Morgunblaðið - 13.08.1992, Side 12

Morgunblaðið - 13.08.1992, Side 12
12____________________MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1992_ Otækur áróður gegn sjávarpláss- um suðvestan- og sunnanlands Auknar veiðiheimildir „fugl í skógi“ en ekki hendi eftir Árna Johnsen Orökrétt fjaðrafok hefur átt sér stað að undanförnu í fjölmiðlum vegna ákvarðana um skertar veiði- heimildir, því megináherslan hefur verið lögð á það af sumum sem lagt hafa orð í belg að verið sé að rétta ákveðnum byggðum hlunn- indi en herða ólina hjá öðrum. Þetta fjaðrafok hefur átt sér stað í skjóli þess að hámarksafli á þorski verður dreginn saman, en hámarksafli á ýsu og öðrum tegundum aukinn umtalsvert, sérstaklega þó ýsu. Stöðugleiki í fiskveiðum hefur verið mestur í þorskveiðum, en mikil og mörg frávik hafa verið í öðrum tegundum, sérstaklega ýs- unni af hefðbundnum bolfískteg- undum. Svo mikil hafa þessi frávik verið að raunveruleg skerðing í sumum byggðarlögum suðvestan- og sunnanlands hefur verið um og yfír tugur prósenta á ári án þess að menn væru að gera óbilgjarnar kröfur til annarra byggðarlaga eða reyndu að ala á baráttu og tor- tryggni milli byggða. Stærsta verstöð landsins, Vest- mannaeyjar, er jafnframt mesta þorskveiðiverstöðin og skerðing á „Stöðugleiki í fiskveið- um hefur verið mestur í þorskveiðum, en mikil og mörg frávik hafa verið í öðrum tegund- um, sérstaklega ýsunni af hefðbundnum bol- fisktegundum.“ þorskafla kemur því harðast niður þar. Samt sem áður er hlutfallslega heldur meira af ýsu, ufsa, karfa og öðrum tegundum í heildarafla eins og hjá ýmsum öðrum á suð- vestursvæði landsins, heldur en á norðurhluta landsins, en óstöðug- leiki í veiðum fyrrgreindra tegunda er mjög mikill og nánast happ- drætti hvort tegundirnar gefa sig eða ekki. Það er því gjörsamlega út í hött að reikna þann hámarks- afla sem veiddan afla og verðmæti fyrirfram. Umræðan hefur snúist um stuðla og útreikninga, sem nú eru úreltir. Því samkvæmt nýjufn stuðlum þar sem auknar veiðiheim- ildir ákveðinna tegunda eru um- reiknaðir í þorskígildi búa Vest- mannaeyjar og aðrar verstöðvar sunnan- og suðvestanlands við heildarskerðingu eins og víðast annars staðar á landinu. Útvegs- menn og fískverkendur í Eyjum hafa séð sig knúna til að mótmæla þeirri umræðu sem átt hefur sér stað um þessi mál að undanförnu. Það er ljóst að við vanda skerð- ingarinnar þarf að bregast eins og frekast er kostur, en ekkert bendir til þess að sértækar staðbundnar aðgerðir hafí rök á bak við sig nema í algjörum neyðartilvikum þar sem vandinn er þá líklegast mest til kominn vegna uppsöfnunar á mörgum vandamálum um árabil. Dæmi: Sjávarpláss sem situr uppi með umtalsverða skerðingu á þor- skafla og á einnig við að glíma stórkostlegan vanda vegna rekstr- arhalla, of mikilla lána, vaxta- og fjármagnskostnaðar o.fl., hefur auðvitað ekki borð fyrir báru þegar brimar enn meira í rekstrarum- hverfínu með umtalsverðri afla- skerðingu. Embættismenn og aðrir hafa verið að tilkynna að ákveðin sjávar- pláss væru tryggð í plús með ákvörðuninni um nýjar veiðiheim- ildir, en önnur pláss væru fyrirfram Arni Johnsen í mínus. Málið er bara alls ekki svo einfalt, því tegundirnar þar sem aukningin er samkvæmt reglugerð hafa í stórum stíl reynst hverfular til að treysta á og eru „fugl í skógi“ en ekki hendi. Þess vegna er ekki hægt að setja neina prósentuvið- miðun og skerðingarhámark fyrr en ársaflinn liggur fyrir og hefur verið gerður upp. Ef ríkissjóður ætlar til dæmis að bæta byggð skerðingu fyrir ofan 5% vegna sam- dráttar í þorskafla er engan veginn hægt að gera það fyrr en ljóst er um veiddan ársafla. Þetta skyldu menn hafa í huga sem eru að ala á hatri milli byggða, ekki síst þeir sem um árabil hafa sannanlega notið ríkulegar en aðrir af sam- eiginlegum kjötkötlum þjóðarinnar, bæði með hærri aflaheimildir á ákveðnar tegundir en aðrir lands- menn eins og til dæmis þegar tog- arinn norðanlands fékk 1.750 tonn af þorskkvóta en togarinn sunnan- lands 1.100 tonn og af ýmsum öðrum ástæðum. Byggðirnar suð- vestanlands, á Reykjanesi og við Suðurland, hafa orðið að þola mikl- ar skerðingar í sjávarafla um ára- bil án þess að gripið væri til sér- stakra aðgerða og það eru því eng- in rök fyrir því að skilja þau sjávar- pláss útundan í umræðunni og kröfupólitíkinni sem nú á sér stað hjá þeim sem hæst gala eins og reyndar oft áður. Varðandi veiðiheimildir og út- hlutun þeirra er ekkert ásættanlegt nema það að menn og byggðir sitji við sama borð og sama á við um hugmyndir um styrki vegna skerð- ingar. Sérstök vandamál byggða og landshluta þarf síðan að taka fyrir og leysa eins og gert er á slysadeildum heilbrigðiskerfísins. Almenna reglan verður að gilda fyrir almennan rekstur til sjós og lands. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins fyrir Suðurlandskjördæmi. Athugasemd - frá sr. Helgu Soffíu Konráðsdótt- ur, sem gegnt hefur afleysingarþjón- ustu í Keflavíkursókn Norðurlandamót barnaskóia í skák; Gull til Islands annað árið í röð KeHavfk. SVEIT frá æfingaskóla Kennaraháskólans sigraði glæsilega á Norðurlandamóti barnaskóla sem fram fór í Östersund í Svíþjóð um síðustu helgi og er þetta annað árið í röð sem sveit frá skólan- um sigrar í þessari keppni. Bræðurnir Bragi og Björn Þór Þorf- innssynir kepptu á 1. og 2. borði og sigruðu þeir í öilum sínum skákum. íslenska sveitin hlaut I6V2 vinning, a-sveit Svíþjóðar varð í öðru sæti með 13 vinninga og danska sveitin varð í þriðja sæti með 9V2 vinning. Norska sveitin varð fjórða með 8 vinninga, b- sveit Svía fimmta með 7 vinninga og lestina rak finnska sveitin með 6 vinninga. Undirrituð óskar eftir að koma á framfæri eftirfarandi athuga- semdum varðandi grein sr. Ólafs Odds Jónssonar, sóknarprests í Keflavík, sem birtist 1' dagblöðum þann 11. og 12. ágúst 1992: Þann 15. febrúar sl. var ég ráð- in til afleysingarþjónustu í Kefla- víkurprestakalli. Strax frá fyrsta degi tóku við annasamir tímar við störf vegna jarðarfara, skírna og húsvitjana - auk fermingarstarfa, þar sem verulega þurfti að taka til höndum, ef svo má að orði kom- ast um þess konar störf. Við þessu var ég búin enda fyllilega meðvituð um stærð og umfang prestakalls- ins. Þessi miklu umsvif áttu vel við mig enda ekki í kot vísað varð- andi alla aðstöðu og frábært sam- starfsfólk þar sem var organistinn, meðhjálparinn, sunnudagaskóla- leiðtogamir og sóknamefndin. Ég var fljótlega spurð að því, m.a. af sr. Ólafí Oddi Jónssyni, hvort ég hefði ekki áhuga á því að vera áfram í Keflavík eftir að afleysingunni lyki þann 1. septem- ber nk. og sækja um stöðu að- stoðarprests sem hér ætti að stofna. Því neitaði ég á þeim for- sendum að þess konar preststarf ætti ekki við mig núna, ég hefði verið aðstoðarprestur áður og ósk- aði ekki eftir slíku starfí. En eftir því sem tíminn leið slakaði ég á þessari afdráttarlausu skoðun minni vegna eindreginna hvatn- inga úr söfnuðinum og ekki síður vegna þess að hér í Keflavík hefur mér og fjölskyldu minni liðið mjög vel. Ennfremur skapaði bygging nýs safnaðarheimilis við kirkjuna miklar væntingar með mér, að hér væru spennandi tímar framundan. Ég hélt á fund sr. Ólafs Odds Jónssonar til að ræða við hann um aðstoðarprestsstarfið, um útgefið erindisbréf þar að lútandi og hug- myndir mínar varðandi slíkt starf. Um margt vorum við sammála en um önnur atriði algjörlega á önd- verðum meiði. T.d. vorum við ósammála um skiptingu greiðslna fyrir fermingarstörf. f samtali okk- ar bar hann brigður á heilindi mín gagnvart sér á meðan hann hafi verið í námsleyfí vegna þess að ég bað fyrrum meðhjálpara kirkjunn- ar að lesa ritningarlestra og tóna messusvör í kirkjunni á degi aldr- aðra. Þennan umrædda fullorðna mann bað ég fyrir þessi verk til þess að fá hæfan mann í hvort tveggja á þessum degi og ekki til að ögra sr. Ólafí Oddi. í lok þessa samtals lýsti hann því yfír að hann treysti sér ekki til að eiga sam- starf við mig sem aðstoðarprest „sinn“ í framtíðinni. Það getur verið að sr. Ólafur Oddur sé vanur og hafí komist upp með það Iengi að sýna öðru fólki ókurteisi og óvirðingu_ með orðum sínum og framkomu. Ég sætti mig hins vegar ekki við slíka fram- komu, allra síst af starfsbróður mínum, og þar sem ekki hefur vottað fyrir afsökunarbeiðni af hans hálfu hef ég kvartað yfir málinu, bæði við prófast Kjalarnes- prófastsdæmis og biskup íslands. Lái mér hver sem vill að hafa ákveðið að hætta við að sækja um umrætt starf. Þá ákvörðun til- kynnti ég í bréfi til sóknarnefndar. Þetta er frásögn mín af fundi mínum við sr. Ólaf Odd Jónsson — aIlt annað sem kemur fram þar að lútandi í áðurnefndri grein hans eru meðvitaðar, eða ómeðvitaðar, rangtúlkanir og ósannindi. Verst þykir mér þó að lesa um að „félags- legur fasismi" hafi fest rætur í Keflavík að áliti prestsins, að bæj- arfélagið hér þjáist af „hópeflis- sjúkdómi“ og að „demónísk öfl“ hafí verið að verki á sl. aðalsafnað- arfundi. Sömuleiðis reynir sr. Ólaf- ur Oddur að reka fleyg tortryggni milli mín og nýráðins sóknarprests Njarðvíkinga sem ég hef átt ágæt- Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir „Það er afar lang-! frá því að hér búi óalandi og óferjandi fólk, held- ur miklu fremur fólk sem ber hag kirkjunnar sinnar og bæjarsamfé- lagsins fyrir brjósti sér og hefur mikinn metn- að til að bera fyrir hvoru tveggja.“ is samstarf við síðan við bæði kom- um & Suðurnes. Og ég vil minna sr. Ólaf Odd og aðra á að það var búið að ráða mig til Keflavíkur áður en ég sótti um prestsstöðuna í Njarðvík. Ennfremur eru orð hans um „hinn karismatíska hluta sókn- amefndarinnar sem hringlar með guðsviljann“ niðurlægjandi Hvaða fólk á hann við? Er það fólkið sem hefur séð um barnastarfíð í kirkj- unni hjá honum í 16 ár? Þessar fullyrðingar eru Ijótar svo ekki sé meira sagt og harla ósæmandi presti að láta slíkt frá sér fara um söfnuðinn sem hann á að þjóna. Ég bið Guð að geyma sr. Ólaf Odd og söfnuðinn í Keflavík. Það er afar langt frá því að hér búi óalandi og ófeijandi fólk, heídur miklu fremur fólk sem ber hag kirkjunnar sinnar og bæjarsamfé- lagsins fyrir bijósti sér og hefur mikinn metnað til að bera fyrir hvoru tveggja. íslenska sveitin var skipuð þeim Braga og Birni Þór Þorfinnssonum sem tefldu á 1. og 2. borði, Frey Karlssyni sem tefldi á 3. borði, Davíð Ólafí Ingimarssyni sem tefldi á 4. borði og varamaður var Magnús Björn Ólafsson. Árangur bræðranna er ákaflega athyglis- verður og þá sérstaklega Braga sem er aðeins 11 ára og er þegar kominn með 1.875 skákstig. Að sögn Ólafs Guðmundssonar farar- stjóra sveitarinnar er þar mikið efni á ferð þar sem Bragi er, en allir hefðu strákarnir staðið sig með miklum ágætum. Ólafur Guðmundsson er kennari við æfingaskólann og undir hans stjórn hafa sveitir frá skólanum náð athyglisverðum árangri í skólaskákmótum í barnaflokki og nú einnig í flokki grunnskólanem- enda. Þetta er í þriðja sinn sem keppt er í barnaflokki og hefur sveit frá skólanum verið fulltrúi Islands í öll skiptin. Fyrsta árið hlaut sveitin silfur, en síðan gull tvö ár í röð. Sveit frá skólanum tók nú þátt í Norðurlandamóti grunnskóla en varð að láta sér lynda neðsta sætið að þessu sinni. -BB Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Norðurlandameistararnir í skólaskák. Frá vinstri: Ólafur Guðmunds- son fararstjóri, Bragi Þorfinnsson, Björn Þór Þorfinnsson, Freyr Karlsson, Davíð Ólafur Ingimarsson og Magnús Björn Ólafsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.