Morgunblaðið - 21.01.1992, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1992
29
Svíþjóð
Tvö eignarhaldsfélög Wallen-
berg samsteypunnar sameinast
ÁKVEÐIÐ hefur verið að sam-
eina eignarhaldsfélögin Inve-
stor og Providentia sem mynda
kjarna Wallenberg-iðnaðarsam-
steypunnar í eitt félag undir
nafni Investor.
Sameiningunni er ætlað að ein-
falda innri gerð Wallenberg-veldis-
ins og auka greiðslugetu fyrir-
tækisins á fjármagnsmörkuðum í
Svíþjóð sem og erlendis. Breyting-
unni er einnig ætlað að auka arð-
semi hlutafjár hluthafa til langs
tíma. Peter Wallenberg, stjórnar-
formaður beggja félaga, sagði að
erfitt hefði verið að skýra upp-
byggingu félaganna fyrir erlend-
um fjárfestum.
Heildareignir hins nýja félags
verða um 850 milljarðar íslenskra
króna en í dag er talið að heildar-
Tryggingastarfsemi
verðmæti hlutaijár þeirra sé um
275 milljarðar króna. Hluthafar
Providentia munu eiga um 60% í
nýja félaginu en sameiningin fer
þannig fram að hlutabréfum þeirra
verður skipt út fyrir bréf í nýja
félaginu. Sérstakur aðalfundur
verður haldinn hjá Providentia 19.
desember þar sem mælt verður
með tillögunni og þykir næsta víst
að hún verði samþykkt.
Investor var stofnað árið 1916
af Wallenberg Enskilda-bankan-
um í kjölfar nýrrar löggjafar um
fjárfestingar banka. Providentia
var stofnað árið 1946 sem eins
konar systurfélag Investors innan
Wallenberg-veldisins. Wallenberg-
fjölskyidan mun eiga um 25% hlut-
afjár hins nýja félags og fara með
26,1% atkvæðamagns.
Félögin tvö eru að mörgu leyti
svipuð. Eignaraðildin er svipuð,
starfsemin og reksturinn byggja á
sömu stefnu og aðferðum og sam-
an eiga þau stóran hlut í Saab-
Scania. Einnig sitja mikið til sömu
menn í stjórnum þeirra.
Claes Dahlberg verður áfram
aðalforstjóri Investors en aðalfor-
stjóri Providentiu, Per Lundberg,
verður sérstakur fulltrúi hans.
Aðstoðarforstjórar verða Bo Berg-
gren og Anders Scharp, stjórnar-
formaður Electrolux.
STJÓRNARFORMAÐUR —
Peter Wallenberg er stjórn-
arformaður beggja félaganna
sem sameinast, Investor og
Providentia.
Frakkland
Motorola ogAlcatel
gera samning vegna
Evrópska farsímanetsins
Búist við verulegum
breytingum hjá Lloyds
Enska tryggingafélagið Lloyds
hefur átt við mikla erfiðleika að
elja að undanförnu eins og fram
hefur komið í fréttum og tapað
miklu fé á skömmum tíma. Kem-
ur þetta allt fram í viðamikilli
skýrslu um fyrirtækið, sem var
birt í London um miðjan mánuð-
inn, en þar er lagt til, að veruleg-
ar breytingar verði gerðar á
uppbyggingu þess.
Um 300 ára skeið hefur venjan
verið sú, að Lloyds-félagarnir eða
meðlimir fyrirtækisins hafa ábyrgst
tryggingarnar með öllum eigum
sínum, en lagt er til, að í þess í
stað verði teknar upp endurtrygg-
ingar eins og tíðkist hjá öðrum
tryggingafélögum. Þá er ennfremur
talað um, að tekin verði upp eigin-
leg hlutaijáreign og í framhaldi af
því, að hluthafar fái meiri aðgang
að upplýsingum og meiri aðild að
stjórnun fyrirtækisins en verið hef-
ur.
Styrkur Lloyds og á seinni árum
veikleiki félagsins er hin sérstaka
uppbygging þess. Lloyds er að þvi
leyti ólíkt öðrum tryggingafélögum,
að það er í raun ekki tryggingafé-
lag. Réttara er að tala um „mark-
Sænska stjórnin hefur ákveðið
að nema úr gildi lög, sem banna
meirihlutaeign útlendinga á
hlutabréfum í sænskum fyrir-
tækjum. Segir Anne Wibble fjár-
málaráðherra, að þetta verði
gert á þessu ári eða því næsta,
að minnsta kosti áður en Evrópu-
bandalagið krefst þess vegna
væntanlegrar aðildar Svía.
Svíar sóttu um aðild að Evrópu-
bandalaginu 1. júlí á síðasta ári og
vonast til að fá hana á árinu 1995.
Sænsku hlutafélagalögin samrým-
ast hins vegar ekki reglunum innan
EB og raunar er ekki alveg ljóst
hvaða reglur koma til með að gilda
um þessi efni innan Evrópska efna-
hagssvæðisins ef af því verður.
Um áramótin varð einnig sú laga-
breyting í Svíþjóð, að fyrirtæki geta
nú breytt forgangsbréfum í venju-
leg hlutabréf án formlegs leyfis frá
yfirvöldum. Forgangsbréfunum
hefur fylgt og fylgir miklu meiri
atkvæðisréttur en venjulegum bréf-
um og í skjóli þeirra hafa sumir
sænskir iðnjöfrar, til dæmis Wallen-
að“, sem samanstendur af „hóp-
um“, samtökum, og „nöfnum", ein-
staklingum, sem ábyrgjast persónu-
lega að greiða hugsanlegt tap en
njóta líka hagnaðarins þegar um
hann er að ræða.
Um áratugaskeið hafa „nöfnin“,
ávallt menn í góðum efnum, haft
góðar og oft mjög miklar tekjur af
starfseminni en um miðjan síðasta
áratug varð breyting þar á. Ollu
því meðal annars náttúruhamfarir
ýmiss konar, fellibylir og eldgos,
og óhöpp eins og skipskaðar. Afleið-
ingin var mikið og vaxandi tap.
Byijað var á fyrrnefndri skýrslu
í nóvember 1990 þegar fyrirsjáan-
legt þótti, að mikill taprekstur væri
framundan og þróunin reyndist
raunar alvarlegri en nokkurn grun-
aði. Fyrir liggur uppgjör fyrir 1988
og þá töpuðu „nöfnin“ 57 milljörð-
um ÍSK. og búist er við, að þegar
reikningarnir fyrir 1989 liggja á
borðinu síðar á árinu verði útkoman
enn verri. Áætlað er, að um 9.000
„nöfn“ eigi í verulegum fjárhagserf-
iðleikum af þessum sökum. Þá hafa
um 8.000 „nöfn“ yfirgefið Lloyds á
síðustu tveimur árum þannig að nú
eru Lloyds-„nöfnin“ talin vera
22.500.
berg-fjölskyldan, getað ráðið fyrir-
tækjum án þess að eiga meirihluta
í raun.
Á síðasta ári neyddust 47.777
fyrirtæki í Bretlandi til að hætta
rekstri eða urðu gjaldþrota og
var það hvorki meira né minna
en 65% aukning frá árinu áður.
Kemur þetla fram ly'á fyrirtæk-
inu Dun & Bradstreet, sem miðl-
ar upplýsingum um atvinnulífið.
Á síðustu þremur mánuðum lið-
ins árs var 995 fyrirtækjum lokað
í hverri viku en um 900 framan af
árinu. Á árinu 1990 var 28.935
fyrirtækjum lokað og hafði þá fjölg-
TVEIR af stærstu framleiðend-
um heims á sviði fjarskiptabún-
aðar, Motorola og Alcatel í
Frakklandi, hafa undirritað
samning sem veitir Alcatel leyfi
til að nota búnað frá Motorola.
Hann er háður einkaleyfuin Mot-
orola og er nauðsynlegur til að
gerast aðili að evrópska farsíma-
netinu (GSM). Motorola hefur
áður gert sambærilegan samning
við Spán, Þýskaland og Svíþjóð.
GSM-farsímanetið mun gera not-
endum kleift að hringja til 19
Evrópulanda.
Erik Hornun, yfirmaður sölu-
deildar hjá Motorola í Danmörku
segir að fyrirtækið vilji stuðla að
útbreiðslu opins GSM-kerfis til að
Bandaríska flugfélagið Americ-
an Airlines ætlar að segja upp
1.200 starfsmönnum sínum á
næstunni. Er aðallega um að
ræða fólk, sem unnið hefur í
skamman tíma hjá félaginu, til
dæmis við farangursafgreiðslu,
ræstingar og þess háttar.
Eftir mikinn uppgang í heilan
áratug er American Airlines nú
stærsta flugfélag í Bandaríkjunum
en það er svo aftur hluti af AMR-
samsteypunni. Hjá henni starfa nú
110.000 manns, helmingi fleiri en
1982. Á síðasta ári varð American
hins vegar ekki síður fyrir barðinu
að mikið frá 1988 þegar þau voru
16.652. Sú tala virðist raunar líka
vera nokkuð há og ekki síst með
tilliti til þess, að á þessu ári, 1988,
voru uppgangstímar. Til saman-
burðar má nefna, að á samdráttar-
árunum 1980-81 voru gjaldþrotin
10.650 og 13.200.
„Það, sem veldur mestum
áhyggjum, er, að ástandið virðist
fara versnandi," segir Philip Mellor
hjá D&B. „Gamalgróin fyrirtæki
fara nú yfir um ekkert síður en
nýgræðingarnir.“
tryggja viðskiptavinum sínum
gi-eiðan aðgang að GSM-farsíma-
neti annarra Evrópulanda. Þess
vegna leggi Motorola mikla áherslu
á að koma GSM-búnaði sínum á
markaði í öðrum löndum.
Þrátt fyrir samninginn við Motor-'
ola mun Alcatel halda áfram að
bjóða viðskiptavinum sínum eigin
búnað fyrir GSM-netið þar á meðal
símstöðvar og fjarskiptabúnað. Að
mati beggja fyrirtækjanna mun
opið net, þar sem í er búnaður frá
mörgum framleiðendum, styrkja
GSM-kerfið í heild sinni.
Fulltrúar Alcatel hafa meðal ann-
ars komið til íslands til viðræðna
við fulltrúa Landsvirkjunar um
framleiðslu á sækapli fyrir íslend-
inga.
á Persaflóastríði og hærra olíuverði
en önnur flugfélög og við þeim erf-
iðleikum er nú verið að bregðast.
Farþegaflutningar hafa að vísu
aukist aftur en ekki er búist við,
að hagur flugfélaganna fari al-
mennt að vænkast fyrr en með
vorinu.
PJENNINN SETUR
LAGT VORUVERÐ
AODDINN
0 ESSELTE
gatapokar A4 100 stk. í kassa
á kr. 560,- Þú sparar 140 kr.
1 iHl ]l\\l
HALLARMÚLA 2 • 813211
AUSTURSTRÆTl 18*10130
Svíþjóð
Hlutafélagalögum breytt
Bretland
Gjaldþrotum hef-
urfjölgað um 65%
Flug
Miklar uppsagnir
hjá American
PJENNINN setur
LAGT VORUVERÐ
AODDINN
C 260.12 stafir í skjó, rouður minus.
Hentug vél fyrir minna ólag.
Sértilboðsverð kr. 6.660,- Þú sparar 1.350,- kr.
HALLARMÚLA 2 » 813211
AUSTURSTRÆT118 »10130
PENNIHN SETUR
LAGT VORUVERÐ
AODDINN
LEITI
bréfabindi 25 stk. í kassa 6 kr. 5.500,-
Þú sparor l .700,- kr.
HALLARMÚLA 2 * 813211
AUSTURSTRÆT118 » 10130
PENNINN SETUR
LAGTVORUVERÐ
AODDINN
DISKLINGAR
3bt1,2“ HD 25 stk. í pakka
á kr. 2.320,-
Þú sparar 580 kr.
HALLARMÚLA 2 » 813211
AUSTURSTRÆT118* 10130'
Höfóar til
.fólks í öllum
starfsgreinum!