Morgunblaðið - 23.01.1992, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANUAR 1992
31
Að hvorum lífsstílnum stuðlar framhaldsskólinn?
skuli nú talið að skerða fjárveit-
ingu til skólanna á næsta skóla-
ári. Ef slíkar ráðstafanir verða
óumflýjanlegar ber að varast
ákvarðanir sem sérstaklega leggj-
ast á einn þátt skólastarfsins frek-
ar en annan. Vert er að minnast
þess að þeir sem hafa haft með
niðurskurð eða breytingar á skóla-
kerfinu að gera á undanfömum
10-15 ámm (bæði í grunn- og
framhaldsskólum) hafa haft til-
hneigingu til að skera fyrst af
stundum til íþrótta skólanna. Þeg-
ar spurt er hvers vegna, verður
fátt um fagleg svör.
Við skulum víkja að almennri
íþróttakennslu í framhaldsskólum.
Meginmarkmið hennar er að leit-
ast við að fá nemendur til að
stunda íþróttir, líkamsrækt og
heilsuvemd og gera þá ábyrga og
betur í stakk búna til að sjá um
sína líkamsuppbyggingu sjálfír að
námi loknu.
í nýrri stefnumótun um íþrótta-
iðkun í framhaldsskólum höfum
við íþróttakennarar ekki kastað til
hendinni heldur unnið markvisst
að þróun kennslunnar svo hún
megi verða hveijum og einum
framhaldsskólanema faramesti
inn í komandi tíma. Um þetta em
skólameistarar framhaldsskóla vel
upplýstir. Þeir vita einnig að vel
hefur til tekist. íslenskt þjóðfélag
er á leið inn í tíma þróunar og
tækni þar sem líkamleg áreynsla
er meir og meir að víkja fyrir sjálf-
virkni og hagræðingu. Lífsstíll
þjóðarinnar ýtir nú undir hreyfíng-
arleysi hjá börnum og unglingum.
Frístundum er í auknum mæli
eytt fyrir framan sjónvarp og tölv-
ur og líkamleg áreynsla er í lág-
marki. Fæðuval er oft einhæft og
lélegt meðal bama og fullorðinna.
Slíkt stuðlar að enn frekari hreyfí-
tregðu. Afleiðingamar em óhjá-
kvæmilega veikbyggt blóðrásar-
og stoðkerfí, léleg samhæfíng og
stirðleiki. Hjá börnum og ungling-
um birtist þetta aðallega í lélegum
líkamsburði, lífskrafturinn dvín.
Hvað þarf til að viðhalda lífí
mannvemnnar vita fáir betur en
góðir líffræðingar. Eigi námið,
þekking á líkama og líkamsrækt
að hafa eitthvert gildi þarf að
tengja það hagnýtri reynslu með
áherslu á verklega þáttinn. Heilsu-
gæsla okkar hefur aðallega miðast
við að lækna sjúkdóma en ekki
að koma í veg fyrir þá, en sem
betur fer er þetta að breytast.
Skólamir em einn mikilvægasti
hlekkurinn í fyrirbyggjandi heilsu-
gæslu þjóðarinnar. Eigum við ekki
að líta á það sem hvatningu í starfí
og vinna út frá þeirri forsendu?
Með því að skerða íþróttir í skólum
er um leið verið að grafa undan
helstu stoðum heilbrigðiskerfísins.
Kínverskt spakmæli frá Kuan-
tzu sem uppi var um 600 f.Kr.
segir: „Ef mönnum er gefínn físk-
ur, þá fá þeir mat þann daginn.
Sé þeim kennt að veiða, þá hafa
þeir mat ævina á enda.“ Okkar
dýrmætasta eign er heilsan. Þegar
hana brestur er fátt eftir.
Höfundur er (þróttakennari og
starfar sem námstjóri ííþróttum
við menntamálaráðuneytið.
VINNUVERND
Hléæfingar
Nútímatækni hefur haft í för Minnka má um leið hættuna á
Þorgeir
Óskarsson
með sér ýmis einhæf störf sem
reyna oft óhóflega mikið á vissa
líkamshluta. Veldur þetta auk-
inni hættu á
vöðvabólgu,
slitsjúkdómum,
blóðrásartrufl-
unum og vinnu-
leiða. í mörgum
fyrirtækjum, þó
einkum í físk-
iðnaði, hefur
verið komið á
fót hléæfingum
til að minnka
þessa hættu.
Flestir kann-
ast við þessa hugmynd frá Japan
en þar hafa hléæfingar verið
stundaðar um árabil í fyrirtækj-
um. Kínveijar eiga þó líklega
sterkustu hefðina í þessum efn-
um og eru þar til reglugerðir sem
kveða á um að vissar starfsstétt-
ir skuli framkvæma heilsubæt-
andi æfingar í vinnutímanum.
Vestrænum þjóðum þótti þetta
spaugilegt til að byrja með en
nú þykja hléæfingar víða sjálf-
sagður þáttur í vestrænum fyrir-
tækjum.
Markmið hléæfinga
A. Minni vöðvaþreyta.
Þegar vöðvi spennist þrýstir
hann á þær æðar sem í honum
liggja og stöðva að miklu leyti
blóðflæðið um þær. Um leið
stöðvast flutningur á næringar
og úrgangsefnum til og fá vöð-
vanum og við förum að finna
fyrir þreytu. Þreytan lýsir sér í
almennri eða staðbundinni vanl-
íðan, minnkuðum krafti og
minnkaðri færni, sem leiðir svo
aftur af sér slysahættu. Sí-
spenntir vöðvar eiga erfiðast
með að sinna kröfunni um aukið
blóðflæði en það ástand vöðva
má oft fínna hjá fólki sem vinn-
ur einhæfa störf. Má þar nefna
nákvæmnisvinnu sem krefst
samhæfingar hugar, handa og
sjónar, t.d. þegar unnið er við
snyrtingu á físki, vélritun, rafs-
uðu, pijónaskap eða hárgreiðslu
svo eitthvað sé nefnt. Aðalhreyf-
ingin á sér þá stað í höndum,
en herðar og háls eru eins og
sett í skrúfstykki með síspennt-
um háls- og herðavöðvum til að
auka stöðugleika og nákvæmni
handa. Með vissum æfíngum má
slaka á spennunni í fyrrnefndum
vöðrum svo blóðið nái að næra
þá. Þannig má minnka eða
seinka þreytu í þessum vöðvum.
vöðvabólgu og slitsjúkdómum,
því þreytan er undanfari þeirra
sjúkdóma.
B. Eðlilegur teygjanleiki
vöðva og hreyfanleiki liða.
í einhæfum störfum, einkum
þar sem mikið er um bundnar
hreyfingar, eins og lýst er að
ofan, er helst hætta á að vöðvar
og liðbönd stífni og styttist.
Hreyfiferill liða minnkar þá, og
þegar maður hreyfir sig kippir
fyrr í þessa vefi en eðlilegt er,
við verðum m.ö.o. stirðari og
meiri hætta verður á tognun.
Reyndar er það þannig, að fá
störf krefjast þess að maður
noti hreyfiferilinn að einhverju
marki. Flestum er því nauðsyn
að gera teygjuæfingar reglu-
lega. Margar einfaldar æfingar
sem beint er að þeim svæðum
sem helst eru í hættu henta vel
til að gera í vinnutímanum. Sem
dæmi mætti nefna æfinguna að
halla höfði til hliðar til þess að
teygja á herðavöðvum og hliðart
virkni biáæðapumpunnar.
Það er helst í ganglimum sem
við verðum að hugsa um að halda
svokallaðri blá-
æðapumpu sí-
virkri. Blóðið
er drifið áfram
í átt til hjart-
ans með sam-
drætti fót-
leggjavöðva
t.d. þegar við
göngum. Ef við
sitjum lengi
eða stöndum í
sömu sporum
kemst blóðið í
fótleggjum
takmarkað
áfram, aukinn
þrýstingur myndast í æðunum
og hætta verður á myndun æða-
hnúta og bjúgs. Ganga, létt
skokk á staðnum og ökklakrepp-
ur og -réttur koma því að góðum
notum við að koma bláæðapump-
unni í gang.
D. Minnkun streitu og bætt-
ur starfsandi.
Hléæfingar auka fjölbreytn-
ina í vinnunni og minnka þannig
leiða, þær veita slökun þegar
gert er hlé á afkastahvetjandi
(bónus), streituvaldandi vinnu
og eru líklegar til þess að auka
samkennd meðal starfsfólks og
þannig bæta félags- og starf-
sandann. Einnig minna þær á
æskilegar vinnustellingar og
umhugsun um líkamann.
Uppbygging hléæfinga
Hléæfingar innihalda oftast
súrefniskræfar blóðstreymis-
aukandi æfingar eins og göngu
eða skokk á staðnum, ferilsæf-
ingar sem innihalda stórar
hreyfingar í liðum, teygjuæfing-
ar, slakandi æfingar og önduna-
ræfíngar. Fer það eftir starsem-
inni í fyrirtækinu á hvers konar
æfingar áhersla er lögð.
Jafnvel þótt ekki sé kostur á
því að taka þátt í sérstöku hléæf-
ingaprógrammi væri hægt að
læra vissar æfingar til þess að
nota í starfi bæði heima og að
heiman.
Tímalengd hléæfinga er oftast
4 til 6 mínútur og eru æfingarn-
ar þá framkvæmdar tvisvar sinn-
um á vinnudeginum. Þau hléæf-
ingaprógrömm sem komið hefur
verið á fót í fyrirtækjum hér á
landi eru oftast spiluð af hljóð-
snældum þar sem æfingunum
er lýst og tónlist leikin með.
Það er vert að taka fram að
hléæfingar eru fáar og taka
stuttan tíma. Þær auka því
hvorki styrk né þol að neinu
marki og koma því ekki í stað
líkamsþjálfunar sem allir ættu
að standa að minnsta kosti tvi-
svar til þrisvar sinnum í viku.
Árangur af hléæfingum
Á vegum héraðslæknisemb-
ættisins á Norðurlandi eystra
gerðu Magnús H. Ólafsson
sjúkraþjálfari og Ólafur H.
Óddsson héraðslæknir könnun á
áhrifum hléæfínga á 315 konur
í 9 frystihúsum. Niðurstaða
þeirrar könnunar var sú að flest-
ar konurnar sögðust hafa gagn
af æfíngunum, að þær hefðu
minni vöðvaverki og að æfíng-
arnar hefðu jákvæð áhrif á starf-
sandann. í ljós kom einnig að
fjarvera vegna veikinda minnk-
aði hjá þriðjungi kvennanna.
Hléæfingar eru þvi bæði hagur
starfsfólks og atvinnurekanda.
Höfundur er sjúkraþjáifari.
Við bjóðum allar helstu
tryggingar á hagstæðu verði!
Segðu upp tryggingunni þinni
með mánaðar fyrirvara og
notaðu tímann til að bera
saman iðgjöld trygginga-
félaganna!
Við erum við símann 12 tíma á dag,
frá 9 til 21. Sími 629011.
Grænt númer 99 6290.
Skandia
Island
w