Morgunblaðið - 03.10.1992, Blaðsíða 43
MORÖuítótAÐlÐ TATOaMíAGÍjR 'ái
1992
43
FRUMSÝNIR:
TÖFFARINN
Johnny (Vanilla lce) kemur með hljómsveit sinni í smábæ nokkurn
og hittir þar Kathy (Kristin Minter). Johnny reynir að gera allt til
þess að vekja áhuga Kathyar sem gengur upp og ofan.
Myndin er full af frábærri tónlist frá Vanilla lce og fleiri
rapp-tónlistarmönnum.
Sýnd í A-sal kl. 5,7, 9 og 11.
TILBOÐA
POPPIOGKÓKI
FERÐINTIL
VESTURHEIMS
Frábær mynd með
Tom Cruise
og Nicole Kidman.
Sýnd í B-sal kl. 5 og 9,
íC-sal kl. 11.
KRISTOFER
KÓLUMBUS
fs*r'i:x.TK-.«n.->í* wiw'i x.
Qírktomk Coujmbus
Hann var valinn af drottn-
Ingu, hvattur í draumi, hann
fór.fram á ystu nöf og hólt
ófram aö strönd þess
óþekkta. - Aðalhlv.: Marlon
Brando, Tom Selleck,
George Corraface.
Sýnd í C-sal kl. 5,7 og 9.
Bönnuö innan 12 ára.
Reyklaus
banki
íslandsbanki hefur tekið
upp baráttu gegn reyk-
ingum í bankanum og
hinn 1. október var reyk-
laus dagur innan bank-
ans. Fjölmennasti ein-
staki vinnustaður ís-
landsbanka, sem náð
hefur því takmarki að
vera reyklaus, er útibúið
í Garðabæ. í tilefni dags-
ins kom einn aðalbanka-
stjóranna, Tryggvi Páls-
son í útibúið og afhenti
viðurkenningu. Þor-
steinn Brynjúlfsson úti-
bússtjóri veitti viður-
kenningunni viðtöku.
í góðu skyni
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
RUSH. Sýnd í Bíóborg-
inni. Leikstjóri: Lili Fini
Zanuck. Handrit: Pete
Dexter eftir sögu Kim
Wozencraft. Tónlist:
Eric Clapton. Aðalhlut-
verk: Jason Patric,
Jennifer Jason Leigh,
Sam Elliott, Max Perlich,
Gregg Allman, Tony
Frank, William Sadler.
Bíómyndin „Rush“, sem
er fyrsta leikstjórnarverk-
efni Lili Fini Zanuck fram-
leiðanda Ekið með Daisy,
segir sorglega og afar
niðurdrepandi sögu
tveggja lögreglumanna,
leiknir af Jason Patric og
Jennifer Jason Leigh, er
lenda sjálfir í ræsinu þegar
þeir smeygja sér inní raðir
eiturlyfjasala og notenda
til að koma upp um þá.
Myndin gefur raunsæja
lýsingu á ferð þeirra niðurá
við og hvernig þau ánetjast
dópinu og líka dópsviðinu
sem þau rannsaka -
myndin gerist árið 1975 -
en þrátt fyrir allt tekst
henni ekki að virka full-
komlega sannfærandi eins
og t.d. „Drugstore
Cowboy“ eftir Gus Van
Sant, sem einnig fjallaði
um dópfíkla þótt á gjör-
ólíkan hátt væri.
Ástæðan er að hluta til
frammistaða Jason Patrie,
sem virðist ganga of langt
í „metóðu“leiknum svo
hann verður tilgerðarlegur
þegar síst skyldi og heldur
manni frekar í fjarlægð en
hitt. Einnig er myndin full-
ir tveir tímar að lengd og
það vill teygjast á atriðun-
um jafnvel þótt handritið
eftir Pete Dexter uppúr
bók Kim Wozencrafts
stytti sér ákaft leið í sömu
mund; samstarfsmennirnir
Patric og Leigh eru skyndi-
lega orðin ástfangin;
Patric er skyndilega hætt-
ur í lögguleiknum og er
orðinn alvöru dópisti;
Leigh er skyndilega líka
orðin dópisti. Þannig tekur
frásögnin stór stökk á milli
þess sem hún hægir veru-
lega á sér. Og loks er sag-
an í raun ekkert ný af
nálinni og sögutíminn ekki
sérlega áhugaverður því
nú blasir við allt annar
raunveruleiki en fyrir 17
árum. Tónlist Eric Clapt-
ons er þrusugóð og þetta
er athyglisverð mynd sem
vill gera vel en hefur eftir
allt ekki svo mikið að
segja.
„Rush“ er ekki hasar-
mynd með skotbardögum
og bílaeltingarleikjum
heldur er í miðpunkti henn-
ar ástarsaga Patrics og
Leighs. Þau lifa í algjöru
tómarúmi og eiga ekkert
líf utan myndarinnar, eiga
enga fortíð, fjölskyldu, vini
eða athvarf. Glæpamálin
sem þau eiga að vera að
rannsaka eru mestanpart
geymd í bakgrunninum á
meðan við fylgjumst með
stöðugri hrörnun parsins.
Það er í gegnum frábæran
leik Leigh sem maður fær
mestu samúðina með per-
sónunum því hún er sak-
leysinginn á móti hinum
veraldarvana og eilíft svala
Patric og þótt hún sé einn-
ig á tímabili þátttakandi
er hún fyrst og fremst
áhorfandi að leiknum.
Leigh tekst vel að lýsa
breytingunni úr nýliða í
löggunni í dópista og ang-
istinni og örvæntingunni
sem fylgir samlífinu með
Patric. Hún er það besta
við heldur brokkgenga
mynd.
REGNBOGINN SÍMI: 19000