Morgunblaðið - 26.02.1992, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 1992
29
Elínborg Gunnarsdóttir, fráfarandi formaður, afhendir Gunnari
Guðmundssyni Björns Blöndál-bikarinn.
Mikill vilji fyrir stór-
huga uppbyggingu
r?eða um bætta aðstöðu til íþrótta-
iðkunar og til félagsstarfa. Var í
því efni samþykkt að hefjast handa
á þessu ári við undirbúning að
byggingu íþróttahúss og félagsað-
stöðu á. íþróttavallasvæði bæjar-
ins. Samþykkt var að leggja fram-
lag íþróttadeilda úr lottósjóði
óskipt í byggingarsjóð. Mikill hug-
ur var í fundarmönnum að ganga
til þessa verkefnis af krafti og
ljúka því á sem skemmstum tíma.
Auk bættrar félagsaðstöðu er mik-
il þörf á búningsaðstöðu fyrir
íþróttavellina auk þess sem þörf
er á nýju íþróttahúsi fyrir íþrótta-
starfsemina og Fjölbrautaskóla
Suðurlands.
Félagið hefur þrjú undanfarin
ár annast rekstur íþróttavalla-
svæðisins fyrir framlag frá Sel-
fosskaupstað. Reksturinn og
styrkir úr íþróttasjóði ríkisins hafa
skilað þremur milljónum til tækja-
kaupa fyrir svæðið. Nú stendur
félagið fyrir byggingu áhaldahúss
á íþrottavellinum.
A fundinum voru veittar viður-
kenningar. Gunnar Guðmundsson,
umsjónannaður íþrottahússins,
fékk Björns Blöndal-bikarinn sem
veittur er einstaklingi innan eða
utan félagsins sem unnið hefur
félaginu vel. Fijálsíþróttadeild
félagsins fékk viðurkenningu fyrir
mesta félagsstarfið á liðnu ári þar
sem mest bar á Brúarhlaupinu,
almenningshlaupi sem orðið er
ámss viðburður.
Sig. Jóns.
Ungmennafélag Selfoss:
Selfossi.
Ungmennafélag Selfoss vill að gerð verði stórhuga íþróttaáætlun
fyrir bæjarfélagið og næsta nágrenni þar sem það verði haft að
markmiði að bærinn verði besti íþróttabær landsins. Tillaga þessa
efnis var meðal samþykkta á aðalfundi Ungmennafélags Selfoss
sem haldinn var þriðjudaginn 11. febrúar. Nýr formaður var kos-
inn á fundinum, Gísli A Jónsson húsasmíðameistari.
Innan ungmennafélagsins eru starfi ásamt því að halda úti öflugu
starfræktar níu íþróttadeildir sem keppnisliði í sínum greinum.
allar standa fyrir miklu unglinga- A aðalfundinum var mikil um-
Frá aðalfundi Ungmennafélags Selfoss. Morgunbiaðið/Sigurður Jónsson.
Atriði úr myndinni „Barráttan við K2“.
Fjallaklifurmynd sýnd í
þágii Hjálparsveita skáta
REGNBOGINN og Hjálparsveit skáta í Reykjavík bjóða til forsýning-
ar á spennandi fjallgöngumynd, „Baráttan við K2“, fimmtudaginn
27. febrúar kl. 20.15. Myndin fjallar um ævintýralega tilraun til
þess að klifra eitt erfiðasta fjali heims, K2, en árið 1990 hafði að-
eins 71 manni tekist að sigra tindinn en 27 höfðu farist við tilraunir
til þess.
Miðaverð að þessari sýningu
rennur óskipt til styrktar Hjálpar-
sveit skáta í Reykjavík. Hjálpar-
sveitarmenn munu fyrir sýningu
sýna tilþrif fjallaklifurs utan á húsa-
kynnum Regnbogans á Hverfisgötu
54. Hjálarpsveitarmenn munu
freista þess að láta börur með slös-
uðum manni síga niður húsið en
einnig munu þeir kynna nýjasta
útbúnað sinn til björgunar manns-
iífum. M.a. verður kynnt GPS-
gervihnattastaðsetningatæki ásamt
mörgu fleiru.
Skátabúðin mun sýna fullkomn-
asta fjallgönguútbúnað sem völ er
á í dag, í anddyri Regnbogans, og
mun sýningin standa til 5. mars.
Myndin fjallar um tvo vini Taylor
Brooks (Michael Biehn) og Harold
Jamieson (Matt Craven) sem hafa
það markmið að reyna að klífa fjar-
lægasta, næsthæsta og erfiðasta
fjall í heiminum, K2. Taylor er hroW-
afullur og sjálfselskur og hugsar
um ekkert annað en fjallaklifur en
Harold er aftur á móti viðkvæmur
einstaklingur, giftur og faðir eins
barns. Það reynist honum erfitt að
sannfæra eiginkonu sína um ágæti
þess að klífa fjöll. Þegar þeir félag-
ar eru að klífa fjall í Alaska hitta
þeir hóp fjallgöngumanna sem eru
að undirbúa sig til átaka við K2.
Þrátt fyrir aðvaranir þeirra félaga
reyna tveir félagar úr hópnum afar
glæfralegt atriði sem leiðir til dau^.
þeirra. Þetta leiðir til þess að pláss
losnar í hópnum og sannfæra þeir
leiðangurstjórann um að taka þá
með. Brátt er hópurinn á leið til
Norður-Pakistan til hinna miklu
Karakoram-fjalla.
(Frcttatilkynning)
Morgunblaðið/GTK
Tíu efstu í töltinu við verðlaunaafhendinguna. Yst til vinstri eru verðlaunahafarnir þrír, Sigríður Theó-
dóra á Hlekk, Þormar á Dag og Maijolyne á Sokka.
Fyrsta hestamót ársins:
Hlekkur sigraði í töltinu
FYRSTA hestamót ársins var Hlekkur Fjólu Runólfsdóttur
haldið á Gaddastaðaflöt hjá sigraði í töltkeppninni, knapi var
Hellu um helgina. Fagurt veður Sigríður Theódóra Kristinsdóttir.
var en kalt. Dagur Sigurlínu Óskarsdóttur
Foreldrasamtökin;
Fyrirlestur haldinn
um fjölskylduna
FYRIRLESTUR á vegum For-
eldrasamtakanna um fjölskyld-
una verður fimmtudaginn 27.
febrúar. Fyrirlesturinn er hald-
inn í Bústaðakirkju og hefst
klukkan 20.30. Hann er fyrst og
fremst ætlaður foreldrum og
öðrum uppalendum en allir eru
velkomnir og er aðgangur
ókeypis.
Fjölskyldan. — Hvaða skilyrði
þarf að uppfylla til að allir meðlim-
ir hennar fái notið sín? nefnist fyrir-
lesturinn. Þar mun Inga Stefáns-
dóttir sálfræðingur fjalla um það
sem hún hefur kosið að nefna starí'-
hæfa fjölskyldu. Inga hefur sérhæft
sig í fjölskyldumeðferð. Hún hefur
meðal annars starfað við barnameð-
ferðarheimili fyrir böm á Kleifar-
vegi og við Utideild í Reykjavík.
Inga hefur verið leiðbeinandi á fjöl-
skyldumeðferðarnámskeiðum auk
annarra námskeiða.
varð annar, knapi var ÞormSr
Anders. Þriðja var Sokka Jakobs
Hansen, knapi Matjolyn Tiepwen.
í bamakeppni varð Kolskeggur
hlutskarpastur, knapi og eigandi
var Kristín Þórðardóttir. Tvistur
varð númer tvö, knapi og eigandi
er Birkir Jónsson og í þriðja sæti
varð Stjarni og sat Erlendur Ing-
varsson hann.
Harpa sigraði í skeiðinu, knapi
og eigandi er Bjami Davíðsson,
Einir. Loga Laxdal varð í öðru
sæti og Rjúkandi í þriðja sæti.
Mótið er hið fyrsta af þremu*.
í stigakeppni hestamannafélagsins
Geysis í Rangárvallasýslu og hlutu
allir sigurvegaramir verðlauna-
peninga, en sigurvegarar á saman-
lögðu mótinu fá folöld í verðlaun
ásamt bikumm. Næsta mót verður
á Hvolsvelli í næsta mánuði. Þá
hefur hestamannafélagið Geysir
kosið hestaíþróttaknapa ársins
fyrir síðasta ár og varð Sigríður
Theódóra Kristinsdóttir fyrir val-
inu. _ GTK
Kvöldvaka Ferðafélags-
ins - Breiðafjarðareyjar
KVÖLDVAKA með Ævari Pet-
ersen um Breiðafjarðareyjar
verður á miðvikudaginn 26. fe-
brúar í Sóknarsalnum, Skipholti
50a og hefst stundvíslega kl.
20.30.
Ævar ætlar að draga fram sér-
kenni Breiðafjarðareyja í myndum
með tilheyrandi útskýringum.
Aðalfundur
Foreldra-
félags mis-
þroska bama
FORELDRAFÉLAG mis-
þroska barna heldur aðal-
fund sinn miðvikudaginn 26.
febrúar nk. kl. 20.30 í Æf-
ingadeild Kennaraháskóla
Islands.
Dagskrá er þannig að fyrst
ræðir Sigurður Bogi Stefáns-
son geðlæknir um slökun, en
að fyrirlestri loknum verða
venjuleg aðalfundarstörf. Fé-
lagar eru eindregið hvattir til
að mæta á fundinn.
Myndagetraun verður að loknum
fyrirlestri Ævrs þar sem fólk get-
ur kannað þekkingu sína á land-
inu.
INNLENT
Inga Stefánsdóttir sálfræðingur.