Morgunblaðið - 26.02.1992, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 1992
ÍÞR&mR
•FOLK
KORFUKNATTLEIKUR
Tindastóll að hlið KR
■ IAN Rush, framherji hjá enska
knattspyrnuliðinu Liverpool
meiddist á æfingu í fyrradag og
verður að öllum líkindum að fara í
■■■■■ þriðja uppskurðinn í
FráBob vetur! Aður hafði
Hennessy hann tvívegis verið
/Englandi skorinn upp vegna
meiðsla í öðru
hnénu, en nú var það hitt hnéð sem
gaf sig. Litlar líkur eru því á að
Rush leiki meira í vetur. Sjúkralisti
félagsins lengist því enn — Rush
er tíundi maður á listanum.
■ JIMMY Lumsden hefur verið
rekinn úr starfi framkvæmdastjóra
liðs Bristol City í ensku 2. deild-
inni. Talið er næsta víst að Argent-
ínumaðurinn Osvaldo Ardiles, sem
rekinn var frá Newcastle á dögun-
um, verði ráðinn í hans stað.
■ JIMMY Carter, sem Arsenal
keypti frá Liverpool í vetur, meidd-
ist í hné í leik með varaliðinu á
laugardag og verður væntanlega
frá keppni út keppnistímabilið.
■ NIGEL Spinks vill fara frá
Aston Villa. Markvörðurinn hefur
—verið hjá félaginu í 15 ára, en misst
sæti sitt í vetur til Les Sealy.
Spinks á að baki yfir 350 leiki með
liðinu.
■ MARK Bosnich, sem er tvítug-
ur markvörður frá Astralíu, hefur
gengið til liðs við Aston Villa.
Hann var í tvö ár til reynslu hjá
Manchester United en fór heim
eftir. Alex Ferguson, stjóri United,
vildi fá hann en Ron Atkinson hjá
Villa var á undan og nældi í strák-
inn.
; ^ ■ DUNDEE United í Skotiandi
vill fá gamla varnaijaxlinn Graham
Roberts sem leikmann og þjálfara.
Hann er nú hjá WBA og hefur
Bobby Gould, stjóri liðsins, neitað
honum um að fara.
■ KEVIN Keegan, stiári_/New-
castle, segist ætla að Traupa einn
þekktan leikmann fyrir næsta
keppnistímabil. Og ef lið hans haldi
sæti sínu í 2. deild jafnvel 2-3 mjög
sterka menn. Sagan segir að Keeg-
an ætli sér að bjóða í Ian Rush frá
Liverpool, og jafnvel reyna að
kaupa Peter Beardsley frá Ever-
ton og Chris Waddle frá Mars-
eille í Frakklandi.
FRJALSAR
PéturáEM
Pétur Guðmundsson, kúlu-
varpari úr KR, verður eini
íslenski keppandinn á Evrópu-
meistaramótinu innanhúss, sem
fram fer í Genúa á Ítalíu um
næstu helgi.
Pétur hefur náð góðum ár-
angri á æfingum undanfarið og
varpaði kúlunni m.a. 19,65 m á
móti í Reiðhöllinni fyrir
skömmu.
með sigri á Króknum
Mikil spenna framundan íkeppni liðanna um sæti í úrslitakeppninni
l . •
iftislifi
Ivan Jonas var stigahæstur leikmanna Tindastóls er liðið sigraði KR 71:67
á Sauðárkróki í gærkvöldi.
TINDASTÓLL sigraði KR 71:67
í Japísdeildinni í körfuknattleik
í miklum baráttuleik ítroðfullu
húsi áhorfenda á Sauðárkróki
ígærkvöldi. Með sigrinum náði
Tindastóll að komast upp að
hlið KR þegar aðeins þrjár
umferðir eru eftir. Það stefnir
því í hörkukeppni um hvort lið-
ið kemst í úrslitakeppnina
ásamt ÍBK, Val og Njarðvík.
Frá
Birni
Björnssyni
á Sauðárkróki
Tindastóll byijaði leikinn vel og
náði 11 stiga forystu, 17:6,
þegar fimm mínútur voru liðnar.
KR-ingar voru ekki
á því að gefa leikinn
og söxuðu forskotið
fljótlega niður í þijú
stig og þegar blásið
var til leikhlés var staðan 44:40
fynr heimamenn.
í síðari hálfleik var mikið um
mistök hjá báðum liðum í sókninni
en léku bæði vörnina vel. Tinda-
stólsmenn náðu mest 13 stiga for-
skoti í síðari hálfleik, en þegar mín-
úta var til leiksloka var staðan
69:65. Guðni Guðnason, besti leik-
maður KR, minnkaði muninn í tvö
stig, 69:67 og aðeins 8 sekúndur
eftir. Tindastóll missti síðan boltann
klaufalega í næstu sókn og Páll
Kolbeinsson reyndi þriggja stiga
skot og aðeins tvær sekúndur eftir,
en boltinn dansaði á körfuhringnum
en vildi ekki ofaní. í hamaganginum
var dæmd sóknarvilla á KR og Pét-
ur Guðmundsson skoraði úr báðum
vítaskotunum og gulltryggði sigur
heimamanna.
Leikurinn var mjög skemmtileg-
ur og bauð upp á mikla baráttu og
spennu og kunnu áhorfendur vel
að meta það. Pétur Guðmundsson,
Valur Ingimundarson og Ivan Jonas
voru bestu leikmenn Tindastóls.
Haraldur Leifsson, sem gerði sjö
þriggja stiga körfur í síðasta leik,
hitti illa. Guðni Guðnason var yfir-
burðamaður hjá KR og Jon Bear
lék ágætlega. Páll Kolbeinsson
reyndi oft þriggja stiga skot, en
aðeins eitt skot rataði rétta leið.
„Við vissum það fyrirfram að
þetta yrði erfiður leikur. Við ákváð-
um að spila yfirvegað og sjá til
hvernig gengi. Liðið er hálf væng-
brotið án Axels Nikulássonar, sem
er meiddur. En við eigum enn for-
skot á Tindastól og ætlum að nýta
okkur það,“ sagði Birgir Guðbjörns-
son, þjálfari KR.
UMFT-KR 71:67
íþróttahúsið á Sauðárkróki, íslandsmótið í
körfuknattleik - Japisdeildin, þriðjudaginn
'25. febrúar 1992.
Gangur leiksins: 8:0, 17:6, 23:17, 29:26,
36:33, 44:40, 50:42, 57:44, 59:66, 63:58,
67:63, 69:67, 71:67.
Stig UMFT: Ivan Jonas 22, Pétur Guð-
mundsson 20, Valur Ingimundarson 19,
Haraldur Leifsson 8, Einar Einarsson 2.
Stig KR: Jon Bear 24, Guðni Guðnason
20, Hermann Hauksson 9, Páll Kolbeinsson
7, Óskar Kristjánsson 5, Lárus Árnason 2.
Dómarar: Kristján Óskarsson og Einar
Skarphéðinsson. Dæmdu erfiðan leik vel.
Áhorfendur: Um 600.
A-RIÐILL
Fj. leikja U T Stig Stig
UMFN 22 KR 23 19 3 2091: 1780 38 15 8 2059:1887 30
UMFT 23 SNÆFELL 22 SKALLAGR. 22 15 8 2111:2024 30 5 17 1761:2075 10 4 18 1779:2156 8
B-RIÐILL
Fj. leikja U T Stig Stig
ÍBK 22 19 3 130: 835 38
VALUR 22 13 9 046: 956 26
UMFG 22 9 13 916: 817 18
HAUKAR 21 9 12 957: 042 18
ÞÓR 21 2 19 757: 035 4
Hvort liðið kemst áf ram?
Lið KR og Tindastóls eru nú jöfn að stigum í A-riðli Japisdeildarinnar
með 30 stig. KR telst þó ofar, þar sem liðið er með betri útkomu
úr innbyrðisviðureignum þeirra. Liðin hafa reyndar unnið sína tvo leikina
hvort, en KR-ingar hafa skorað 18 stigum meira en Tindastóll í leikjunum
fjórum sem þau hafa mæst í í vetur. Standi lið jöfn í riðlakeppninni, er
það einmitt útkoman úr innbyrðisleikjunum sem ræður úrslitum.
Liðin eiga bæði eftir þijá leiki í riðlakeppninni, og svo skemmtilega vill
til að það er gegn sömu liðum. Tindastóll mætir Njarðvíkingum á föstudag-
inn í Njarðvík, sunnudaginn 8. mars fá KR-ingar Njarðvíkinga í heim-
sókn og Tindastóll tekur á móti Snæfelli, fimmtudaginn 12. mars leika
KR og Skallagrímur á Seltjarnarnesi og sunnudaginn 15. mars eiga bæði
lið útileiki — KR-ingar gegn Snæfelli í Stykkishólmi og Tindastóll í Borg-
arnesi gegn Skallagrími.
IÞROTTIR FATLAÐRA / NORRÆNATRIMMKEPPNIN
íslendingar í 4. sæti
Islendingar höfnuðu í fjórða sæti í
norrænni trimmkeppni fatlaðra,
en keppnin fer fram á öllum Norður-
löndunum annað hvert ár. Danir sigr-
uðu að þessu sinni, Finnar urðu í
öðru sæti og Norðmenn í þriðja.
Bolvíkingar sigruðu í innanland-
skeppninni.
Einn þáttur í því að virkja alla
fatlaða til íþrótta og útivistar er sam-
eiginlegt átak allra Norðurlanda-
þjóða í „Norrænni trimmkeppni fatl-
aðra“. Norrænu trimmkeppninni
lauk formlega í október sl. en úrslit
voru ekki Ijós fyrr en í síðustu viku.
Norræna trimmkeppnin er einnig
keppni milli héraðssambandanna í
landinu. Það héraðssamband sem
flest stig hlýtur miðað við íbúafjölda
sigrai- og hlýtur að launum Flugleiða-
bikarinn, sem gefinn er af Flugleið-
um. Að þessu sinni sigraðu Bolvík-
ingar. Akureyringar urðu í öðru sæti
og Siglfirðingar í þriðja.
íþróttasamband Fatlaðra dróg út
10 nöfn, þeirra Islendinga sem
trimmuðu 30 sinnum. Þeir einstak-
lingar fá íþróttabúninga sem gefnir
eru af Flugleiðum.
Eftirtalin nöfti voioi dregin út:
Sigríður Pálsdóttir, Álftaholum 6, Reykjavík,
Árni J. Óskarsson, Blönduhlíð, Skálatúni, Sigr-
ún Eiríksdóttir, Bogaslóð 12, Höfn, Guðbjörg
Sveinsdóttir, Ártúni 6, Selfossi, Gísli K. Sig-
urðsson, Kópavogshæli, Kópavogi, Jakobína
Þormóðsdóttir, Stuðlaseli 2, Reykjavík, Sveinn
Guðfinnsson, Kópavogsbraut 9, Kópavógi,
Helga Ósk Ólafsdóttir, Bogahlíð 18, Reykja-
vík, Hjalti B. Eiðsson, Hlíðargerði 3, Reykja-
vík, Kristín Einarsdóttir, Illugagötu 6, Vest-
mannaeyjum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hjalti B. Eiðsson var einn þeirra sem trimmaði 30 sinnum. Hann fékk
íþróttabúning í verðlaun að því tilefni. Með honum á myndinni eru Andri
Hrólfsson, auglýsingastjóri Flugleiða og Ólafur Jensson, formaður ÍF.
í kvöld Handknattleikur 1. deild karla: Valsheimilið: Valur-UBK ..kl. 20
1. deild kvenna: Garðabær: Stjarnan - Fram.... ,.kl. 20
Höllin: Ármann - Grótta ..kl. 20
Kaplakriki: FH-lBV „kl. 20
Strandgata: Haukar - KR „kl. 20
Víkin: Vikingur-Valur „kl. 20
2. deild:
Keflavlk: HKN-KR „kl. 20
Körfuknattleikur 1. deild kvenna: Seljaskóli: ÍR-fS „kl. 20
ÚRSLIT
NBA-DEILDIN
Leikir í fyrrakvöld:
Golden State - Dallas........138:131
PhoenixSuns-NewYork..........104: 95
Portland - Utah Jazz.........110:107
Atlanta Hawks - Denver........113: 90
Philadelphia - Sacramento.....108: 96
Seattle - Minnesota..........106: 91