Morgunblaðið - 03.10.1992, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 03.10.1992, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1992 33 Jónína Ámadóttir, Þorsteiim Sigmunds- son — Hjónaminning Jónína Fædd 15. júní 1920 Dáin 25. september 1992 Þorsteinn Fæddur 22. apríl 1915 Dáinn 13. mars 1992 Mig langar að minnast ömmu og afa í nokkrum orðum, en þau létust með rúmlega sex mánaða millibili í Sjúkrahúsi Suðurlands á Selfossi eftir langvinn og erfið veikindi. Afi fæddist 22. apríl 1915 í Rifs- halakoti í Vetleifholtshverfi í Ása- hrepp, sonur hjónanna Filippíu Filippusdóttur og Sigmundar Þor- steinssonar. Amma fæddist 15. júní 1920 í Fróðholtshjáleigu á Rangárvöllum, dóttir hjónanna Guðnýjar Gísla- dóttur og Árna Helgasonar. Amma og afi giftust 22. apríl 1943. Synir þeirra eru Grétar, Árni Vignir og Gunnar Rúnar. Árið 1943 endurreistu þau býlið Vestra-Fróðholt og hófu þar bú- skap. Áður en þau giftust og hófu búskap fór afi m.a. til Grindavíkur á vertíð og fór amma með honum hluta úr vertíð. Afi hélt áfram að fara á vertíð eftir að þau hófu búskap og fór þá til Vestmanna- eyja og Þorlákshafnar auk Grinda- víkur. Sendi hann þá fisk og annað góðgæti heim á sveitina er hann hafði tök á. Amma sá þá um bú- skapinn ásamt föðurbróður afa, Elíasi Þorsteinssyni, Ella afa. Það var svo um haustið 1966 sem þau hættu búskap á Vestra-Fróðholti og fluttu að Rangá í Djúp- árhreppi. Afi vann þá ýmsa verka- mannavinnu á Hellu og við virkj- anaframkvæmdirnar inn við Þóris- ós. Þá fór hann og á vertíð til Þorlákshafnar vorið 1971, þar sem þau bjuggu síðan. Ávallt er gesti bar að garði hlóð amma borð af alls kyns góðgæti svo gestirnir gætu gætt sér á, og passaði hún vel að fólk færi ekki svangt í burtu. Þá var einnig mik- ið spjallað er gesti bar að garði og var afi þá oft í essinu sínu er rifjaðir voru upp gömlu dagarnir og var þá gaman að hlusta á sög- umar hjá afa, enda kunni hann vel að segja frá. Mörgum stundum vörðum við amma saman á kvöldin er afi var að vinna, flestum fyrir framan sjónvarpið og fímmtudagskvöldun- um sem fóru stundum í að spila er ekkert var sjónvarpið. Þá var oft stokkið yfir til ömmu og afa, til að fá að borða, ef haldið var að eitthvað betra væri í matinn hjá þeim og varð oft úr hin besta skemmtun. En þrátt fyrir veikindin var ávallt stutt í gamanið og glens- ið hjá þeim. Þá var samheldnin geysimikil og studdu þau vel við bakið á hvort öðru í veikindum sín- um. Ég kveð nú elsku ömmu og afa með miklum söknuði og þakka þeim fyrir allar ánægjustundimar sem ég átti með þeim. Ég bið Guð almáttugan að gæta - þeirra og styrkja fjölskyldur þeirra í þeirra miklu sorg. Blessuð sé minning þeirra. Hjálmar Árnason. Fyrir skömmu bárust okkur þær sorgarfréttir, hingað til Lundar í Svíþjóð, að amma væri dáin. Skammt er stórra högga á milli. Fyrir aðeins hálfu ári kvöddum við afa og lögðum hann til hinstu hvíldar. Baráttu hans við skæðan sjúkdóm var lokið. Orrusturnar höfðu verið margar í þessu stríði, bæði stuttar og langar, en fram til þessa hafði afi borið sigur af hólmi með dyggri aðstoð ömmu. Slík átök setja óneitanlega spor sín á líkama og sál, bæði hins sjúka og lífsförunautar hans. Þrátt fyrir að mikið baráttu- og lífsþrek hafi fleytt afa yfir marga hildina í þessu stríði voru endalokin óumflýjanleg. Engu að síður er ávallt erfitt að horfast í augu við þá staðreynd að ástkær ættingi, vinur og félagi sé ekki lengur á meðal vor. Amma stóð sem klettur eftir fráfall afa, en við sem þekktum til vissum að hún var ekki vön að bera sínar þjáningar á borð fyrir aðra. En djúp hefur sorg hennar verið við fráfall afa og bar sú sorg og áralangur heilsubrestur hana að lokum ofurliði. Nú er hún líka horfin yfir móðuna miklu. Minningarnar sækja fram í hug- ann og snerta viðkvæma strengi í hjarta okkar. Tómarúmið, sem skapaðist við fráfall afa og nú ömmu, verður aldrei fyllt að nýju nema með minningu um elskaða ættingja sem höfðu mikið að gefa og settu spor sín á þá sem umgeng- ust þau. Betra heimili var varla hægt að sækja heim. Gestir og gangandi komu aldrei að tómum kofanum hjá afa og ömmu. Borð var hlaðið kökum og öðrum kræs- ingum og enginn fékk að fara fyrr en vel hafði verið smakkað á her- legheitunum. Amma stóð oft í ströngu við að <jlda og baka á stórhátíðum, enda var fjölskyldan stór þegar allir voru samankomnir. Áldrei var kvartað, yfir ömmu ríkti alltaf sama jafnaðargeðið og gleðin skein úr augunum þegar við komum í heimsókn. Stórir staflar af flatkök- um biðu okkar, að ekki sé talað um hafrakexið. Hlýjan og um- hyggjan streyndi frá ömmu og aldrei hnaut styggðarorð af vörum hennar. Afi gat verið hijúfur á yfirborð- inu og miskunnarlaus í skoðunum en undir niðri mátti hann ekkert aumt sjá og ávallt var stutt í ljúf- mennið enda bjó stórt hjarta í bijósti hans. Frá því streymdi ávallt hlýja og umhyggja sem við fengum vel að njóta meðan hans naut við á lífsleiðinni. Úr barnæsku koma upp mynd- brot á þessum vegamótum í lífinu. Það var ávallt stór stund í lífí lítils drengs þegar ég átti að fara upp í sveit til afa og ömmu. Að fá að trítla með afa á stuttum fótum um mel og móa í sveitinni og finna fyrir örygginu þegar litlir fingur hvfldu í hans stóru höndum. Að fræðast um dýrin og landið, að þekkja uppruna sinn og að virða harða lífsbaráttu forfeðranna. Með stórum augum og opnum hug gleypti bamssálin við þessum fróð- leik, ómetanlegum í uppvextinum. Það var með miklu stolti og hrifn- ingu þegar ég sagði við vini mína að loknu sumri: „Ég var upp í sveit hjá afa og ömmu. Afi er bóndi.“ Stundum nægði ekki sumarið til og þá var „strokið að heiman" til að komast til ömmu og afa, húkk- að far með ókunnugum, skriðið eftir skurðum þegar nær dró, með samviskuna í buxunum. En þá hafði afi fylgst með mér um stund af bæjarhlaðinu með sjónauka og haft gaman af öllu saman. Amma beið með útbreiddan faðminn og Sverrir Sigtryggs- son - Minning Fæddur 30. ágúst 1925 Dáinn 28. september 1992 Okkur langar til að minnast frænda okkar, Sverris Sigtryggs- sonar, sem andaðist 26. september á Sjúkrahúsi Akraness eftir stutta legu. Hann í laut lægra haldi fyrir erfiðum sjúkdómi. Sverrir fæddist í Ólafsvík 30. ágúst 1925, sonur hjónanna Guð- bjargar Vigfúsdóttur og Sigtryggs Sigtryggssonar sjómanns í Ólafs- vík. Han var næst elstur af sjö systkinum. Sverrir fór ungur að vinna og vann hin ýmsu störf bæði við sjósókn, fiskvinnslu og við vegavinnu. 17 ára gamall réðst hann til Sandgerðis, til hins kunna aflamanns Guðna á Munin og var þar við línubeitingar margar vert- íðar enda var Sverrir harðdugleg- ur, vandvirkur og eftirsóttur mað- ur í vinnu. Árið 1954 stofnar hann ásamt þremur bræðrum sínum og _Guð- mundi Jenssyni skipstjóra í Ólafs- vík, útgerðarfélagið Dverg hf. sem hann vann við árum saman, ásamt vörubílaakstri sem var hans aðal- starf. Sverrir var einstaklega góður í umgengni og hjálpsamur maður sem alltaf var boðinn og búinn til að snúast fyrir okkur, þegar við þurftum þess með enda alltaf að hugsa um velferð okkar allra, og að okkur liði sem best. Við viljum með þessum fáu orð- um þakka honum samfylgdina. Við munum öll sakna hans, blessuð sé minning hans. Björk, Sigurbjörg, Berglind, Egill, Tryggvi, Pálína, Bryndís og fjölskyldur. í dag verður Sverrir frændi okkar jarðsunginn frá Ólafsvíkur- kirkju. Hann var næst elstur af sjö börnum þeirra hjóna Guðbjarg- ar Jennýjar Vigfúsdóttur og Sig- tryggs Sigtryggssonar frá Mos- felli. Þar ólust börnin upp, 6 synir og ein dóttir. Ungur starfaði Sverrir við beitningar. En síðar stofnaði hann útgerðarfélagið Dverg í Ólafsvík ásamt bræðrum sínum, Hauki, Þráni og Vigfúsi. Starfaði Sverrir sem bifreiða- stjóri við útgerðina allar götur eftir það. Sverrir lifði og hrærðist við höfnina og þar hafði hann sinn besta félagsskap, að tala um afla- brögð og allt sem að sjósókn tengdist. Bestu og björtustu æsku- minningar okkar systra eru sam- tvinnaðar ömmu og afa á Mosfelli og þeim bræðrum Sverri, Fúsa og Hafsteini. Á sumrin fengum við snemma að fara með upp í tún, þar sem þeir bræður voru með fjár- hús, „að hjálpa til“ við heyskap og önnur störf. Þegar héyskapur stóð yfir safnaðist fjöldi frænd- systkina upp eftir og var mikið líf og fjör, að loknum degi leyfði Sverrir okkur krökkunum að sitja upp á palli niður í bæ og þótti okkur það hið mesta sport þó leið- in væri ekki löng þótt okkur þætti það þá, en í dag standa efstu hús- in í Ólafsvík þar sem túnið okkar var. Á veturna komum við daglega að Mosfelli til ömmu til að fá mjólk og kleinu eða anriað góðgæti. Sverrir hafði þá gaman að segja okkur systrum alkyns spaugsamar furðusögur og glettast við okkur. Þegar svo við fluttumst frá Ólafs- vík fylgdist hann með okkar hög- um í gegnum systur mína og móð- ur okkar en þar var hann dagleg- ur gestur og ófáar voru þær stund- ir sem þeir pabbi áttu yfir kaffi- bolla að ræða dægurmál hverrar stundar og auðvitað aflabrögð, net og trossur. Þegar við komum til Ólafsvíkur var alltaf gott að kíkja í kaffi og spjall til þeirra bræðra. í síðustu heimsókn okkar að sjúkrabeði Sverris dáðumst við að samheldni þeirra, umhyggju og natni hvor við annan, enda var það ósk Sverris að dvelja heima eins lengi og hægt var. „Fylgdu ljósinu og láttu það vfsa þér veginn heim, þá mun eyðing líkam- ans ekki verða þér að tjóni. Það er að íklæðast eilífðinni." (Lao-Tse) Hvíli Sverrir í friði og hafi hann þökk fyrir allt og allt. Bylgja og Jenný Ríkarðsdætur. heitt kakó. Þetta kunnu þau að meta og rifjuðum við oft upp þessa ferð og hlógum innilega. Óijúfanleg tengsl bundust strax á milli okkar og rofnuðu aldrej. Það var ómetanleg upplifun að fá að sitja hjá afa við árbakkann og hlusta á hann tala við árbúann og fá hann til að bíta á agnið. Alltaf fékk hann „stærsta" fiskinn í veiði- ferðunum, ef ekki þann þyngsta þá þann fallegasta, ef það dugði ekki til þá hafði afi örugglega misst þann stærsta af okkur öllum! Eftir að afi og amma fluttu úr sveitinni til Þorlákshafnar urðu samskipti okkar enn tíðari, enda stutt að sækja þau heim frá Reykjavík. Ómetanlegur þáttur á mótunarskeiði unglingsáranna var að búa hjá ömmu og afa í fjögur sumur og vinna við fiskverkun. Iðjusemin var þeim í blóð borin og var afi duglegur að miðla öðrum af skoðunum sínum á mikilvægi vinnunnar. Að fara snemma að sofa og mæta tímanlega til vinnu var mikilvægt veganesti sem afi gaf mér. Tuð og nöldur yfir ærslum okkar ungmennanna var ein af leiðum hans til að sýna okkur umhyggju og ávallt bar hann hag okkar fyrir bijósti. Afi var duglegur að segja okkur „frægðarsögur" af sínum yngri árum, bæði til að forða okkur frá villustigum og til að gantast af, enda var hann mikill og skemmti- legur sögumaður og auðvelt að hrífast með honum inn í söguheim- inn. Amma skaut þó oft inn at- hugasemdum við skreytni afa, þá var dregið aðeins úr en síðan hald- ið áfram á sömu „frægðarbraut". Oft deildum við afí, bæði um stjómmál og dægurmál, en aldrei skildum við sem óvinir og grunnt var á kímnina þrátt fyrir tilfinn- ingaheitar umræður. Stutt var i stríðnina og glensið og ófá voru „skotin“ sem maður fékk. Mis- kunnarlaus hreinskilni afa kom þó ókunnugum oft í opna skjöldu, en við sem þekktum til lærðum fljótt að svara fyrir okkur og kunni hann vel að meta hnyttin tilsvör, hvort sem þar var af vörum yngri eða eldri kynslóða. Amma fylgdist brosandi með og sló á lær sér ef okkur gekk vel að eiga við afa. Svo var gert gaman að öllu sam- an, boðið í nefið eða í vör. Við kveðjum elsku ömmu og afa og þökkum fyrir að hafa fengið að njóta samvistar við þau. Það er sárt að hafa ekki getað tekið þátt í lokabaráttunni og veitt þeim styrk. Við kveðjum þau með mikl- um söknuði. Það sæti sem þau eiga í hjörtum okkar verður ekki af öðrum tekið, enda kemur enginn í þeirra stað. Þau verða ætíð í huga okkar. Um tómarúmið, sem myndaðist við fráfall þeirra, sveima nú aðeins minningarnar. Minningar um ástríka ömmu og afa munu því fylgja okkur í staðinn og hjálpa okkur að komast yfir sorgina við fráfall þeirra. Bæði hafa stigið yfir stóra þröskuldinn, sátt við lífið og tilver- una. Þeim hefur verið búinn falleg- ur hvíldarstaður með góðu útsýni til lands og sjávar, þar sem sjá má morgunsólina tindra á jöklinum og Eyjarnar svífa í hyllingum. Þau hvíla í friði og njóta sjávarilmsins og láta hafölduna róa hugann. Blessuð sé minning elsku ömmu og afa. Jón Gunnar, Anna, Andri, Sandra og Tinna. SéríVæðingar i hlómasUnnlinifnni við öll laHvilaM'i Skólavördustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími1909»

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.