því að koma
á, þrengist svigrúmið til
að reka óháða peninga-
stefnu, sent miöar að því
marki að viðhalda stöð-
ugleika í verðlagsmálum
og vægi stefnutmar í
ríksfjármálum eykst að
sama skapi. í því felst aö
ríkisbúskapurimi fær
stærra hlutverk í aðlög-
un þjóðarbúsins að sveifl-
um í ytri skilyrðum. Til
þess að treysta stjóm rík-
isfjármála er m.a. nauð-
synlegt að takmarka að-
gang rikissjóðs í lánsfé í
Seölabankanum með því
að afnema í áföngum
lieimildir hans til skulda-
söfnunar við bankann."
Vinnumarkaður-
inn, þjóðartekj-
urnar og launin
Síðar í grein Þórðar
segir m.a.:
„Að baki ákvörðununi
um almenn laun og kjör
verður að liggja raun-
sætt mal á efnaltagsleg-
um forsendum. 1 þessu
felst í stórum dráttum
að almeimar launabreyt-
ingar (í krónum talið)
verða að vera í liátt við
þróun þeirra i helztu við-
skiptalöndum, ef hag-
vöxtur er svipaður. Þeg-
ar skilyrði þjóðarbúsins
eru óhagstæð er ltins
vegar óhjákvæmilegt að
almcnn laun hækki
minna en í viðskiptalönd-
ununt og jafnvel lækki í
krónurn talið, ef þjóðar-
búið hreppir mikinn and-
byr. Ef þróun efnahags-
mála er á hinn bóginn
hagstæðari en annars
staðar, hagvöxtur örari,
myndast svigrúm til
meiri launahækkana.
Sveiflurnar í afkontu
heimilanna yrðu þó
sennilega verulega minni
en við óbreytta gengis-
stefnu.
Undanfarna áratugi
ltafa raunlaun að jafnaði
sveiflast mun meira en
þjóðartekjurnar. Nægir í
því sambandi að rifja upp
að kaupmáttur ráðstöf-
unartekna dróst saman
unt 13,5% á samdráttar-
árinu 1983, þegar þjóðar-
tekjurnar lækkuðu um
3,3%, og jókst um 22,6%
á uppgangsárinu 1987,
þegar þjóðartekjumar
hækkuðu utn 10,6% (sjá
neðri töflu).
Þetta má emnig orða
þannig að raungengi
krónunnar yrði að ltalda
innan tiltölulega þröngra
marka eins og nánar
verður fjallað utn ltér síð-
ar. Af þessu má sjá að
miin meira raunsæis yrði
að gæta á vinnumarkaði
en gert hefur verið tíl
þessa."
Styrkja verður
stöðu sjávarút-
vegsins
Þórður segir í grein
sinni að trúverðug fast-
gengisstefna gerbreyti
starfsskilyrðum sjávarút-
vegsins. Ljóst sé að hann
verði að vera undir það
búinn að taka á sig mikl-
ar sveiflur í afkontuskil-
yrðunt verði gengi krón-
unnar fest. Orðrétt:
„Til þess að faslgeng-
isstefna getí talizt raim-
hæf er hins vegar óltjá-
kvæmilegt að skapa þau
skilyrði, að sjávarútvegs-
fyrirtæki verði almennt
rekin tneð verulegunt
hagnaði í góðæri og geti
þolað tap í hallæri. Við
þetta ntá bæta að fast
gengi hefði að öðrtt jöfnu
hagstæð áhrif á aðrar
greinar sent ltafa átt erf-
itt uppdráttar í santbýli
við sjávarút vegimi."
ÚBfrKARNABÆR
LAUGAVEGI 66, SÍMI22950
20% afsláttur af vörum, sem
eru ekki á útsölunni!!!
MEIRIHÁTTAR
ÚTSALA
Dæmi:
□ Dömu bómullarpeysur..........frákr. 1.000,-
□ Lambsullarpeysur............frá kr. 2.700,-
□ Dömubuxur...................frá kr. 2.500,-
□ Herraskyrtur................frá kr. 1.290,-
□ Herrapeysur..................frákr. 1.650,-
□ Stakir herrajakkar fínni ....frákr. 8.900,-
□ Úlpur .......................frákr. 5.300,-
□ Gallabuxur...................frákr. 2.900,-
□ Herraföt................frá kr. 13.950,-
□ Og margt, margt fleira.