Morgunblaðið - 03.10.1992, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 03.10.1992, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1992 fólk f fréttum Þekktir feðgar eir bræður Þorlákur Krist- insson, Tolli, og Bubbi Morthens eiga ekki langt að sækja listagáfuna. Faðir þeirra, Kristinn Morthens, er myndlist- armaður eins og sonurinn Tolli og hefur haldið margar sýning- ar. Bubbi hefur hins vegar hald- ið sig við sönginn og ljóðagerð- ina þótt vitað sé að hann eigi einhveijar blýantsteikningar í fórum sínum. Myndin af þeim feðgum, Tolla, Kristni og Bubba, var tekin þegar sá fyrst- nefndi ognaði sýningu í Lista- safni ASÍ fyrir skömmu. HJÓNABÖND Cruise o g konurnar NÆTURLÍFIÐ Nýdönsk senn í Ing- ólfskaffi Sveinsbréf í hárgreiðslu og hár- skurði voru afhent í Ingólfsbæ, Ingólfsstræti 5, hinn 5. september sl. Meistarafélag hárskera, Hár- greiðslumeistarafélag íslands og Félag hárgreiðslu- og hárskera- sveina stóðu sameiginlega að af- hendingunni í fyrsta sinn. Að þessu sinni útskrifuðust 39 nýsveinar, 32 hárgreiðslusveinar og 7 hárskera- Tvær af þekktari fegurðardrottningum landsins, Guðrún Möller og sveinar. Myndin var tekin við út- Anna María Jónsdóttir að skemmta sér í Ingólfskaffí. skriftina. LISTAMENN Ekki stóð lokun Ingólfskaffis eftir brunann á dögunum lengi og þar hefur allt verið á fullu í sumar og haust. Staðurinn á sér tryggan hóp fastagesta sem kippti sér ekki upp við það þótt nokkrir neistar hefður þar tendrast í hita leiksins. Að sögn aðstandenda eru nú ýmsar breytingar á starfseminni á döfinni. Sú helsta sem orð er á gerandi er, að boðið verður upp á lifandi tónlist í haust og vetur, en það er nýlunda í Ingólfskaffi sem hefur verið með hreint diskóteksyfirbragð til þessa. Hljómsveitin Nýdönsk er væntanleg til landsins innan tíðar. Sveitarmeðlimir hafa verið erlendis að taka upp efni á nýrri hljómplötu og verður sú tónlist kynnt í Ingólf- skaffi þegar þar að kemur. NAMSLOK Hágreiðslu- og hárskurð- arsveinar út- skrifast Fá orð geta lýst tilfinningum leik- arams Toms Cruise til eigin- kvenna sinna fyrrverandi og núver- andi. Blaðamenn bandaríska tíma- ritsins Spy tóku nýlega saman hversu fáar og fátæklegar lýsing- amar á tilfínningum kappans voru og birtu, illkvittnum lesendum sín- um til óblandinnar ánægju. „Ég er hamingjusamari en nokkru sinni,“ sagði Cruise um samband sitt við Rogers. „Þetta hefur verið besta ár ævi minnar," lét hann hafa eftir sér um fyrsta hjúskaparárið með Kidman. „Frá því að við byijuðum saman hefur ýmislegt lokist upp fyrir mér,“ sagði Cruise á fyrstu mánuð- um þeirra Rogers. Nicole Kid- man er orðin besti vinur Toms Cruise. „Það er eins og heill heimur hafi lokist upp fyrir mér,“ sagði Cruise í upphafi sambandsins við Kidman. „Mikilvægast af öllu er að Mimi sé hamingjusöm.“ „Nicole er mér mikilvægust af öllu.“ „Við eigum allt sameiginlegt," var lýsing Cruise á hjónabandi hans og Rogers. „Við gerum allt saman,“ sagði hann um samband sitt og Kidman. „Ég get ekki ímyndað mér hvern- ig það er að vera án Mimi eða að vera einn." „Mér finnst óþægilegt að vera íjarri Nicole og henni fmnst óþægi- legt að vera ekki hjá mér.“ „Við erum saman stóran hluta dagsins," sagði Cruise er hann var giftur Rogers. „Við gerum mjög margt saman,“ sagði hann um sig og Kidman. „Mimi er besti vinur rninn." „Nicole er orðin besti vinur minn.“ Tom Cruise glaðbeittur með fyrrum besta vini sín- um, Mimi Ro- gers. Morgunblaðið/Þorkell COSPER íopib - Maðurinn minn ætlaði að kyssa Lindu Péturs þeg- ar hún birtist á skjánum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.