Morgunblaðið - 12.02.1992, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 1992
31
INGALÓ
Anægð með viðtökur
áhorfenda
Kvikmyndin Ingaló eftir Ásdísi
Thoroddsen var frumsýnd síð-
asta laugardag. Með hlutverk Ingu-
lóar fer Sólveig Arnarsdóttir en
meðal annarra leikara eru Ingvar
Sigurðsson, Þorlákur Kristinsson
(Tolli), Róbert Arnfinnsson, Bríet
Héðinsdóttir, Gísli Halldórsson, Þrá-
inn Karlsson og Haraldur Hallgríms-
son.
Ásdís Thoroddsen sagði á mánu-
dag að hún væri ánægð með viðtök-
ur áhorfenda. Til stendur að hún
geri stutt myndband fyrir sjónvarpið
í sumar. Ásdís lauk námi í Kvik-
myndaskólanum í Berlín árið 1989.
Ingaló er fyrsta kvikmynd hennar í
fullri lengd en hún hefur gert Qölda
stuttra mynda.
Ingaló fjallar um 17 ára stúlku
úr litlu sjávarplássi á Ströndum. Hún
lendir í útistöðum við foreldra sína,
fer að heiman og gerist kokkur á
Matthildi ÍS 167, 100 tonna báti úr
öðru plássi. Sagan berst síðan víða
um Vestfirði. Kvikmyndin er tekin
upp síðastliðið sumar á Drangsnesi,
Hólmavík, Flateyri, Suðureyri og
fleiri stöðum á Vestfjörðum og
Vesturlandi.
Myndin er framleidd af Gjólu hf.
í samvinnu við Trans-Film GmbH,
Filminor Oy og Norræna kvik-
mynda- og sjónvarpssjóðinn.
LIST
Dúkur á hvítum kassa
*
Olafur Gíslason, sem sýnir þessa
dagana í Gallerí Einn Einn
og Gallerí Gangur, er einnig með
sýningu í Shedhalle í Rote Fabrik
í Zúrich. Hún var opnuð í lok jan-
úar og stendur fram í miðjan mars.
Ólafur sýnir þar níu verk, allt hvít-
málaða hluti sem koma í stað ann-
arra hluta.
Meðal listaverkanna eru fimm
kassar í innkaupapokum frá fimm
verslunum: Magasin í Danmörku,
Macy’s í Bandaríkjunum, Kaupstað
í Mjódd á íslandi, Karstadt í Þýska-
landi og de Bijenkorf f Hollandi,
lítill kassi sem er sniðinn fyrir
bögglabera á reiðhjóli og hvítur
dúkur á livítum kassa.
Ólafur býr í Hamborg og hefur
sýnt víða erlendis. Listamennimir
Dieter Wymann og Tony Tasset
sýna um leið og hann í Shedhalle.
Sýningarsalurinn er stór og rúm-
góður. Hann er til húsa í gamalii
verksmiðju sem róttækir listiðkend-
ur borgarinnar tóku yfir fyrir
nokkrum árum og er nú rekin með
styrk frá borginni.
ÁTAK
Dreymir um nafn sitt í
heimsmetabókinni
Craig Shergold er sjö ára gam-
all breskur drengur sem er
þungt haldinn af krabbameini.
Hans heitasta ósk er að eignast
heimsins stærsta nafnspjaldasafn
og komast þannig í heimsmetabók
Guinness. Þess er óskað að sem
flestir hér á landi sjái sér fært að
senda honum eintak af nafnspjaldi
sínu er hér með komið á fram-
færi, en heimilisfang litla drengs-
ins er: 36 Shelby Road, Carshal-
ton, Surrey, SN8 ÍLD England.
Einnig geta þeir sem vilja komið
nafnspjöldum til Asiaco, við
Vesturgötu 2 í Reykjavík fyrir nk.
þriðjudag og mun fyrirtækið sjá
um að koma þeim áleiðis.
Snyrtisérfræðingur kynnir vorlitina frá DIOR
frá kl. 12-17 í dag.
HYGEA,
Austurstræti 16.
Velferð á
varanlegum
grunni a—f
trvggingamálaráðherra,
Sighvats Björgvinssonar
á Norðurlandi.
Akureyri - miðvikudaginn 12. febrúar.
Viðtöl fyrir almenning á bæjarskrifstofunni kl. 9-12.
Tímapantanir hjá bæjarstjóra í síma 21000.
Opinn fundur í Alþýðuhúsinu kl. 20.30.
Húsavík - Fimmtudaginn 13. febrúar.
Viðtöl fyrir almenning á bæjarskrifstofunni kl. 9-12.
Tímapantanir hjá bæjarstjóra í síma 41222.
Fundur á Hótel Húsavík kl. 20.30.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
Saltaðumeð
Of hár blóðþrýstingur er algengur sjúkdómur og er taliö aö 5. hver full-
oröinn íslendingur þjáist af honum.
Þú getur reynt aö halda þessum sjúkdómi niöri meö því að: Boröa
hollari fæöu • Minnka reykingar • Hreyfa þig • Nota SELTIN í stað
venjulegs salts.
SELTIN inniheldur kalium og magnesium, auk venjulegs matarsalts.
Venjulegt matarsalt hækkar blóðþrýsting en kalium vinnur gegn þess-
ari hækkun. Magnesium minnkar hættuna á hjartsláttartruflunum.
SELTIN erframleitt (samráöi við sænska lækna. Saltaöu meö SELTIN,
ef þú vilt lifa heilbrigðara lífi, án þess að neita þér um salt.
Fæst í apótekum og helstu stórmörkuðum.
NÚ ER SELTIN
EINNIG FÁANLEGT SEM JURTASALT,
' fílövp m! m
Metsölublað á hverjum degi!