Morgunblaðið - 04.03.1992, Page 27

Morgunblaðið - 04.03.1992, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MARZ 1992 27 Hjónaminning: Jón Guðjónsson — Bára Amgrímsdóttir Jón Fæddur 15. september 1912 Dáinn 25. febrúar 1992 Bára Fædd 9. ágúst 1916 Dáin 15. febrúar 1990 Þegar komið er að kveðjustund í þessu lífi hrannast upp minningar um ljúf kynni og góðar samveru- stundir. Undirrituð er tengdadóttir þeirra. Bára Arngrímsdóttir var fædd á Akureyri, elsta barn þeirra hjóna Sigríðar Jónsdóttur og Arngríms Jónssonar. Bára varð fyrir þeirri sáru reynslu að missa föður sinn af slysförum um fermingaraldur. Varð það hlutskipti hennar að axla ábyrgð og aðstoða móður sína sem þá stóð uppi með sex börn. Setti atburður þessi djúp sár í sálu henn- ar alla tíð. Ung fór hún að heiman til að vinna og leggja sitt af mörk- um í brauðstritinu. Leið hennar eins og margra annarra lá til Siglufjarð- ar að vinna við beitningar, síldar- söltun og annað er til féll og talaði hún oft um þær skemmtilegu stund- ir í góðra vina hópi þrátt fyrir bág- an aðbúnað og lök kjör verkafólks á þeim tíma. Á Siglufirði kynntist hún Jóni Guðjónssyni sem þá var skipstjóri á einum bátanna sem hún beitti við. Felldu þau hugi saman og gengu í hjónaband. Jón var fæddur á Hafnarnesi við Fáskrúðsfjörð. Hann var sonur hjónanna Sólveigar Þorleifsdóttur og Guðjóns Péturs Jónssonar. Sömu örlög voru honum búin og Báru að missa föður sinn einnig af slysför- um þegar hann var fjögurra ára að aldri og var hann settur í fóst- ur. Sár hefur sú reynsla verið ung- um dreng. Sín manndómsár áttu þau á Sigl- ufirði og fæddust þeim átta börn sem öll eru á lífi og fædd á Siglu- firði nema elsta bamið Arngrímur sem fæddur er á Akureyri. Hin börnin eru Guðjón Sævar, Sólveig, Jón, Sigurður Omar, Hugrún, Örn og Már sem eru tvíburar. Starfsvettvangur Jóns var sjó- mennska. Hann var skipstjóri á ýmsum skipum til fjölda ára. Hlut- verk Báru hlaut því að verða umönnun og uppeldi barna þeirra. Hefur það verið ærinn starfi sem hún ræktaði af fórnfýsi og um- hyggju. Bára er fagurkeri og bar heimili þeirra þess ljósan vott. Allt var í röð og reglu og hefur það kostað ómælda vinnú og fórnir að hugsa alltaf fyrst og fremst um hag barna og eiginmanns en eiga fáar stundir til eigin þarfa. Sama gilti um Jón. Starf á sjó gefur ekki tækifæri á tómstunda- iðkun að neinu marki nema þá helst að grípa í spil. Jón var makker góður og gerði hann mikið af því að spila eftir hann kom í land. Síð- ustu æviárin áttu þau bæði við van- heilsu að stríða sem þau báru af æðruleysi og reisn eins og annað á sinni lífsleið. Nú er þrautum og þjáningum lokið og bið ég guð að blessa þau og þeirra nánustu. Ég kveð þau með virðingu og þökk. Margrét Friðriksdóttir. Jón Guðjónsson, skipstjóri og útgerðarmaður, lést á Vífilsstaða- spítala 25. febrúar sl. Mig langar til að minnast Jóns, tengdaföður mlns, með nokkrum orðum. Jón fæddist á Hafnarnesi við Fáskríðsfjörð. Jón missti föður sinn ungur að árum. Móður hans reynd- ist um megn að halda öllum börnun- um saman og var Jóni komið I fóst- ur I Reyðarfirði aðeins 4 ára göml- um. Hann hóf ungur að stunda sjó eða á 12. aldursári. Jón kvæntist Báru Arngrímsdótt- ur úr Glerárþorpi á Akureyri. Þau hófu búskap á Siglufirði, en fluttu heimili sitt til Ólafsfjarðar á árinu 1963. Þau eignuðust sex syni og tvær dætur auk margra barnabarna og barnabarnabarna. Bára lést fyr- ir réttum 2 árum. Sjómennskan varð hans lífsstarf. Þrátt fyrir fátækt og erfið kjör afl- aði hann sér vélstjórnarréttinda. Síðar lá leið hans I Stýrimannaskól- ann I Reykjavík þar sem hann öðlað- ist skipstjórnarréttindi. Þá var Jón kominn vel á fertugsaldur. Lengst af stundaði Jón sjómennsku frá Ólafsfirði en framan af frá Siglu- fírði. Hann var traustur og vinsæll skipstjóri. Það var eftirsótt að kom- ast I skipsrúm hjá honum. Hann kom vel fram við alla sína menn. Fyrrum samferðamenn hans á sjón- um hafa látið falla mörg falleg orð um hann I mín eyru. Leiðir okkar Jóns lágu saman I Ólafsfírði fyrir tæpum 20 árum. Þá hafði hann átt við veikindi að stríða og látið af skipstjórn og útgerð en fór einungis einstaka túra til afleys- inga fyrir aðra. Þar spiluðum við brids I bridsfélagi staðarins. Það æxlaðist svo að við spiluðum saman I nokkur ár. Okkur varð strax vel til vina þótt hann væri rúmum 30 árum eldri. Það var I sjálfu sér ekki furða því Jón var einstakur maður. Hann var sérstaklega ljúfur maður sem öllum vildi gott gera. Jón var jafn- framt mjög hæverskur maður sem ekki var fyrir það að trana sér fram. En hann gat verið ákveðinn ef hann vildi það, enda gamall skipstjóri sem var vanur því að menn hlýddu. En alltaf var Jón I sama góða skapinu á hvetju sem gekk. Jón fylgdist vel með öllu sem var að gerast og það var oft gaman að spjalla við hann, ekki hvað síst um það sem á daga hans hafði drifíð. En það er einhvern veginn svo, að þegar maður sér á bak einhvetjum nánum eins og Jóni Guðjónssyni fínnst manni eins og maður hafí ekki gefið sér nægan tíma með honum, tíma sem hefði verið vel varið. Jón var barnabörnum og bama- barnabörnum sínum sérlega góður afí og langafi og gætti þess að eigst. eitthvað til þess að geta gefíð litla mannfólkinu þegar það kom I heim- sókn. Mér stendur ávallt fyrir hug- skotsjónum hversu einlæglega það gladdi hann og hversu breitt hann brosti þegar afa- og langafabömin komu I heimsókn. Þá fylgdist hann vel með hvemig þeim gekk I skóla hveiju sinni. Jón hafði alla tið mjög gaman af spilamennsku og spilaði oft brids. Eftir að hann kom til Reykjavíkur spilaði hann I mörg ár með Barð- strendingafélaginu. Einnig spilaði hann oft með spilafélögum mínum og það verður að segjast að hann spilaði betur en við flestir gerðum. Ef til vill fólst skýringin I því að hann var mikill reikningsmaður. Oft spurði hann dóttur mína hvem- ig henni gengi I reikningi og var ánægður þegar hann fékk gott svar. Ég vil nota þetta tækifæri og þakka starfsfólki Vífilsstaðaspítala fyrir mikla og góða umhyggju og umönnun við Jón meðan hann dvaldi á spítalanum. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að stíga svo mörg spor með Jóni Guðjónssyni. Hann er einn besti maður sem ég hef kynnst. .Skarð er fyrir skildi. Jóns er sárt saknað. Blessuð sé minning hans. Pétur Már Jónsson. —molnmg leppi flisor mottur vidorworn dreglor teppi motturl Misstu ekki af tækifærinu! JJtt Stórkostleg RÝMINGARSALA því verslunin flytur. GOLFT€PPI ÁÐUR 1.042,-m2 NÚ 521,- FILTT€PPI ÁÐUR NÚ 331,- T€PPRBUTRR 1 Prúttið Gerið tilboð MRLNING 10 L ÁÐUR 3>20.- NÚ 2.873,- VIÐRRVORN AÐUR NÚ 482,- T€PPRDR€GLRR ÁÐUR 1.2SC,-oi2 NÚ 995,- GOLFDUKRR AÐUR NÚ 795,- Ódvr húsQÖgn í bcirnciherbergid eda sumcirbústcidinn ! ...KOMDU OG KYNNTU ÞÉR MALIN BÆJARHRAUN 16-220 HAFNARFIRÐI - SIMI 652466 mólning teppi flfror mottur viðorvörn dreglor teppi mottur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.