Morgunblaðið - 03.10.1992, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 03.10.1992, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1992 Guðný Björk Sturlu dóttir — Minning Fædd 29. maí 1966 Dáin 25. september 1992 Háa skilur hnetti himingeimur, blað skilur bakka og egg. En anda sem unnast fær aldregi eilífð að skilið. (J. Hallgrímsson) Þetta erindi átti vel við í gleðinni sem ríkti á brúðkaupsdegi þeirra Hannesar og Guðnýjar, enda var hún notuð við það tækifæri, en hún á ekki síður vel við í sorginni sem ríkir nú eftir andlát Guðnýjar, að- eins nokkrum mánuðum eftir brúð- kaupið. Það ríkti alltaf mikil gleði í kring- um Guðnýju og hún var alltaf til í smá prakkarastrik við hvaða tæki- færi sem var. Oft skemmtum vð okkur konunglega yfir uppátækjum þeirra hjónanna, sérstaklega þegar grínið beindist að okkur og við gerð- um þeim grikk á móti. Þá voru öll tækifæri notuð og á afmælum og jólum gat maður alltaf verið viss um að pakkinn frá Hannesi og Guðnýju væri alveg eintakur. Þann- ig var það með allt sem þau hjónin tóku sér fyrir hendur, það var engu öðru líkt og þau sjálf einstök í sinni röð. En nú hefur verið höggvið stórt skarð í hópinn. Þessi lífsglaða og góða vinkona okkar er horfín á braut, og var hún þó rétt að hefja lífið og átti ásamt manni sínum og bömum svo bjarta framtíð. Elsku Hannes, Thelma og Kári. Eftir svona stórt áfall er fátt hægt að segja til huggu.nar, en minningin er og verður alltaf til staðar, því að „anda sem unnast fær aldregi eilífíð að skilið“. Við vottum ykkur og fjölskyld- unni í Fossatúni okkar dýpstu sam- úð. íris og Valgarður. Hvi var þessi beður búinn bamið kæra þér svo skjótt. (B. Halldórsson (sb. 1886).) Föstudaginn 25. september lést á heimili sínu tengdadóttir mín, Guðný Björk, aðeins nýorðin 26 ára. Guðný var dóttir hjónanna á Fossatúni, Andakílshreppi, þeirra Sturlu Guðbjarnarsonar og Sjafnar Pálsdóttur. Hún ólst upp við mikið ástríki foreldra sinna, ásamt tveim systkin- um, Guðlaugu og Sölva. Guðlaug á einn son, Smára, og á nú öll fjöl- skyldan um sárt að binda vegna fráfalls elskaðrar dóttur, systur og frænku. Og votta ég þeim mína dýpstu samúð. Hver skilur slík ör- lög, ung elskandi móðir og eigin- kona er hrifín burt frá fjölskyldu sinni rétt þegar lífsstarfið er að byrja. Er einhver tilgangur með lífí og dauða? Hvar eru svörin? Hvar er huggunin? Hvar er sá sem sagði: „Ég verð með yður á stund neyðar- innar, ákallið mig.“ Það hefír verið gert síðastliðin tvö ár en svörin virð- ast vera hvert áfallið á eftir öðm. Það þarf mikinn styrk til að standa staðfastur í trúnni þegar svona er komið eftir allar bænirnar Guðnýju og fjölskyldunni til handa. Ég vona að Hannes sonur, minn eiginmaður Guðnýjar, hafi þann styrk. Þau voru bæði kornung er ástir tókust með þeim, hún aðeins 15 ára og hann 17 ára. Alla tíð síðan hafa þau verið ótrúlega samrýnd, ást- fangin og full vonar og trúar á framtíðina. Þau eignuðust tvö böm, Thelmu Sjöfn, sem er átta ára, og Sigurð Kára, fjögurra ára, bæði yndisleg og mannvænleg böm. Þau eru svo ung að þau fá vart nokkurn tíma skilið hvers vegna guð tók mömmu þeirra, þó vissu þau bæði að hún væri mjög veik. Hannes og Guðný luku bæði framhaldsnámi sama vorið, hún varð stúdent en hann lauk námi í húsbyggingum. Það var mikill gleðidagur er haldið var upp á útskrift þeirra. Um haustið lögðu þau land undir fót með Thelmu Sjöfn sem var á öðru ári. Þau ætluðu að vinna, læra og skoða heiminn örlítið. Þau gerðu það í u.þ.b. tvö ár, en komu síðan heim og unnu um tíma hjá Anda- kílsárvirkjun. Síðan ákveða þau að fara í frekara nám, hún fór í Há- skólann en hann í Tækniskólann, þá var Sigurður Kári fæddur. Ham- ingjan brosti við þeim, að manni fannst, samvinnan var einstök og bæði lögðu mjög hart að sér. Þá kom fyrsta áfallið, í júlí 1990 greindist Guðný með illkynja sjúk- dóm, hún þessi hrausta stúlka sem annars aldrei kvartaði hafði fundið fyrir einhverri breytingu og fór því heimilislæknis síns og síðan til sér- fræðings sem taldi að um óverulegt umkvörtunarefni væri að ræða. Sérfræðingurinn úrskurðaði ein- kennin svo ótrúlega að ekki er eftir hafandi, en er þó svo sannarlega rannsóknar verður. Þetta gerðist ári áður en sjúkdómurinn var greindur endanlega og þá var hann kominn á mjög hátt stig. Ég er þess fullviss að hefði rétt verið stað- ið að rannsókn í fyrstu hefði þetta fundist á byijunarstigi og staðan verið jafnvel önnur í dag. En þau ákváðu strax að láta ekki deigan síga heldur takast á við sjúkdóminn af fullri hörku með guðs og manna hjálp. Baráttuvilji þeirra stappaði stálinu í okkur öll hin í fjölskyldun- um báðum. En forlögin láta ekki að sér hæða, 10 dögum eftir þetta áfall lést faðir Hannesar í bílslysi, á einni örskotsstund var hann hrif- inn brott, einmitt þegar hann þurfti mest á sínum góða föður að halda. Er nema von að svara sé vant. Hvað meinar almættið, á hann kannski hvergi hlut að máli? Guðný var okkur hjónunum jafn kær sem hún væri okkar bam, enda bar hún með sér birtu og yl hvar sem hún kom, hún var afar falleg, listræn, vel gerð og mjög vel gefín, hún virtist aldrei hafa neitt fyrir því að læra en tók alltaf próf með miklum ágætum. Allan tímann sem hún var veik sótti hún skólann með miklum dugnaði, baráttuviljinn var svo sterkur að hún fór jafnvel í próf að morgni og þaðan beint á skurðarborðið eða í lyfjameðferð. Aldrei féll úr dagur í mætingu í skóla nema hún gæti ekki staðið á fótunum. Um tíma héldu allir að hún hefði komist yfír þetta. Og vorið 1991 fór hún, nýkomin úr skurðaðgerð, til Noregs með jarð- fræðinemum í námsferð og allt gekk vel. Hannes beið í Danmörku hjá systur sinni og þangað kom Guðný og saman voru þau þar í viku. Þau höfðu ekki verið formlega vígð saman, en í sumar ákváðu þau að fara til Bandaríkjanna til að leita frekari lækninga, brúðkaup var haldið í Saurbæjarkirkju á Hval- fjarðarströnd og veislan haldin á Hlöðum. Þetta var yndisleg athöfn og mikil gleði í veislunni, brúðhjón- in ljómuðu af hamingju. Þessi dagur skín yfír alla aðra um ókomna fram- tíð. Ut fóru þau en dvöldu aðeins í nokkra daga, því allt kom fyrir ekki, heilsu hennar hrakaði og eftir það var ekkert sem læknavísindin réðu við. Hún varð að láta í minni pokann fyrir þeim „slynga sláttumanni, er slær allt hvað fyrir er“. Hannes stóð við hlið hennar allan tímann og vék ekki úr sjúkrastofunni þegar hún þurfti að dyelja þar. Þegar ljóst var að hveiju stefndi fór hann með hana heim og hjúkraði henni þar svo aðdáunarvel að slíks þekkjast vart dæmi. Á fimmtudaginn kvaddi hún bömin sín og þau fóru í sveit- ina með ömmu sinni og afa. En á föstudagskvöld lést hún í örmum eiginmanns síns. Hannes minn, Thelma Sjöfn og Sigurður Kári, á svona stundum koma engin orð að gagni, en þið eigið ást mína og samúð alla. Sig- rún systir þín og fjölskylda hennar sendir ykkur öllum ástar- og sakn- aðarkveðju. Vertu sæl, vor litla, hvíta lilja, lögð í jörð með himnafóður vilja, leyst frá lífi nauða, ljúf og björt í dauða lést þú eftir litla rúmið auða. Gráttu móðir, gjöfína Drottins fríðu, gráttu þá með djúpri hjartans blíðu. Sérðu ei sigurbjarma? Sérðu ei líknarvarma breiða sig um bamsins engiahvarma. Því til hans, sem bömin ungu blessar. biðjum hann að lesa rúnir þessar, heyram hvað hann kenndi: hér þó lífið endi, rís upp í Drottins dýrðarhendi. Vertu sæl, vor litla ljúfan blíða, lof sé Guði, búin ertu að stríða. Upp til sælu sala saklaust bam án dvala. Lærðu ung við engla Guðs að tala. (M. Jochumsson) Svala Ivarsdóttir. Við viljum minnast Guðnýjar skólasystur okkar sem kenndi okk- ur það sem enginn skóli getur kennt. Hún. kenndi okkur að gefast aldrei upp. Þau hjónin voru alltaf jákvæð og horfðu bjartsýn fram á veginn. Guðný var dugleg og samvisku- söm og fannst það ekkert mál. Meðan við hin eyddum tíma í að býsnast yfír því hve mikið var að gera í skólanum vann hún verkefn- in sín, var gjaldkeri I'jallsins, félags jarð- og landfræðinema, sinnti fjöl- skyldunni og var að byggja. Okkur langar að segja litla sögu úr skólanum sem lýsir Guðnýju vel. Fyrir eldfjallafræðipróf þurfti að lesa stóra og þunga bók, Guðný las hana alla og gerði útdrátt úr henni. Við hin fengum útdráttinn lánaðan því við töldum okkur ekki hafa tíma til að lesa bókina, þó höfðum við flest bara um okkur sjálf að hugsa. í prófínu sjálfu „skrapp" Guðný eftir hálfan próftimann í aðgerð, en fékk engu að síður ágætis ein- kunn. Þó að kali heitur hver hylji dali jökull ber steinar tali allt hvað er aldrei skal ég gleyma þér. (Skáld-Rósa). Elsku Hannes, Thelma og Kári, vottum ykkur og öðrum ástvinum okkar dýpstu samúð. Skólafélagar í jarðfræði, Háskóla Islands. Mistök urðu í vinnslu þessara greina í blaðinu í gær. Birtast þær því hér aftur. Hlutaðeigend- ur eru beðnir afsökunar á mis- tökunum. t Elsku drengurinn okkar, GUÐMUNDUR ÓLI HAUKSSON, lést af slysförum miðvikudaginn 30. september. Birna Bjarnadóttir, Haukur Ingibergsson. t Ástkær eiginmaður minn, GARÐAR HVÍTFELD JÓHANNESSON lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri aðfaranótt föstudagsins 2. október. Jóhanna Guðnadóttir. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SVEINN SÍMONARSON, Bólstaðarhlíð 68, lést á gjörgæsludeild Borgarspítalans fimmtudaginn 1. október sl. Valgerður Jónsdóttir, Sævar Friðrik Sveinsson, Kristín Ósk Óskarsdóttir, Anna Sóley Sveinsdóttir, Manuel Arjona Cejudo og barnabörn. t Móðir mín og amma, KAREN AGNETE ÞÓRARINSSON, listmálari, Kvisthaga 13, andaðist á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund að morgni 1. október. Karl Kristján Sveinsson, örn Karlsson. t Faðirokkar, tengdafaðir, afi og langafi, SVAVAR SIGFINNSSON, Máshólum 10, Reykjavfk, áður búsettur í Ytri-Njarðvík, verður jarðsunginn frá Ytri-Njarðvíkur- kirkju þriöjudaginn 6. október kl. 14. Erla Svafarsdóttir, Einar Svavarsson, Herbert Svavarsson, Unnur Svavarsdóttir, Guðbjörg Svavarsdóttir, Jón Ingi Ágústsson, Guðrún Árnadóttir, Margrét Karlsdóttir, ' Hermann Þorsteinsson, Karl Ólafsson, Magnús Sædal Svavarsson, Vilborg Gestsdóttir, Róbert Svavarsson, Hafdfs Gunnlaugsdóttir, og barnabörn. Bróðir okkar, GUÐBRANDUR HALLDÓRSSON frá Hallsstöðum, Viðimel 49, Reykjavík, lést f Landspítalanum 14. september. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir til deildar 11-E Landspítalanum og Heimahlynn- ingar Krabbameinsféiagsins. Systur hins látna. t Útför móðir okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HELGUJÓNSDÓTTUR, Dalbraut 27, Reykjavfk, verður gerð frá Áskirkju þriðjudaginn 6. október kl. 13.30. Þeir sem vildu heiðra minningu hennar með blómum eru vinsam- legast beðnir að láta andvirði þeirra renna í Byggingasjóð K.F.U.M. og K. í Reykjavík, sími 678899. Magnús Guðmundsson, Áslaug Sigurbjörnsdóttir, Pétur Guðmundsson, Steinunn Olafsdóttir, Ragna Guðmundsdóttir Moyer, Anthony Moyer, Helga Júlfana Vilhelmsdóttir, Þorvar Hafsteinsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.