Morgunblaðið - 23.01.1992, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 1992
Hæstiréttur:
Nauðgnnardómar þyngd-
ir um sex o g níu mánuði
HÆSTIRÉTTUR hefur þyngl dóma sakadóms Reykjavíkur yfir
tveimur 27 ára mönnum í nýlegum nauðgunarmálum. Jónas Jónas-
son, sem í sakadómi hafði verið dæmdur til 18 mánaða fangelsisvist-
ar fyrir að nauðga 18 ára gamalli stúlku á heimili sínu í Breiðholti,
var í Hæstarétti dæmdur til 27 mánaða fangelsisvistar. Akvæði saka-
dóms um 500 þúsund króna miskabætur voru staðfest. Gauti Ólafs-
son, sem í sakadómi var dæmdur 118 mánaða fangelsi fyrir að nauðga
33 ára gamalli konu á hóteli í Reykjavík, var í Hæstarétti dæmdur til
2 ára fangelsisvistar. Akvæði sakadóms um 300 þúsund króna miska-
bætur voru staðfest. Dómar sakadóms í báðum málunum voru kveðn-
ir upp í nóvember en niðurstaða Hæstaréttar í þeim báðum liggur
nú fyrir.
Fyrrnefnda málið átti sér stað
milli jóla og nýárs 1990 á heimili
mannsins í fjölbýlishúsi í Breið-
holti. Fólkið hafði hist í fyrsta skipti
á veitingastað þetta kvöld og mað-
urinn hafði fengið stúlkuna með sér
heim til að sækja áfengi áður en
þau færu í samkvæmi. Móðir
mannsins og gestur hennar voru í
íbúðinni þegar nauðgunin var fram-
in. Eins og í sakadómi var fram-
burður þeirra um að þau hefðu
ekki orðið vör átaka talinn misvís-
andi og ómarktækur, og einnig
framburður mannsins, sem neitaði
sakargiftum en varð margsaga um
atburði. Frásögn stúlkunnar og
þeirra sem hún ræddi við strax eft-
ir atburðin var lögð til grundvallar
við sakfellinguna.
Fyrir Hæstarétt voru lögð gögn
um að atburðurinn hefði haft afar
miklar afleiðingar á andlega heilsu
stúlkunnar.
Síðamefnda málið átti sér stað í
júlí síðastliðnum á City Hóteli í
Reykjavík, þar sem fólkið, sem
kynnst hafði á veitingastað þetta
kvöld, hafði leigt sér herbergi. Þeg-
ar konan vildi ekki þýðast manninn
sló hann hana í öngvit þannig að
tvær tennur brotnuðu og kom fram
vilja sínum við hana. Maðurinn kom
á lögreglustöð og játaði á sig verkn-
aðinn í sama mund og konan lagði
þar fram kæru.
Hæstaréttardómararnir Guðrún
Erlendsdóttir, Gunnar M. Guð-
mundsson, Haraldur Henrysson,
Hrafn Bragason og Pétur Kr. Haf-
stein dæmdu bæði málin.
VEÐUR
/ DAG kl. 12.
f Hsimlld: VeOurstola islands
(Byggt á vefiurspákl. 16.151 gær)
1/EBURHORFUR í DAG, 23. JANÚAR
YFIRLIT: Yfir vestartverðu Grænlandshafi er lítii lægð að eyðast.en
um 1000 km suðsuðvestur í hafi er 960 mb lægð á hraðri leið
norðnorðaustur f stefnu á vestanvert ísland.
SPÁ: Á morgun verður lægð á norðausturleið yfir landið vestan-
vert. Þá verður frost að degi norðaustan, hvassviðri eða stormur-
með slyddu á Vestfjöröum og við Breiðafjörðinn, en stormur eða
rok á Suðausturiandi. Rigning vtða um land en síst þó á Norður-
iandi. Undir kvöld verður vindur vestiægari og víðast kaldur vind-
ur. Hiti 1-7 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Austan og suðaustanátt. Rigning eða
slydda einhvern hluta dagsins víðast hvar, einkum þó um landið
austanvert. Hiti 1-6 stig.
HORFUR Á LAUGARDAG:Norðvestan og vestanátt, nokkuð hvöss
noraustanlands. Snjókoma eða ól um landið norðanvert, en sunnan
og suðaustanlands léttir til. Vægt frost víða um land.
Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
^ Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * * * Snjókoma
* * *
■J0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
*
V B
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Sóld
CO Mistur
—Skafrenningur
[7 Þrumuveður
X 4
▼ 1 1 **
VEÐUR 1/ kl. 12.00 / rIÐA gæi hítí UM HEIM að ísl. tíma veður
Akureyri 1 téttskýjað
Reykjavik 0 snjóél
Bergen 4 hálfskýjað
Helsinki Kaupmannahöf 1 1 Ö alskýjað helðskírt
Narssarssuaq vantar
Nuuk vantar
Osló Stokkhólmur +4 2 ®t
Þórshöfn 7 skýjað
Algarve 13 heiðskfrt
Amsterdam +3 heiðskírt
Barcelona 4 súld
Beriln +8 þokumóða
Chicago 12 þokumóða
Feneyjar 0 snjókoma
Frankfurt +2 heíð8kírt
Glasgow 2 mistur
Hemborg *3 heiðskírt
London 3 léttskýjað
LosAngeles 9 heiðski'rt
Lúxemborg ♦3 léttskýjað
Madrid 6 heiðskírt
Malaga 11 mistur
Mallorca 11 skýjað
Montreal vantar
NewYork vantar
Orlando vantar
París vantar
Madeíra vantar
Róm 9 skýjað
Vin *2 mistur
Washington vantar
Winnipeg •f8 þokumóða
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Guðbjörg Guðmannsdóttir með kartöflurnar sínar.
Kartöflur teknar upp
á Þórshöfn í janúar
Þórshöfn.
EITTHVAÐ er bogið við veðurfarið hér á Fróni þegar hægt er
að fara út í kartöflugarð í miðjum janúar og taka þar upp
dýrindis kartöflur og það á jarðhitalausu svæði. Þetta gerði
Guðbjörg Guðmannsdóttir, hótelstýra á Hótel Jórvík.
Hún hafði í haust skilið eftir
grös í garðinum og datt í hug
að gera nú gestina undrandi.
Ekki urðu hótelgestir fyrir von-
brigðum því inn kom Guðbjörg
með fullt fat af stórum og góðum
kartöflum sem þeir fengu með
steikinni.
Guðbjörg segist ekki muna
eftir öðru eins þau ár sem hún
hefur búið hér að vetri til.
- L.S.
Kanaríeyjar:
Misjöfn þjónusta við
Veraldarfarþega
„Á þessu hóteli höfum við ekki orðið fyrir neinum frekari óþægind-
um, en þar sem harðast var gengið að fólki hefur þvi jafnvel verið
meinað um afgreiðslu á börum og hótelherbergin ekki verið þrif-
in,“ sagði Hafdís Stefánsdóttir, einn farþega ferðaskrifstofunnar
Veraldar á Kanaríeyjum, í samtali við Morgunblaðið í gær.
Farþegar Veraldar, sem fóru til
Kanaríeyja með leiguflugi 2. jan-
úar, koma heim í kvöld. Hafdís
sagði, að svo virtist sem hún og
aðrir veraldarfarþegar, sem gistu á
Hótel Coala, muni sleppa við öll
vandræði í kjölfar gjaldþrots ferða-
skrifstofunnar. „Mér skilst að á
hótelinu Green Oasis, þar sem farið
var fram á að fólk greiddi 20 þús-
und peseta fyrir hóteldvölina, hafi
aðeins tveir greitt," sagði hún. „Þar
er viðmót starfsmanna afar leiðin-
legt og einn gestur þar sagði mér
að íslendingarnir fengju ekki af-
greiðslu á börum hótelsins og hótel-
herbergin væru ekki þrifin. Sumir
hafa haft á orði að þeir væru tilbún-
ir til að borga það sem upp væri
sett til að losna við svona leiðindi
í fríinu sínu, en eins og ég sagði
hafa fáir greitt. Á þessu hóteli gerð-
um við mönnum grein fyrir að við
myndum ekkert borga til viðbótar,
en höfum samt fengið jafn góða
þjónustu og aðrir gestir. Það er
allt gott sem endar vel,“ sagði
Hafdís Stefánsdóttir.
Einar Oddur Krisljánsson:
VSI hefur gert út-
tekt á bankakerfinu
EINAR Oddur Kristjánsson, formaður Vinnuveitendasambands ís-
lands, segir að sambandið hafi gert úttekt á kostnaði við íslenska
fjármálakerfið og niðurstöður þessarar úttektar verði birtar í næsta
fréttabréfi VSÍ, sem sé væntanlegt í næstu viku. Þar komi meðal
annars fram að íslenska bankakerfið sé miklu dýrara en í samkeppni-
slöndum okkar.
Einar Oddur sagði ennfremur að
miklar vonir hefðu verið bundnar
við fyrirætlanir um hagræðingu og
sparnað í bankakerfínu fyrir tveim-
ur árum, en því miður hefðu þeir
orðið fyrir miklum vonbrigðum með
efndirnar. „Auðvitað þykjast þeir
vera að ná árangri en við höfum
engin teikn séð um það ennþá. Þvert
á móti virðist vera á síðustu misser-
um að bankarnir hafi talið sig þurfa
á meiri peningum að halda. Sannar-
lega er það óskandi að árangur í
þessum efnum fari að sjást. Atvinn-
ulífið á allra hagsmuna að gæta
að bönkunum takist þetta og ef við
getum orðið að liði við að bæta
starfsaðstöðu þeirra þá erumn við
reiðubúnir,“ sagði Einar Oddur enn-
fremur.