Morgunblaðið - 04.03.1992, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MARZ 1992
27
Hjónaminning:
Jón Guðjónsson —
Bára Amgrímsdóttir
Jón
Fæddur 15. september 1912
Dáinn 25. febrúar 1992
Bára
Fædd 9. ágúst 1916
Dáin 15. febrúar 1990
Þegar komið er að kveðjustund
í þessu lífi hrannast upp minningar
um ljúf kynni og góðar samveru-
stundir. Undirrituð er tengdadóttir
þeirra.
Bára Arngrímsdóttir var fædd á
Akureyri, elsta barn þeirra hjóna
Sigríðar Jónsdóttur og Arngríms
Jónssonar. Bára varð fyrir þeirri
sáru reynslu að missa föður sinn
af slysförum um fermingaraldur.
Varð það hlutskipti hennar að axla
ábyrgð og aðstoða móður sína sem
þá stóð uppi með sex börn. Setti
atburður þessi djúp sár í sálu henn-
ar alla tíð. Ung fór hún að heiman
til að vinna og leggja sitt af mörk-
um í brauðstritinu. Leið hennar eins
og margra annarra lá til Siglufjarð-
ar að vinna við beitningar, síldar-
söltun og annað er til féll og talaði
hún oft um þær skemmtilegu stund-
ir í góðra vina hópi þrátt fyrir bág-
an aðbúnað og lök kjör verkafólks
á þeim tíma.
Á Siglufirði kynntist hún Jóni
Guðjónssyni sem þá var skipstjóri
á einum bátanna sem hún beitti
við. Felldu þau hugi saman og
gengu í hjónaband.
Jón var fæddur á Hafnarnesi við
Fáskrúðsfjörð. Hann var sonur
hjónanna Sólveigar Þorleifsdóttur
og Guðjóns Péturs Jónssonar. Sömu
örlög voru honum búin og Báru að
missa föður sinn einnig af slysför-
um þegar hann var fjögurra ára
að aldri og var hann settur í fóst-
ur. Sár hefur sú reynsla verið ung-
um dreng.
Sín manndómsár áttu þau á Sigl-
ufirði og fæddust þeim átta börn
sem öll eru á lífi og fædd á Siglu-
firði nema elsta bamið Arngrímur
sem fæddur er á Akureyri. Hin
börnin eru Guðjón Sævar, Sólveig,
Jón, Sigurður Omar, Hugrún, Örn
og Már sem eru tvíburar.
Starfsvettvangur Jóns var sjó-
mennska. Hann var skipstjóri á
ýmsum skipum til fjölda ára. Hlut-
verk Báru hlaut því að verða
umönnun og uppeldi barna þeirra.
Hefur það verið ærinn starfi sem
hún ræktaði af fórnfýsi og um-
hyggju. Bára er fagurkeri og bar
heimili þeirra þess ljósan vott. Allt
var í röð og reglu og hefur það
kostað ómælda vinnú og fórnir að
hugsa alltaf fyrst og fremst um hag
barna og eiginmanns en eiga fáar
stundir til eigin þarfa.
Sama gilti um Jón. Starf á sjó
gefur ekki tækifæri á tómstunda-
iðkun að neinu marki nema þá helst
að grípa í spil. Jón var makker
góður og gerði hann mikið af því
að spila eftir hann kom í land. Síð-
ustu æviárin áttu þau bæði við van-
heilsu að stríða sem þau báru af
æðruleysi og reisn eins og annað á
sinni lífsleið.
Nú er þrautum og þjáningum
lokið og bið ég guð að blessa þau
og þeirra nánustu. Ég kveð þau
með virðingu og þökk.
Margrét Friðriksdóttir.
Jón Guðjónsson, skipstjóri og
útgerðarmaður, lést á Vífilsstaða-
spítala 25. febrúar sl. Mig langar
til að minnast Jóns, tengdaföður
mlns, með nokkrum orðum.
Jón fæddist á Hafnarnesi við
Fáskríðsfjörð. Jón missti föður sinn
ungur að árum. Móður hans reynd-
ist um megn að halda öllum börnun-
um saman og var Jóni komið I fóst-
ur I Reyðarfirði aðeins 4 ára göml-
um. Hann hóf ungur að stunda sjó
eða á 12. aldursári.
Jón kvæntist Báru Arngrímsdótt-
ur úr Glerárþorpi á Akureyri. Þau
hófu búskap á Siglufirði, en fluttu
heimili sitt til Ólafsfjarðar á árinu
1963. Þau eignuðust sex syni og
tvær dætur auk margra barnabarna
og barnabarnabarna. Bára lést fyr-
ir réttum 2 árum.
Sjómennskan varð hans lífsstarf.
Þrátt fyrir fátækt og erfið kjör afl-
aði hann sér vélstjórnarréttinda.
Síðar lá leið hans I Stýrimannaskól-
ann I Reykjavík þar sem hann öðlað-
ist skipstjórnarréttindi. Þá var Jón
kominn vel á fertugsaldur. Lengst
af stundaði Jón sjómennsku frá
Ólafsfirði en framan af frá Siglu-
fírði. Hann var traustur og vinsæll
skipstjóri. Það var eftirsótt að kom-
ast I skipsrúm hjá honum. Hann
kom vel fram við alla sína menn.
Fyrrum samferðamenn hans á sjón-
um hafa látið falla mörg falleg orð
um hann I mín eyru.
Leiðir okkar Jóns lágu saman I
Ólafsfírði fyrir tæpum 20 árum. Þá
hafði hann átt við veikindi að stríða
og látið af skipstjórn og útgerð en
fór einungis einstaka túra til afleys-
inga fyrir aðra. Þar spiluðum við
brids I bridsfélagi staðarins. Það
æxlaðist svo að við spiluðum saman
I nokkur ár.
Okkur varð strax vel til vina
þótt hann væri rúmum 30 árum
eldri. Það var I sjálfu sér ekki furða
því Jón var einstakur maður. Hann
var sérstaklega ljúfur maður sem
öllum vildi gott gera. Jón var jafn-
framt mjög hæverskur maður sem
ekki var fyrir það að trana sér fram.
En hann gat verið ákveðinn ef hann
vildi það, enda gamall skipstjóri sem
var vanur því að menn hlýddu. En
alltaf var Jón I sama góða skapinu
á hvetju sem gekk.
Jón fylgdist vel með öllu sem var
að gerast og það var oft gaman að
spjalla við hann, ekki hvað síst um
það sem á daga hans hafði drifíð.
En það er einhvern veginn svo, að
þegar maður sér á bak einhvetjum
nánum eins og Jóni Guðjónssyni
fínnst manni eins og maður hafí
ekki gefið sér nægan tíma með
honum, tíma sem hefði verið vel
varið.
Jón var barnabörnum og bama-
barnabörnum sínum sérlega góður
afí og langafi og gætti þess að eigst.
eitthvað til þess að geta gefíð litla
mannfólkinu þegar það kom I heim-
sókn. Mér stendur ávallt fyrir hug-
skotsjónum hversu einlæglega það
gladdi hann og hversu breitt hann
brosti þegar afa- og langafabömin
komu I heimsókn. Þá fylgdist hann
vel með hvemig þeim gekk I skóla
hveiju sinni.
Jón hafði alla tið mjög gaman
af spilamennsku og spilaði oft brids.
Eftir að hann kom til Reykjavíkur
spilaði hann I mörg ár með Barð-
strendingafélaginu. Einnig spilaði
hann oft með spilafélögum mínum
og það verður að segjast að hann
spilaði betur en við flestir gerðum.
Ef til vill fólst skýringin I því að
hann var mikill reikningsmaður.
Oft spurði hann dóttur mína hvem-
ig henni gengi I reikningi og var
ánægður þegar hann fékk gott svar.
Ég vil nota þetta tækifæri og
þakka starfsfólki Vífilsstaðaspítala
fyrir mikla og góða umhyggju og
umönnun við Jón meðan hann
dvaldi á spítalanum.
Ég er þakklátur fyrir að hafa
fengið að stíga svo mörg spor með
Jóni Guðjónssyni. Hann er einn
besti maður sem ég hef kynnst.
.Skarð er fyrir skildi. Jóns er sárt
saknað. Blessuð sé minning hans.
Pétur Már Jónsson.
—molnmg leppi flisor mottur vidorworn dreglor teppi motturl
Misstu ekki af
tækifærinu!
JJtt
Stórkostleg RÝMINGARSALA því verslunin flytur.
GOLFT€PPI
ÁÐUR 1.042,-m2
NÚ 521,-
FILTT€PPI
ÁÐUR
NÚ 331,-
T€PPRBUTRR 1
Prúttið
Gerið tilboð
MRLNING 10 L
ÁÐUR 3>20.-
NÚ 2.873,-
VIÐRRVORN
AÐUR
NÚ 482,-
T€PPRDR€GLRR
ÁÐUR 1.2SC,-oi2
NÚ 995,-
GOLFDUKRR
AÐUR
NÚ 795,-
Ódvr húsQÖgn í
bcirnciherbergid
eda sumcirbústcidinn !
...KOMDU OG KYNNTU ÞÉR MALIN
BÆJARHRAUN 16-220 HAFNARFIRÐI - SIMI 652466
mólning teppi flfror mottur viðorvörn dreglor teppi mottur