Morgunblaðið - 03.10.1992, Blaðsíða 24
(
24
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1992
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARLAGUR 3. OKTÓBER 1992
25
JHttgnnMafrife
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið.
„Sænska kerfið“
í vanda
*
Iannað skipti á innan við tveimur
vikum tilkynntu ríkisstjóm og
stjómarandstaða í Svíþjóð um
sameiginlegar neyðaraðgerðir í
efnahagsmálum síðastliðinn mið-
vikudag. Aðgerðirnar sem sam-
þykktar voru 20. september nægðu
ekki til að slá á ótta á peninga-
markaðnum við að gengi sænsku
krónunnar yrði fellt. Þrýstingur á
krónuna jókst og margt benti til
að gengisfelling væri yfirvofandi
þrátt fyrir himinháa millibanka-
vexti sænska seðlabankans. Hæst-
ir urðu þeir 500% áður en fyrri
hluti neyðaraðgerðanna var kynnt-
ur. Eftir það voru þeir lækkaðir
verulega en voru samt enn 40% á
þriðjudag. Ljóst var að við slíkt
vaxtastig gat atvinnulífið ekki búið
nema f örfáa daga til viðbótar.
Þó svo að Bengt Dennis seðla-
bankastjóri reyndi að fullvissa
markaðina um að því væm engin
takmörk sett hversu mikið vextirn-
ir yrðu hækkaðir, trúði því enginn
að tímamörkin væra jafnvíð og
hæðarmörkin. Gjaldeyrir streymdi
úr landi þar sem fjárfestar snera
baki við sænskum verðbréfum og
sænsk fyrirtæki flýttu sér að
greiða upp erlend lán og hikuðu
við að færa heim gjaldeyristekjur.
Sænskt atvinnulíf hefur átt við
mikla kostnaðarkreppu að stríða.
Skattar og álögur á fyrirtæki era
með því hæsta sem gerist á Vestur-
löndum auk þess sem laun era með
hærra móti. Samkeppnisstaða þess
hefur farið mjög versnandi á und-
anfömum áram og þegar Finnar,
sem eiga í harðri samkeppni við
Svía á mörgum sviðum, t.d. í skóg-
ariðnaði, felldu gengi finnska
marksins, gengu gjaldeyrismark-
aðir út frá því að gripið yrði til
svipaðra aðgerða í Svíþjóð. Gengis-
fellingarnar á Ítalíu og í Bretlandi
drógu einnig úr trausti manna 'á
krónunni enda um mikilvæg við-
skiptalönd Svíþjóðar að ræða.
Gengisfelling varð hins vegar
ekki raunin. I staðinn var gripið
til „innri gengisfellingar", álögur
á atvinnulífið voru lækkaðar veru-
lega en hækkaðar á almenning í
staðinn auk þess sem frídögum
Svía var fækkað um tvo, en slíkt
hafði aldrei gerst áður. Ekki einu
sinni í síðari heimsstyijöldinni. Við-
brögð markaða vora þegar í stað
mjög jákvæð. Millibankavextir
lækkuðu niður í 24%, almennir
vextir fóra niður á við og gjaldeyr-
ir streymdi til landsins. Hefur sú
þróun haldið áfram fram að helgi
og bendir allt til þess að traust
manna hafi verið vakið á sænsku
krónunni og sænsku efnahagslífi á
ný.
Þetta er mikil stefnubreyting í
sænskri efnahagsstjóm þar sem
hefð hefur verið fyrir því á síðustu
áratugum að fella gengið ef bæta
hefur þurft stöðu samkeppnisiðn-
aðarins og ekki síst athyglisverð
þar sem í ljósi þess ástands, sem
nú ríkir á alþjóðlegum peninga-
mörkuðum, hefði gengisfelling af
hálfu Svía verið talin „eðlileg“.
Tvær ástæður liggja að baki
þessari kúvendingu. I fyrsta lagi
hefur reynslan af gengisfellingum
verið mjög slæm. Þær leysa ákveð-
inn skammtímavanda atvinnulífs-
ins en þegar upp er staðið er niður-
staðan aukin verðbólga og grafíð
er undan trúnni á stöðuga gengis-
stefnu í framtíðinni. Nú var í stað-
inn ákveðið að grípa til þeirrar
breytingar á sænska velferðarkerf-
inu, sem lengi hefur verið nauðsyn-
leg til að auka samkeppnishæfn-
ina.
Hin ástæðan skiptir kannski
ekki minna máli. Svíar tengdu fyr-
ir nokkra krónuna við Evrópsku
mynteininguna (ECU) og hefur
það verið yfirlýst stefna að frá
þeirri tengingu yrði ekki hvikað.
Svíþjóð sækist eftir aðild að Evr-
ópubandalaginu og er mikið í mun
að verða þar í hópi þeirra ríkja sem
fylgja afdráttarlausustu stefnunni
í peningamálum. Margt bendir nú
til þess að niðurstaða þeirrar upp-
lausnar, sem ríkt hefur innan
gengissamstarfs ríkja EB, verði
að hiuti aðildarríkjanna — Þýska-
land, Frakkland, Belgía, Holland,
Lúxemborg og Danmörk — muni
stefna hraðar að þeim peningalega
samrana, sem drög voru lögð að
með Maastricht-sáttmálanum, en
önnur. Markmið síðari hluta
neyðaraðgerðanna var ekki síst að
sýna fram á að sænsk peninga-
stjórnun hefði þann þroska til að
bera sem er nauðsynlegur til að
ganga beint inn í það samstarf án
nokkurs aðlögunartíma.
Aðgerðir síðustu daga era ótví-
rætt tákn þess að Svíþjóð hefur
breyst í grandvallaratriðum, ann-
ars vegar vegna þess að það kerfi
sem þar hefur verið byggt upp er
komið að endamörkum sínum, og
hins vegar vegna aðlögunarinnar
að hinum evrópska markaði.
Áhrifamesta manninn utan ríkis-
stjómarinnar er ekki lengur að
finna meðal leiðtoga heildarsam-
taka atvinnurekenda eða launþega,
heldur í seðlabankanum. Það var
ekki síst Bengt Dennis sem sann-
færði alla aðila um grípa yrði til
mun róttækari spamaðaraðgerða
í ríkisbúskapnum en hingað til
hafði verið gert, og lækka álögur
á atvinnulífið í stað þess að fella
gengið. Þetta var líka krafa mark-
aðarins til stjórnmálamannanna og
undravert er hversu breið sam-
staða hefur náðst um að verða við
henni.
Örlög sænsku krónunnar eru þó
ekki endanlega ráðin. Enn ríkir
ekki stöðugleiki á alþjóðlegum
gjaldeyrismörkuðum og ekki er
útilokað að ný hrina gengisfellinga
muni skella á. Þróunin þar mun
ráða úrslitum. Sú stefnufesta sem
Svíar hafa sýnt og sú breiða sam-
staða sem náðist um aðgerðirnar
mun þó tvímælalaust gera það að
verkum að gengi sænsku krónunn-
ar verður ekki jafnviðkvæmt fyrir
spákaupmennsku og orðrómi á
peningamörkuðum og það var á
síðustu vikum.
Kísiliðjan í Mývatnssveit
Ovissa í kjölfar þess að náma-
leyfið rennur út eftir hálft ár
Forráðamenn verksmiðjunnar telja nauðsynlegt að frá leyfi til kísilnáms í Bolum.
NÁMALEYFI Kísliliðjunnar við
Mývatn, sem takamarkað hefur
verið við Ytriflóa, rennur út eftir
tæpa sex mánuði eða í lok mars á
næsta ári. Hafa forráðamenn
verksmiðjunnar sem og sveitarfé-
lagsins áhyggjur vegna óvissu sem
um framtíð hennar ríkir, þar sem
óvíst er hvort framlenging fæst á
vinnsluleyfinu og hvort það verð-
ur til lengri eða skemmri tíma.
Horfa forráðamenn fyrirtækisins
til þess að fá leyfi til kisilnáms í
Bolum, enda talið að hráefni í
Ytriflóa þijóti eftir 3-5 ár.
Hátt { 200 manns í Skútustaða-
hreppi byggja afkomu sína á starf-
semi fyrirtækisins og telja forráða-
menn sveitarfélagsins að margt
benda til að sveitarsjóður yrði gjald-
þrota hætti Kísiliðjan rekstri, enda
40% tekna hans upprannar vegna
starfsemi verksmiðjunnar. Hinir er-
lendu meðeigendur, Celite Corporati-
on í Bandaríkjunum, hafa látið í ljós
vissar áhyggjur og telja erfitt að
hefja sókn á nýja markaði vegna
þeirrar óvissu sem ríkir um vinnslu-
leyfi Kísiliðjunnar. Þetta kom fram
á blaðamannafundi sem haldinn var
í Kísiliðjunni í Mývatnssveit í gær.
Pétur Torfason, stjórnarformaður
Kísiliðjunnar, sagði atvinnuástand í
Pétur Torfason, stjórnarformaður Kísiliðjunnar, Friðrik Sigurðsson,
framkvæmdastjóri, og Sigurður Rúnar Ragnarsson, sveitarstjóri Skútu-
staðahrepps, kynntu stöðu fyrirtækisins á blaðamannafundi í Kísil-
iðjnni í gær, en námaleyfi þess í Ytriflóa rennur út eftir tæpa sex
mánuði.
Bókastefnan í Frankfurt
Israelska skáldið
Amo Oz verðlaunað
Frankfurt. Frá Jóhanni Hjálmarssyni, blaðamanni Morgunbladsins.
ÍSRAELSKI rihöfundurinn Amo Oz (Amo Klausner) tekur á sunnudag-
inn við friðarverðlaunum Þýskra bókaútgefenda og bóksala. Verðlaun-
in hafa verið veitt síðan 1950 og meðal þeirra sem hafa hlotið þau
eru Hermann Hesse, Astrid Lindgren, Oktavío Paz og Vaclav Havel.
landinu bágborið og hvarvetna væri
verið að segja fólki upp störfum og
mættu menn ekki til þess hugsa að
slíkt gerðist í Mývatnssveit. Þá hefðu
menn einnig áhyggjur af hinum er-
lenda samstarfsaðila fyrirtækisins,
sem nú ætti erfítt með að hefja
markaðssókn þar sem ekki væri
hægt að segja með vissu hvort
vinnsluleyfi Kísiliðjunnar yrði fram-
lengt og þá til hve langs tíma.
Fram kom í máli Friðriks Sigurðs-
sonar framkvæmdastjóra að 8 millj-
óna króna hagnaður hefði verið af
reksti Kísiliðjunnar á fyrstu 8 mán-
uðum þessa árs og stæði fyrirtækið
vel íjárhagslega. Friðrik sagði afar
mikilvægt fyrir Kísiliðjuna að fá leyfi
til að hefja kísilnám í Bolum, en þar
álitu menn að væri svæði sem endist
í 60 til 70 ár og áætlað væri að út-
flutningsverðmæti gæti numið um
50 milljörðum króna. Hráefni í Ytri-
flóa er talið endast í 3-5 ár, en Kísil-
iðjumenn telja sig þurfa um tvö ár
til að flytja starfsemina um set, úr
Ytriflóa að Bolum, þannig að ákvarð-
anir þurfi að liggja fyrir í tíma.
„Við höfum áhyggjur af framtíð-
inni og viljum umfram allt forðast
að órökstuddur málflutningur verði
til þess að einu traustasta fyrirtæki
landsins verði stefnt í hættu. Það
hefur ekkert komið fram sem sannar
að hægt sé að tengja sveiflur í lífríki
Mývatns við starfsemi Kísiliðjunnar
og þá bendum við einnig á að engin
efnamengun fylgir okkar starfsemi,"
sagði Friðrik.
Um 40% af tekjum Skútustaða-
hrepps koma til af starfsemi Kísiliðj-
unnar og um þriðjungur íbúanna
byggir afkomu sína á henni. Sigurð-
ur Rúnar Ragnarsson sveitarstjóri
sagði að óvissa um framtíð verk-
smiðjunnar hefði í för með sér tjón
fyrir samfélagið. „Að mínu mati étur
hún samfélagið innanfrá, það er eng-
ar áætlanir til langs tíma hægt að
gera. Við höfum gert þá kröfu að
óvissunni verði aflétt og Kísiliðjan
fái vinnsluleyfi til 15 ára í senn,
þannig að ef stjómvöld á einhveijum
tíma treysta sér ekki til að halda
starfseminni áfram þá höfum við
þetta svigrúm," sagði Sigurður Rún-
ar.
„Ef þriðjungur íbúanna flytti í
burtu og við misstum 40% af okkar
tekjum þá væri sveitarfélagið ekki
fært um að veita þá þjónustu sem
því ber, það yrði ekki á færi þeirra
íbúa sem eftir yrðu að standa undir
rekstri sveitarfélagsins. Það yrði ekki
mikið eftir ef þessari meginstoð at-
vinnulífsins yrði kippt undan okkur,"
sagði Sigurður Rúnar.
Morgunblaðið/Helga
Halldór Blöndal, samgönguráðherra, tekur brúna yfir Dýrafjörð formlega í notkun með því að klippa á borða sem strengdur var þvert
yfir brúna. Helgi Hallgrímsson vegamálastjóri er til hægri á myndinni.
Halldór Blöndal samgönguráðherra við vígslu brúar yfir Dýrafjörð
Norðanverðir Vestfirðir verða eitt
samgöngii-, félags og atvinnusvæði
Þingeyri.
í GÆR fór fram formleg vígsla brúar yfir DýraQörð, að viðstödd-
um samgönguráðherra, vegamálastjóra ásamt forráðamönnum
vegagerðarinnar, þingmönnum Vestfjarða og sveitastjórnarmönn-
um á norðanverðum VestQörðum.
Helgi Hallgrímsson vegamála-
stjóri hóf athöfnina og rakti að-
dragandann að byggingu Dýra-
fjarðarbrúar, og lýsti gangi bygg-
ingar hennar.
Helgi afhenti síðan Halldóri
Blöndal samgöngumálaráðherra
brúna og hann klippti á borðann
með þeim orðum að nú væri að
rætast sá langþráði draumur
manna, að norðanverðir Vestfírðir
verði eitt samgöngu-, félags-, og
atvinnusvæði.
Brúin, seriTstendur á Lamba-
dalsodda, er 120 metrar á lengd
og breidd akbrautar er 4 metrar.
Undirbúningsframkvæmdir hóf-
ust árið 1988 en smíði brúarinnar
sjálfrar lauk í ágúst mánuði 1990,
og var þá hafist handa við vega-
gerð. Lokaáfangi var svo lagning
bundins slitlags, beggja vegna
brúarinnar og er því verki nýlokið.
Vígsluathöfninni lauk svo með
boði samgönguráðherra til kaffi-
samsætis í Félagsheimilinu á
Þingeyri og sátu það um 60
manns.
Helga.
Fánar voru dregnir að húni þegar brúin var formlega tekin í notkun
í gær.
I
j
í
Verðlaunin 25.000 mörk hljóta þau
sem að mati dómnendar hafa stuðlað
að friða, mannúð og skilningi milli
manna. Amo Oz, sem er 53 ára og
fæddur í Jerúsalem, skrifað á Hebr-
esku og hefur einkum sent frá skáld-
sögur og frásagnir margar hveijar
þýddar á þýsku. Hann hefur í bókum
sínum og á öðrum vettvangi fjallað
um átök milli ísraelsmanna og Áraba
og er málsvari þess að ísraelsmenn
og Palestínumenn geri samkomulag
sin á milli í staðinn fyrir að láta vopn-
in tala.
Friðarverðlaun Þýskra bókaútgef-
enda verða afhent á sunnudaginn við
hátíðarathöfn í kirkju Heilags Páls í
Frankfurt. Þar með lýkur 44. bóka-
stefnunni í Frankfurt en talið er að
tvöhundruðþúsund manns alls staðar
af úr heiminum hafi sótt hana.
Græn kort SVR rædd í borgarstjórn
Tillögii um afslátt fyr-
ir unglinga vísað frá
BORGARSTJÓRN Reykjavíkur vísaði á fimmtudag frá tillögu frá full-
trúum minnihlutaflokkanna um að unglingum frá 13 til 18 ára verði
gefinn kostur á helmingsafslætti á „grænum kortum" hjá Strætisvögn-
um Reykjavíkur. í frávísunartillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins
sagði, að „grænu kortin væru handhafakort og væri því ókleift að
hafa mismunandi verð á kortunum fyrir mismunandi hópa nema að
takmarka verulega notagildi þeirra.
Guðrún Ágústsdóttir, Alþýðu-
bandalagi, mælti fyrir tillögu minni-
hlutaflokkanna. Hún sagði að 1. sept-
ember hefðu fargjöld SVR fyrir 13
til 67 ára hækkað um 80% og um
leið hefði verið boðið upp á svokölluð
græn kort, sem væru mánaðarkort
og kostuðu kr. 2.900. Hvergi í ná-
grannalöndunum væru unglingar frá
13 ára aldri látnir borga gjald sem
fullorðnir og í ljósi þess að hækkunin
1. september kæmi sérstaklega illa
við unglinga og fjölskyldur þeirra
væri eðlilegt að bjóða þeim helmings-
afslátt á mánaðarkortunum.
Sveinn Andri Sveinsson, formaður
stjómar SVR, lagði fram frávísunart-
illögu frá borgarfulltrúum Sjálfstæð-
isflokksins. Þar sagði að „grænu kort-
in“ væru handahafakort og væri því
ókleift að hafa mismunandi verð á
kortunum til mismunandi hópa, nema
að takmarka notagildi kortanna. Enn
fremur kom fram, að kortin væru
seld með magnafslætti til stofnana,
fyrirtækja og félagasamtaka og sú
tilhögun kæmi verulega til móts við
þá sem helst þyrftu á að halda, þar
á meðal skólafólk.
Frávísunartillagan var samþykkt
með 10 atkvæðum sjálfstæðismanna
gegn 5 atkvæðum borgarfulltrúa
minnihlutans.
HIli;
Borgarsljóri heiðrar fatlaða íþróttamenn
BORGARSTJÓRINN í Reykjavík, Markús Örn Antonsson, og eiginkona
hans, Steinunn Ármannsdóttir, héldu hóf í Höfða sl. þriðjudag til heið-
ur íþróttafólkinu sem tók þátt í Ólympíuleikum fatlaðra í Barcelona
og Olympíuleikjum þroskaheftra í Madrid, en á þessum leikum unnu
íslensku keppendurnir til 38 verðlauna. Við athöfnina afhenti borgar-
stjóri íþróttsambandi fatlaðra, íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík og
íþróttafélaginu Ösp eina milljón krónur hveiju félagi sem styrk frá
Reykjavíkurborg en borgarstjórn og borgarráð samþykktu nýverið þess-
ar styrkveitingar í framhaldi af glæsilegum árangri íþróttamannanna
á Ólympíuleikunum.
Heilsdagsskóli í Reykjavík
Líklega boðið upp á
sama kost í öllum
skólum næsta haust
# ••
- segir Markús Orn Antonsson
MARKÚS Örn Antonsson, borgarsljóri, sagði á borgarstjórnarfundi
á fimmtudag, að ef tilraun um heilsdagsskóla, sem nú stendur yfir
í nokkrum skólurn borgarinnar, tækist vel, yrði stefnt að því að
veita börnum í öllum grunnskólum borgarinnar svipaða þjónustu
næsta haust. Sagði borgarstjóri að flest benti til að svo yrði.
Þessi ummæli borgarstjóra
komu fram í svaH hans við fyrir-
spurn Guðrúnar Ágústsdóttur,
Alþýðubandalagi, um hvaða til-
lögur hann hefði til úrlausnar á
þvi alvarlega ástandi, að stór
hluti barna í neðstu bekkjum
grunnskóla Reykjavíkur væru án
umsjár fullorðinna allt upp í 30
klukkustundir á viku. I tillögunni
kom fram það viðhorf, að tilraun
sú, sem verið er að gera með
lengda viðveru í 5 grunnskólum
borgarinnar, dugi ekki til að
leysa þennan vanda og tryggi
ekki, að þau böm, sem búa við
erfíðustu aðstæðurnar, geti nýtt
sér tilboðið.
Borgarstjóri sagði, að til-
raunaverkefnið „heilsdagsskóli"
í 5 grunnskólum væri meðal ann-
ars svar við vanda þeirra barna,
sem ekki geta verið í umsjá full-
orðinna. Þar byði borgin upp á
margvíslega þjónustu á sviði
fræðslu, tómstunda og aðstoðar
við heimanám, auk kennslu, sem
í boði væri á vegum sérskóla,
t.d. i tónlist, tungumálum o. fl.
Einnig hefði borgin lagt áherslu
á að bæta aðstöðu innan skól-
anna í tengslum við svokallaða
lengda viðvera í skólanum.
Borgarstjóri sagði að þátttak-
an í tilraunaverkefninu væri góð,
gætt hefði verið hófs í verðlagn-
ingu og svigrúm væri til að koma
til móts við foreldra, sem af efna-
legum ástæðum ættu erfitt með
að nýta sér tilboðið. Ef í ljós
kæmi, að þessi viðleitni borgar-
innar skapaði ekki viðunandi
aðstæður að mati foreldra, væri
eðlilegt að leitað yrði frekari
úrræða á þessu sviði.