Morgunblaðið - 21.01.1992, Side 12

Morgunblaðið - 21.01.1992, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1992 Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs: „Aftur á móti var annað stríð“ • •• Síðari grein Bókmenntir Dagný Kristjánsdóttir Bókmenntaverðlaun Norður- landaráðs verða veitt í þrítugasta skipti 23. janúar, hér í Reykjavík. Þjáningarnar ómældar Önnur bókin sem Finnar leggja fram í ár er skáldsagan Johan och Johan (Jóhann og Jóhann) eftir Olli Jalonen. Bókin segir frá finnsk- um feðgum, Jóhanni eldra og yngra. Faðirinn hefur barist með rauðlið- um í borgarastríðinu og valið að láta sig hverfa yfir landamærin til Sovétríkjanna til að taka þátt í uppbyggingu sósíalismans. I Finn- landi er hann talinn af. Sonur hans elst upp hjá móður og stjúpföður við ástleysi og rudda- skap sem gerir hann harðan og óbilgjarnan þó að hann búi yfir miklum tilfinningum. Bókin skiptist í 9 hluta og sögur feðganna eru sagðar til skiptis. Sagt er frá ólýs- anlegri æfi föðurins í Síberíu þar sem tr<%lega gengur að byggja þúsundáraríkið undir forystu Stal- íns. Fólkið sem ekki er í náðinni dregur frarh lífið á mörkum mann- legrar tilvistar, kuldinn, hungrið og yfirvofandi dauði er eitt, en kannski er rökleysi og merkingarleysi þeirra undarlegu kerfa sem það lifir við enn verra. Fólkið sem er ekki í náðinni eru útlendingar, þeir óhlýðnu eða þeir sem kærðir hafa verið á laun fyrir yfirmönnunum út af einhveiju sem engu máli skipt- ir. Það eru skelfilegar sögur sem sagðar eru í þessari bók. Frásagnar- hátturinn er raunsær, kaldur, ger- sneyddur allri tilfinningasemi eða sálfræðilegum útleggingum. Þrátt fyrir agaðan, ópersónulegan frá- sagnarháttinn (eða kannski vegna hans) verður textinn svo áleitinn að hrollur er í lesanda löngu eftir að bókin hefur verið lesin. Álandseyjar Hin bókin sem Finnar leggja fram heitir Stora várlden (Hinn stóri heimur) eftir Ulla-Lena Lund- berg. Þetta er ættarsaga sem gerist á fyrstu áratugum aldarinnar á Álandseyjum og í Finnlandi en sag- an berst líka til Ameríku og um heimshöfin þar sem álenskir sjó- menn sigldu sínum stoltu seglskút- um langt fram á tíma gufuskip- anna. Stora várlden er önnur bókin í miklu sagnaeposi um Álandseyjar. Bræðumir fimm sem eru aðalper- Anne Marie Ejrnæs. sónur bókarinnar eru eins konar millikynslóð í sögu ættarinnar og eyjanna; tveir þeirra gerast menntamenn í Finnlandi, einn bóndi í eyjunum og tveir verða skipstjór- ar. Frásögnin og sjónarhornið fær- ist á milli fjögurra persóna, það er hraði í frásögninni, þjóðfélagslýs- ingin er breið og mannlýsingar glúmar. Martröð borgarastríðsins í Finnlandi kemur líka fram í þessari skáldsögu en hún er öll léttari en skáldsaga Jalonen. Heil eða hálf Létt er hins vegar ekki bók Anne Marie Ejmæs Sneglehuset (Kuð- ungurinn) sem Danir leggja fram til bókmenntaverðlauna Norður- landaráðs. Sögumaðurinn sem birt- Ulla-Lena Lundberg. Seren Ulrik Thomsen. ist okkur í fyrsta kafla bókarinnar er nútímakona, hijáð af alvarlegum þunglyndisköstum sem draga hana niður í hringiðu merkingarleysis og dauðalöngunar. Hún veit að amma hennar er reið við hana. Ömmu hennar líkar ekki við hana. Hvers vegna? Og hvaða máli skiptir það? Amman er búin að vera dáin í 21 ár. Það, hvers vegna amman hafnaði henni, skiptir sögumann máli og hún ákveður að svara spuming- unni: Hvers vegna? Ekki á sínum forsendum heldur á forsendum ömmunnar. Saga ömmunnar verður þannig að sjálfsleit dótturdóttur hennar og við fáum enn eina ættar- söguna. Langamman hafnar dóttur sinni, ömmunni og á enga hlýju til að gefa henni. Hún hefur misst sex börn, hvert á eftir öðm og hjóna- bandið er ekki gott. Amman, Marie, sem sagt er frá í Sneglehuset, verð- ur pabbastelpa, snemma fullorðin, hugsandi og sjálfstæð alþýðustelpa á Mið-Jótlandi undir aldamót. Hennar eigið hjónaband verður mjög farsælt og hún eignast sjö börn. Annað barnið, dóttirin Thea, drukknar fjögurra ára gömul og Marie er þá ófrísk að lítilli stúlku sem fær nafn systurinnar. Móðirin er of hrædd um þetta litla barn, það tengist of miklum sársauka til að hún geti bundist henni á sama .eðlilega hátt og öðrum börnum sín- um. Sagan endurtekur sig sem sagt, móðir hafnar dóttur, og sögumaður okkar er sennilega dóttir þeirrar Theu sem lifði — en það fáum við þó ekki að vita með vissu. Saga langömmunnar, tengda- móður Marie og Marie sjálfrar er saga af linnulausri baráttu fyrir líf- inu, fyrst og fremst lífi barnanna. Það kemur fyrir að þessar konur veikjast, verða geðveikar, gefast upp — en aldrei lengi í einu því að á hverri þeirra hvílir þung ábyrgð og ef þær eru ekki heilar hallast allt á ógæfuhlið. í lok bókarinnar rifjar sögumaður upp gamla sögu; hún sjálf er bam og reynir að gera sig til fyrir ömmunni sem hrökklast undan í skelfingu af því að hún sér strax hræsni og leikararskap barna- barnsins. Hún sér að hún er hálf en ekki heil. Við fáum ekki að vita í lok Sneglehuset hvort amman er ennþá reið eftir að dótturdóttirin hefur sett sig í hennar spor — en mér er næst að halda að sú gamla hafi tekið gleði sína. Sneglehuset er firna vel skrifuð bók og einkar „líkamlegur“ texti; í textanum er miðlað ljúfri snertingu, bragði og ilm, t.d. af gróðri eða nýbökuðu brauði. Líka er lýst daun- inum af úrgangi fólks og dýra, uppköstum, vindgangi og fleiru því sem fýlgir tormeltum mat og melt- ingarvandkvæðum eða sjúkdómum. Persónurnar fá þannig ekki aðeins rödd og sögu heldur líka líkama, sögulega skilyrta líkama. Ljóð um lifið og tímann Seren Ulrik Thomsen er ein af skærustu stjömum Dana í ljóðagerð í dag og þeir leggja framrljóðabók hans Hjemfalden (Innheimtur?). Hann kom fyrst fram á níunda ára- tugnum og tilheyrði hóp ungskálda sem nutu mikillar hylli danska stór- gagnrýnandans Poul Borum. Þessi hópur ungra ljóðskálda var kallaður „de vilde firserne" en ef marka má þessa nýju ljóðabók Sarens er hann farinn að róast. í Hjemfalden hittum við fyrir ljóð sem eru þroskuð og um leið ótrú- lega fersk. Ljóð þessi tjá hvort tveggja í senn grillulausa lífssýn og eins konar hrifna undrun yfir manneskjunni og möguleikum hennar. Það er ort um einmanaleika og nánd eða leit að nánd. Ort er um tímann og dauðann en fyrst og fremst er þó ort um orðið, textana sem þessi ljóð spretta af til að fæðar af sér nýja texta. Því að orðið til- heyrir engum, eins og skáldið segir í síðasta ljóði bókarinnar: Ég gef þér gjöf, sem þú getur ekki tekið við; eins konar bók með veðruðum blöðum. En gjöfin kostar engan neitt nema gefandann sjálfan. Klingjandi bjalla! Hvert orð hefur verið borgað og tilheyrir engum. í þetta sinn hefur mér tekist að ná hinu ýtrasta, næstsíðasta orði. Hið síðasta átt þú. Grænlandskróníka Færeyingar, Grænlendingar og samar eiga ekki fastan fulltrúa í dómnefndinni en taka sæti í henni ef þeir kjósa að leggja fram bók- menntaverk. Að þessu sinni eru hvorki Færeyingar né samar með en Grænlendingar leggja fram bók- ina: Mit land - hvor hen gár din fremtid? (Land mitt, hvert stefnir þú?) eftir Frederik Nielsen. Frederik Nielsen er eilítið yngri en Halldór Laxness, fæddur 1905 og hefur verið brautryðjandi í skóla- og menningarmálum á Grænlandi um árabil. Skáldsaga hans lýsir vaknandi þjóðemisvitund Grænlendinga á þessari öld og baráttu aldamóta- kynslóðarinnar fyrir því að opna landið, kenna börnunum dönsku til að þau hafi í fullu tré við herraþjóð- ina og geti menntað sig í Dan- mörku. Fyrr en varir hefur svo danskan tekið yfir í skólakerfinu á Grænlandi og róttæk börn og barnabörn gömlu mannanna lýsa „framförunum" sem árás á mál og menningu þjóðarinnar og hinu mesta skaðræði. Þetta upplifir aðal- persóna bókarinnar Pittaq (Pétur) sem er brautryðjandi í skóla- og menningarmálum á Suður-Græn- landi og virkur í stjórnmálabarátt- unni fram yfir miðja öld. Bókin lýs- ir stjórnmálabaráttu aldarinnar eins og Pittaq og vinir hans sjá hana og inn í þá frásögn eru fléttuð ræðubrot og greinastúfar um vel- ferð Grænlands og þjóðarheill. Og svo er bara að sjá hver þess- ara ágætu bóka verður hlutskörp- ust og fær bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 1992. --- > ♦ » Fyrirlestur um frímerki FRÍMERKJASÉRFRÆÐINGUR Sotheby’s heldur fyrirlestur í kvöld í húsakynnum Félags frímerkja- safnara, Síðumúla 17 og hefst fund- urinn klukkan 20. í laugardagsblað- ið Morgunblaðsins sagði að fundur- inn verði haldinn 21. febrúar, en þar átti að sjálfsögðu að standa 21. janúar. ■ ---♦ ♦------- Þorrablót sjálfstæðis- félaganna AÐ VENJU munu Sjálfstæðisfé- lögin í Reykjavík halda þorrablót nú í ár. Verður það laugardaginn 25. janúar nk., 2. dag þorra, í Valhöll v/Háaleitisbraut og hefst kl. 19.00. Blótin hafa notið mikilla vinsælda undanfarin ár og hefur jafnan verið húsfyllir í Valhöll. Vandað er til allrar dagskrár og veitinga en verði stillt í hóf. Veislustjóri verður Ámi Sigfússon borgarfulltrúi en hátíðar- ræðu flytur Davíð Oddsson, forsæt- isráðherra. Miðapantanir verða í Valhöll. (Frcttatilkynning) Um bókmenntaverð- laun Norðurlandaráðs Bókmenntaverðlaunin Bókmenntaverðlaun Norður- landaráðs em veitt í tengslum við fund Norðurlandaráðs ár hvert. Verðlaunin em veitt fyrir bók- menntaverk sem skrifað er á ein- hveiju Norðurlandamálanna. Markmið verðlaunanna er að vekja áhuga Norðurlandabúa á bókmenntum og menningu hverr- ar annarrar. Verðlaunin voru fyrst veitt árið 1962, þá var verðlaunaupphæðin 50.000 danskar krónur. Nú er upphæð verðlaunanna 150.000 danskar krónur eða rúmar 1.400 þúsund íslenskar krónur. Dómnefndin í dómnefndinni sitja tíu dóm- nefndarmenn, tveir frá hveiju Norðurlandanna: íslandi, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku. Dómnefndarmenn em skipaðir af ráðherranefnd Norðurlandaráðs til fjögurra ára. Enginn dóm- nefndarmaður getur setið lengur en tvö fjögurra ára tímabil. Auk dómnefndarmannanna er skipað- ur einn varamaður og um hann gilda sömu reglur. Hægt er að leggja fram bók- menntaverk á samísku, græn- lensku og færeysku og sé það gert tekur fulltrúi þessara mál- svæða sæti í nefndinni auk reglu- legra meðlima. Sigurður A. Magnússon, rithöf- undur, og Dagný Kristjánsdóttir, lektor, sitja í dómnefndinni af ís- lands hálfu. Varamaður er Þórður Helgason, kennari. Valið Dómnefndir hvers lands þurfa að hafa skilað rökstuddri tilnefn- ingu fyrir 15. nóvember ár hvert og þá em bækurnar sem lagðar eru fram sendar dómnefndar- mönnum. Þeir eiga að hafa fengið allar bækumar 15. desember. Is- lendingar þurfa að ganga frá sínu vali mun fyrr því að það verður að þýða íslensku bækurnar á eitt- hvert Norðurlandamálanna fyrir 15. nóvember. Dómnefndin öll heldur fund í kringum 20. janúar pg þar er verðlaunaverkið valið. Atkvæða- greiðsla fer fram eftir föstum reglum og er mjög formleg. I fyrri umferð mega menn ekki greiða bókmenntaverkum eigin lands at- kvæði, í seinni umferð em greidd atkvæði um verkin sem flest at- kvæði hafa fengið og meirihluti ræður hinu endanlega vali. Bókmenntaverðlaununum og tónlistarverðlaunum Norður- landaráðs er síðan úthlutað við hátíðlega athöfn á meðan á fundi ráðsins stendur í síðustu viku fe- brúar. V erðlaunahafar Á tímabilinu 1962-1990 hafa Svíar ellefu sinnum fengið verð- launin, Finnland og Noregur fimm sinnum hvort, Danir fjómm sinn- um, íslendingar þrisvar, Færey- ingar tvisvar og samar einu sinni. Ólafur Jóhann Sigurðsson fékk bókmenntaverðlaun Norðurlanda- ráðs árið 1976, Snorri Hjartarson árið 1981 og Thor Vilhjálmsson árið 1988. Konur hafa aðeins tvisvar (á 28 árum) fengið bókmenntaverð- launin, þ.e. Sara Lidman árið 1980 og Herbjörg Wassmo árið 1987.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.