Morgunblaðið - 23.01.1992, Page 47
47
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
FIMMTUDAGUR 23. JANUAR 1992
KORFUKNATTLEIKUR
Guðmundur Bragason átti góðan leik á heimavelli.
Litháar lögðu ósam-
hasft íslenskt lið
Liðið verður að bæta varnarleikinn
LITHÁAR lögðu íslenska lands-
liðið að velli 107:95 í íþrótta-
húsinu í Grindavík í gærkvöldi.
Leikurinn var sá fyrsti af þrem-
ur sem Litháar leika hér á landi
og það var Ijóst eftir þennan
leik að íslenska liðið verður að
bæta varnarleikinn og víta-
hittnina til að eiga möguleika
á að sigra léttleikandi Litháa.
Leikurinn var jafn framan af og
eftir fimm mínútna leik var
staðan jöfn 10:10. Guðmundur
Bragason skoraði þá
Frimann 6 stig í röð og kom
Ólafsson íslendingum yfír
skrifarfrá 16;10. Litháar
hleyptu þeim ekki
íjarri sér og aftur var jafnt 22:22
og 28:28 eftir 14 mínútna leik. Lit-
háar juku þá hraðann og náðu for-
ystunni og voru yfir í leikhléi,
45:38.
Valur Ingimundarson sem ekki
hafði skorað stig í fyrri hálfleik
byrjaði að skora með þriggja stiga
körfu í seinni hálfleik og eftir fjórar
mínútur hafði íslenska liðið unnið
upp forystu Litháa og var komið
yfír 54:51 og leikurinn í járnum.
URSLIT
ísland - Litháen 95:107
íþróttahúsið í Grindavík, iansdleikur f körfu-
knattleik, miðvikudaginn 22. janúar 1992.
Gangur leiksins: 0:2, 4:8, 10:10, 16:10,
22:16, 22:24, 28:26, 28:34, 34:43, 38:45.
41:45, 46:51, 54:51, 55:55, 61:60, 73:75,
73:87, 75:97, 82:101, 92:105, 95:107.
Stig íslands: Valur Ingimundarson 26,
Guðmundur Bragason 18, Jón Kr. Gíslason
17, Magnús Matthíasson 16, Pétur Guð-
mundsson 9, Guðni Guðnason 3, Teitur
Örlygsson 3, Guðjón Skúlason 3.
Stig Litháen: Gíntaras Eíníkís 30, Daríus
Lukmínas 23, Alvydas Pazdrazdis 18, Vaíd-
as Jurgílas 10, Eríkas Koutsjíauouskas 9,
Egídíjus Kovolíunas 6, Tauras Stumbys 6,
Guíntaoutas Chívítskas 5.
Dómarar: Kristinn Albertsson og Kestutís
Pílípauska. Dæmdu skínandi vel.
Áhorfendur: Um 450.
NBA-deildin
Leikir f fyrrinótt:
Orlando Magic - Minnesota....105: 92
Portland - Los Angles Lakers.181: 92
Chicago Bulls - Phoenix Suns.108:102
Houston - Milwaukee Bucks..117:107
San Antonio - LA Clippers....114:100
Atlanta Hawks - Seattle......128:119
Sacramento Kings - Denver...94: 85
UBK-Haukar 24:20
Iþróttahús Digraness, íslandsmótið í hand-
knattleik, 1. deild karla, miðvikudagur 22.
janúar 1992.
Gangur leiksins: 1:0, 1:1, 4:1, 5:5, 10:5.
10:6, 14:7, 14:10, 17:11, 17:15, 22:18,
22:20, 24:20.
Mörk UBK: Guðmundur Pálmason 8/4,
Ingi !>ór Guðmundsson 6, Björgvin Björg-
vinsson 4, Jón Þórðarson 3, Elvar Erlings-
son 1, Hrafnkell Halldórsson 1, Sigurbjöm
Narfason 1.
Varin skot: Ásgeir Baldursson 22.
Utan vallar: 12 mín.
Mörk Hauka: Halldór Ingólfsson 6/4, Petr
Baumruk 4, Jón Öm Stefánsson 4, Svein-
berg Gíslason 3, Páll Ólafsson 2, Aron
Kristjánsson 1.
Varin skot: Þorlákur Kjartansson 13.
Utan vallar: 6 mín.
Dómarar: óli Olsen og Gunnlaugur Hjálm-
arsson, voru ákaflega mistækir.
Áhorfendur: 60.
Knattspyrna
ENGLAND
1. DEILD:
Man. United - Aston Villa.......1:0
Mark Hughes (48.). 45.022
■Man. Utd. er komið á toppinn með
tveggja stiga forskot á Leeds og á þar að
auki leik til góða.
Bikarkeppnin:
Newcastle - Bournemouth.........2:2
Staðan var 1:1 eftir venjulegan leiktíma.
Newcastle lék með tíu leikmenn I framleng-
ingunni, þar sem Alan Thompson var rekinn
af leikvelli. 25.000.
■Bournemouth vann vítaspymukeppni,
4:3, og mætir Ipswich ! 4. utnferð.
HANDKNATTLEIKUR
Ásgeir sá um Hauka
Asgeir Baldursson, markvörður
Breiðabliks, fór á kostum í
markinu þegar Blikarnir lögðu
Hauka að velli,
Ómar 24:20. Með mikilli
Jóhannsson baráttu í vöminni og
skrifar stórkostlegri
markvörsLu Ásgeir
lögðu þeir grunninn að góðum sigri
og nýttu þeir tækifærið í leikslok og
fögnuðu geysilega sínum örðum sigri
í 1. deildinni.
Blikar tóku leikinn strax í sínar
hendur og höfðu góða forystu framan
af, en Haukar náðu aðeins tvívegis
að jafna leikinn. Þegar staðan var
5:5 um miðjan fyrri hálfleikinn tók
Ásgeir til sinna ráða og hreinlega
lokaði markinu. Haukar skoruðu ekki
mark í síðustu 15. mín. hálfleiksins
og það þó að þeir hafi verið þremur
fleiri í sókninni á tímabili. Blikarnir
skoruðu fimm síðustu mörk hálfleiks-
ins og voru yfir, 10:5, þegar flautað
var til leikshlé.
Blikar komu ákveðnir til seinni
hálfleiks og náðu mest sjö marka
forskoti. Haukar neituðu að gefast
upp og tóku tvo leikmenn Blikanna
úr umferð. Við það riðlaðist sóknar-
leikur þeirra mikið. Haukar söxuðu
jafnt og þétt á forskotið og náðu að
minnka muninn í tvö mörk, 22:20,
þegar aðeins tvær mín. voru til leiks-
loka. Blikarnir voru ekki á því að
gefa fá sér unninn leik og skoruðu
tvö síðustu mörk leiksins, 24:20.
Eina og áður segir sýndi Ásgeir
glæsilega markvörslu í leiknum og
varði alls 22 skot. Ingi Þór Guð-
mundsson og Guðmundur Pálmason
áttu einnig góðan leik. Hjá Haukum
var það aðeins Þorlákur Kjartansson,
markvörður, sem sýndi góða takta,
en aðrir léku langt undir getu.
íslendingar voru yfír næstu tvær
mínútur en þá tóku gestirnir vel
við sér og keyrðu upp hraðann og
leikmennirnir Einíkís (nr. 11) og
Lukmínas (nr. 10) skoruðu hveija
körfuna af annarri og hittu mjög
vel bæði úr skotum að utan og einn-
ig úr vítaskotum. íslendingar áttu
ekkert svar við sókn Litháa auk
þess sem illa fór að ganga í sókn-
inni og réð þar einstaklingsfram-
takið mestu. Munurinn varð mestur
22 stig en íslendingum tókst að
klóra í bakkann á lokamínútunum
og minnka muninn í 12 stig fyrir
leikslok en leikurinn endaði með
öruggum sigri Litháa, 107:95.
Samæfinguna vantar
Það sást vel á leik landsliðsins
að leikmenn hafa ekki haft mikinn
tíma til að æfa saman að undan-
fömu og kom það mest niður á
varnarleiknum. Torfí Magnús'son
skipti ört um leikmenn og allir
landsliðsmennirnir nema Bárður
Eyþórsson fengu að spreyta sig.
Guðmundur Bragason og Valur
Ingimundarson áttu ágætan leik og
vöktu daufa áhorfendur af dvala
með leik sínum en einnig áttu
Magnús Matthíasson og Jón Kr.
Gíslason góðan leik.
Litháar léku oft á tíðum skínandi
vel og eftir rólega byijun fóru þeir
í gang í seinni hálfleik og yfírspil-
uðu íslenska liðið. Liðið var frekar
jafnt en Einíkís (nr. 11), Lukmínas
(nr. 10) og Pazorazoís (nr. 7) gerðu
marga skemmtilega hluti. Víta-
hittni þeirra vakti athygli og þeir
skoruðu hvorki fleiri né færri en
37 stig úr 41 víti.
Sagt eftir leikinn
Torfi Magnússon þjálfari: „Við
vissum í raun ákaflega lítið um lið-
ið nema það kemur frá mjög góðri
körfuknattleiksþjóð. Þeir spiluðu
mjög vel í kvöld, settu upp fyrir
bestu skyttumar. Við höfum ekki
æft nema einu sinni með allt liðið
þannig að samæfínguna vantar í
leik þess. Þetta er náttúrulega æf-
ingaprógram fyrir vorið, að skoða
leikmenn og þetta er mjög góð
æfing fyrir okkur.“
Valur Ingimundarson: „Ég er
ekki ánægður með leikinn. Það
vantar samæfingu, sérstaklega í
vörninni. Það er ekki slæmt að
skora 90 stig en það verður að taka
TENNIS / OPNA ASTRALSKA MEISTARAMOTIÐ
McEnroe er úr leik
Wayne Ferreira frá Suður-Afr-
íku var sýnd veiði en ekki
gefín í átta manna úrslitum í ein-
liðaleik á Opna ástralska meistara-
mótinu í tennis í gær. Ferreira, sem
er 20 ára, var öryggið uppmálað
gegn aldursforsetanum John
McEnroe, sem er 32 ára, lék besta
leik sinn á ferlinum og vann 6-4,
6-4 og 6-4. „Ég var alls ekki
taugaóstyrkur," sagði Ferreira. „Ég
vissi að uppgjafírnar yrðu að vera
góðar og eins varð ég að taka vel
á móti. Það er frábært að sigra
þrjá góða tennisspilara á sama
mótinu og það eykur sjálfstraustið
fyrir næsta verkefni."
Troðfullt var á vellinum og
hvöttu áhorfendur McEnroe ákaft.
Hann náði samt ekki að sýna fýrri
styrk og varð að játa sig sigraðan.
„Ég sagði við sjálfan mig að þetta
væri að koma, en dæmið gekk ekki
upp. Hann var mér fremri og kom
mér úr jafnvægi með góðum leik,
en Ferreira leikur vel undir miklu
álagi. Það var frábært að sigra
Becker og það hefði verið gaman
að leika gegn Edberg, sem ég taldi
mig eiga möguleika á. En ég sagði
fyrir skömmu að gangi mér ekki
betur á þessu ári en því síðasta kem
ég ekki aftur og það stendur."
Stefan Edberg þurfti að hafa
fyrir sigrinum gegn Ivan Lendl, en
sigraði í fimm hrinum eftir að hafa
tapað þeirri fyrstu og verið hætt
kominn í annarri. „Eg var ekki
með, þar til staðan var 4-5 í ann-
arri hrinu,“ sagði Edberg. „Þá gaf
hann mér tækifæri á að komast
inní leikinn og það nægði mér. En
Lendl er ekki eins öruggur og áð-
ur, þó hann beijist og gefi ekkert
eftir.“
Lendl viðurkenndi að öi’yggið
væri ekki til staðar, en það kæmi
aftur. „Ef ég hefði verið eins örugg
ur og fyrir tveimur eða þremur
árum hefði ég unnið aðra hrinu og
sjálfsagt leikinn. Öryggið kemur
ekki nema með sigrum og ég hef
ekki sigrað síðan í apríl í fyrra —
en æfíngin skapar meistarann."
Michael Stitch hefur leikið ósann-
færandi í keppninni og Richard
Krajicek frá Hollandi sá við honum
í gær. „Ég sló illa í tveimur fyrstu
hrinunum,“ sagði Þjóðveijinn. Hann
sigraði ekki heldur tapaði ég — ég
færði honum sigurinn á silfur-
bakka. Hollendingurinn mætir Jim
Courier í undanúrslitum, en Courier
fór létt með Amos Mansdorf. „Ég
hef sigrað Edberg og McEnroe á
ferlinum, leik vel þessa dagana og
ræð við álagið,“ sagði Krajicek.
Undanúrsslit kvenna fóru fram
nótt að íslenskum tíma.
betur á í vöminni. Ég hitti mjög vel
í seinni hálfleik og er ánægður með.
það.“
Jón Kr. Gíslason: „Þetta lið er
mun betra en pólska liðið sem sótti
okkur heim á dögunum en við verð-
um að ná betri samæfingu. Ég hef
trú á því að við getum unnið þetta
lið.“
Þjálfari litháíska landsliðsins,
Raímundas Sargunas byijaði á því
að koma á framfæri þökkum fyrir
stuðning íslendinga við sjálfstæðis-
baráttu Litháa en sagði að þreyta
hefði setið í leikmönnum sínum.
Hann tók fram að þeir væru mjög
ánægðir með að leika hér á ís-
landi. „Liðið okkar er mjög ungt
og leikmenn sem koma til með að
leika í Ólympíuliðinu leika allir er^
lendis og eiga eftir að styrkja liðið
enn frekar. Við lékum ekkert sér-
staklega vel í kvöld en það gerði
íslenska liðið ekki heldur,“ sagði
hann að lokum.
SKIÐAGANGA
Haukur
alveg við
Ól-lág-
markid
H AUKUR Eiríksson frá Akureyri
varð í 21. sæti á skíðagöngu-
móti í Svíþjóð í gærkvöldi,
8,07% á eftir sigurvegaranum
— alveg við ójympíulágmarkið,
en ÓL-nefnd Islands miðaði
það að íslensku keppendurnir
yrðu að ná því að vera a.m.k.
8% á eftir sigurvegara á sterku
móti.
Keppt var í bænum Nordmaling.
Gengnir 12,5 kílómetrar með
hefðbundinni aðferð. Fjórir hringir
sem hver var rúmlega 3,1 km.
„Ég er mjög ánægður með þessa
göngu í kvöld. Ég hef verið að bæta
mig í hverri keppni — er í góðri
æfingu og á uppleið. Maður hefur
miðað allar æfingar sínar við Ólymp-
íuleikana, en ég ekki hvort ég verð
valinn. Veit varla hvar ég stend í
dag en bíð bara og vona,“ sagði
Haukur Eiríksson í samtali við Morg-
unblaðið í gærkvöldi.
Sigurvegari á mótinu í gærkvöfeT
varð Lars-Erik Ramström á 33,39
mín. Torgny Mogren, besti göngu-
maður Svía, varð annar á 33,44 mín.
Ramström var, að sögn Hauks, í
A-landsliði Svía fyrir tveimur vikum,
en þegar endanlegt lið fyrir Ólympíu-
leikana var valið á dögunum féll
hann úr liðinu og vildi því sýna í
gærkvöldi hvað í honum býr.
Þriðji á mótinu í gærkvöldi varð
Michael Isakson, á 34,03 mín. og
fjórði Larry Poromaa á 34,08 mín.
Anders Larsson, sem keppti hér á
landi á Landsmóti 1988, varð 20. á
36,20 mín. og Haukur Eiríksson 2^
sem fyrr segir. Haukur gekk á 36,22
mín. og varð 8,07% á eftir sigurveg-
aranum. Þess má geta að hann var
7,7% á eftir Mogren.
Kjell Erik Skoglund, sænskur
unglingameistari í fyrra, var þremur
sekúndum á eftir Hauk, á 36,25
rnín. og Rögnvaldur Ingþórsson, sem
náði ólympíulágmarkinu í desember,
varð í 23. sæti á 36,38 mín. Sigur-
geir Svavarsson náði sér ekki á strik
og varð 30. á 38,39 rnín.