Morgunblaðið - 23.01.1992, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANUAR 1992
43
Eyðsla út yfir allt velsæmi
Er þjóðinni sjálfrátt — liggur
við að spyija. Hvar er allt þjóðar-
stoltið og allt stærilætið? Liggur
það kannski í öllum utanlandsferð-
unum, sem eru alveg sér kapituli
út af fyrir sig. Ætli í víðri veröld
sé önnur eins fjársóun og flækings-
hyggja, að allt að helmingur þjóðar
sé á faraldsfæti utanlands á einu
ári? Hvað kostar slíkt þjóðarbúið?
Ekki síst með tilliti til fjarlægðar
landsins frá öðrum löndum.
Það verður að gjörbreyta um
stefnu á íslandi ef við ætlum ekki
að sigla öllu í strand. Hér er í raun-
inni allt að fara í rúst, undirstaða
þjóðfélagsins einskis metin, og
þúsundir manna í lítilsverðum
störfum á svimháu kaupi þó, en
þeir sem skapa sjálf verðmætin lifa
við sultarlaun og í engu samræmi
við raunveruleikann og mannsæm-
andi laun, slíkt misrétti og ófremd-
arástand sem orðið er í kaupgjalds-
málunum, þar sem einum starfs-
manni er greitt helmingi meira eða
jafnvel þrefalt, heldur en öðrum.
Það verður að snúa við blaðinu
— hefja sókn til bættra lífskjara
með margvíslegum aðgerðum.
Jafna kaupgjald í landinu, lækka
vextina auk margs annars, en fyrst
og fremst verður að stöðva hina
hrikalegu eyðslu, sem gengur út
yfir allt velsæmi. Þar eiga stjórn-
málamenn mikla sök. Þeir hafa
leyft sér að bruðla svo með almenn-
ingsfé að með ósköpum er. Á árinu
1989 fengu þeir greitt af almanna-
fé nær heilan milljarð króna í utan-
landsferðir.
Þessi þjóð, sem er ekki fjölmenn-
ari heldur en lítið borgarhverfi út
í hinum stóra heimi, verður að
gæta hófs í hvívetna og margfalt
á við stærri þjóðir, og búa að sínu
og sækja ekki allt yfir lækinn.
Það gefur augaleið, að ráða-
menn í þessu þjóðfélagi eru alltof
margir, ef þeir geta verið á faralds-
fæti heimshorna á milli, í stað þess
að sinna þeim störfum sem þeir
voru kosnir til. Það væri tvímæla-
laust til stórbóta ef þingmönnum
væri fækkað um þriðjung, er raun-
ar nauðsynleg framkvæmd. Auk
þess þurfum við ekki fleiri en 5-7
ráðherra. Slík hagræðing yrði fljót
að skila sér í aukinni hagsæld og
velmegun, þó svo fremi að þeir sem
þar misstu spón úr aski sínum,
hæfu störf í framleiðslu til hag-
sældar fyrir þjóðfélagið, en hreiðr-
uðu ekki um sig í yfir spenntum
þjónustugeiranum, sem tekur allt-
of stóran skammt af þjóðarkök-
unni.
í ýmsum þjónustugreinum
mætti að ósekju stórfækka störf-
um, og má þar fyrst til nefna hina
gegndarlausu ofþenslu sem hlaup-
ið hefur í fjölmiðlun á síðustu
árum. Þar kunnum við okkur ekk-
ert hóf. Þessi þjónustugeiri, sem
svo nauðsynlegur þó er, skapar lít-
il verðmæti í þjóðarbúið, og er því
mikil þörf þess hann þenjist ekki
út eins og púki á fjösbita. Hann
lifði á bóndans striti, en þjónustu-
geirarnir, s.s. fjölmiðlun, milliliða-
starfsemi, skrifstofubákn hins
opnibera, bankar, m.m. lifa fyrst
og fremst á framleiðslunni í land-
inu, sem er þó ekki meira metin
en raun ber vitni. Það er líkt sem
fólkið í landinu sé í álögum, og
geri sér enga grein fyrir raunveru-
leikanum.
Ég get ekki lokið svo þessum
pistli að minnast ekki á vextina.
Þá ófreskju sem þeir eru orðnir, í
skjóli fijálshyggjunnar á íslandi.
Atvinnulífið í landinu riðar bók-
staflega til falls, vegna hinna hrik-
alegu okurvaxta sem mergsjúga
lífstré þessarar þjóðar. Vextir
þyrftu að lækka tafarlaust, a.m.k.
um helming, það væri góð kaup-
hækkun fyrir láglaunastéttarinnar.
Fjármagnsleigan og innláns-
vextirnir mega ekki vera háir, enda
óþarft, sé þess gætt að féð rýrni
ekki að verðgildi svo sem var á
árum óðaverðbólgunnar, fýrir
verðtryggingu.
Þegar verðtrygging var tekin
upp bar að hafa innlánsvexti nær
enga fyrst í stað, og hækka þá svo
eftir aðstæðum þegar frá leið, og
yrðu þeir þó aldrei hærri en sem
nemur 3 til 4 %. Það er sanngjörn
leiga eftir fjármagn, sé þess gætt
það rýrni ekki vegna verðbólgu.
Þar til er eitt einfalt ráð, að hækka
sparifjárupphæð líkt og gert var
við fasteignir, til samræmis verð-
lagi í landinu, hafi verið um verð-
bólgu að ræða á liðnu ári. Á sama
hátt átti að meðhöndla skuldirnar,
færa þær til rétts verðlags í land-
inu á hveijum áramótum, eftir
verðbólgustigi næstliðins árs.
Þá er ekki víst að til gjaldmiðils-
breytingar hefði þurft að koma,
verðbólgan aldrei rokið svo sem
raun bar vitni, hefðu stjórnvöld
haft kjark og þor til að taka á
verðbólgunni — þessu þjóðarmeini,
á viðeigandi hátt. Gjaldmiðilsbreyt-
ingin er einhver sú vanhugsaðasta
og óréttlátasta aðgerð sem unnin
hefur verið af hálfu hins opinbera.
Og þó hefur farið ótrúlega hljótt
um þá hrikalegu eignatilfærslu.
Þá voru gamlar og grónar eignir
gerðar að nær engu með einu penn-
astriki. Dæmi eru til um það að
heils árs vinnulaun urðu ekki dag-
launanna virði eftir eignabreyting-
una. Menn og konur, fólk sem átti
gamlar eignir, innstæður í lána-
stofnunum, bæði í reiðufé og
skuldabréfum, stóð allt í einu ber-
skjaldað frammi fyrir þeirri stað-
reynd, að spariféð hafði verið skert
hundraðfalt, og munar um minna.
Á sama hátt voru skuldir af-
skrifaðar hundraðfalt, hvort heldur
sem þar var um að ræða skuldir
á fyrsta ári ellega áratugagömul
fasteignalán á lágum vöxtum. Slík-
ar skuldir urðu ekki þung byrði
eftir þessar dæmalausu fjármagns-
breytingar. Öðru máli gegnir með
skuldir síðasta áratugar, hnepptar
í greipar fullrar verðtryggingar og
okurvaxta.
Gunnar Gunnarsson,
Syðra-Vallholti.
Þ»essir hringdu . .
Miðbærinn líflegri
Jóhann hringdi:
Ég tel það til mikilla bóta að
opnað hefur verið fyrir umferð
niður Austurstræti og Miðbærinn
er greinilega líflegri á eftir. Vil
ég þakka borgaryfirvöldum fyrir
að hafa gert þessa breytingu sem
er tímælalaust til góðs.
Veski
Rautt seðlaveski tapaðist 16.
janúar við pósthúsið í Kópavogi.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 53812. Fundar-
laun.
Gleraugu
Giorgio armani gleraugu töpuð-
ust um áramótin. Finnandi vin-
samlegast hringi í síma 18290 eða
25836.
Köttur
Angóralæða, hvít með svörtum
og brúnum flekkjum á baki og
mjög svert grátt skott, hvarf frá
Smáraflöt í Garðabæ fyrir viku.
Hefur ef til vill lokast inni í bíl-
skúr. Vinsamlegast hringið í síma
657872 ef hún kemur einhvers
staðar fram.
Kápa
Þunn sumarkápa tapaðist 8.
desember sl. í félagsheimilinu
Drangey í Síðumúla 35. Þeir sem
gætu gefið upplýsingar hafi sam-
band við Ingibjörgu í síma 34593.
Hringur
Silfurhringur tapaðist í Kringl-
unni á mánudag. Finnandi vin-
samlegast hringi í síma 40151.
Hálsmen
Gullhálsmen sem er eins og rós
í laginu tapaðist föstudaginn 10.
janúar. Finnandi er vinsamlegast
beðinn að hringja í síma 51263.
Lyklakippa
Tveir lyklar á kippu fundust á
bílastæði við Hverfisgötu, Upplýs-
ingar í síma 657130.
Úr
Oriant dömuúr, gyllt með keðju,
tapaðist í Bónus í Hafnarfirði fyr-
ir nokkru. Finnandi er vinsamleg-
ast beðinn að hringja í síma
92-11953.
JVZátlun — rrzyndlist
Dag- og kvöldtímar fyrir byrjendur og lengra komna.
Málað með vatns- og olíulitum.
Undirstöðuatriði, myndbygging.
Síðustu innritunardagar. Sími 611525.
Kennari: Rúna Gísladóttir, listmálari.
J
NY SENDING
af sófasettum
Sófasett 3+1 +1, sófaborö og 2 litlir stólar.
Áklæði drapplitaö, bleikt og rautt.
Allt þetta fyrir 168.000 kr. stgr.
EURO og VISA greiðslukjör.
Kœli - oa frvstitœki ímiklu úrvali!
III
Lítið inn til okkar og skoðið vönduð
vestur-þýsk heimilistœki!
Hjá SIEMENS eru gœði, ending og
fallegt útlit ávallt sett á oddinn!
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 • SlMI 28300
Ír*2&ökíw^1
á Bínsto*ív/..M,,r’ k.
á ei
a m
tti 95% a/stótf«r-jg£t
c.
C
Opið alla virka daga frá kL 9-18,
laugardaga frá kl 10-16,
sunnudaga frá kL 12-16
VAKA-HELGAFELL
Síðuniúla 6, sími 688300
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA