Morgunblaðið - 03.10.1992, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 03.10.1992, Blaðsíða 20
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1992 20 Vöruskiptin hag- stæð um 1,8 millj. í JÚLÍMÁNUÐI voru fluttar út vörur fyrir 7,3 miiyarða kr. og inn fyrir 6,8 milljarða kr. fob. Vöruskiptajöfnuðurinn í júlí var því hagstæður um 0,5 milljarða Biskup vísi- terar Snæ- fellsnes- og Dalapró- fastsdæmi BISKUP íslands, herra Ólafur Skúlason, heldur næstkomandi sunnudag, 4. október, áfram vísi- tasíu sinni í Snæfellsnes- og Dala- prófastsdæmi, en biskup vígði kirkjur og söfnuði í Dölum í fyrri hluta septembermánaðar. Vísitasía biskups hefst með messu í Stykkishólmskirkju á sunnudag kl. 14. Síðdegis kl. 18 verður helgistund á sjúkrahúsinu og um kvöldið vísterar biskup Helgafellssókn. Á mánudag heim- sækir biskup Narfeyrasöfnuð kl. 14 og Breiðabólsstaðarssöfnuð kl. 21. Biskupsvísitasíunni í Snæfells- nes- og Dalaprófastsdæmi lýkur miðvikudaginn 14. október. I för með biskupi verður eiginkona hans, Ebba Sigurðardóttir, og prófast- hjónin á Hvoli, séra Ingiberg J. Hannesson og Helga Steinarsdóttir. kr. en í júlí í fyrra var hann hagstæður um 0,4 milljarða kr. á sama gengi, segir í frétt frá Hagstofu íslands. „Fyrstu sjö mánuði þess árs voru fluttar út vörur fyrir 50,6 milljarða kr. og inn fyrir 48,8 milljarða kr. fob. Vöruskiptajöfnuðurinn á þess- um tíma var því hagstæður um 1,8 milljarða kr. en á sama tíma í fyrra var hann hagstæður um 0,4 millj- arða kr. á sama gengi. Fyrstu sjö mánuði þessa árs var verðmæti vöruútflutnings 7% minna á föstu gengi en á sama tíma í fyrra. Sjávarafurðir voru um 80% alls útflutningsins og voru 10% minni en á sama tíma í fyrra. Út- flutningur á áli var 9% meiri og útflutningur kísiljáms var 31% meiri á föstu gengi en í fyrra. Út- flutningsverðmæti annarrar vöru (að frátöldum skipum og flugvélum) var 3% minna í janúar-júlí en á sama tíma í fyrra, reiknað á föstu gengi. Verðmæti vöruinnflutningsins fob fyrstu sjö mánuði ársins var tæplega 10% minna en á sama tíma í fyrra. Verðmæti innflutnings til stóriðju var 7% minna en í fyrra, verðmæti sérstakrar fjárfestingar- vöra (skip, flugvélar, Landsvirlqun) var 42% minna en í fyrra, en verð- mæti olíuinnflutnings fyrstu sjö mánuði ársins var 6% minna en á sama tíma í fyrra, reiknað á föstu gengi. Þessi innflutningsliðir eru jafnan breytilegir frá einu tímabili til annars, en séu þeir frátaldir reyn- ist annar innflutningur (82% af heildinni) hafa orðið um 8% minni en í fyrra, reiknað á föstu gengi.“ Byg,ging,amenn styðja starfsmenn ISAL FRAMKVÆMDASTJÓRN Sambands byggingamanna Iýsir fyllsta stuðningi við réttmætar kröfur starfsmanna hjá íslenska álfélaginu um að VSÍ/ÍSAL samþykki nú þegar sáttatillögu ríkissáttasenyara og tryggi starfsmönnum fyrirtækisins á þann hátt sömu kjarabætur og aðrir launþegar hafa þegar fengið. Jafnframt lætur stjóm Sambands byggingamanna í ljósi verulegar áhyggjur af þeim tvískinnungi sem fram kemur í afstöðu Vinnuveit- endasambandsins í þessu máli, þar sem það annars vegar gerir kröfur um að allir launþegar í landinu sitji við sama borð varðandi launahækk- anir, ásamt því að falla frá öllum sérkröfum, en styður hins vegar þá afstöðu íslenska álfélagsins að skil- jrrða samþykki sitt við það að starfsmenn afsali sér grundvallar- réttindum, eins og forgangsréttind- um til viðkomandi starfa. (Úr fréttatilkymnngu.) Morgunblaðið/Ámi Sæberg Fundur innflyijenda Lada í Evrópu Fundur innfiytjenda Lada bifreiða í Evrópu var haldinn hér á landi nú í vikunni, en hann sóttu fulltrúar frá Danmörku, Hollandi, Englandi, írlandi og Svíþjóð auk fulltrúa Bifreiða og landbúnaðarvéla sem hefur umboð fyrir Lada á íslandi. Á fundinn mættu einnig aðalforstjóri Lada verksmiðpunnar og útflutningsstjórifyrirtækisins. Lada hóf bíla- framleiðslu árið 1970 og framleiðir nú um 700 þúsund bíla á ári. Lada er stærsta bílaverksmiðja Rússlands og hefur hún verið einkavædd að hluta til. Verksmiðjan flytur út um 300 þúsund bíla að meðaltari á ári og nema gjaldeyritekjur vegna útflutningsins um 10% af gjaideyris- tekjum Rússlands. Á myndinni sjást talið frá vinstri: Hr. Boris, útflutn- ingsstjóri Lada, Gísli Guðmundsson, forstjóri Bifreiða og landbúnaðar- véla, og Kadanikov, aðalforstjóri Lada verksmiðjunnar. Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson Norðurlandarallið hefst við Perluna í Reykjavík og verður m.a. ekin áhorfenda- Ieið í landi Fífuhvamms í Kópavogi á fyrsta degi keppninnar til að gefa áhorfendum kost á að skoða erlendu keppnisbílana á fullri ferð. f fyrsta skipti hérlendis verður 280 hestafla fjórhjóladrifinn Mitsubishi Galant sem hefur unnið tvö rallmót í Mekka rallaksturs, Finn- landi. Ökumaður hans verður Harri Raa- manene, einn af toppökumönnum Finna. Norðurlandarallið Sterkar erlendar áhafnir í keppninni FÁIR en sterkir erlendir keppendur munu taka þátt í Norðurlanda- rallmóti Kumho og Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur dagana 9.-11. október, en þetta verður fyrsta rallkeppnin hérlendis sem gildir til Norðurlandameistaratitils. Færri keppendur koma til landsins en vænst var og slök frammistaða landsambanda akstursíþróttafélaga á Norðurlöndum veldur því. Aðeins Finnar mæta með fullt lið öku- manna, m.a. sigurvegarinn frá þvi í alþjóðarallinu í fyrra, Saku Viierima á Ford Sierra Cosworth. „Norðurlandabúar hafa alveg tapað andlitinu í þessu máli, við gerðum ráð fyrir fjöldanum öllum af keppendum og miðuðum undir- búning okkar við það. Það er mik- ill áhugi á rallinu á Norðurlöndum og á næsta ári munum við einfald- lega markaðssetja það sjálfir í stað þess að treysta á erlenda aðila. Stjóraendur landsambandanna úti brugðust að verulegu leyti," sagði Tryggvi M. Þórðarson, keppnis- stjóri rallsins, en á tímabili var talað um að 30-40 erlendir keppnis- bílar yrðu í keppninni. „En útlend- ingamir sem koma eru með öfluga bíla, fjórir öflugir Finnar og ítalir, sem setja örugglega svip á keppn- ina á móti þeim bestu íslensku. Keppnin verður góður undirbúning- ur fyrir stórmót næsta árs, sem varður kynnt af miklum krafti á komandi ári,“ sagð Tryggvi. Einn hinna fljótu Finna er Harri Ramanen, sem þrívegis hefur orðið í þriðja sæti í fínnsku meistara- keppninni. Á þessu ári hefur hann unnið á teimum stórmótum á Mitsubishi Galant 4X4 og hann stefnir á sigur í fínnska meistara- mótinu á næsta ári. Með honum ekur Maria Maninen og hefur bæði keppt sem ökumaður og aðstoða- rökumaður í rallmótum. „Við stefn- um á sigur í rallinu á íslandi, sem verður góður undirbúningur fyrir næsta ár,“ sagði Maria í samtali við Morgunblaðið. Annar ökumaður, sem örugg- lega stefnir á sigur og kemur að utan, er Saku Viierima sem vann í fyrra og ekur nú 270 hestafla Ford Escort Cosworth. „Bíllinn sem ég ek núna er ekki eins öflugur og sá í fyrra, en sjálfsagt hugsar maður gott til glóðarinnar eftir árangurinn í fyrra. Keppnin verður hörð og íslensku ökumennimir verða örugglega erfíðir núna, þeir vilja ekki láta vinna sig tvisvar í röð,“ sagði Viierima. Landi hans, Peter Geitel, sem varð þriðji í fyrra mætir á Mazda 323 að nýju. - G.R. Andstaða magnast við lagningu Fljótsdalslínu 27 ATHUGASEMDIR bárust skrifstofu Skútustaðahrepps í gær vegna fyrirhugaðrar lagningar Fljótsdalslínu samkvæmt E-leið. Þá hafa nokkrir landverðir og annað áhugafólk safnað undirskriftum frá þvi í sumar og verður lista með athugasemdum tæplega 400 manna skilað til hreppsnefndar Fljótsdalshrepps á næstu dögum. Einnig hafa 25 starfsmenn Rarik á Austurlandi mótmælt fyrirhugaðri línulögn um Ódáðahraun. Mótmælin koma fram á stöðluðu mótmælaskjali, þar sem því er hafn- að að háspennulína verði lögð yfir Ódáðahraun, samkvæmt A- og E- leiðum, m.a. á þeirri forsendu að slíkt mannvirki tilheyri byggð en ekki ósnortnu víðerai. Landverðir hafa bent á þá leið að leggja Fljótsdalslínu meðfram byggðalínunni, norður fyrir Mývatn. 25 starfsmenn Rafmagns veitna ríkisins Austurlandsveitu hafa mótmælt auglýstri línuleið, og benda á að eðlilegt sé út frá náttúruvemd- arsjónarmiðum að Fljótsdalslína 1 verði lögð með núverandi byggða- línu, frá Fljótsdal og norður fyrir Mývatn. Þeir benda á að bilanatíðni byggðalínu frá Fljótsdal í Kröflu sé með því lægsta sem gerist hér á landi. Þeir telja að með því að velja byggðalínuleið verði komist hjá stór- felldum náttúruspjöllum í Ódáða- hrauni og á Brúaröræfum. Frestur til að skila inn athuga- semdum var frá 21. ágúst til 16. október og var hann auglýstur í Lög- birtingarblaðinu. Kári Kristjánsson, sem er í forsvari fyrir landverði í Herðubreiðarlindum, sem hafa mót- mælt skipulaginu, sagði að hann hefði sent athugasemdir frá fjórtán einstaklingum til hreppsskrifstofu Skútustaðahrepps fyrir 21. ágúst og sér verið tjáð að þær yrðu ekki tekn- ar gildar. Sigurður R. Ragnarsson, sveitarstjóri Skútustaðahrepps, stað- festi þetta og sagði að þessar athuga- semdir yrðu lagðar til hliðar þar sem formgallar væru á þeim. Kári sagði að í sumar hefðu safn- ast tæplega 400 athugasemdir meðal ferðamanna, einkum erlendra ferða- manna. „Ég veit að það hafa verið sendar til þeirra athugasemdir frá því í júlí, en auglýsingin birtist ekki fyrr en í ágúst. Að því leyti er form- galli á þessu hjá okkur sem stöndum fyrir þessari mótmælaherferð. Við kynntum þessa nýju leið á grund- velli gagna frá Landsvirkjun sem síðar eru auglýst 21. ágúst, og ferða- menn skrifuðu undir mótmælayfir- lýsingu á ensku, þýsku og íslensku,“ sagði Kári. Sigurður R. Ragnarsson sveitar- stjóri Skútustaðahrepps sagði að at- hugasemdimar yrðu lagðar fyrir sveitarstjórn þegar þar að kæmi, en henni væri á engan hátt skylt að taka tillit tii þeirra. Hann minnti á að sveitarstjóm hefði fjallað um mótmæli í fyrra vegna fyrra skipu- lags og tekið undir þær að hluta. Varð það til þess að Fljótsdalslína E-leið var hönnuð, en sú leið hefur um 200 milljón kr. kostnaðarauka í för með sér fyrir Landsvirkjun, miðað við A-leið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.