Morgunblaðið - 21.01.1992, Síða 18

Morgunblaðið - 21.01.1992, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANUAR 1992 Niðursoðinn sparn- aður í menntamálum eftirHeimi Örn Herbertsson Á síðustu vikum og mánuðum hafa nemendur fengið ýmsar fréttir af niðurskurðarhugmyndum rík- isstjórnarinnar í menntamálum. Skólaárið hófst á mótmælastöðu nemenda við setningu Alþingis vegna fyrirætlana menntamálaráð- herra um að hækka stórlega skóla- gjöld í framhaldsskólum. Hætt var við þau áform á endanum eftir mikl- ar umræður en enginn velktist leng- ur í vafa um hver væri stefna ríkis- stjórnarinnar í menntamálum. Að undanförnu hafa váleg tíðindi borist nemendum til eyrna hvað varðar niðurskurð í framhaldsskól- um landsins. Okkur er ljóst að niðurfelling hugmynda um hækkun skólagjalda var gálgafrestur. Ákveðið hefur verið að skera út- gjöld skólanna niður um 8% þar sem megináherslan er lögð á launa- kostnað. Til þess að sýna hvaða áhrif þetta hefur í menntakerfínu tek ég Menntaskólann í Kópavogi sem dæmi. Framhaldsskólar án nemenda? Niðurskurður sem þessi hefur í för með sér fækkun kennslustunda og uppsagnir kennara. I MK eru nú kenndar 900 kennslustundir á viku sem hingað til hafa rétt dugað svo hægt sé að útskrifa stúdenta við skólann. 8% niðurskurður hefur í för með sér fækkun kennslustunda um 77 alls eða niður í 823 stundir á viku. Ef þetta verður að veruleika munu framhaldsskólamir eiga mjög erfitt með að innrita nemendur á næstu misserum, og skólar sem ekki geta tekið inn nýnema eru dauðadæmdir. En það em til. fleiri leiðir. Möguleiki er að fjölga nem- Margrét Pétursdóttir, Vesturgötu 61, Akranesi, fæddist í Geirshlíð í Flókadal 21. janúar 1902. Hún var sjöunda og næstyngsta bam for- eldra sinna, hjónanna Önnu Katrín- ar Jónsdóttur og Péturs Þorsteins- sonar bónda þar, en hálfbróður átti hún einnig, sem hún hafði mikið og gott samband við. Pétur faðir henn- ar lést þegar hún var aðeins þriggja ára gömul, en móðir hennar stóð fyrir búinu næstu árin ásamt eldri bömunum. En þegar elsti bróðirinn tók alfarið við búinu fluttist Mar- grét 10 ára gömul til móðursystur sinnar, Sigríðar Jónsdóttur á Ákra- nesi. Sigríður var ekkja, en börn hennar tvö vom þá uppkomin, eða 19 og 21 árs gömul. Sigríður og eldra bam hennar létust 6 ámm síðar í spönsku veikinni 1918, en yngra barnið hennar, Björnfríður Björnsdóttir, var Margréti ætíð sem ■ BHMR mótmælir harðlega þeim áformum ríkisstjórnarinnar að skerða almennan ellilífeyri þeirra sem hafa launatekjur. BHMR vill benda á að réttur til almenns ellilíf- eyris er lögbundinn réttur sem byggir á áratuga framlögum allra þegnanna. Skerðing á þessum rétti er því sérstaklega ámælisverð. Einn- ig vill BHMR benda á að með ítrek- aðri aðför að þessum rétti hefur líf- eyrisþegum verið gert enn nauðsyn- legra en fyrr að afla sér tekna umfram áunninn lífeyrisrétt þrátt fyrir háan aldur og jafnvel veikindi. BHMR mótmælir einnig því að rétt- ur sumra örorkulífeyrisþega verður skertur í því skyni að bæta rétt annarra örorkubótaþega. Afkoma allra örorkulífeyrisþega er svo slæm endum í hópum frá t.d. 25 uppí 40 nemendur í hóp. Það þýðir að minni tími verður til að aðstoða þá nem- endur sem þegar eiga í erfiðleikum í námi og árangri hrakar. Einnig er hægt að banna nem- endum að ljúka fleirum en 35 ein- ingum á ári. Samkvæmt nýrri reglugerð um stúdentspróf þurfa nemendur að Ijúka 140 einingum á fjórum árum. Þetta er einfalt reikningsdæmi: 35x4=140. Ef nemandi svo mikið sem fellur á prófi í eitt einasta skipti þá seinkar honum í námi um eitt ár. Langlík- legast er að allar þessar leiðir komi til framkvæmda að einhverju leyti svo sýnilegt er að ástandið í skólun- um verði uggvænlegt. Aðgerðir án árangurs Ljóst er að sparnaðurinn sem stefnt er að mun nást á því ári sem aðgerðirnar hefjast á. En hvað svo? Hvað gera allir þeir nemendur sem ekki geta lokið stúdentsprófi vegna nýrra og hertra reglna? Hætta þeir í skólanum og lifa á foreldrum sín- um fram á ellilífeyrisaldurinn? Nei, þeir fara einfaldlega aftur í skólann og ljúka prófum. Þannig minnkar kostnaðurinn á hvem nemanda ekki neitt. Skammsýni stjórnmálamann- anna er með ólíkindum. Það er augljóst að þessar aðgerð- ir munu ekki skila neinum árangri þegartil lengri tíma er litið. Einung- is er horft til dagsins í dag ef það er þá hugsað svo langt. Reyndar hefur menntamálaráðherra lýst því yfir að skólameisturum sé frjálst að ná þessum sparnaði með hvaða leiðum sem þeir kjósa. Engar til- skipanir verði gefnar. Þvílík ein- feldni. Það vita allir sem við þessi mál starfa að skólamir komast ekki af með minna fjármagn ef halda á nánasta systir, allt til þess að hún dó 1982. Margrét bjó á heimili þess- arar frænku sinnar mikið til, þar til hún giftist sjálf. Margrét gekk í bamaskóla á Akranesi og unglingaskóla þar, en um eiginlegt framhaldsnám var ekki að ræða. Hins vegar lærði hún karl- mannafatasaum í tvo vetur á ámn- um fyrir tvítugt og kom það nám henni vel, þegar hún varð ekkja með tvö böm, bæði kornung. Fjölbreytni í atvinnulífi var ekki mikil á þessum ámm, en Margrét gekk að því sem gafst, fiskinum á Akranesi og víðar, kaupamennsku í sveit eða vist á velmetnu heimili. Akranes var þá frægt fyrir góðar kartöflur og fagrar konur. Það var viðhæfi. Árið 1928 giftist Margrét Áma Guðmundssyni (f. 1899), sjómanni frá Heimaskaga á Akranesi. Þau að ekki er réttlætanlegt að skerða lífeyri þeirra . BHMR vill vekja at- hygli á því að þessar ráðstafanir og einnig skerðing barnabóta og sjó- mannafsláttar þýða í raun að ríkis- stjórnin hefur komið á nýju skatt- þrepi sem einungis nær til þessara hópa, bamafólks, lífeyrisþega og þeirra sem hafa atvinnu af sjó- mennsku. BHMR mótmælir þessum aðgerðum sérstaklega fyrir þá sök að þær skapa óöryggi um þau grundvallarréttindi sem fólk hefur aflað sér. BHMR vill að lokum benda á að ríkisvaldið gat aflað þeirra fjármuna sem sparast við ofan- greindar aðgerðir með því að taka tillit til fjármagnstekna við ákvörð- un um tekjutryggingu. „Menntastefna ríkis- stjórnarinnar ber æ meiri keim af því að það eru krónurnar en ekki kunnáttan sem skipta máli þegar möguleikar til náms eru annars vegar. f nútímaþjóðfé- lagi verður menntun æ mikilvægari ef stefna á til framfara. Sú þróun á ekki eftir að snúast við, svo mikið er víst. Það er sorgleg stað- reynd að núverandi ráðamenn þjóðarinnar hafa misst sjónar á þeim markmiðum sem munu skila íslensku þjóðinni mestum arði þegar fram í sækir.“ uppi óskertri kennslu. Allar þessar aðgerðir miða að skammtíma- markmiðum þar sem vandanum er velt á undan sér rétt eins og venju- lega. Hvað er til ráða? Ef menntakerfið er skoðað niður í kjölinn koma í ljós ýmsir augljósir gallar sem hafa mikinn kostnað í för með sér fyrir skólana. Alla sam- ræmingu vantar á milli mismunandi skólastiga. Þegar nemendur eru að ljúka grunnskólaprófum skiptir minnstu máli hvort þeir standast þau próf eða ekki, framhaldsskól- amir standa þeim opnir hvort sem hófu búskap sinn í leiguíbúð á Akra- nesi, á Grímsstöðum, sem nú myndi líklega vera Vesturgata 52, ef það hús stæði þar enn. Þau eignuðust tvær dætur, 1929 og 1931. Þau hugðu nú til húsbyggingar og fengu lóð á Vesturgötu 61, en Árna auðn- aðist aldrei að gera þá lóð að meiru en kartöflugarði, því hann veiktist af berklum eftir þriggja ára hjóna- band, var á Vífilsstaðahæli í eitt ár og lést 1932. Þá fóru erfið ár í hönd hjá ekkj- unni með litlu dæturnar tvær, og engar vom tryggingamar þá til að létta fátækum lífsbaráttuna. En dugnaður og útsjónarsemi þessarar þrítugu konu hefur verið með af- brigðum. Hún reisti tveggja hæða hús á lóðinni sinni og flutti inn í það 1936 fullfrágengið, en hún þurfti að vísu að leigja út mestan hlutann af því húsnæði til að bjarga fjármálum sínum. Hún var þó kom- in í eigið húsnæði og hluti af lóð- inni var eftir til kartöfluræktar. Ekki nægði það þó til framfærslu, heldur stundaði hún fatasaum hjá Árna Ingimundarsyni klæðskera- meistara, samfellt í níu ár, að mestu leyti í heimahúsum. Þá tók við ýmiskonar vinna, verslunarstörf m.a., en vinnan við fiskinn var þó alla tíð síðan hennar aðalstarf. Lengst af mun hún hafa unnið hjá Haraldi Böðvarssyni & Co., en hún var einnig allmörg sum- ur við síldarsöltun fyrir norðan og austan, á Siglufirði, Raufarhöfn og í Neskaupstað. Ekki lét hún deigan síga við þessi erfíðu störf, fyrr en hún var komin hátt á áttræðisaldur, og á síðasta sumri ræktaði hún enn þá garðinn sinn. Eins og áður segir eignaðist Margrét tvær dætur. Sú eldri, Sig- ríður, er bæjarbókavörður við Bæj- ar- og héraðsbókasafnið á Akra- nesi, gift Braga Níelssyni lækni. Þau eiga 4 börn, 9 barnabörn og eitt bamabarnabam, svo þar er kominn Heimir Örn Herbertsson er. Nemendur bera því enga virð- ingu fyrir þeim áfanga að komast á æðra menntastig. Framhaldsskól- arnir þurfa að taka við öllum þeim nemendum sem þangað vilja fara burtséð frá getu þeirra til að stunda nám. Hvers vegna þurfa nemendur ekki að sýna fram á einhvem árang- ur eftir margra ára skólasetu? Þeg- ar kemur í framhaldsskóla endur- tekur sagan sig. Stúdentsprófið er illa lagað að frekara námi sem sýn- ir sig í slökum árangri margra nem- enda sem fara í háskóla. Otrúlega margir komast upp með að drattast í Háskóla íslands með lágar eink- unnir af því að allan gmnn til menntunar vantar þar sem þeir geta svo verið að þreifa sig áfram á námslánum ámm saman. Hvers konar kerfi er þetta? Hagsmunum hverra á það að þjóna? Raunverulegar lausnir Það á að skylda nemendur til að hafa ákveðna lágmarksþekkingu ef þeir vilja halda áfram námi eftir gmnnskólas. Það á að samræma kennslu í framhaldsskólunum við HÍ þannig að nemendur séu betur undirbúnir fyrir nám á því stigi. Það á að gera nemendum að stand- ast próf ef þeir vilja stunda nám í skólum landsins. Fyrr í þessari grein minntist ég á afleiðingar þess fimmti ættliðurinn. Yngri dóttirin, Amfríður, er húsmóðir á Vesturgötu 61, þar sem þær hafa búið allt frá 1936. Arnfríður er gift Sólberg Björnssyni skipasmið og eiga þau 3 syni og 7 barnabörn. Ekki veit ég með vissu hversu mikið Margrét hefur skipt sér af félagsmálum, en þó held ég, að hún hafi ekki mikið gefið sig að forystu í þeim málum, en í þess stað verið góður og ötull félagsmaður þar sem hún hefur átt þátt að. í ungmenna- félagi var hún, enda vafalaust flest ungt fólk þess tíma í slíku félagi, því þar brann hugsjónaeldur alda- mótakynslóðarinnar, þeirrar kyn- slóðar, sem fölskvalausast og óeig- ingjamast hefur unnið landi sínu og þjóð. I stjórnmálum hafði Margrét sig ekki í frammi, en hún mun þó að jafnaði hafa fylgt Alþýðuflokknum að málum og kosið hans menn til sveitarstjóma, en til þings kaus hún að banna nemendum að ljúka fleir- um en 35 einingum á ári. Ef nem- andi fellur á einu prófi þá seinkar honum um eitt ár. En allir geta misstigið sig á leiðinni að lokamark- inu. Ef ekki er gefið tækifæri til að bæta fyrir mistökin í tíma þá hefur menntakerfið villst langa leið frá upphaflegu markmiði sínu. Að lokum er einn þáttur sem ekki hefur verið minnst á en það er gildi verkmenntunar í íslenska menntakerfínu. Á undanförnum árum hefur verið litið á verkmennt- un sem annars flokks menntun. Bóknám hefur setið í öndvegi. Ef vegur verkmenntunar verður auk- inn þá munu margir hefja nám fyrr á sviðum sem þeim henta. Fjölda- margir hefla nám í bóknámsskóla og eru þar í eitt til tvö ár að kom- ast að því að bóknám á ekki við þá og árangurinn er oftast eftir því. Framtíðarsýn Framtíðarsýn nemenda í dag er ekki björt. Það stefnir í minnkandi þjónustu í framhaldsskólunum. Lánasjóður íslenskra námsmanna hefur verið skertur svo að sú aðstoð sem nemendur geta fengið úr hon- um er að snúast uppí hálfgerðan skrípaleik. Forráðamenn HI hafa orðið að minnka þjónustu við nem- endur vegna bágrar fjárhagsstöðu. Menntastefna ríkisstjórnarinnar ber æ meiri keim af því að það eru krónumar en ekki kunnáttan sem skipta máli þegar möguleikar til náms em annars vegar. í nútíma- þjóðfélagi verður menntun æ mikil- vægari ef stefna á til framfara. Sú þróun á ekki eftir að snúast við, svo mikið er víst. Það er sorgleg staðreynd að núverandi ráðamenn þjóðarinnar hafa misst sjónar á þeim markmiðum sem munu skila íslensku þjóðinni mestum arði þegar fram í sækir. Það er von mín að ráðherrar rík- isstjómarinnar staldri við og hugsi málið til enda. Hætti að segja eitt í dag og annað á morgun. Það er kominn tími til að svörin við vanda- málum dagsins í dag verði einnig svörin á morgun. Höfundur er formaður Nemendafélags Menntaskólans í Kópavogi. alltaf sjálfstæðismanninn Pétur Ottesen, enda var hann bindindis- maður auk annarra kosta. Já, Bakkus var enginn vinur hennar, og hún var snemma í stúku og er enn, og starfaði þar lengi. Meðal áhugmála stúkunnar í upp- hafi var bygging sjúkraskýlis, sem svo hét þá. Stúkan stóð fyrir stofnun bygg- ingarsjóðs, og sé ég Margréti í söng- kór, sem stofnaður var til fjáröflun- ar fyrir sjóðinn. Sá sjóður varð síðan upphafsfjármagn til byggingar Sjúkrahúss Akraness. Margrét hafði dálæti á söng, og söng ekki aðeins með stúkunni, heldur var hún í kirkjukórnum í §ölda ára, allt frá 12 ára aldri. Margrét er trúuð kona og hefur auk kirkjustarfsins verið virkur þátttak- andi og félagi í starfi KFUM og K og er enn. Ég kann ekki við að ausa Mar- gréti Pétursdóttur lofi og á hún það þó margfaldlega skilið. Þessar línur lesa sennilega fáir aðrir en þeir sem hana þekkja og fyrir þeim þarf ég ekki að tíunda ágæti þessarar merku konu, og væmið væri að segja frá, hversu ágæt og elskuleg hún hefur verið mér í alla staði. Ég veit einnig að samferðarfólk hennar í félagsskap og starfi ber til hennar alveg sérstakan hlýhug. Mér er það t.d. minnisstætt, fyrst eftir að ég flutti hingað til Akra- ness, að ef ég, aðkomumaðurinn, kynnti mig gömlum Skagamönnum sem tengdason Möggu P., þá hlaut ég að vera ágætismaður og vel tæk- ur í samfélag útvalinna. Níutíu ár er hár aldur og „víst er gaman að hafa lifað svo langan dag“, ekki síst fyrir þá, sem eins og Margrét, halda svo frábærlega andlegri heilsu, þó hin líkamlega sé farin að slakna. Ósk mín er, að auðnan megi veita henni fagurt og gott ævikvöld. Bragi Níelsson. Afmæliskveðja: Margrét Pétursdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.